Fréttablaðið


Fréttablaðið - 19.11.2004, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 19.11.2004, Qupperneq 10
10 19. nóvember 2004 FÖSTUDAGUR SÁRIR FEÐGAR Íraskir feðgar sátu hlið við hlið á Yarmouk sjúkrahúsinu í Bagdad þar sem gert var að sárum sem þeir hlutu á höfði í sprengju- árás. Tveir létust og fimm særðust í árás- inni. Var tekinn með tvö kíló af hörðum efnum: Flutti inn fíkniefni til að borga skuldir DÓMSMÁL Tæplega fertugur maður hefur verið ákærður fyrir inn- flutning á tæpu kílói af kókaíni og tæpu kílói af amfetamíni. Hann var handtekinn á Keflavíkurflug- velli þegar hann var að koma hingað til lands í maí. Maðurinn var með fíkniefnin í vösunum á yfirhöfninni sem hann klæddist. Hann var að koma með flugi frá Kaupmanna- höfn en þaðan hafði hann komið frá Amsterdam. Við þingfestingu málsins í Héraðsdómi Reykja- víkur í gær játaði hann innflutn- ing fíkniefnanna. Hann sagðist ekki hafa flutt efnin inn í hagn- aðarskyni heldur hafi hann ætlað að borga skuld með efnunum. Hjá lögreglu sagðist maðurinn hafa flutt efnin inn fyrir aðra til að greiða skuld. Hann vildi ekki gefa upp fyrir hverja hann vann en segir þá hafa ætlað að sjá um sölu fíkniefnanna. Samkvæmt upplýsingum blaðsins hefur hann gerst brotlegur við lög áður en þau brot munu ekki varða við fíkniefnalöggjöfina né vera stór- vægileg. Ekki verður þörf á vitnaleiðsl- um í málinu þar sem játning ligg- ur fyrir. Sækjandi og verjandi munu reifa um refsiákvæði í byrj- un desember. - hrs Starfsmenn tengdir samráði enn starfandi Fjöldi stjórnenda sem er talinn eiga þátt í samráði olíufélaganna starfar enn. Einar Benediktsson er eini forstjórinn sem enn starfar. Þingmaður segir víða tíðkast að félög hreinsi til hjá sér til að öðlast traust að nýju. VERÐSAMRÁÐ Þrátt fyrir að olíufé- lögin Essó, Skeljungur og Olís hafi skipt um eigendur frá því að verðsamráði þeirra lauk í kjölfar húsleitar Samkeppnisstofnunar þá starfa margir stjórnenda enn hjá félögunum sem taldir eru eiga aðild að samráð- inu. Einar Bene- diktsson, forstjóri Olís, er eini for- stjóri olíufélag- anna þriggja sem hætti ekki störfum í kjölfar rannsókn- ar Samkeppnis- stofnunar. Hann er annar tveggja eigenda félagsins. Hjá Olís starfa líka Jón Halldórs- son hjá markaðs- sviði stórnotenda og Samúel Guð- mundsson í fjár- festingum og áhættustýringu, en þeirra beggja er víða getið í nið- urstöðu sam- keppnisráðs um verðsamráðið. Gunnar Karl Guðmundsson, núverandi forstjóri Skeljungs, starfaði hjá félaginu meðan á samráðinu stóð. Margrét Guð- mundsdóttir starfar á neytenda- sviði félagsins og Friðrik Þ. Stef- ánsson hjá fyrirtækjasviði. Bæði koma þau við sögu í niðurstöðu samkeppnisráðs. Starfsmenn Essó sem eru tald- ir tengjast samráðinu og starfa enn hjá Essó eru Magnús Ásgeirs- son í eldsneytiskaup- um og umhverfismál- um og Heimir Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri neytendasviðs. Þá er í niðurstöðu samkeppnisráðs getið um aðild Gunnars Skapta- sonar, framkvæmdastjóra Ork- unnar, að samráðinu. Orkan er nú í eigu Skeljungs. Pálmi Haraldsson, stjórnarfor- maður Skeljungs, vildi ekki svara því hvort staða starfsmanna fé- lagsins sem taldir eru tengjast verðsamráðinu sé til athugunar. Ekki náðist í stjórnarformenn Olís og Essó. Lúðvík Bergvinsson, þingmað- ur Samfylkingarinnar, sagði í um- ræðum á Alþingi fyrir skömmu að fyrirtæki sem tengjast verðsam- ráðinu verði að reyna að öðlast traust almennings á nýjan leik. Almennt tíðkist það í þróuðum samfélögum að þegar svona komi upp hreinsi menn til hjá sér til að ná því markmiði. ghg@frettabladid.is Seltjarnarnes: Íbúar ítreka mótmæli SKIPULAG Áhugahópur um betri byggð á Seltjarnarnesi hefur mót- mælt samþykkt meirihluta bæjar- stjórnar Seltjarnarness um breyt- ingu á aðalskipulagi bæjarins. Telur hópurinn að hún gangi þvert gegn vilja 1.100 Seltirninga sem mótmæltu breytingunni. Í yfirlýsingu frá hópnum segir að aldrei hafi fleiri bæjarbúar andmælt skipulagsáformum bæj- aryfirvalda, enda samsvari tala undirskrifta um 44 prósentum gildra atkvæða í síðustu bæjar- stjórnarkosningum. Samkvæmt skipulaginu munu sjö íbúðarblokkir og knattspyrnu- völlur rísa á einum fegursta út- sýnisstað á Seltjarnarnesi að mati hópsins. Þá mun skipulagið hindra eðlilega þróun miðbæjarins auk þess sem bílaumferð við skóla mun vaxa til muna. Jónmundur Guðmarsson, bæjarstjóri á Seltjarnarnesi, seg- ist gera sér vonir um að unnt verði að koma verulega til móts við óskir íbúa um breytingar á skipulaginu. Skipulagsnefnd bæj- arins vinni nú að nýjum útfærsl- um á deiliskipulagi og ætlunin sé að lækka byggingar, draga úr byggingarmagni og fjölda íbúða. - ghg Í HÉRAÐSDÓMI REYKJAVÍKUR Maðurinn faldi tvö kíló af fíkniefnum í vösunum á yfirhöfn sem hann klæddist við kom- una til landsins. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /S TE FÁ N Á SELTJARNARNESI Teikning af einu af fyrirhuguðum fjölbýlishúsum. OLÍUFÉLÖGIN Margir stjórnendur sem eru taldir tengjast verðsamráði olíufélaganna starfa enn hjá félögunum. LÚÐVÍK BERGVINSSON Segir það tíðkast í þróuðum samfélögum að fyrirtæki sem tengist verð- samráði hreinsi til hjá sér til að öðlast traust almennings að nýju. 10-11 fréttir 18.11.2004 18.25 Page 2
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.