Fréttablaðið - 17.04.2004, Side 2

Fréttablaðið - 17.04.2004, Side 2
2 17. apríl 2004 FÖSTUDAGUR „Það vildi svo til að við vorum í New York en hann hefur örugglega sparað.“ Illugi Gunnarsson er aðstoðarmaður Davíðs Oddssonar forsætisráðherra. George Bush Banda- ríkjaforseti notaði tækifærið og hringdi í Davíð þegar hann var í Bandaríkjunum. Spurningdagsins Illugi, tímdi Bush ekki millilandasímtali? Enn ríkir óvissa um varnarmálin Halldór Ásgrímsson segir það jákvætt að Bush Bandaríkjaforseti hafi hringt í Davíð Oddsson. Sýnir að það sé vilji til að komast að niðurstöðu um varnarmálin en óvissunni hefur þó ekki verið eytt, segir Halldór. VARNARMÁL „Það er jákvætt að for- seti Bandaríkjanna hringi í for- sætisráðherra Íslands að fyrra bragði út af þessu máli. Það hefur verið á hans borði frá því fyrir síðustu alþingiskosningar, eða eft- ir að George Robertson, þáver- andi framkvæmdastjóri NATO, fór í málið að minni beiðni,“ segir Halldór Ásgrímsson utanríkisráð- herra. Halldór segir það líka jákvætt að forseti Bandaríkjanna staðfesti það sem íslensk stjórnvöld hafi áður talið, að það væri vilji til að ná niðurstöðu um varnarmálin sem báðir aðilar geti sætt sig við. „Málið er hins vegar ekki í höfn og það ríkir ennþá óvissa um það. Þeirri óvissu hefur ekki verið eytt með þessu samtali, en að mínu mati var samtalið þýð- ingarmikið,“ segir Halldór. Utanríkisráðherra bendir á að niðurstaða um framtíð varnar- samningsins fáist ekki með ein- hverjum endanlegum sannleika um það hvaða varnir séu nauð- synlegar landinu. Hann minnir á að Colin Powell, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, hafi á sín- um tíma sagt að vera flugvélanna hér væri pólitísk skilaboð og merki um vináttu og sam- starfsvilja þjóðanna. „Samtal Bush staðfestir að málið er á réttri leið og á réttum stað, en niðurstaðan er langt frá því fengin,“ segir Halldór. Engir formlegir fundir hafa verið boðaðir í tengslum við málið að sögn utanríkisráðherra. Banda- rísk stjórnvöld hafa tekið skýrt fram að frekari fundarhöld bíði þar til úttekt á umsvifum Banda- ríkjahers á erlendri grund er lok- ið, en þau hafa verið að endur- meta sína stöðu, ekki síst vegna baráttunnar við hryðjuverka- menn. „Það er fyrst þá sem Banda- ríkjamenn verða tilbúnir til frek- ari viðræðna. Við verðum að sjálf- sögðu að bíða þar til úttektinni lýkur, en okkur er ekkert að van- búnaði í þeim efnum. Við erum ekki að leggja til breytingar og höfum tekið það skýrt fram að við viljum óbreytta stöðu þessara mála. Við teljum það nauðsynlegt vegna öryggis landsins. Enn sem komið er hefur engin veruleg breyting orðið á. Það er vitaskuld jákvætt í ljósi þess að Bandaríkja- menn lýstu því yfir, skömmu fyrir síðustu alþingiskosningar, að flug- vélarnar færu innan nokkurra vikna,“ segir Halldór. bryndis@frettabladid.is ÍRAK Óttast er að Dana og kaupsýslu- manni frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum hafi verið rænt í Írak. Uppreisnarmenn slepptu í gær nokkrum erlendum ríkisborg- urum sem teknir höfðu verið í gísl- ingu á síðustu dögum. Dönsk stjórnvöld segjast hafa undir höndum upplýsingar um að danskur kaupsýslumaður á fertugs- aldri hafi verið tekinn í gíslingu þegar hann var að aka í bíl skammt frá Bagdad. Uppreisnarmenn dul- búnir sem lögreglumenn námu arabískan kaupsýslumann á brott af hóteli í borginni Basra. Þremur tékkneskum sjónvarps- fréttamönnum, sem saknað hafði verið síðan á sunnudag, var veitt frelsi í gær. „Við erum allir heilir á húfi,“ sögðu mennirnir, sem fluttir voru í tékkneska sendiráðið í Bagdad. Þremenningarnir voru í leigubíl á leið frá Bagdad til Jórdan- íu þegar mannræningjarnir gerðu þeim fyrirsát. Kanadískum hjálparstarfsmanni af sýrlenskum uppruna, sem rænt var í borginni Najaf 8. apríl, var einnig sleppt í gær. Mannræningj- arnir fóru með hann á skrifstofu sjíaklerksins Moqtada al-Sadr í Najaf. „Fyrst börðu þeir mig og síð- an fluttu þeir mig á milli staða á nokkurra klukkutíma fresti,“ sagði gíslinn í samtali við Reuters. Ekkert hefur spurst til Palest- ínumanns sem tekinn var í gíslingu ásamt Kanadamanninum. Á þriðja tug er- lendra ríkisborgara er enn saknað í Írak og er talið að þeir séu í haldi uppreisnarmanna. ■ HERMENN SPJALLA SAMAN Bandarískur hermaður lýsir skotbardaga fyrir félögum sínum í Fallujah í Írak. Umsátrið í Fallujah: Formlegar samninga- viðræður FALLUJAH, AP Fulltrúar frá Banda- ríkjaher og borgaralegum yfirvöld- um í Írak funduðu með leiðtogum uppreisnarmanna í Fallujah í gær. Bandaríkin samþykktu að flytja hermenn sína til að tryggja íbúum borgarinnar beinan aðgang að aðal- sjúkrahúsi borgarinnar. Viðræðum verður haldið áfram í dag en mark- miðið er að stöðva blóðbaðið í Fallu- jah og koma á lögum og reglu í borginni, að sögn talsmanns banda- rísku samninganefndarinnar. ■ Pharmaco: Setur lyf á markað VIÐSKIPTI Pharmaco hefur sett á markað nýtt samheitalyf í Evr- ópu. Tilkynning um þetta var gef- in út eftir lokun markaða í gær. Einkaleyfi á lyfinu féll úr gildi í gær en um er að ræða hjarta- og þvagræsilyf. Lyfið er framleitt af dótturfyr- irtæki Pharmaco á Möltu og er fyrirhugað að flytja út fimmtíu milljón töflur á markaði í Evrópu. Í Vegvísi Greiningardeildar Landsbankans er Pharmaco gagn- rýnt fyrir að frétt um samheitalyfið hafi birst á heimasíðu dótturfyrir- tækisins á Möltu áður en tilkynning var send á Kauphöll Íslands. ■ Sólveig Pétursdóttir: Tímabær skilaboð STJÓRNMÁL Sólveig Pétursdóttir, formaður utanríkismálanefndar Alþingis, segir samtal Banda- ríkjaforseta við Davíð Oddsson hafa verið mikilvægt og að í þeim hafi falist jákvæð skilaboð. Hún segir sérstaklega atyglis- vert hve vel forsetinn sé inni í þessum málum. „Það var mjög gott að forsetinn skyldi tjá sig á þennan hátt því skilaboðin frá Bandaríkj- unum hingað til hafa verið nokkuð óljós svo ekki sé meira sagt. Það var því fyllilega tímabært að við fengjum þau skilaboð að finna yrði viðunandi lausn,“ segir Sólveig. Hún segir einnig að samtalið sé til marks um hversu gott samband sé á milli Davíðs og forseta Bandaríkjanna. „Ég tel að þetta samtal sé rós í hnappagatið hjá Davíð Oddssyni og sýni hversu vel hann hefur haldið á þessum málum,“ segir hún. ■ BJARGAÐI FÓLKI ÚR LYFTU Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út að Suðurlandsbraut 6 skömmu fyrir klukkan sex í gærkvöldi til að aðstoða fólk sem festst hafði í lyftu. Aðgerðir slökkviliðsins tóku rúmar tuttugu mínútur. Fjöldi fyrirtækja er með aðsetur í húsinu. TEKNIR FYRIR INNBROT Lögregl- an á Akranesi handtók tvo menn í gær vegna innbrots í fyrirtæki og gröfu. Stolið var tölvubúnaði úr fyrirtækinu og talstöð úr gröf- unni. Mennirnir höfðu einnig gert tilraun til innbrots í skip en var stökkt á flótta. Málið telst upplýst. SMÁBRUNI Á AKUREYRI Húsráð- andi og nágranni hans réðu niður- lögum elds sem kviknaði í eld- húsi íbúðarhúss á Akureyri í gær. Kviknað hafði í út frá eldavéla- hellu. Minniháttar skemmdir urðu en engan sakaði. Göng milli lands og Eyja: Ekki þjóðhagslega hagkvæm SAMGÖNGUMÁL Hagfræðistofnun Háskóla Íslands kemst í nýrri skýrslu að þeirri niðurstöðu að gerð jarðganga til Vestmannaeyja væri þjóðhagslega óhagkvæm. Í niðurstöðum skýrslunnar kemur fram að kostnaður við gerð ganga mætti nema allt að 25,6 milljörð- um króna til þess að framkvæmd- in teldist hagkvæm en samkvæmt mati frá verktaka- og ráðgjafar- fyrirtækinu Mott McDonald og Línuhönnun nemur kostnaður við gerð ganga um 38 milljörðum króna. Í þessum tillögum er gert ráð fyrir átján kílómetra löngum göngum frá Vestmannaeyjum sem kæmu að landi við Kross í Landeyjum. Í mati Hagfræði- stofnunar er gert ráð fyrir að framkvæmdirnar tækju sex ár og hæfust nú þegar. Við rannsóknina var til dæmis notast við ýmsar leiðir til að leggja mat á umferð- arþunga um ætluð göng. Í forsendunum er gert ráð fyr- ir því að veggjald um göngin yrði tvö þúsund og fimm hundruð krónur fyrir fólksbíla en þrisvar sinnum hærra fyrir vöru- og fólksflutningabíla. ■ FRELSINU FEGNIR Uppreisnarmenn í Írak slepptu í gær þremur tékk- neskum sjónvarpsfrétta- mönnum sem teknir voru í gíslingu á sunnudag. Á annan tug erlendra ríkisborgara í haldi uppreisnarmanna: Dönskum kaupsýslumanni rænt ■ Lögreglufréttir HERJÓLFUR Samkvæmt mati Hagfræðistofnunar er lagning jarðganga til Vestmannaeyja ekki þjóð- hagslega hagkvæm. Nú þarf að ferðast með Herjólfi eða flugvél til að komast til Eyja. HALLDÓR ÁSGRÍMSSON Utanríkisráðherra segir að samtal Bush bandaríkjaforseta við Davíð Oddsson sýni að við- ræður um framtíð varnarliðsins hér á landi séu á réttri leið, en niðurstaða sé þó langt í frá fengin. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA ■ „Þetta samtal Bush staðfestir að málið er á réttri leið og á réttum stað, en niðurstaðan er langt frá því fengin.“

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.