Fréttablaðið - 16.12.2004, Síða 42
12 16. desember 2004 FIMMTUDAGUR
Sjaldgæfir og stórir skór
Ásta Kjartansdóttir er eigandi verslunarinnar
Ástu skósala sem selur stóra skó og
Arcopédico þægindaskó frá Portúgal í
venjulegum stærðum.
„Flestir sem koma hingað inn eru mjög glaðir þar
sem þeir hafa ekki getað keypt sér skó á Íslandi
áður. Það er svo gaman að afgreiða svona þakklátt
fólk, sem hefur þurft að ferðast til útlanda eða
biðja aðra að kaupa skó fyrir sig í útlöndum,“ seg-
ir Ásta, sem hefur heyrt margar skósögur eftir að
hún hóf sölu á stórum skóm.
Ásta byrjaði starfsemi sína í bílskúr í Rauða-
gerði og þá seldi hún eingöngu Arcopédico þæg-
indaskóna frá Portúgal. Í rúmt ár hefur hún selt
stóra skó og í ágúst á þessu ári flutti hún verslun
sína í Súðarvog 7 í Reykjavík. Ásta selur dömuskó
í stærðum 42 til 44 og herraskó í stærðum 47 til 50.
„Ég er ekki með hátískuskó en sel klassíska skó
sem passa fyrir alla. Þetta er mjög breiður aldurs-
hópur sem þarf stóra skó og fæstar konur vilja
hæla þar sem þær eru flestar hávaxnar. Ég kaupi
skóna frá Þýskalandi því þar er helst hægt að finna
fyrirtæki sem framleiða stóra skó,“ segir Ásta en
skórnir eru ekki dýrir miðað við gæði. „Þetta eru
vandaðir skór og á milliverði. Dömuskórnir eru frá
8.500 krónum upp í 12.000 en herraskórnir eru frá
8.500 krónum upp í 14.000 krónur.“
Arcopédico þægindaskórnir hafa ekki síður
vakið lukku. „Það er líffræðingur sem hannar
þessa skó og stefna hans er að hafa skóna sem
þægilegasta. Þeir eru mjög léttir og þeim sem
máta finnst þeir ekki vera í neinum skóm. Þetta
eru ekki sérstakir
heilsuskór en henta vel
fyrir alla fætur og hel-
stu fótavandamál. Sumir
skórnir í línunni eru úr
geitaskinni, sem er mjög
sjaldgæft og erfitt að fá.
Þetta eru ekki fallegir
skór við fyrstu sýn en
þeir eru yndislegir þeg-
ar í þá er farið og flestir
falla fyrir þeim.“
Hægt er að kíkja á
skóna hennar Ástu á vef-
síðunni storirskor.is.
lilja@frettabladid.is
Hjálpa þér að halda öllu í skorðum í skúffum.Einning sjálflímandi filt til
að klæða skúffur og filt með verjandi efni svo ekki falli á silfur og silf-
urplett.Við eigum líka fægilög,fægiklúta og ídýfulög til að hreinsa.
SENDUM Í PÓSTKRÖFU.
SJÁLFLÍMANDI HNÍFAPARASKORÐUR
Gullkistan - Frakkastíg 10 - Sími: 551-3160.
vinnur gegn fílapenslum og bólum.
Bindur bakteríur og húðflögur og dregur þær til sín.
Silicol Skin
Þannig getur þú haldið húð
þinni mjúkri og hreinni og
komið í veg fyrir bólur.
Fæst í apótekum.
Eddufelli 2,
s. 557 1730
Bæjarlind 6,
s. 554 7030
Opið mán.-fös. frá kl. 10-18 og lau. kl. 10-16T Í S K U V E R S L U N
Gjafakort
Góð jólagjöf
Gjafakort á dekurdag
fyrir dömur og herra
Vegleg Clarins gjöf fylgir
Snyrtistofan Hrund
Snyrtistofa og verslun
Grænatúni 1, Kópavogi sími: 5544025
SKARTHÚSIÐ
Laugavegi 12, s. 562 2466
Bómull:
svartir og rauðir
Satín blóma:
svartir, rauðir
og dökkbláir.
Flauel:
svartir og brúnir
(stærðir 35-41)
JÓLASKÓR
Einnig mikið úrval af
blómaskóm í mörgum
litum og stærðum
Sendum í póstkröfu.
Mikið úrval af kínaskóm
í barna- og fullorðins-
stærðum.
Tilboð
Eitt par kr. 1290,-
Tvö pör kr. 2000,-
Stærðir 27-41
Jólafgjafir fyrir
yngstu börnin
Saumagallerí JBJ
Laugavegi 8, s.552 5455
Ásta sérhæfir sig í stórum
skóm sem er erfitt að fá á
Íslandi.FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Ný lína frá
Ur-Rehman
Fatnaðurinn á að vera þægilegur, á
sanngjörnu verði og sérstakur.
Fatahönnuðurinn Munib Ur-
Rehman hefur kynnt nýtt fata-
merki fyrir konur sem heitir
Emure.
Merkið var sýnt á tískuvik-
unni í London í febrúar á þessu
ári sem tískusýning utandag-
skrár. Hönnunin vakti mikla
lukku og hefur Munib Ur-
Rehman náð að semja við
verslanir í London eins og
Debonair á Portobello Road
um sölu á fatnaðinum.
Hægt er að skoða línuna
alla á vefsíðunni personal-
styleuk.com. ■
»
FA
S
T
U
R
» PUNKTUR
42 (12) Allt tíska ofl 15.12.2004 15.00 Page 2