Tíminn - 21.12.1972, Síða 65
JoLABLAÐ 1972
TÍMINN
65
^ ■ \# _ I lcelandic Airline!
N G W Y O ík Air Bahama:
Framkvæmdastjóri:
SIGURÐUR HELGASON
1 New York situr Sigurður
Helgason og stjórnar margvisleg-
um umsvifum. Hann er fram-
kvæmdastjóri Icelandic Airlines
og Air Bahama, sem bæði eru
dótturfyrirtæki Loftleiða og vara-
formaður stjórnar Loftleiða. 1
New York vinna um 250 manns á
skrifstofum og á flugvelli. Undir
aðalskrifstofuna þar heyra sex
skrifstofur aðrar, viðs vegar um
Bandarikin, skrifstofur i Mexikó
og Bogota i Colombiu og að sjálf-
sögðu skrifstofa Air Bahama i
Nassau. Auk þessa eru söluum-
boð Loftleiða þvert og endilangt
um Ameriku.
Loftleiðir og Air Bahama eiga
það sameiginlegt með meiru, að
bjóða lægstu fargjöldin yfir Norð-
ur-Atlantshafið, á nyrðri og syðri
ieið.
bað er til mikils hagræðis, að
flugfélögin, sem fljúga á sitt
hvorri leiðinni yfir Atlantshafið,
hafi sameiginlega skrifstofu. Með
þessu þekkjum við mun stærra
markaðssvæði, en allar far-
pantanir eru á sömu stöðum og
félögin hafa sameiginlega skrif-
stofuþjónustu.
Á syðri leiðinni er notuð ein
flugvél, sem flýgur sex ferðir á
viku yfir sumarmánuðina. Á sú
vél heimsmet i nýtingu af öllum
Douglasflugvélum. Er vélin á
lofti 15 tima á sólarhring yfir
annatimann, og var nú þriðja
sumarið i röð, sem hún hélt
heimsmetinu. Flugleiðin Luxem-
burg, Nassau er 4600 km löng,
Flutningarnir á þessarri leið eru
svipaðir á þessu ári og 1970 til 71.
Flutningarnir á suðurleiðinni
byggjast að miklu leyti á fólki,
sem fer milli Evrópu og Suður-
rikja Bandarikjanna, sérstaklega
til Florida og einnig til Mexikó og
Mið-Ameriku. Frá Nassau eru
góðar flugsamgöngur til þessara
svæða. Ekki má heldur gleyma,
að á eyjunum i Karabiska hafinu
býr mikið af fólki og er þvi
markaður þar allnokkur. Annars
er mestur vöxtur i flutningi
Evrópumanna til Bahamaeyja og
annarra eyja i Vestur-Indium.
Skemmtiferðamenn i Evrópu eru
búnirað heimsækja Spán og Mið-
jarðarhafslöndin og finnst timi til
að fara á aðrar slóðir, og eru
Vestur-Indiur hrein paradis fyrir
sólskinsþyrsta Norðurálfubúa.
Fimm flugáhafnir fljúga Air
Bahamaþotunni, en yfirmaður
skrifstofunnar i Nassau er Gunn-
ar Sigurðsson.
Á Bahamaeyjum, sem eru 700
talsins búa 170 þúsund manns. Á
næsta ári verða eyjarnar sjálf-
stætt riki. Sagði Sigurður, að Air
Bahama hafi gert eyjaskeggjum
tilboð um, að þeir verði meiri-
hlutaeigendur i félaginu, en nú-
verandi stjórn þess mun halda
áfram að sjá um vissa hluta
rekstursins um nokkurt árabil.
Er þetta tilboð til athugunar, en
reiknað er með, að samningar
takist á næsta ári. Á eyjunum eru
nú rekin tvö litil flugfélög, sem að
mestu eru i innanlandsflugi og
nota litlar vélar. Talið er eðlilegt,
þegar riki er orðið sjálfstætt, að
ibúarnir hafi hug á að reka eigin
millilandaflugfélag, eða gerast
aðilar að flugrekstri. Eigi þegnar
sjálfstæðs rikis meirihluta i flug-
félagi, veitir það réttindi til að
halda uppi áætlunarflugferðum
til annarra landa. Verði af samn-
ingum opnast Air Bahama marg-
ar leiðir, og hugsanlegrar fram-
lengingar-áætlunar milli Evrópu
og Bahama annars vegar og það-
an til staða i Ameriku. Þegar er
búið að sækja um leyfi um fram-
lenginu flugs til Florida, og verið
er að hugsa um fleiri staði.
Bahamaeyjar eru vel i sveit
settar og hafa skilyrði til að vera
mikilvægur hlekkur i flugsam-
göngum, og hugsa ibúarnir þar
áreiðanlega til að fljúga viðar en
milli eyjanna. Telja verður mjög
liklegt, að Air Bahama verði það
flugfélag, sem endanlega verður
samið við, en úr þvi fæst skorið
innan tiðar, og verður það þá
kjarninn i milliiandaflugfélagi
Bahamamanna. Air Bahama hef-
ur sýnt, að það er rekið og nýtur
félagið álits heimamanna.
Um fargjaldastriðið sagði
Sigurður, að lágmarki væri náð
og gætu flugfélögin, sem fljúga
yfir Norður-Atlandshafið ekki
haldið þvi áfram, hvorki hin
stærri eða minni. Fargjöldin hafi
verið og séu i algjöru lágmarki og
fari afsláttarfargjöldin að hækka
aftur hvað liður. Ekki kvaðst
hann hræddur um aðra lækkunar-
hrotu aftur siðar. Stóru flugfélög-
in hafi tapað svo miklu á ævintýr-
inu, að þau hugsuðu sig um tvis-
vac áður en þau færu út i slikt aft-
ur og enda mundi Bandarikja-
stjórn gripa i taumana, ef um
veruleg undirboð væri að ræða á
fargjöldum. Ungmenna-fargjöld-
in hækka nú aftur i næsta mánuði
og aftur i vor og kemur það sér
mjög vel fyrir Loftleiðir, þvi að
40% farþega félagsins eru á þeim
aldri, sem hafa getað nótfært sér
afsláttinn.
Um starfsemi Loftleiða i Ame-
riku eru annars engar stórkost-
legar fyrirætlanir fyrirhugaðar á
næstunni. Hugsanlega verður far-
ið að fljúga milli Keflavikur og
Cicago, en ekki fyrr en á árinu
1974. Samkvæmt millirikjasamn-
ingi má hefja slikt flug á næsta
ári, en er tæplega timabært fyrr
en ’74. Loftleiðir reka skrifstofu i
Cicago, en Miðvesturrikin eru
fjölmenn og mikill markaður þar.
Frá Kéflavik er 25 minútum
lengra flug til Chicage en til New
York, en mun styttra, en að milli-
lenda i New York og fljúga þaðan
til Chicago en þotuflug milli borg
anna tekur um klukkutima og 45
minútur.
Þegar og, ef þessi flugleið verð-
ur opnuð, verða Loftleiðir að bæta
við flugvélakost sinn.
DAVID BROWN
Þeir, sem einu sinni hafa átt|David Brown traktoh kaupa
þá aftur.— Það eitt sannar vinsældir þeirra og gæði. David Brown
traktorarnir eru liprirog sterkir með 12 hraðastiga samhæfðum gír-
kassa. Tvöföld kúpling og tvöfalt drif.
SELECTAMATIC fjölnota vökvakerfið gefur marga valmöguleika.
Bændur! — Það borgar sig að kynnast kostum David Brown — áður
en þið ákveðið kaup á traktor.
Hafið því samband viðokkur strax og fáið nánari upplýsingar.
MUNIÐ! — Lánsumsóknir til Stofnlánadeildarinnar fyrir áramót.
Ghbust
LÁGMÚLI 5, SlMI 81555
Sigurður llelgasun
Fáein lokaorð
Greinarhöíundur vonar, að
Loftleiða þáttur þessi hafi stuðlað
nokkuð að þvi að veita al-
menningi innsýn i þá marghátt-
uðu starfsemi, er félagið hefur
með höndum, sem og, að hann
hafi aukið skilning manna á þýð-
ingu flugsins almennt, meðal
annars með tilliti til ferðamanna-
þjónustunnar hér á landi og auk-
inna kynna þjóða i milli.
Það skal að lokum tekið fram,
að grein þessi er ekki hvað sizt til
orðin fyrirfrábæra lipurð og alúð
Loftleiða h.f. og starfsmanna
þess, og vil ég sérstaklega nel'na
Sigurð Magnússon, deildarstjóra
Kynuingadcildar, i þvi sambandi,
en hann var ætið boðinn og búinn
að veila aðstoð og fyrirgreiðlsu,
þó hann væri á kali i önnum
vegna starfs sins.
Vandaðar vélar
borga
sig
bezt
Fjölbreytt úrval af
heyhlecTsluvögnum
Krone IK m:i, 20 mil, 22 mi!, 24 m3
o.s.frv.
Verft frá kr. 145.000.00.
Meft KKONK-vögnunum má
einnig fá mykjudreifibúnaft
og alla vagnana má nota
sem venjulega flutningavagna.
HAMAR
VÉLADEILD SIMI 2-21 23
TRYGGVAGoTU REYKJAVIK