Fréttablaðið - 17.04.2004, Síða 8

Fréttablaðið - 17.04.2004, Síða 8
HEILBRIGÐISMÁL Landsmenn notuðu bólgueyðandi lyf og gigtarlyf fyrir 660 milljónir króna á síðasta ári. Kostnaður við einungis þessi lyf jókst um hvorki meira né minna um 90 milljónir króna. Þar munar mest um svokölluð coxib- lyf, sem eru tiltölulega ný af nál- inni en mjög dýr. Heildarsala þeirra úr apótekum nam 257 millj- ónum króna með virðisaukaskatt á síðasta ári. Coxib-lyfin vega því þungt í heildarlyfjakostnaði landsmanna, þegar um er að ræða bólgueyðandi og gigtarlyf. Þetta kemur fram í nýjum töl- um heilbrigðisráðuneytisins um notkun landsmanna á gigtarlyfj- um og bólgueyðandi lyfjum á ár- unum 1994-2003. Almennri greiðsluþátttöku í þessum lyfjum verður nú hætt í sparnaðarskyni, samkvæmt ákvörðun ráðuneytis- ins. Innflutningur á coxib-lyfjum hófst árið 2000. Á því ári nam notkunin tæplega fjórum dag- skömmtum á hverja þúsund íbúa. Á síðustu þremur árum ríflega þrefaldaðist notkunin. Þá hefur notkun á öðrum lyfja- flokki, sem inniheldur íbúfen, meir en fjórfaldast á undanförn- um árum, frá 1994-2003. Eggert Sigfússon, lyfjafræð- ingur hjá heilbrigðisráðuneytinu, sagði að þótt notkun þessarar nýju lyfja hefði aukist verulega þá væri athyglisvert að ekki drægi úr notkun annarra gigtar- og bólgueyðandi lyfja sem verið hefðu fyrir á markaðinum. „Almennur árangur af þessum nýju lyfjum er meðferðarlega ekkert betri heldur en af eldri lyfjunum,“ sagði Eggert. „Þó kemur fyrir að þeir sem ekki þola eldri lyfin geti notað hin nýrri, því þau fara betur með magann.“ Spurður um aukaverkanir cox- ib-lyfjanna sagði hann að varað hefði verið við aukaverkunum í hjarta ef fólk væri veilt fyrir. jss@frettabladid.is 8 17. apríl 2004 LAUGARDAGUROrðrétt SPÁNN, AP Jose Luis Rodriguez Zapatero, leiðtogi Sósíalista- flokksins og nýkjörinn forsætis- ráðherra Spánar, heitir því að berjast af krafti gegn hryðjuverk- um og gera úrbætur á velferðar- kerfinu til að bæta stöðu kvenna, samkynhneigðra og fjölskyldu- fólks. Spænska þingið samþykkti skipan Zapateros í gær. 183 þing- menn af 350 greiddu honum at- kvæði sitt að loknum eins og hálfs dags þingumræðum. „Komum okkur að verki“ sagði Zapatero þegar úrslitin voru kunngjörð. Sósíalistaflokkurinn, sem áður var í stjórnarandstöðu, vann óvæntan sigur í þingkosningunum 14.mars, þremur dögum eftir að hryðjuverkaárásina í Madríd sem kostaði 191 mann lífið. Flokkurinn fékk 164 þingsæti og vantar því tólf sæti upp á hreinan meirihluta en nokkrir smærri flokkar styðja sósíalista. Zapatero var andvígur innrás Bandaríkjanna í Írak ólíkt forvera sínum Jose Maria Aznar. Nýi for- sætisráðherrann hefur heitið því að kalla spænskar hersveitir heim taki Sameinuðu þjóðirnar ekki við friðargæslu í Írak fyrir 30.júní. „Við verðum að draga Spán út úr heimsstyrjöldinni“ segir Zapa- tero. ■ Þrautseigur Indverji: Þreytir lokapróf í 35. skiptið INDLAND Tæplega sjötugur Ind- verji er nú að búa sig undir loka- próf í menntaskóla. Eitthvað hef- ur skólagangan vafist fyrir Shyoram Yadav, því frá árinu 1969 hefur hann reynt að ná loka- prófinu en alltaf fallið. Þessi brokkgenga skólaganga hefur haft víðtæk áhrif á líf Yadav því í viðtali við BBC sagð- ist hann ekki ætla að gifta sig fyrr en hann hefði náð prófinu. „Menntunin er einfaldlega það mikilvægasta í lífinu,“ segir Yadav. Það er ekki neitt eitt fag sem hefur vafist sérstaklega fyrir Yadav heldur hefur hann fallið á mismunandi prófum frá ári til árs. ■ DAGBLAÐIÐ VÍSIR 87. TBL. – 94. ÁRG. – [LAUGARDAGUR 17. APRÍL 2004 ] VERÐ KR. 295 ÞjóðleikhússtjórinnKlofningur meðal leikhúskvenna Samfésþjófur Stal 5milljónum og sóaði íafríska svikamyllu Konan sem skekur Hæstarétt Hjördís Hákonardóttir dómstjóri í nærmynd DV.Samviskusöm, vinnusöm og fáguð heimskona.Hafnað af dómsmálaráðherra en gefst aldrei upp. Hjördís er sögð háttvísi héraðsdómarinn. Bls. 9Uppáhaldsfrændi Davíðs Játaði fáfræði í Evrópurétti og konan þorir ekki lengur að lesa dagblöðin Bls. 8 Háttvísi héraðsdómarinn Bls. 15 Bls. 16 Augnsamband við könguló „Mér er illa við pöddur. Sérstak- lega er mér illa við köngulær. Ég rakst á eina úti í New York síð- asta sumar sem var svo stór að ég náði augnsambandi við hana.“ Jón Gnarr ræðir um það sem hann óttast mest. Morgunblaðið, 16. apríl. Enginn efast um þetta „Björn [Bjarnason] er heiðarleg- ur og grandvar maður og vill gera hlutina rétt.“ Gunnar I. Birgisson þingmaður um jafnréttis- málin og dómsmálaráðherra. DV, 16. apríl. Var þetta þetta þá Opinber- un Davíðs? „Nú eru sjónarmið forsætisráð- herra gagnvart opinberum eftir- litsstofnunum yfirleitt kannski ekki sérstaklega jákvæð, eins og endurspeglaðist í myndinni um Opinberun Hannesar...“ Birgir Guðmundsson fjallar um gagnrýni forsæt- isráðherra á eftirlitsstofnun EFTA. Fréttablaðið, 16. apríl. Zapatero kjörinn forsætisráðherra Spánar: Lýsir stríði á hendur hryðjuverkamönnum NÝR FORSÆTISRÁÐHERRA SPÁNAR Jose Luis Rodriguez Zapatero, 43 ára lögfræðingur, hefur tekið við embætti forsætisráð- herra á Spáni. GIGTARLYFIN VEGA Æ ÞYNGRA Landsmenn innbyrtu gigtarlyf og bólgueyðandi lyf fyrir 660 milljónir í fyrra. Mestu munar um notkun nýjustu flokka gigtarlyfja. Gigtarlyf fyrir 660 milljónir króna Landsmenn slógu öll met í notkun gigtarlyfja í fyrra og jókst kostnaður vegna lyfjanna um 90 milljónir frá fyrra ári. Notkun nýjustu gigtarlyfjanna hefur þrefaldast á síðustu þremur árum og nota Íslendingar ríflega tvöfalt meira af lyfjunum en önnur norræn lönd. SUÐUR KÓREA, AP Dick Cheney, varaforseti Bandaríkjanna, skor- aði á bandamenn Bandaríkjanna í Asíu sem hafa herlið í Írak að vera staðfastir gagnvart þeirri ógn sem nú ríki í Írak vegna upp- reisnar og gíslatöku. Cheney sem fundaði með æðstu ráðamönnum Suður-Kóreu þakkaði þeim fyrir þann stuðning sem þeir hefðu veitt Bandaríkjun- um í Íraksstríðinu en Suður-Kórea hefur bæði herlið í Írak og Afganistan. Cheney lauk opinberri heim- sókn sinni í Asíu í gær eftir að hafa heimsótt Kína, Japan og Suð- ur-Kóreu síðustu daga. Áður en hann fór hvatti hann ráðamenn þessara þjóða til að gera meira til að reyna að hamla kjarnorku- vopnaáætlun Norður-Kóreu. Hann sagði að ef Norður-Kóreumenn fengju að þróa kjarnorkuvopn sín myndi skapast gríðarleg hætta á því að þau yrðu seld hæstbjóð- anda, þar með talið al-Kaída. ■ CHENEY Þakkaði Suður-Kóreumönnum stuðninginn. Cheney kemur heim frá Asíu: Hvatti bandamenn í stríðinu í Írak

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.