Tíminn - 21.12.1972, Page 3

Tíminn - 21.12.1972, Page 3
JoLABLAÐ 1972 TÍMINN 3 -* •. J* ^Ö-'vr * ö é Fif- Böðvar Guðlaugsson: Söngur jólasveinsins r o § F fíf- Þið vitið fullvel, flónin min, að fyrir sérhver jól hún Grýla mamma sendir sina syni alla á ról, sem bezta móðir býr hún okkur bræðurna af stað, með niðþykk skjólföt, nýja skó og nesti, auðvitað. Hér áður voru blessuð böldnu börnin hrædd á þvi, að Grýla mamma tæki tötrin tunnusekkinn i. En þetta er, vinir, eins og annað, orðið mikið breytt, þvi Grýla er orðin gæðablóð, sem gerir engum neitt. Viðlag(börnin syngja): Hæ, Sveinki, hó, Sveinki hæ, Sveinki, já, Sveinki Grýluson. Og sjálfsagt er að segja ykkur, sómabörnin min, að ibúðin i Esjunni er ekkert sallafin. í þvottastandið lengst af litil löngun okkar var, og það er jafnvel sárasjaldan sópað gólfið þar. Trúlegt ykkur fráleitt finnst, að farin séu mjög að þreyta okkur þrettán bræður þessi ferðalög, við vöðum ýmist aur og bleytu eða snjó til hnés austur i Vik og Vopnaf jörð og vestur á Snæfellsnes. Já, lýjandi er að labba svona um landið til og frá, og fljótgengari farartækjum ferðast mætti á, að böðlast þetta á Bronco-jeppa er bara alltof dýrt, og skellinöðrum, sko, við aldrei skammlaust gætum stýrt. Viðlag: Þetta raunar er nú ekki alveg rétt hjá mér, að við förum fótgangandi um Frónið, hvert sem er. um fótgangandi um Frónið, hvert sem er. Við, frómt út talað, ferðumst nú að finna manna sið i lofti milli landshornanna, liggi mikið við. Úr kuldanum og kafaldinu kominn er ég hér, og eins og mjög að likum lætur liggur vel á mér. Mig langar helzt, þá lokst ég kem i landsins höfuðstað að fylgja dæmi frægra manna og fá mér sjónvarpað. Og það held ég að væri, vinir, verulega snjallt, og vekti góðum börnum bros á brá um landið allt, ef sjónvarpsgarpar gengju strax á Grýlu mömmu fund, og segðu henni að sitja fyrir svörum litla stund. Viðlag: Varla yrði i þvi spjalli á útsendingum hlé, þvi Grýlu mömmu er greitt um svör, þótt gömul orðin sé. Hún mundi sem sé vaða, vinir, voðalegan elg, og kannski fengi Leppalúði að leggja orð i belg. En út um landsins byggðir biða börnin eftir mér, ég þarf viða við að koma og vera þar og hér. í fyrrakvöld ég renndi rétt á Rifi og Sandi i hlað, i gær fór ég frá ísafirði austur á Neskaupstað. Ég hefði feginn viljað vera vikutima hér, en nú þarf ég að ná i flugvél norður á Kópasker. Já, krakkar, nú með kurt og pi ég kveðja ykkur verð við jólasveinar erum alltaf á svo hraðri ferð.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.