Tíminn - 18.03.1973, Page 13
Sunnudagur 18. marz 1973.
TÍMINN
T3
Enn þann dag i dag verður
svartadauða vart, einkum i Asiu-
löndum, en þeim fækkar stöðugt,
er verða honum að bráð. Á árun-
um 1919-1928 er talið, að um 170
þúsund hafi látizt af völdum hans,
en nú er talan kominniður i um
tvö hundruð menn á ári.
Það á þó langt i land, að svarta-
dauða verði útrýmt með öllu.
Visindamenn hjá Sameinuðu
þjóðunum telja, að ekki séu nema
fá ár siðan, að með herkjum tókst
að koma i veg fyrir, aðSvartidauði
yrði að skelfilegri farsótt i
Austur-Pakistan, og margir
heilsufræðingar voru lika á nál-
um, er jarðskjálftarnir miklu
urðu i Perú 1970. Sérfræðingar
segja, að svartidauði geti gosið
upp hvenær sem er eftir stórfelld-
ar náttúruhamfarir i þeim lönd-
um, þar sem tiann er landlægur.
A fjórtándi öld barst svarti-
dauði til Norðurálfu frá Austur-
löndum. Menn ætla, að þessi
skelfingarsótt hafi átt upptök sin i
Mið-Asiu, ef til vill i Mongólia.
Þaðan barst veikin til Kina, Ind-
lands og siðan vestur um lönd til
Evrópu. Á þessum sömu slóðum
hefursvartidauði komið upp hvað
eftir annað á seinni timum. Arið
1910-1911 dó um sextiu þúsund
manns I Mansjúriu, og það er
sannað, að sóttin kom þá frá
Mongóliu. Arið 1923 varð svarti-
dauði farsótt i Hong Kong, og eftir
það hefur hún iðulega gert usla i
Indónesiu, Burma, Indó-Kina og
Tælandi.
Miklu minna hefur kveðið að
svartadauða i Afriku,
Suður-Ameriku og Suður-Evrópu
á tuttugustu öld, þótt hans hafi
orðið þar talsvert vart, og jafnvel
i Bandarikjunum hefur á annað
hundrað dáið út svartadauða á
þessari öld.
Þegar svartidauði berst til
landa, þar sem menn eiga þess
ekki von, að honum skjóti upp, er
segin saga, að hans verður fyrst
vart i hafnarbæjum. Og það á sér
mjög eðlilegar orsakir. Svartidau-
er afarsóttnæmur og breiðist ört
út, ef ekki er að gert. Sóttkveikj-
una uppgötvuðu tveir menn,
Sjibasabúró Kitasató og
Alexandra Jersin árið 1894. Sjúk-
dómsvaldurinn er veira og hafi
hún sýkt mann, berst hún mjög
hratt um líkamann, án þess við
verði ráðið. En visindamenn upp-
götvuðu, að unnt var að búa til
bóluefni fólki til varnar.
Hitt skipti ef til vill ekki minna
máli, að nú uppgötvaðist einnig,
að sóttkveikjan barst með rottum
og lús. Það voru fyrst og fremst
rotturnar, sem ætið hafa hafzt við
i skipum á siglingum manna um
heimshöfin, og lúsin á þeim, sem
dreifðu pestinni á geigvænlegast-
an hátt.
Rotturnar þrifast bezt, þar sem
sorp er mest og nægð rotnandi
likama, svo sem oft er eftir jarð-
skjálfta, stórflóð og þess konar
atburði. Þeim mun sóðalegra sem
er i umhverfi raanna, þvi betur
vegnarrottum og lús. Það var að
sjálfsögðu ekki sem þrifalegast i
borgum og bæjum á miðöldum,
og þá verður lika skiljanlegt,
hvernig svartidauðinn gat orðið
svo hræðilegur faraldur.sem raun
bar vitni. Jafnframt er augljóst,
hvers vegna mest hætta er á, að
óvænt bryddi á svartadauða i
hafnarbæjum. Þar koma rotturn-
ar enn til sögunnar.
Það er alkunna, að i flestum
löndum er mikil mergð af rottum,
og sums staðar hefur tilraun ver-
ið gerð til þess að áætla, hversu
margir milljónatugir af þeim séu
i þvi og þvi landinu. Þær hafast
við i skólpræsum borga, og auk
þess viða ofan jarðar, og þá sér i
lagi þar, sem sorphreinsun og
öðru þess háttar er mest áfátt.
Um öll lönd er óhemjulega miklu
fé varið til þess að halda rottun-
um i skefjum, en þrátt fyrir bæði
fyrirhöfn og tilkostnað, hefur
Skurðgröfumenn
Viljum ráða menn á skurðgröfu.
Upplýsingar gefur Gestur Kristjánsson,
simi 7245, Borgarnesi.
Snj
hjólbaro
með djúpum
slitmiklum munstrum
Seljum
sólaða
hjólbarða
með
ýmsum
slitflatar
munstrum
á fólksbíla
jeppa
og vörubíla
BARÐINN
Ármúla 7 • Reykjavík • Sími 30£“
Dr. Stanley með rottur
sinar.
rottan haldið velli fram á þennan
dag, svo að segja hvarvetna þar,
sem hún hefur einu sinni náð fót-
festu. Hún er sem sé ein sú dýra-
tegund,sem hvað færust er að sjá
sér farborða, hvar sem nokkurt
æti er að hafa, og hefur fullkomn-
asta hæfileika til þess að laga sig
að aðstæðum.
Styrjöldin gegn rottunum hefur
lengi verið háð með eitur að aðal-
vopni. En nú er visindamenn að
komast á þá skoðun, að maðurinn
geti ekki unnið umtalsverðan sig-
ur I þessu striði með öðru en
erfðafræðilegum aðferðum. Dr.
Allen J. Stanley hefur getið sér
heimsfrægð fyrir rannsóknir sin-
ar og tilraunir á þessu sviði, og
hugmynd hans er sú,aðkoma upp
rottustofni, sem er með þeim
erfðafræðilega ágalla, að niðjarn-
ir verði ófrjóir. Sé slikum rottu-
stofni fjölgað og slikum rottum
sleppt lausum hópum saman,
mun það sjálfkrafa leið til aftur-
kipps.
— Þessi erfðafræöilega gallaði
rottustofn, sem viðhöfum ræktað,
segir dr. Stanley, er hraustur og
þróttmikill og kynmikill. En i
honum ererfðavisir, sem leiðir til
ófrjósemi meðal niðjanna. Þessar
rottur eru auk þess með litinn,
hvitan blett á enni, svo að þær eru
auðþekktar, þó aö þær likist
venjulegum rottum að öllu öðru
leyti.
Reynslan hefur sýnt, að erfða-
gallinn er fastur i kyni þessa
rottustofns, og berst frá kynslóð
til kynslóðar og dregur stórl. úr
frjóseminni, þó aö sjálfsögðu fæð-
ist innan um og saman við frjó
dýr, þvi að ella dæju þau lika út.
Er talið, að i Bandarikjunum til
dæmis myndi það taka átta ár að
dreifa þessu rottukyni um landið i
þeim mæli, að það hefði sýnileg
áhrif á frjósemi heildarstofnsins.
— Það er markmið okkar,
sagði dr. Stanley, að búa til rottu-
stofn, þar sem karldýrin fæðast
ófrjó, en kvendýrin frjó. Aftur á
móti er erfðavfsirinn einnig i
kvendýrunum, og helmingur
karldýra, sem af þeim fæðist,
verður ófrjór. Þessi erfðavisir
hefur leynzt með rottustofninum,
en hann er afarsjaldgæfur, en
slikum dýrum má aftur á móti
fjölga i uppeldisstöðvum, þegar
þau hafa einu sinni fundizt.
En auk þessa hefur dr. Stanley
auga á tveim öðrum erfðavisum,
er hann hefur fundið hjá rottum,
og talist honum að tengja annan
þeirra við þann, er þegar hefur
verið rætt um, myndu þrir fjórðu
hlutar unga hverrar rottu verða
ófrjóir, en 87,5%, ef heppnast má
að tengja honum báða hina siðar-
nefndu erfðavisa.
Nú er það svo, að menn efast
ekki um, að rottur hafi hlutverki
að gegna i lifkerfinu — og mestu
þar, sem sóðalegast er. En
milljörðum saman eru þær til
óþurftar, og þess vegna hefur
enginn áhyggjur af þvi, savi
óþurftar, og þess vegna hefur
enginn áhyggjur af þvi enn sem
komið er, nema siður sé, þó ráð
verði fundin til þess að hefta við-
komuna mjög verulega. Meðal
annars myndi það sporna gegn
þvi, að svartidauði breiðist úr i
löndum, þar sem hann er enn til,
eða berist frá þeim á aðra staði.
Húsbyggjendur
Upphitun með
RHHX
rafmagnsþilofnunum
er ódýr og þægileg
ADAX
rafmagnsþllofnarnir
hafa fanglS æSstu
verSlaun, sem veitt
eru innan norsks
ISnaSar
Stórlækkaður stofnkostnaður. — Hverfandi viðhald.
ADAX rafmagnsþilofnarnir eru norskir og marg-
verðlaunaðir fyrir fallega og vandaða hönnun.
Þriggja ára ábyrgð
er á öllum ADAX rafmagnsþilofnunum
3 gerðir. — Yfir 30 mismunandi stærðir.
Gegnumstraumsofnar: 15 og 30 sm háir.
Panilofnar: 28, 38 og 48 sm háir.
Geislaofnar í baðherbergi.
Fullkomið termostat er á öllum ADAX ofnunum.
Sendið okkur úrklippuna hér að neðan — og við
sendum yður um hæl nákvæmar upplýsingar um
ADAX rafhitun.
Þér getið einnig sent okkur teikningu af húsinu og
við getum aðstoðað yður um val á staðsetningu
ofnanna. Einnig getum við séð um útreikninga á
hitaþörfinni.
-------------------------------------------------
Til Einar Farestveit & Co hf
Bergstaðastræti 10A Reykjavík
Ég undirritaður
óska eftir bæklingum yfir ADAX rafhitun
Nafn________
Heimilisfang