Fréttablaðið - 17.04.2004, Síða 23

Fréttablaðið - 17.04.2004, Síða 23
Smáauglýsingar byrja í dag á bls. 8 Flokkar & fjöldi Bílar & farartæki 267 stk. Keypt & selt 52 stk. Þjónusta 53 stk. Heilsa 11 stk. Skólar & námskeið 2 stk. Heimilið 30 stk. Tómstundir & ferðir 10 stk. Húsnæði 50 stk. Atvinna 35 stk. Tilkynningar 6 stk. Fimmta kynslóð af Golfi BLS. 2 Góðan dag! Í dag er laugardagurinn 17. apríl, 108. dagur ársins 2004. Reykjavík 5.48 13.27 21.09 Reykjavík 5.25 13.12 21.01 Heimild: Almanak Háskólans Sólarupprás Hádegi Sólarlag Þú færð líka allt sem þig vantar á Ég bregð stundum fyrir mig súpugerð ef ég þarf að snara fram mat með stuttum fyrirvara. Það er eiginlega leynivopnið mitt í eldhúsinu,“ upplýsir tónlistarmaður- inn Eyþór Gunnarsson. Hann bendir líka á að súpur séu góðar, fljótlegar og hollar. Eyþór er greinilega hallur undir austur- lenska matargerð því hann ber mikið lof á veitingastaðinn Síam, sem eitt sinn var á Skólavörðustígnum en er nú fluttur að Dalshrauni 11 í Hafnarfirði, og það kemur í ljós að hann hefur farið á námskeið hjá vertinum Kim. „Þar kynntist maður grunn- inum að taílenskri og kínverskri matar- gerð, meðhöndlun krydda og fleiru áhuga- verðu,“ segir Eyþór. Hann kveðst stundum laga snöggsteikta rétti á austurlenskan máta úr kjúklingi og grænmeti sem sé bæði léttur matur og hollur. Svo bakar hann líka brauð, meðal annars focaccia- brauð úr smiðju sjónvarpskokksins nakta, Jamie Oliver. Súpan er samt leynivopnið og að lokum miðlar hann okkur uppskrift að einni aust- urlenskri sem hann kveðst hafa lært að elda hjá kunningja sínum í Danmörku. Kókossúpa 2 dós kókosmjólk 2 skalotlaukar, smátt skornir 1 stilkur sítrónugras, smátt skorið 2 msk. galangarót (siam-engifer), smátt skorin 2 tsk. marinn hvítlaukur 1/2 l vatn 1 stk. kóríanderrót (sem soðin er með og síðan fjarlægð) 250 g þunnt skorinn kjúklingur eða kalkúnn 1-2 msk. fiskisósa í flösku 2 msk. limesafi Kókosmjólk, laukur, sítrónugras, engifer- rót, hvítlaukur, vatn og kóriander soðið í 15 til 20 mínútur. Þá er kjötinu bætt útí og soðið þar til það er meyrt. Súpan bragð- bætt með fiskisósunni og limesafanum og puntuð með ferskum kóriander og gras- lauk. 2-3 rauður chilli er skorinn smátt og borinn fram ferskur í skál. Þá getur hver og einn skammtað sér að vild. ■ Leynivopnið mitt: Snarar fram súpum með stuttum fyrirvara bilar@frettabladid.is Öflugasti Volvobíll fyrr og síðar er væntanlegur til landsins. Mikil þróun hefur átt sér stað hjá Volvo undanfarin ár og hafa nýir bílar ver- ið kynntir árlega undanfarin fimm ár. Sem fyrr er lögð höfuðáhersla á öryggi, endingu og þægindi hjá Vol- vo en nýjar áherslur í hönnun hafa gerbreytt ásjónu bílanna. Á næst- unni mun Brimborg flytja til lands- ins öflugasta Volvobíl fyrr og síðar, 300 hestafla Volvo S60R, sem hefur allt það besta sem Volvo hefur upp á að bjóða. Bíllinn verður frumsýnd- ur 20.-23. maí á sportbílasýningu í Laugardalshöll. Hönnunarvika húsgagna stendur nú yfir í Mílanó og af því til- efni var þessi Fiat Panda Alessi-bíll frumsýndur í Triennale-safninu í Mílanó. Bíllinn var eins og nafnið gefur til kynna hannaður í samstarfi við Alessi-hönnunarfyrirtækið. Alessi hefur meðal annars hannað innrétt- ingar og hluti fyrir bað og eru þær vörur fáan- legar á Íslandi. Cadillac er draumabíll en kannski fjarlægur draumur margra. Þessi Cadillac SRX var pússaður vel og vandlega áður en hann var sýnd- ur á alþjóðlegu bílasýningunni sem nú fer fram í Leipzig. Um 430 sýn- ingaraðilar frá 18 löndum sýna bíla á sýningunni, sem hefst í dag og stendur yfir til 25. apríl. Volvo lánar bíla í brúðkaup Friðriks krónprins Danmerkur og Mary Donaldson, sem fram fer í næsta mánuði. Hvorki meira né minna en 80 eðalvagnar verða sendar yfir sundið frá sænsku Volvo- verksmiðjunum til grannþjóðarinnar. Fínustu gestirnir verða sóttir á flug- völlinn og keyrðir þangað sem þeir vilja á glæsibílunum. S80-týpan verður lánuð í aksturinn og er verið að leggja lokahönd á bílana í verk- smiðjunum í Gautaborg. Bílarnir verða að sjálfsögðu kóngabláir að lit. Þeim verður ekið á sænskum númeraplötum til Helsingjaborgar. Þar tekur sérstök ferja við farminum og siglir sérlega gætilega yfir sundið til Helsingjaeyrar. Þar verður skipt yfir á danskar númeraplötur og dönskum bílstjórum kennt á gripina. Á brúðkaupsdaginn sjálfan munu svo milljónir sjónvarpsáhorfenda sjá bílunum bregða fyrir og uppátækið því ágætis auglýsing fyrir Volvo. Vol- vo S80 er lúxustýpa Volvo og kostar 7-10 milljónir. BMW hefur aldrei selt jafn marga bíla á einum mánuði og nú í mars. Í ársfjórðungsuppgjöri BMW Group, sem selur BMW og Mini, kemur fram að aukningin milli ára var 10%. Alls seldust 98.017 BMW-bílar í mánuðinum (+10,8% miðað við fyrra ár) og 19.737 Mini-bílar (+6,6% miðað við fyrra ár). 50 Rolls-Royce bifreiðar voru afhent- ar í mars. Söluaukningin í mars nær til allra helstu markaðssvæða BMW. Í Þýskalandi var aukningin rúm 8%. Sömu sögu er að segja um Bandaríkin en í Asíu er BMW áfram í mikilli uppsveiflu og þar voru af- hendingar 28,2% fleiri en í fyrra. BMW tilkynnti í síðustu viku að framleiðsla í BMW-verksmiðjunum í Graz í Austurríki yrði aukin úr 300 bílum á dag í 400 til að mæta eftir- spurn. Eyþór Gunnarsson Kann ýmislegt fyrir sér í eldamennskunni. Smáauglýsingar á 750 kr. visir.is SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 Liggur í loftinu FYRIR BÍLA Yaris T-Sport árg. ‘02 ek. 33 þús. Upplýsingar í síma 661 9083. Til sölu sófasett 3+1+1. Lítur vel út. Verð: Tilboð. Upplýsingar í síma 893 6072. FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR VIÐBURÐIR BÍLAR ATVINNA FJÁRMÁL TÍSKA NEYTENDUR o.fl. Fr ét ta bl að ið /G VA Rapparar: Halda upp á Benz Mercedes Benz er langvinsælastur bíla á meðal rappara – að minnsta kosti ef marka má hvaða bíla þeir nefna á nafn í textum sínum. Samkvæmt könnun breska bílablaðsins Car var Benz nefndur 112 sinnum á nafn í rapptextum á síðasta ári. Í kjölfarið kom Lexus, sem var nefndur 48 sinnum og því töluvert langt á eftir Benz. Rapparinn 50 Cent minntist til dæmis á Benz í fjórum lög- um sínum á síðasta ári, þar á meðal í laginu 21 Questions sem er óður til kærustu hans. Þar spyr hann hvort hún myndi láta sig hverfa ef hann hætti að aka um á Benz og skipti yfir í einhverja bíldruslu eða „If I went back to a hoopty from a Benz would you poof and disappear like some of my friends?“ eins og hann orðaði það sjálfur. ■ Merki Textar Mercedes-Benz 112 Lexus 48 Cadillac 46 Lamborhini 34 Chevrolet 33 Range Rover 29 Bentley 28 Jeep 23 Buick 21 50 Cent Elskar Benz. Benz Vinsælastur meðal rappara. Gott með súpunni: Focacciabrauð 1 kíló hveiti 6 dl volgt vatn 30 g blautger eða 3 tsk. þurrger 2 msk. sykur 2 sléttfullar msk. sjávarsalt Gerið er leyst upp í volgu vatninu. Þurrefnin eru sett í haug á borð og bú- inn til gígur í þau. Þar ofan í er vatninu hellt og allt er hrært vel saman og síð- an hnoðað. Já hnoðað vel, jafnvel sleitulaust í 4-5 mínútur eða þar til deigið er silkikennt og teygjanlegt. Þá er það látið lyfta sér undir dúk í hálf- tíma. Slegið niður tvívegis og látið lyfta sér aftur. Bakað í heitum ofni og borðað með lotningu. Þetta ljóð kallast „Grátandi faraó í gúmmískóm situr Evrópuþing tryggingasala í samhliða alheimi sköpuðum af bandalagi örvhentra skoffína meðan lækjarkliður í þreföldu gleri þrábiður asbestklofning um hundamat sem borinn er fram í skóflu með fasískum makkarónuskreytingum og eyrnamergi, Kasper, Jesper og Jónatan!“ Og hef ég þá lesturinn!

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.