Fréttablaðið - 16.12.2004, Síða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
FIMMTUDAGUR
BÓKAVEISLA Í FISCHERSUNDI
Bókaveisla Sagnfræðingafélags Íslands og
Sögufélags hefst stundvíslega klukkan
átta í kvöld í húsi Sögufélags í Fischer-
sundi. Þar gefst gott tækifæri til að fræð-
ast um ýmis ný rit um sögu landsins. Að-
gangur er ókeypis og allir eru hjartanlega
velkomnir.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
16. desember 2004 – 344. tölublað – 4. árgangur
JÚLÍUS HAFSTEIN SENDIHERRA
Fimm nýir sendiherrar hafa verið skipaðir á
þessu ári. Sendiherrum fjölgaði um 66% í
ráðherratíð Halldórs Ásgrímssonar, samkvæmt
svari við fyrirspurn á Alþingi. Sjá síðu 6
HÓTUÐU AÐ SPRENGJA Tveir glæpa-
menn tóku 23 farþega grískrar rútu í gísl-
ingu. Flestum gíslanna slepptu þeir í gær
en hótuðu að sprengja sig og gíslana í loft
upp ef þeir fengju ekki greitt lausnargjald
og öruggt far til Rússlands. Sjá síðu 2
REYKBÚR SJÚKLINGA FLUTT
Reykaðstaða sjúklinga á geðsviði Landspít-
ala - háskólasjúkrahúss við Hringbraut
verður flutt á næstunni. Ástæðan er meðal
annars sú að dópsalar hafa boðið þar fíkni-
efni til sölu. Sjá síðu 4
Kvikmyndir 46
Tónlist 38
Leikhús 42
Myndlist 42
Íþróttir 34
Sjónvarp 48
● jólin koma ● heimili ● tíska
Fá sér silfurte
á kvöldin
Auður og Arndís Lóa:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
● táningsmæður ● bókmenntaklíkur
Listin að lifa
Helena og Þorvaldur:
▲
INNI Í FRÉTTABLAÐINU Í DAG
LÆGIR Í KVÖLD Norðanátt með éljum
norðan og austan til. Stöku él annars staðar.
Frost um allt land. Sjá síðu 4
Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
8
Opið í dag
10-22
dagar til jóla
Jólagjafahandbókin
- vinningsnúmer dagsins:
32018
Fimmtudagar
Me›allestur dagblaða
Konur
Samkvæmt fjölmi›lakönnun Gallups október '04
68%
43%
MorgunblaðiðFréttablaðið
VIÐSKIPTI KB banki fjármagnar
ásamt Bank of Scotland kaup
bresk-íranska milljarðamærings-
ins Robert Tchenguiz á 160 krám í
verslunarhverfum í Bretlandi.
Auk þess að vera einn höfuðlánar-
drottinn viðskiptanna eignast
bankinn hlut í fyrirtæki. KB banki
hefur haft umsjón með nokkrum
fyrirtækjakaupum í London á
undanförnum misserum. Kaup
Tchenguiz á kráakeðjunni eru
fyrstu fyrirtækjakaup með aðild
KB banka þar sem breskir kaup-
sýslumenn sitja beggja vegna
borðsins. Heildarumfang við-
skiptanna er 150 milljón pund, um
átján milljarðar króna.
Robert Tchenguiz var í 101.
sæti yfir ríkasta fólk Bretlands á
lista sem Sunday Times birti á
þessu ári. Hrein eign hans er met-
in á 50 milljarða króna og heildar-
eignir á um 500 milljarða króna.
KB banki hefur áður unnið að
verkefnum með Tchenguiz, en í
þeim hefur ekki orðið af viðskipt-
um. Bankinn vann með honum að
kaupum á Odeon-kvikmyndahúsa-
keðjunni, auk tilraunar til kaupa á
verslunarkeðjunni Selfridges.
Tchenguiz keypti í síðustu viku
364 krár og nú hafa 160 bæst við.
Hann hefur lýst miklum áhuga á
að byggja upp veldi í kráargeiran-
um og er orðaður við yfirtöku á
Regent Inns-keðjunni, sem hann á
fimmtán prósenta hlut í.
- hh
KB banki fjármagnar kráakaup:
Kaupir 160 krár í London
Jólagjafahandbók BT
fylgir blaðinu í dag
F2
VEITINGU DVALARLEYFIS FAGNAÐ Skákforkólfar sem barist hafa fyrir því að Íslendingar komi Bobby Fischer til aðstoðar komu saman í
húsnæði Hróksins og fögnuðu því að honum skuli veitt dvalarleyfi. Guðmundur G. Þórarinsson, sem var forseti Skáksambands Íslands
þegar einvígi Fischers og Boris Spasskí fór fram hér á landi 1972, Helgi Ólafsson, stórmeistari og meðstjórnandi í Skáksambandinu,
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, formaður Skáksambandsins, Sæmundur Pálsson, trúnaðarvinur Fischers, og Hrafn Jökulsson, varaforseti
Skáksambandsins, fögnuðu innilega.
DVALARLEYFI Stjórnvöld hafa
ákveðið að veita Bobby Fischer,
fyrrverandi heimsmeistara í
skák, dvalarleyfi og hafa fyrir-
skipað sendiráði Íslands í Japan
að hjálpa honum við að komast
hingað ef hann þekkist boðið.
Fischer er nú haldið í innflytj-
endabúðum í Japan meðan skorið
er úr um stöðu hans þar og
Bandaríkjastjórn hefur farið
fram á að hann verði handtekinn
vegna brota á viðskiptabanni
Sameinuðu þjóðanna á Júgóslavíu
fyrir að tefla þar einvígi við Boris
Spasskí árið 1992.
Ákvörðunin um dvalarleyfi
Fischers var tilkynnt í gær, sama
dag og James Irvin Gadsden,
sendiherra Bandaríkjanna, var
kallaður á fund í utanríkisráðu-
neytinu. Þar mun hann hafa sagt
að málið væri á forræði banda-
ríska dómsmálaráðuneytisins en
að utanríkisráðuneytið skipti sér
ekki af því.
Hvorki Gadsden né Davíð
Oddsson utanríkisráðherra vildu
tjá sig um málið í gær. Gadsden
vildi eftirláta íslenskum stjórn-
völdum að fjalla um málið og
Davíð vildi ekki tjá sig um
ákvörðunina.
„Ég er náttúrlega stórkostlega
ánægður yfir þessu þori og dug
ríkisstjórnarinnar,“ segir
Sæmundur Pálsson, vinur Bobby
Fischer og fyrrum lögreglumað-
ur. „Þetta var ósk mín og von en
það er framar björtustu vonum að
það skarið sé tekið af svona fljótt
og vel.
„Ég hef alltaf verið aðdáandi
Davíðs fyrir greind og ákveðni
sem stjórnmálamanns. Það
minnkar ekki við þetta,“ segir
Sæmundur, sem spurði fulltrúa
japanskra stjórnvalda í gær hvort
Fischer gæti haldið til Íslands
strax eða þyrfti að bíða niður-
stöðu í máli sínu eftir rúman
mánuð. Svör við því ættu að ber-
ast öðru hvoru megin helgarinnar.
Hrafn Jökulsson, varaformað-
ur Skáksambands Íslands, var
hæstánægður með tíðindin. „Þetta
eru ánægjulegar stórfréttir sem
munu vekja mikla athygli um all-
an heim, langt út fyrir skákhreyf-
inguna. Þetta sýnir líka hið
sérstaka samband á milli þessa
sérkennilega snillings og íslensku
þjóðarinnar. Íslendingar voru
kannski eina þjóðin sem gat tekið
af skarið með þessum hætti.“
Georg Lárusson, forstjóri Út-
lendingastofnunar, segir að enn
hafi ekki verið tekin afstaða til
þess hvers konar dvalarleyfi
Fischer fái, almennt eða á grund-
velli mannúðarástæðna. Georg
sagði að það yrði ákveðið þegar
Fischer kæmi hingað og áréttaði
að ekki væri um pólitískt hæli að
ræða.
- bþg/óká
Fischer fær dvalarleyfi
„Stórkostlega ánægður,“ sagði Sæmundur Pálsson, vinur Bobby Fischer. Bandaríski sendiherr-
ann ræddi við íslensk stjórnvöld um málefni Fischers í gær. Enn á eftir að ákveða hvort Fischer
fær almennt dvalarleyfi eða dvalarleyfi á grundvelli mannúðarástæðna.
Höll minninganna
eftir Ólaf Jóhann:
Kvikmynduð
í Hollywood
LISTIR Einn þekktasti kvikmynda-
framleiðandinn í Hollywood, Liz
Manne, hefur samið við Ólaf Jó-
hann Ólafsson rithöfund um kvik-
myndaréttinn að skáldsögu hans,
Höll minninganna.
Liz Manne er þekktur og virtur
framleiðandi sem hefur komið að
ýmsum verðlaunamyndum á borð
við The Shining eftir Stanley
Kubrick og The Player og Short
Cuts eftir Robert Altman.
Ólafur Jóhann segist ánægður
með að Liz Manne verði framleið-
andinn. Hann segir hins vegar of
snemmt að tala um hver leiki aðal-
hlutverkin, eða hver muni leik-
stýra, enda muni kvikmyndatakan
að öllum líkindum ekki hefjast
fyrr en 2006. - sda
Sjá síðu 6 í F2 í miðju blaðsins.
BOBBY FISCHER
Stjórnvöld hafa ákveðið að veita Fischer
dvalarleyfi. Ákveðið verður þegar hann
kemur á hvaða forsendum leyfið er veitt.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L.
01 Forsíða 15.12.2004 21:24 Page 1