Fréttablaðið - 20.06.2005, Síða 67
23MIÐVIKUDAGUR 15. júní 2005
Fólk verslaði fyrir 37,4
milljarða króna með debet-
kortum sínum í maí síðast-
liðnum. Var keypt fyrir 36,7
milljarða innanlands en ann-
að erlendis. Er þetta mesta
debetkortavelta í einum
mánuði á þessu ári og svipuð
veltunni í desember 2003.
Aðeins í desember í fyrra
var verslað fyrir meira með
debetkortum eða 42,4 millj-
arða króna.
Þeir sem notuðu kredit-
kort í viðskiptum sínum
eyddu hins vegar um 16,4
milljörðum króna í maí.
Kreditkortaveltan er því
mun minni en velta debet-
korta. – bg
Spenna á vinnumarkaði
og líkur á launaskriði á
næstunni.
Spenna virðist hafa myndast á
vinnumarkaði og launaskrið er
líklegt á næstu misserum í því
ljósi segir í Morgunkornum grein-
ingardeildar Íslandsbanka.
Skráð atvinnuleysi var 2,2 pró-
sent af mannafla í maí samkvæmt
tölum Vinnumálastofnunar og
hefur því minnkað lítillega frá
fyrri mánuði. Á sama tíma í fyrra
var atvinnuleysið 3,3 prósent af
mannafla.
Samhliða miklum hagvexti hef-
ur atvinnuleysi minnkað verulega
að undanförnu. Í Morgunkornum
segir einnig að verðbólguþrýst-
ingur sökum launaskriðs gæti
aukist á næstu misserum vegna
spennu á vinnumarkaði sem bæt-
ist nú ofan á þann eftirspurnar-
þrýsting sem þegar sé til staðar.
-dh
Eignir lífeyrissjóðanna
hafa stóraukist á und-
anförnum árum, segir
á vef greiningardeild-
ar Íslandsbanka.
Hreinar eignir sjóð-
anna voru 314 milljarð-
ar árið 1997 en eru nú
1020 milljarðar. Er það
225 prósent aukning.
Segir Íslandsbanki
nokkrar ástæður vera fyr-
ir aukningunni, meðal ann-
ars tilkomu séreignar-
sparnaðar, innflæði ið-
gjalda umfram lífeyri
vegna aldurssamsetningar
þjóðarinnar, góða rauná-
vöxtun sjóðanna og til-
komu eftirlits skattayfir-
valda á greiðsluskyldu í
lífeyrissjóði. -jsk
Maran Seafood, dótturfélag í eigu
Sigurðar Ágústssonar ehf. í
Stykkishólmi, hefur keypt Hevico
í Vejle, Danmörku. Hevico er
stærsti framleiðandi á heitreykt-
um silungi í Evrópu. Félagið vinn-
ur úr sex þúsund tonnum af hrá-
efni frá eldisstöðvum sem það sel-
ur einkum á Þýskalandsmarkað.
Stjórnendur Sigurðar Ágústs-
sonar áætla að samanlögð velta
samstæðunnar verði um 3,5 millj-
arðar króna á þessu ári. Starfs-
menn félagsins eru um 100.
Íslandsbanki hafði milligöngu
um viðskiptin og fjármagnaði
þau. - eþa
Atvinnuleysi minnkar verulega
FLESTIR STÖRFUÐU VIÐ LANDBÚNAÐ Á ÁRUM ÁÐUR Verslun og þjónusta hefur
tekið við sem fjölmennasta atvinnugreinin.
Kortakaupæ›i í maí
Eignir lífeyrissjó›a aukast
VERKAMENN VIÐ
VINNU
Sigur›ur Ágústsson ehf. kaupir Hevico
SILUNGURINN HEILLAR Dótturfélag
Sigurðar Ágústssonar hefur fest kaup á
Hevico í Danmörku sem sérhæfir sig í
framleiðslu á heitreyktum silungi.