Fréttablaðið - 17.04.2004, Síða 41

Fréttablaðið - 17.04.2004, Síða 41
BECKHAM VERÐLAUNAÐUR David Beckham fékk á dögun- um sérstök verðlaun á The Brit- ish Book Awards, en engin bresk bók hefur selst jafn hratt og sjálfsævisaga hans My Side. Um 103.000 eintök seldust af bókinni fyrstu vikuna sem hún var á markaði og hún hefur nú selst í rúmlega milljón eintök- um. Leikarinn Tom Watt skráði frásögn Beckhams. Beckham var ekki viðstaddur athöfnina því hann var í frönsku Ölpunum að sættast við eiginkonu sína eftir linnulausan fréttaflutning breskra blaða af framhjáhald hans. BÓK UM INNRÁS NAPÓLEONS FÆR FRÁBÆRA DÓMA Ný bók um innrás Napóleons í Rússland árið 1812 fær frábæra dóma í Sunday Times. Titill bókarinnar er 1812: Napoleon’s Fatal March on Moscow. Höfundur bókarinn- ar er Adam Zamoyski og gagn- rýnandinn, Michael Burleigh, segir að bók hans, sem er 643 síður, sé svo framúrskarandi að ómögulegt sé að leggja hana frá sér. Hann segir Zamoyski hafa einstaka hæfileika til að sjá bæði heildarmyndina og þau smáatriði sem skipta máli. Efni bókarinnar er vissulega dramat- ískt. Í innrásarher Napóleons voru á milli 500 og 600 þúsund manns og 400 þúsund þeirra lét- ust í Rússlandi. Mannfall Rússa var svipað, þannig að alls féllu um milljón manns í þessari van- hugsuðu innrás. „Þetta er stór- kostleg bók um það sem kalla mætti fyrsta allsherjarstríðið,“ segir gagnrýnandinn. LAUGARDAGUR 17. apríl 2004 ■ Sagt og skrifað Sextíu ára gömul ráðgáta umhvarf Antoine de Saint- Exupéry hefur nú verið leyst. Kennsl hafa verið borin á flak flugvélar hans en Saint-Exupéry hvarf í júlímánuði 1944 eftir að hafa lagt upp í rannsóknarflug fyrir franska herinn. Saint-Exupéry er höfundur skáldsögunnar ástsælu Litla prinsins, sem hefur verið þýdd á yfir hundrað tungumál og selst ár- lega í rúmlega milljón eintökum víðs vegar um heim. Saint- Exupéry er eini franski rithöfund- urinn sem hefur hlotið þann heið- ur að fá mynd sína á franska pen- ingaseðla. Flugvöllur og skólar hafa einnig fengið nafn hans. Saint-Exupéry var 43 ára gam- all þegar hann týndist. Árið 1998 fann franskur fiskimaður í neti sínu silfurarmband sem hafði til- heyrt rithöfundinum. Kafarar fundu einnig búta úr flaki flugvél- ar hans. Frönsk yfirvöld vildu þó af einhverjum ástæðum ekki veita þessum uppgötvunum at- hygli. Á síðasta ári gáfu þau loks leyfi til að flakið, sem vitað var að lægi á sjávarbotni, væri flutt í land. Enginn veit hvað raunverulega gerðist; hvort vélarbilun varð, hvort Saint-Exupéry veiktist skyndilega við stýri eða, eins og sumir vilja halda fram, hann hafi fyrirfarið sér með því að steypa vélinni í sjóinn. Sérfræðingar segja ljóst að flugvélin hafi verið á miklum hraða þegar hún féll lóð- rétt í sjóinn. ■ Ég var rétt í þessu að ljúka viðbók Ásgeirs Jakobssonar, Fanginn og dómarinn, sem fjallar hin svokölluðu Skúlamál og Sig- urð skurð, þann margbrotna Vest- firðing sem almannarómur hefur álitið morðingja og illmenni allt frá 1892. Þarna kemur Ásgeir til varnar einstaklingi sem átt hefur sér formælendur fáa og gerir það af virðingu og nærfærni,“ segir Garðar Sverrisson formaður Öryrkjabandalagsins, sem er lesandi vikunnar. „Af öðru sagnfræði- legu efni las ég síðast bók A.J.P. Taylor, Hitler og seinni heimsstyrjöldin, í þýðingu Jóns Þ. Þór. Í þessari bók er innanríkis- stefna Hitlers aðgreind frá stefnu hans í utanríkismál- um og upphaf heimsstyrj- aldarinnar ekki síður rakið til ósveigjanleika Bandamanna. Taylor sýnir með sannfær- andi dæmum að allt fram til 1939 hafi meginmarkmið Þjóð- verja, ekki bara nasista, fyrst og fremst verið að knýja hin sigur- glöðu heimsveldi til að hverfa frá óraunhæfum friðarskilmálum, einkum hinni illa grunduðu inn- limun þýskumælandi svæða í önn- ur ríki Evrópu. Mest hef ég þó verið að lesa í ýmsum kaþólskum bókum og rit- gerðasöfnum sem ég hef á síðustu árum keypt við hóflegu verði hjá Torfa Ólafs- syni í kaþólsku bóka- búðinni við Hávalla- götu, sem opin er milli þrjú og fjögur á mið- vikudögum og eftir hámessu á sunnudög- um. Margir þessara gullmola eru einmitt þýddir af Torfa sjálf- um, sem unnið hefur mjög merkilegt starf í þágu k a þ ó l s k u kirkjunn- ar. Loks hef ég verið að endurnýja kynni mín við bók Friðriks Ólafs- sonar, Við skákborðið í aldarfjórð- ung. Í þessar bók skýrir Friðrik sjálfur fimmtíu valdar sóknar- skákir sínar þar sem í valnum liggja flestir sterkustu skákmenn heims á síðari hluta tuttugstu ald- arinnar. Engin skákbók hefur sýnt mér betur en þessi hve skáldlegt innsæi í bland við einbeittan sig- urvilja getur gert skákina að ómótstæðilegri listgrein. Fyrir mér nálgast þetta að vera spennu- saga, enda ferðast maður með Friðriki milli stórmótanna, upplif- ir andrúmsloftið og tekur þátt í að leggja að velli hvern stórmeistar- ann á fætur öðrum. Af jólabókunum situr fastast í mér bók Ólafs Gunnarssonar, Öxin og jörðin. Fléttan snilldar- lega ofin og bókin öll eitt stór- fenglegt meistaraverk.“ ■ GARÐAR SVERRISSON „Af jólabókunum situr fastast í mér bók Ólafs Gunnarssonar, Öxin og jörðin. Fléttan snilldarlega ofin og bókin öll eitt stórfenglegt meistaraverk.“ Sagnfræði og kaþólsk rit Loks hef ég verið að endurnýja kynni mín við bók Friðriks Ólafs- sonar, Við skákborðið í aldarfjórðung. ,, ANTOINE DE SAINT-EXUPÉRY Höfundur Litla prinsins hvarf fyrir 60 árum en ráðgátan hefur nú að hluta til verið leyst. Ráðgátan um hvarf Saint-Exupéry DAVID BECKHAM Hefur ekki átt sjö dagana sæla, en fékk þó verðlaun nýverið fyrir hraðmetsölu á ævisögu sinni. NAPÓLEON Fór með 500 til 600 þúsund manna her inn í Rússland. Um 400 þúsund þeirra létust.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.