Fréttablaðið - 27.06.2005, Síða 2
Barist gegn eiturlyfjum:
Sextíu tonn
brennd á báli
AFGANISTAN Stjórnvöld í
Afganistan brenndu í gær sextíu
tonn af eiturlyfjum í sérstöku
átaki stjórnarinnar gegn eitur-
lyfjum. Í gær var alþjóðlegur bar-
áttudagur gegn eiturlyfjum og
tóku stjórnvöld í Afganistan
virkan þátt í baráttunni. Mest var
brennt í höfuðborginni Kabúl en
aðallega ópíum en einnig hass og
heróín. Afganistan var talið vera
leiðandi aðili í framleiðslu á óp-
íum í heiminum undir forystu
Talíbana-stjórnarinnar. ■
GEORGE W. BUSH Danir viðhafa mikla ör-
yggisgæslu vegna heimsóknarinnar.
Danir bíða komu Bush:
Öryggi haft
í hávegum
KAUPMANNAHÖFN George W. Bush,
forseti Bandaríkjanna, er væntan-
legur í opinbera heimsókn til Dan-
merkur í byrjun næsta mánaðar
áður en hann heldur á leiðtoga-
fund iðnríkjanna í Skotlandi. Dan-
ir hafa gríðarlega öryggisgæslu
vegna heimsóknarinnar þar sem
þeir telja hryðjuverkamenn geta
látið til skarar skríða þar sem
annars staðar. Búist er við því að
viðbúnaður dönsku lögreglunnar
hafi sjaldan verið jafn mikill og
hann verður við komu forsetans. ■
2 27. júní 2005 MÁNUDAGUR
Bubbi Morthens íhugar málssókn:
Sakar 365 um ofbeldi og atvinnuróg
FJÖLMIÐAR Tónlistarmaðurinn
Bubbi Morthens íhugar að fara í
skaðabótamál við fyrirtækið 365
prentmiðla sem gefur út blaðið
Hér og nú sem slegið hefur upp
fréttum af einkalífi hans á forsíðu
síðustu tveggja tölublaða. Frá
þessu var greint í fréttum Stöðvar
2 í gærkvöldi.
Í viðtali við Stöð 2 sagðist
Bubbi ekki geta samþykkt að
hægt væri að beita sig og fjöl-
skyldu sína ofbeldi í skjóli rit-
frelsis. Forsíðufyrirsögn síðasta
tölublaðs Hér og nú var „Brynja
hélt framhjá Bubba“ en Brynja er
fyrrverandi eiginkona Bubba.
Í vikunni þar á undan var for-
síðufyrirsögnin „Bubbi fallinn“
og var skírkotun til þess að Bubbi
væri byrjaður að reykja aftur. Í
viðtalinu við Stöð 2 sagðist Bubbi
hins vegar hafa reykt í eitt og
hálft ár. Bubbi sagði tilgang um-
fjöllunarinnar vera að selja fólki
það að hann væri byrjaður aftur
að dópa en afkoma hans og trú-
verðugleiki byggist öll á því að
hann sé edrú og því væri umfjöll-
unin atvinnurógur.
Fréttablaðið náði ekki í Bubba
Morthens vegna málsins. - ifv
Atlantshafsbandalagið kemur að deilum Ísraela og Palestínumanna:
Átti í vi›ræ›um vi› deilendur
STJÓRNMÁL Atlantshafsbandalagið
hefur átt í viðræðum við bæði
Ísraelsmenn og Palestínumenn
um þá málaleitan Palestínumanna
að bandalagið komi að sáttaum-
leitan fyrir botni Miðjarðarhafs.
Þetta kom fram í svari fram-
kvæmdastjóra Atlantshafsbanda-
lagsins, Jaap de Hoop Scheffer,
við fyrirspurn Össurar Skarp-
héðinssonar alþingismanns á
sumarfundi Evrópuráðsþingsins í
Strassborg fyrir helgi.
„Mönnum þótti afar merkilegt
að heyra að nýlegar viðræður
hefðu átt sér stað,“ segir Össur.
Hann segir að Atlantshafsbanda-
lagið hafi áður sagt að það kæmi
ekki að deilunni með beinum
hætti nema fyrir lægi samþykki
beggja deiluaðila og skýrt umboð
frá Sameinuðu þjóðunum.
„Nærvera Atlantshafsbanda-
lagsins getur hins vegar skipt
sköpum um frið og það hefur sýnt
sig og sannað, til dæmis á
Balkanskaga. Einnig ef deilendur
eru sammála um einhvers konar
hlutverk þess á tilteknu átaka-
svæði,“ segir Össur. -hb
Sjálfstæ›isflokkur
bætir vi› sig fylgi
Sjálfstæ›isflokkurinn bætir verulega vi› sig fylgi í könnun Gallup í su›vestur-
og su›urkjördæmi. Vinstri-grænir vinna einnig á en Samfylkingin og Frjáls-
lyndir standa í sta›.
STJÓRNMÁL Sjálfstæðisflokkurinn
bætir verulega við sig fylgi í suð-
vesturkjördæmi samkvæmt
könnun Gallup frá því byrjun
mánaðarins. Hann fengi 44 pró-
senta fylgi í kjördæminu
samkvæmt könnuninni en fékk
38,5 prósenta fylgi í kosningunum
2003. Samfylkingin fengi 31,9 pró-
sent en fékk 32,8 þegar kosið var
síðast. Vinstri-grænir fengju 10,1
prósent og bæta við sig tæpum
fjórum prósentustigum, fengu 6,2
í kosningunum, Framsóknar-
flokkur fengi 7,9 prósent en fékk
14,9 prósent 2003 og Frjálslyndir
6,1 prósent sem er aðeins minna
en flokkurinn fékk í kosningunum
en þá fékk hann 6,7 prósent.
Samtals svöruðu 244 í kjör-
dæminu en könnunin var hluti af
þjóðarpúlsi Gallup og voru niður-
stöður hans um fylgi stjórnmála-
flokkanna birtar á landsvísu í
byrjun mánaðarins. Hafa ber í
huga að þjóðarpúls Gallup mælir
fylgi stjórnmálaflokka á lands-
vísu og niðurstöðurnar aðeins
birtar fyrir landið í heild sinni.
Fréttablaðið hefur fengið í hendur
gögn sem unnin hafa verið úr
könnuninni og sundurliðuð fyrir
hvert kjördæmi. Samanburður af
þessu tagi getur verið óná-
kvæmur þar sem um er að ræða
tiltölulega lágt svarhlutfall í
hverju kjördæmi fyrir sig.
Í suðurkjördæmi fengi Sjálf-
stæðisflokkurinn 38,7 prósent
fylgi en hafði 29,2 prósent í
síðustu kosningum og bætir því
við sig tæpum 10 prósentustigum.
Samfylkingin fengi 32,9 prósent
en fékk 29,7 prósent í kosningum,
Vinstri-grænir fengju 9,1 prósent
en 4,7 prósent þegar kosið var,
Framsóknarflokkurinn 14,6 pró-
sent en 23,7 prósent í kosningun-
um og Frjálslyndir 4,9 prósent en
höfðu 8,7 prósent í síðustu
kosningum. Í suðurkjördæmi var
byggt á 154 svörum.
Niðurstöður könnunarinnar
fyrir norðvestur- og norðaustur-
kjördæmi verða birtar í Frétta-
blaðinu á morgun.
hjalmar@frettabladid.is
Reykjavíkurborg:
Fjölgar fijón-
ustustö›vum
BORGARMÁL Fimm nýjar þjónustu-
stöðvar tóku til starfa í hverfum
Reykjavíkur á dögunum. Um er
að ræða velferðarþjónustu, frí-
stundaráðgjöf og verkefni á sviði
menntamála. Á miðstöðvunum má
nálgast alhliða upplýsingar um
þjónustu borgarinnar.
Þá er hægt að sækja þar um
ýmis konar þjónustu á borð við
leikskólapláss, húsaleigubætur og
heimaþjónustu. Einnig er veitt
þar félagsleg og sálfræðileg ráð-
gjöf. Borgaryfirvöld segjast vilja
með þessu gera þjónustu sína að-
gengilegri fyrir íbúa og auka sam-
starf sérfræðinga í málefnum
barna og fjölskyldna. -bs
SPURNING DAGSINS
Eiríkur, ætlar›u a› taka
slaginn?
„Ég segi bara góðan daginn!“
Bubbi Morthens bauð Eiríki Jónssyni, Mikael
Torfasyni og Gunnari Smára Egilssyni í box-hring-
inn í kjölfar umfjöllunar vikuritsins Hér&Nú og DV
um mál Bubba og fyrrum eiginkonu hans.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
AR
I
ÞINGMENN SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS Samkvæmt könnun Gallups fengi Sjálfstæðisflokk-
urinn 38,7 prósent fylgi í suðurkjördæmi en hafði 29,2 prósent í síðustu kosningum.
ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON Spurði um aðkomu NATO að deilum Ísraela og Palestínumanna.
BUBBI MORTHENS Fer hugsanlega í
mál við fyrirtækið 365 vegna umfjöllun-
ar blaðsins Hér og nú um einkalíf sitt.
Listakonan Kogga:
Færir Alflingi
kvennakraft
Listakonan Kolbrún Björgólfs-
dóttir, Kogga afhendir í dag Hall-
dóri Blöndal, forseta Alþingis,
gjöf til þingsins í minningu 90 ára
afmælis kosningaréttar kvenna.
Gjöfin er verk eftir Koggu sem
nefnist kvennakraftur.
Það eru Femínistafélag Ís-
lands, Kvenréttindafélag Íslands,
Kvenfélagasamband Íslands,
Kvennasögusafn Íslands, Kvenna-
kirkjan, Rannsóknastofa í
kvenna- og kynjafræðum, Samtök
um kvennaathvarf, Stígamót og
UNIFEM á Íslandi sem standa að
gjöfinni til Alþingis. ■