Fréttablaðið - 17.04.2004, Síða 21

Fréttablaðið - 17.04.2004, Síða 21
LAUGARDAGUR 17. apríl 2004 ■ Maður að mínu skapi 21 Ótrúlega frjó og fjölhæf Maður að mínu skapi er ÓlafíaHrönn Jónsdóttir leikkona. Hún er heiðarleg, bæði í lífinu og listinni. Hún er ótrúlega frjó og fjölhæf. Hún getur sungið, dansað og semur tónlist – bæði lög og texta,“ segir Halldóra Geirharðs- dóttir um kollega sinn og ítrekar: „Hún er ótrúlega fjölhæf“. Halldóra og Ólafía Hrönn kynntust þegar þær voru settar saman í lið fyrir sjónvarpsþáttinn Dagsljós. Halldóra var þá nýút- skrifuð úr leiklistarskólanum en Ólafía Hrönn, sem oftast er kölluð Lolla, hafði út- skrifast sex árum fyrr. „Hún kenndi mér að segja brandara og hefur kennt mér ótrúlega margt við grín og svoleiðis,“ segir Halldór. „Við höfum aldrei leikið saman í leikhús- unum en höfum skemmt mikið saman. Svo erum við með barnasýningu um Ýmu tröllastelpu sem fjallar um einelti. Það er leikrit fyrir 6–8 ára krakka sem Lolla gerði leikgerð- ina við upp úr litabók. Við höfum unnið saman öðru hvoru og það er alltaf jafn gaman,“ segir Halldóra og á ekki í neinum vandræðum með að lýsa aðdáun sinni á Lollu. „Hún er þvílíkur hafsjór af hug- myndum og áræðni. Hún er mað- ur að mínu skapi af því að hún hefur hreinan aðgang að sköpun- arkraftinum.“ ■ Ný tækni hjá Sony: Stafrænn pappír Útgáfurisinn Sony hefur fundiðupp nýjan disk til að geyma starfræn gögn sem er að mestu leyti gerður úr pappír. Uppfinningin kemur í kjölfar þróunar á nýrri DVD-tækni sem kynnt var í Japan á síðasta ári. Ódýrar verður að framleiða diskinn sem og að eyða honum, en rúmlega helmingur efnisins sem notað er í gerð hans er pappír. Diskurinn mun auk þess geta tekið við um fimmfalt meira efni en hinn hefðbundni diskur. Sony framleiðir hinn nýja disk í samvinnu við Toppan Publishing fyrirtækið. ■ Latibær frumsýndur í Sólheimum á sumardaginn fyrsta: Fimm leika Sollu stirðu Leikfélag Sólheima frumsýnirleikritið Latabæ eftir Magnús Scheving á sumardaginn fyrsta, þann 22. apríl. „Æfingar hafa gengið rosalega vel og það er mikill áhugi fyrir sýningunni,“ segir Anna Margrét Bjarnadóttir, starfsmaður á Sól- heimum, en íbúar þar hafa æft stíft frá því í október undur leik- stjórn Eddu Björgvinsdóttur. Boðskapur Latabæjar fellur vel að hugmyndum Sólheima um vistvæna byggð. „Þema Latabæj- ar um hollara líferni fellur svo vel að starfseminni hér. Þetta hefur verið eins og vítamínsprauta inn í íþróttalífið og lífið á staðnum,“ segir Anna Margrét, en um þrjá- tíu manns koma að sýningunni. Leikfélag Sólheima hefur þá sérstöðu að þar starfa saman á jafnréttisgrundvelli fatlaðir og ófatlaðir, fullorðnir og börn, og fólk af ýmsum þjóðernum. Sú leið var valinn að láta fleiri en einn leikara glíma við hvert hlutverk. „Það eru minnst tveir um hvert hlutverk og þar sem margar stúlkur vildu leika Sollu stirðu eru þær fimm talsins,“ segir Anna Margrét. „Reyndar er bara einn íþróttaálfur því sú sem leikur hann er mikil íþróttastúlka og það eru ekki margir sem geta farið í hennar spor.“ Tónlistin við Latabæ er eftir Mána Svavarsson. Gunnar Sig- urðsson og Skúli Gautason sáu um hönnun lýsingar en búningar og leikmynd er samvinnuverkefni félaga leikfélagsins. Kaffihúsið Græna kannan verður opið í tengslum við sýning- arnar og þar verður boðið upp á veitingar úr lífrænum hráefnum. Leikfélag Sólheima er eitt elsta áhugamannaleikfélag landsins og hefur starfað óslitið í 73 ár. Hefð hefur skapast fyrir því að frum- sýna nýtt leikrit á sumardaginn fyrsta allt frá því að Sesselja Hreindís Sigmundsdóttir stofnaði leikfélagið árið 1931. Latibær verður sem fyrr segir frumsýndur á sumardaginn fyrsta klukkan 14 en frekari upp- lýsingar um sýningar má nálgast á heimasíðunni solheimar.is. ■ HALLDÓRA GEIR- HARÐSDÓTTIR Kynntist Ólafíu Hrönn við tökur á sjónvarpsþætti. ÓLAFÍA HRÖNN JÓNSDÓTTIR Hún hefur hreinan aðgang að sköpunar- kraftinum að mati Halldóru Geirharðsdótt- ur. Getur bæði sungið og dansað. Hér er hún í sýningunni Þetta er allt að koma. SIGGI SÆTI Bæði ungur og gamall. HALLUR OG HALL HREKKJUSVÍN Hrekkjusvínin eru af báðum kynjum.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.