Fréttablaðið - 16.12.2004, Side 53
33FIMMTUDAGUR 16. desember 2004
TVÖFALDAST Einmenningstölvur verða
tvöfalt fleiri eftir sex ár en þær eru nú ef
marka má niðurstöðu nýrrar skýrslu.
Tölvueign
tvöfaldast
Tvöfalt fleiri munu eiga ein-
menningstölvur árið 2010 en nú.
Þetta er niðurstaða skýrslu
r a n n s ó k n a r f y r i r t æ k i s i n s
Forrester.
Vöxturinn mun verða drifinn
áfram af vanþróaðri hagkerfum
eins og í Kína, Indlandi og Rúss-
landi. Þannig er talið að einka-
tölvum fjölgi um 178 milljónir í
Kína til ársins 2010.
Skýrslan kemur út nokkrum
dögum eftir að tilkynnt var um
kaup IBM á kínverska tölvu-
framleiðandanum Lenovo. Í
skýrslunni er gert ráð fyrir að
markaðshlutdeild innlendra
tölvuframleiðenda verði veru-
leg á þessum ört vaxandi mörk-
uðum. Rökin eru þau að heima-
fyrirtækin þekki sinn markað
og muni fremur hafa á boðstóln-
um tölvur í þeim verðflokki sem
markaðurinn sækist helst eftir.
Nú um stundir munu 575
milljónir einmenningstölva vera
í notkun í heiminum. ■
Fjárlög ársins 2005 voru samþykkt frá
Alþingi nú í byrjun desember. Að
þessu sinni eru óvenjulitlar breyting-
ar gerðar á Alþingi frá frumvarpi því
sem lagt var fram í byrjun október.
Útgjöld ríkissjóðs hækka um 1.795
milljónir króna frá frumvarpi til fjár-
laga á meðan tekjur ríkissjóðs hækka
um 600 milljónir. Áætlaður afgangur
á rekstri ríkissjóðs fyrir árið 2005
lækkaði því úr 11,2 milljörðum króna
í 10 milljarða króna í meðförum
Alþingis.
Af tæplega 2 milljarða króna hækk-
un á útgjöldum ríkissjóðs munar
mestu um hærri útgjöld fæðingar-
orlofssjóðs, en framlög til hans voru
aukin um hálfan milljarð króna í 6,5
milljarða. Alls voru útgjöld vegna
tilfærslna aukin um 1,4 milljarða frá
frumvarpi til fjárlaga. Þá jukust út-
gjöld til fjárfestinga um tæplega
300 milljónir króna.
Þær breytingar sem gerðar voru á
tekjum ríkissjóðs á Alþingi liggja í
breytingum sem ekki var gert ráð
fyrir í frumvarpinu. Ríflega helming-
ur liggur í hækkun á bifreiðagjaldi.
Annars ræðst áætlun um tekjur rík-
issjóðs að miklu leyti af áætlun um
horfur í efnahagsmálum á hverjum
tíma. Fram til þessa hafa forsendur
þjóðhagsspár og þar með tekju-
áætlun verið endurskoðaðar fyrir
samþykkt fjárlaga, svo fjárlög tækju
tillit til nýjustu upplýsinga við sam-
þykkt. Síðustu tvö ár hefur tekju-
áætlun hins vegar ekki verið endur-
skoðuð eftir að frumvarp er lagt
fram.
Þetta kemur ekki að sök hafi efna-
hagsforsendur lítið breyst frá frum-
varpi til fjárlaga, en annað virðist
vera upp á teningnum nú. Þannig
gerir Seðlabankinn í nýrri spá sinni
ráð fyrir 1% meiri hagvexti á næsta
ári en fjármálaráðuneytið gerði í
haust. Munur á spá um einkaneyslu
er enn meiri, þar sem Seðlabankinn
gerir ráð fyrir 9,5% aukningu á
næsta ári í samanburði við 5% spá
fjármálaráðuneytis. Þessi munur
hefur töluverð áhrif á áætlun um
tekjur ríkissjóðs og má gera ráð fyr-
ir að ef hún hefði verið endurskoð-
uð væru tekjurnar töluvert hærri.
Samkvæmt fjárlögunum hækka út-
gjöld milli áranna 2004 og 2005
um 4,1%. Miðað við að spáð er
3,4% verðbólgu, þá er raunaukning
útgjalda innan við 1%, eða 0,7%.
Þar sem meðalhækkun útgjalda á
árunum 1998-2003 var vel yfir 5%
að raungildi verður að telja vafa-
samt að þetta markmið náist. Aukn-
ing tekna á milli ára er áætluð 5,2%
sem samsvarar 1,7% að raungildi.
Þar sem gert er ráð fyrir 6% hag-
vexti á næsta ári, verður að telja
þessa hækkun fremur lága, jafnvel
þótt tekið sé tillit til skattalækkana.
Við samþykkt fjárlaga virðist því
sem hvorki tekjur né gjöld verði í
samræmi við lögin, bæði verði
hærri á næsta ári en fjárlög gera ráð
fyrir. ■
ÞJÓÐARBÚSKAPURINN
KATRÍN ÓLAFSDÓTTIR
Fjárlög 2005
Við samþykkt fjárlaga virðist því sem
hvorki tekjur né gjöld verði í samræmi
við lögin, bæði verði hærri á næsta ári
en fjárlög gera ráð fyrir.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
YUKOS GJALDÞROTA
Rússneska oliufyrirtækið Yukos hefur ósk-
að eftir greiðslustöðvun í Bandaríkjunum.
Forráðamenn félagsins freista þess að
bandarískir viðskiptavinir þrýsti á rússnesk
stjórnvöld áður en eignir fyrirtækisins
verða gerðar upptækar. Því er haldið fram
að rússnesk yfirvöld muni ekki gæta þess
að eignir Yukos verði seldar á hæsta
mögulega verði.
M
YN
D
A
P
52-53 (32-33) Viðskipti 15.12.2004 14.32 Page 3