Fréttablaðið - 16.12.2004, Blaðsíða 68
48 16. desember 2004 FIMMTUDAGUR
EKKI MISSA AF…
Árlegum kertaljósatónleikum
kammerhópsins Camerarctica,
sem verða í Hafnarfjarðarkirkju á
föstudagskvöld, Kópavogskirkju á
mánudagskvöld og Dómkirkjunni í
Reykjavík á þriðjudagskvöld...
Jólasöngvum Kórs Langholts-
kirkju, sem verða haldnir annað
kvöld klukkan 23, laugardagskvöld
einnig klukkan 23 og sunnudags-
kvöld klukkan 20. Einsöngvarar
með kórnum verða Ágúst Ólafsson
og Ólöf Kolbrún Harðardóttir...
Djasstríóinu HOD sem verður í
jólastuði á Café Kúltura við Hverfis-
götu annað kvöld klukkan 23...
Árlegir jólatónleikar Óperukórs-
ins í Reykjavík, sem haldnir verða í
Aðventkirkjunni við Ingólfsstræti á
laugardaginn. Einsöngvarar eru ung-
ir óperusöngvarar úr röðum kór-
félaga.
Blásarakvintett Reykjavíkur hefur haldið
jólatónleika á hverju ári í meira en tvo
áratugi undir heitinu „Kvöldlokkur á
jólaföstu“. Kvöldlokkurnar eru jafnan
best sóttu tónleikar Blásarakvintettsins,
enda líta margir á þessa tónleika sem
fastan lið í undirbúningi jólanna.
Að þessu sinni verða tónleikarnir
haldnir í Fríkirkjunni í Reykjavík og hefj-
ast þeir í kvöld klukkan átta.
Eins og nafnið bendir til eru jafnan
fluttar hljómfagrar kvöldlokkur, eða ser-
enöður eins og það heitir á útlensk-
unni, á jólatónleikum Blásarakvintetts-
ins. Í ár eru það kvöldlokkur eftir Goun-
od, Mozart og Krommer sem fluttar
verða á tónleikunum.
Blásarakvintett Reykjavíkur skipa þeir
Bernharður Wilkinson, Daði Kolbeins-
son, Einar Jóhannesson, Jósef Ognibene og Haf-
steinn Guðmundsson.
Með þeim leika í kvöld þeir Peter Tompkins, Sig-
urður I. Snorrason, Þorkell Jóelsson, Brjánn Inga-
son og Rúnar Vilbergsson.
Kl. 20.00 í kvöld verður hefðbundin
bókaveisla Sagnfræðingafélags Íslands
og Sögufélags haldin í húsi Sögufélags í
Fischersundi. Fjölmargir höfundar nýrra
rita um sögu landsins kynna verk sín á
skemmtilegri og fræðandi kvöldstund.
Léttar veitingar verða á boðstólum.
menning@frettabladid.is
Kvöldlokkur á jólaföstu
Frábærlega stíluð samtímasaga
Sögumaðurinn er ung kona á kross-
götum. Hún er sjálfs síns herra,
starfar við þýðingar, en finnst eitt-
hvað vanta í lífið. Sagan hefst á
framhjáhaldi hennar við fyrrum við-
skiptavin. Hún er engan veginn
ánægð með sjálfa sig og heitir því
að hætta þessu en þegar heim
kemur fær hún þær fréttir að eigin-
maður hennar til fjögurra ára sé bú-
inn að barna viðhald sitt og sam-
starfskonu. Hann kennir henni um
allt sem miður fór í hjónabandinu
og þau slíta samvistum. Uppfrá því
hefst nýtt líf hjá henni með óvænt-
um uppákomum, uppáferðum og
ferðalagi um landið með lítinn og
skrýtinn strák.
Stíllinn hjá Auði Ólafsdóttur í
bókinni Rigning í Nóvember er
hreint frábær. Hann er hraður,
ögrandi og beinskeyttur. Setninga-
skipanin er óvenjuleg, einkennist af
langlokum, innskotssetningum og
slitróttum tengingum en í fullu
samræmi við manngerð aðalsögu-
hetjunnar sem er stefnulaus, hvat-
vís og haldin tilfinningadeyfð. Hún
virðist forðast skuldbindingar, vill til
að mynda ekki eignast barn því hún
á svo erfitt með að umgangast þau
en óvænt samband hennar við
heyrnar- og sjónskertan fjögurra ára
son bestu vinkonunnar breytir
smám saman lífsviðhorfi hennar.
Hún þroskast talsvert á ferðalaginu,
tekur í raun stakkaskiptum sem eru
í senn sannfærandi og áhrifamikil.
Frásögn sögumannsins er sérlega
seiðandi. Hún lætur flest allt flakka,
heldur samt því persónulegasta
leyndu en imprar á ýmsu eftir því
sem líður á söguna. Þannig öðlast
bersögul frásögnin dýpt og
margræðni. Þetta stílbragð er
vandasamt og fer Auður aldrei út af
sporinu á þeirri hárfínu línu sem
hún dansar eftir í sögunni. Þar að
auki hefur hún lúmskan húmor og
gott vald á persónusköpun. Sannar-
lega raunsæjar og skýrar mannlýs-
ingar af nútímafólki á öllum aldri.
Sögunni má skipta í þrjá megin-
hluta; yfirþyrmandi stórborgin,
vætusamt vetrarferðalag eftir þjóð-
vegi 1 og afslappað umhverfi smá-
þorpsins. Uppbyggingin er hefð-
bundin að undanskildum skáletruð-
um innskotsköflum þar sem flakkað
er um tíma og rúm í hugskoti sögu-
hetjunnar. Innskotskaflana hefði
hugsanlega mátt nota á markvissari
hátt en þeir falla vel að skemmti-
lega sundurlausri orðræðunni.
Á heildina litið er Rigning í nóv-
ember áhrifamikil og hressandi
lesning. Lesendum er fleygt inn í
hugmyndaheim sjálfhverfrar og frá-
hrindandi ungrar konu en eftir því
sem líður á söguna fer manni að
líka sífellt betur við manneskjuna.
Hlaut Auður bókmenntaverðlaun
Tómasar Guðmundssonar fyrir
þessa stórskemmtilegu skáldsögu
og á hún þau fyllilega skilið. Að lok-
um má nefna að með bókinni fylg-
ir lítið kver með uppskriftum af
þeim mat, drykkjum og prjónaskap
sem koma fyrir í sögunni. Frumleg
og skondin viðbót með safaríkum
uppskriftum á borð við „grillaða
snjótittlinga á hálendisvísu“. ■
Gömul dægurlög eiga það til að
eignast framhaldslíf í djassheim-
inum, þar sem djasstónlistarmenn
skemmta sér við að færa þau í
nýjan búning allt eftir því hvernig
andinn blæs þeim í brjóst. Slík lög
nefna djassarar „standarda“.
„Venjulega er þetta bandarísk
söngleikjamúsík frá því um miðja
síðustu öld eða jafnvel eldri. Lög
eftir Hammerstein, Cole Porter,
Gershwin og þessa gaura,“ segir
Jóel Pálsson saxófónleikari, sem
nú hefur ásamt Eyþóri Gunnars-
syni píanóleikara sent frá sér
plötuna Skuggsjá þar sem þeir
flytja vel valda íslenska stand-
arda frá síðustu áratugum.
„Þetta eru standardar framtíð-
arinnar. Við erum að taka þarna
lög eftir íslensk samtímapopptón-
skáld í rauninni, til dæmis Björk
og Sigur Rós, Bubba og Magga
Eiríks, Gunna Þórðar og Atla
Heimi. Við erum að taka þessa
standarda yfir á næsta þrep og
færa þetta svolítið nær okkar
veruleika.“
Á plötunni eru þeir Jóel og Ey-
þór einir á ferð með saxófón og
flygil og spinna þessi lög af fingr-
um fram.
„Þetta er hálfgerður minimal-
ismi má segja. Í rauninni er þetta
ekki beinlínis djassplata heldur
erum við að spinna okkur í gegn-
um þessar laglínur sem hvert
mannsbarn á Íslandi þekkir. Sumt
af þessu tætum við aldeilis sundur
og púslum svo saman aftur, annað
er nær upprunalegu myndinni.“
Báðir hafa þeir Jóel og Eyþór
undanfarið verið afar uppteknir
við ýmis verkefni í tónlistinni,
bæði sameiginlega og hvor í sínu
lagi. Meðal annars eru þeir ný-
komnir úr þriðju tónleikaferðinni
í röð með Mezzoforte í Evrópu.
Fyrir þessa nýju plötu hafa
þeir hlotið tvær tilnefningar til Ís-
lensku tónlistarverðlaunanna,
bæði fyrir plötu ársins og sem
flytjendur ársins. Hugmyndin að
þessu samstarfi þeirra kviknaði
fyrst fyrir einum sex árum, þegar
þeir léku saman einn dúett á
fyrstu plötu Jóels.
„Þegar allir voru farnir heim
úr stúdíóinu sátum við eftir og
spiluðum. Þá kom þessi fluga í
kollinn á okkur. Það var svo ekki
fyrr en núna sem við fundum
þennan ramma utan um samstarf-
ið.“ ■
Spinna sig í gegnum framtíðina
BÓKMENNTIR
HLYNUR PÁLL PÁLSSON
Rigning í nóvember
Höfundur: Auður Ólafsdóttir
Útgefandi: Salka
!
Tilkynning frá Kirkjugörðum Reykjavíkurprófastsdæma
Jólaþjónusta starfsfólks
Jól í görðunum
Á jólum kemur fjöldi fólks í Fossvogs-
kirkjugarð, Gufuneskirkjugarð og
Hólavallagarð við Suðurgötu til þess að
huga að leiðum ástvina sinna. Við munum
leitast við að leiðbeina ykkur eftir bestu
getu. Hægt er að nálgast upplýsingar um
staðsetningu leiða á vefnum gardur.is
Þjónustusímar
585 2700 og 585 2770
Aðalskrifstofan í Fossvogi, sími 585 2700
og skrifstofan í Gufunesi, sími 585 2770,
eru opnar alla virka daga frá
kl. 8.30 til 16.00.
Skrifstofurnar eru opnar á Þorláksmessu
og aðfangadag frá kl. 9.00 til kl.15.00.
Þar veitum við upplýsingar, gefum leiðbein-
ingar um aðhlynningu leiða og afhendum
ratkort ef þörf krefur.
Þjónusta á Þorláksmessu
og aðfangadag
Á Þorláksmessu og aðfangadag, milli
kl. 10.00 og 15.00, verða Fossvogskirkja
og þjónustuhús í Gufuneskirkjugarði opin
fyrir þá sem vilja staldra við í dagsins önn.
Á aðfangadag munu prestar verða til
staðar í Fossvogskirkju. Starfsmenn
Kirkjugarðanna verða á vettvangi í
görðunum báða þessa daga og taka á móti
ykkur og leiðbeina frá kl. 9.00 til 15.00.
Gleðilega jólahátíð
Kirkjugarðar
Reykjavíkurprófastsdæma
www.kirkjugardar.is
AUÐUR
ÓLAFSDÓTTIR
EYÞÓR OG JÓEL VIÐ FLYGILINN Þeir flytja standarda framtíðarinnar á nýútkominni plötu sem heitir Skuggsjá.
Jóel Pálsson saxófónleikari og Eyþór Gunnarsson píanóleik-
ari hafa sent frá sér plötuna Skuggsjá. Þar spinna þeir sig í
gegnum lög úr smiðju Bjarkar, Sigur Rósar, Bubba, Magga
Eiríks, Gunna Þórðar og Atla Heimis.
Smáauglýsingasíminn er 550 5000
auglysingar@frettabladid.is
M
YN
D
/H
IL
M
AR
BLÁSARAKVINTETT REYKJAVÍKUR Leikur serenöður eftir Goun-
od, Mozart og Krommer í Fríkirkjunni í Reykjavík.
68-69 (48-49) Menning 15.12.2004 20:15 Page 2