Fréttablaðið - 29.06.2005, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 29.06.2005, Blaðsíða 6
6 29. júní 2005 MIÐVIKUDAGUR Ráðist verður í nýtt átak í umferðaröryggismálum: Auki› fé til fækkunar slysum UMFERÐARÖRYGGI Stórauknu fjár- magni verður á næstu fjórum árum veitt til umferðaröryggis- mála samkvæmt samningi sem Umferðarstofa og Ríkislögreglu- stjóri undirrituðu á blaðamanna- fundi í gær. Næstu fjögur ár verður 385 milljónum króna veitt árlega í auk- ið umferðaröryggi og árangur átaksins reglulega kynntur fyrir almenningi. Tilgangurinn er sá að fækka þeim sem látast eða slasast alvarlega í umferðarslysum. Har- aldur Johannessen ríkislögreglu- stjóri sagðist á blaðamannafundin- um vonast til að árangur átaksins yrði slíkur að áfram yrði veitt verulegu fjármagni í áróður og eft- irlit til að auka umferðaröryggi. Fyrir hluta fjármagnsins mun embætti Ríkislögreglustjóra festa kaup á svokölluðum „eyewitness“- tækjum sem eru stafrænar upp- tökuvélar sem komið er fyrir í lög- reglubílum til að auðvelda umferð- areftirlit. Á fundinum kynnti svo Umferð- arstofa nýja auglýsingaherferð þar sem sagt er frá þankagangi þeirra sem lenda í alvarlegum um- ferðarslysum þegar slysin verða og sagði Einar Magnús Magnússon upplýsingafulltrúi Umferðarstofu að markmiðið væri að uppræta þann hugsanagang. - oá Héraðsdýralæknir tók í taumana: Vanfó›ru› hross í Hafnarfir›i DÝRAHALD Héraðsdýralæknir hafði í vikunni afskipti af þremur van- fóðruðum hestum, sem haldnir voru í hesthúsi á svæði hesta- mannafélagsins Sörla í Hafnar- firði. Var eigendum veitt tiltal og gert að sleppa þeim í haga, svo þeir kæmust á grös. Gunnar Örn Guðmundsson héraðsdýralæknir staðfesti að hann hefði haft afskipti af þessu máli. Haft var samband við hann í síðustu viku og honum gert við- vart um bágt ástand hrossanna. Hann sendi eftirlitsmann á stað- inn, sem sá að hestarnir voru ekki hirtir sem skyldi. Voru þeir ekki í nógu góðum holdum miðað við að þeir væru á fullri gjöf. Héraðsdýralæknisembættið hafði samband við eiganda hross- anna og kom á framfæri athuga- semdum um umhirðu þeirra. Hon- um var gert að sleppa þeim út í síðasta lagi í fyrradag, sem hann og gerði. Héraðsdýralæknir sagði við Fréttablaðið að virkt eftirlit væri með að atburðir af þessu tagi ættu sér ekki stað. Til dæmis væri fóður- eftirlitsmaður á ferð um hesthúsa- hverfin á höfuðborgarsvæðinu og kannaði stöðuna þar sem menn væru enn með hross á húsi. -jss Ríki› gekk á bak or›a sinna Samtök verslunar og fljónustu gagnr‡na har›lega stækkun komuverslunar Fríhafnarinnar á Keflavíkurflugvelli og segja stjórnmálamenn sem hafi lofa› a› draga úr starfseminni ganga á bak or›a sinna. Framkvæmdastjóri Fríhafnarinnar segist fyrst og fremst vera í samkeppni vi› erlendar fríhafnir. SAMKEPPNI Komuverslun fríhafn- arinnar á Keflavíkurflugvelli hef- ur verið stækkuð um meira en helming, frá 460 fermetrum upp í rúma þúsund fermetra. Samtök- um verslunar og þjónustu þykir utanríkisráðuneytið hafa gengið á bak orða sinna með því að sam- þykkja að stækka rekstur sem er í samkeppni við einkaaðila. Sigurður Jónsson fram- kvæmdastjóri samtakanna segir alla stjórnmálaflokka hafa verið spurða að því fyrir síðustu kosn- ingar hvort ríkið ætli sér að vera áfram í smásölusamkeppnis- rekstri. Allir flokkar svöruðu því til að draga bæri saman rekstur komuverslunarinnar. Hann segir það skjóta skökku við að ríkisfyr- irtæki sé í samkeppni um sölu á snyrtivörum, sælgæti, raftækjum og öðru því sem kaupa má í frí- höfninni. Aðspurður hvort það sé ekki hagur neytenda að úrval og að- gengi sé gott í fríhöfninni segir Sigurður að ef svo væri hlyti þá líka að vera hagur neytenda ef ríkið sæi þá um það sjálft að reka almennar neysluvöruverslanir, því sé um tvískinnung að ræða. Hann segir það skoðun SVÞ að ríkið eigi að einskorða sig við rekstur sem er þess eðlis að hann sé ekki í beinni samkeppni við einkaaðila. Sturla Eðvarsson fram- kvæmdastjóri Fríhafnarinnar ehf. blæs á gagnrýni Samtaka verslun- ar og þjónustu. „Við erum fyrst og fremst í samkeppni við aðrar brottfararverslanir á erlendum flugvöllum“, segir Sturla. Hann segir það hafa verið nauðsynlegt að stækka komuverslunina enda hafi svo verið komið að á álags- tímum hafi fólk hreinlega ekki komist inn í verslunina. Hann seg- ir Fríhöfnina aldrei hafa verið í samkeppni við innlendar verslan- ir og aldrei hafa auglýst á innan- landsmarkaði. Aðspurður um aug- lýsingu sem birtist fyrir jólin þar sem iPod hljómflutningstæki voru auglýst á lægra verði í Frí- höfninni segir hann þá auglýsingu ekki hafa verið frá Fríhöfninni komna. oddur@frettabladid.is LILJA VIÐARSDÓTTIR Nýr aðstoðarfram- kvæmdastjóri EFTA með aðsetur í Brussel. Ráðherrafundur EFTA: Íslenskur fram- kvæmdastjóri EFTA Á ráðherrafundi EFTA-ríkj- anna í Liechtenstein sem lauk í gær var tekin ákvörðun um að ráða Lilju Viðarsdóttur sem aðstoðarfram- kvæmdastjóra EFTA með aðsetur í Brussel til þriggja ára frá hausti 2006. Davíð Oddsson, utanríkisráð- herra, sat fundinn af hálfu Íslands. Í yfirlýsingu fundarins kemur meðal annars fram að EFTA-ríkin séu að skapa sér sterka samkeppnisstöðu á Asíumarkaði með fríverslunarvið- ræðum við lönd eins og Suður- Kóreu og Taíland. ■ HÚSKERFI KÁRAHNJÚKAVIRKJUN- AR Landsvirkjun hefur óskað eftir tilboðum í húskerfi fyrir Kára- hnjúkavirkjun í Fljótsdal. Verkið felst í efnisútvegun, smíði, upp- setningu, prófunum og gangsetn- ingu á kerfunum. Útboðsgögn fást afhent í móttöku Landsvirkjunar í Reykjavík frá og með deginum í dag, en þeim á að skila fyrir klukkan tvö, föstudaginn 26. ágúst. PAR DÆMT FYRIR MÓÐURDRÁP Dómstóll í Värnamo dæmdi í gær 17 ára stúlku og 18 ára gamlan unnusta hennar til vistunar á geð- sjúkrahúsi en í apríl síðastliðnum myrtu þau móður stúlkunnar á heimili hennar í Gislaved í Mið- Svíþjóð. Þau áformuðu auk þess að myrða föður hennar, systkini og ömmu í þeirri von að þau sætu ein að fjölskylduarfinum. FRÁ GUANTANAMO Enn koma fram ásak- anir um vanhelgun Kóransins í herstöðinni. Guantanamo: Kóraninn í klósetti› KÚBA, AP Sex Pakistanar segjast hafa orðið vitni að vanhelgun Kór- ansins í fangabúðunum í Guant- anamo á Kúbu. Mennirnir halda því fram að við yfirheyrslur í fangelsinu sé traðkað á Kóranin- um og hann rifinn í tætlur. Svipaðar ásakanir hafa komið fram frá rússneskum föngum. „Á Kúbu voru þeir vanir að kasta Kóraninum í klósettið. Þetta var gert reglulega til að ögra okkur,“ sagði einn þeirra. Bandaríkjamenn neita þessum ásökunum og segja að al-Kaída þjálfi fanga í því að ljúga með þessum hætti. ■ ÚTSALAN HEFST Í DAG 30%-50% AFSLÁTTUR Rollingar Kringlunni Sími 568 6688 VIRKJANAFRAMKVÆMDIR SVÍÞJÓÐ Getur eitthvert lið komið í veg fyrir að FH-ingar verji Íslandsmeistaratitil sinn í fótbolta? SPURNING DAGSINS Í DAG: Hefur þú farið á stórtónleika í sumar? Niðurstöður gærdagsins á visir.is 59% 41% Nei Já Farðu inn á fréttahluta visir.is og segðu þína skoðun KJÖRKASSINN STURLA BÖÐVARSSON, KARL RAGNARS OG HARALDUR JOHANNESSEN Samgönguráðherra sagði á blaðamannafundi í gær að ábyrgð fjölmiðla væri mikil þegar kemur að því að breiða út boðskap umferðaröryggis. HESTAHALD Það heyrir til hreinna undantekninga á seinni tíð að hafa þurfi afskipti af hest- eigendum vegna vanfóðrunar á hrossum. Myndin er alls óviðkomandi efni fréttarinnar. FRÁ FRÍHÖFNINNI Sturla Eðvarðsson framkvæmdastjóri Fríhafnarinnar segist ekki vera í samkeppni við innlendar verslanir heldur erlendar fríhafnir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.