Fréttablaðið - 29.06.2005, Page 19

Fréttablaðið - 29.06.2005, Page 19
3MIÐVIKUDAGUR 29. júní 2005 Laxveiðin er ennþá í lagi en gloppótt og munur nokk- ur milli ánna. Fyrstu laxarnir sáust í Rangá í vikunni þótt „veiði“ væri byrjuð fyrr og þá fengust þeir fyrstu í Laxá á Ásum. Fjörið er samt í Norðurá sem virðist ætla að stefna í mjög gjöfult ár þegar menn „fram- reikna“ júníaflann. Vopnafjarðardísirnar Hofsá og Selá eru komnar af stað þótt að margra manna áliti sé tekin umtalsverð áhætta með að kasta svo snemma í þær síðsumarsár. En gæfan var með þeim sem opn- uðu og laxinn greinilega byrjaður að ganga. Margir bíða eftirvæntingarfullir eftir fyrstu fréttum úr Stóru Laxá, en þar hefur verið rólegt fyrstu dagana. Þegar litið er yfir sviðið í heild má segja að laxveiðin sé undir væntingum (sem alltaf eru ansi miklar!) og stórlaxavorið sem menn héldu að yrði í ár kemur ör- ugglega ekki. Áður sögðu menn að gott smálaxaár eins og í fyrra gæfi vísbendingu um jafn gott stórlaxa- ár á eftir, en það samhengi er ekki nærri jafn sterkt hin síðari ár og var áður, og virðist nú alveg rofið. Meðal nýjunga á veiðimarkaði þetta árið eru nýjar gárutúpur eftir Dr. Jónas á frances.is, en þær eru með flúrljómuðum plastbúk sem á að gera þær skærarlitar í vatninu. Þetta er ekki ný uppfinning, en nú kynnt af fullum krafti á ís- lenskum veiði- markaði; hvort þetta reynist bragðið sem slæri í gegn er svo ann- að mál. En spenn- andi að reyna eitt- hvað nýtt. Í síðasta pistli hvatti ég menn til að reyna að VEIÐISUMARIÐ með Stefáni Jóni Hafstein VEIÐIFRÉTTIR Í SAMSTARFI VIÐ FLUGUR.IS Alltaf eitthvað nýtt! smækka flugurnar í silunginn, og kom í ljós að kappar á urriða- svæðinu í Laxá höfðu erindi sem erfiði í þeim efnum. Einn úr hópnum beitti agnarsmáum þurrflugum, allt niður í stærðir 32! Hann náði að landa einum 4ra punda á svo smáa flugu. Svona litlar flugur eru hnýttar undir ljósi með stækkunargleri, félaginn notaði 4ra punda Kamazan-taum og klippti skáhallt á hann til að koma honum inn um augað á flugunni. Sjálfsagt hafa menn notað ögn stærri flugur í Veiðivötnum þegar allt fór í gang þar, einn kunningi okkar fékk 21 fisk á 2 dögum og stærst fimm punda. Honum fannst bleikjan í Langavatni óvenju væn og góð. En stærsti urriðinn slapp í Litlasjó! Heilræði vikunnar er tengt vatnaveiðum: Ekki vaða of langt! Þegar komið er að vatni borgar sig að keyra ekki alveg niður að bakka, fara sér hægt og veiða frá landinu og meðfram því áður en vaðið er út. Fiskar eiga nefnilega líka heima meðfram bökkum! Fleiri veiðifréttir daglega og heilræði við veiðar á www.flugur.is; Flugufréttir koma alla föstudaga í tölvupósti til áskrifenda á flugur.is með ítarlega umfjöllun um allt sem varðar veiðiskap í sumar. golfvöllur vikunnar } Hvaleyrarvöllur GOLFKLÚBBURINN KEILIR Golfklúbburinn Keilir var stofnaður árið 1966 af áhugamönnum um golf í Hafn- arfirði, Garðabæ og Kópavogi. Menn fengu augastað á Hvaleyrinni í Hafnarfjarð- arlandi undir völl og eftir nokkurt þóf og samninga við ábúendur á jörðum í kring fékkst það land sem þurfti til að gera veglegan völl. Sex holu völlur var tekinn í notkun sumarið 1967 og íbúðarhúsið að Vesturkoti varð félagsheimili klúbbsins. 1972 var völlurinn endurskipulagður og sex holum bætt við. Byrjað var að spila Hvaleyrarvöllinn í núverandi mynd árið 1997. Hannes Þorsteinsson teiknaði og hannaði fyrri níu holurnar sem eru í Hvaleyrarhrauni, en fleiri komu að hönnun síðari níu holanna sem eru á gamla Hvaleyrartúninu þar sem spilað er meðfram strandlengjunni. Hvaleyrarvöllur hefur í gegnum árin verið annálað- ur fyrir góðar brautir og eftir að nýi völlurinn í Hvaleyrarrauni var opnaður hafa flatirnar fengið lofsverða athygli fyrir að vera sérstaklega góðar. Vallargjald eftir klukkan þrjú á daginn er 4.000 krónur en 3.000 fyrir þann tíma. Unglingar undir sextán ára og eldri borgarar geta spilað völlinn fyrir 2.000 krónur á ákveðnum tímum. Níunda holan þykir einkar falleg en hún nær yfir vatn þar sem gos- brunnur stingur stöku sinnum upp kollinum, vallargestum til gleði. Nánari upplýsingar má fá á www.golf.is. Fréttablaðið/Edwin Rögnvaldsson Flúrljómaður búkur á gárutúpu Einn að veiðum með fegurð sumarsins. BAKKAFLÖT • SKAGAFIRÐI Fjölbreytt ferðaþjónusta! Gisting Tjaldstæði Veitingar Heitir pottar Lítil sundlaug Verið velkomin! Símar 453 8245, 899 8245 bakkaflot@islandia.is • www.bakkaflot.com www. r i ve r r a f t i n g . i s B á t a f j ö r B a k k a f l ö t 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI Strandir munu flestum finnast fremur skapa kjörin hörð Grímseyjar þó mætti minnast mest hún prýðir Steingrímsfjörð. Þannig orti Ragnheiður Halldórsdóttir í Bæ á Sel- strönd um eyjuna Grímsey sem liggur utan við Drangsnes. Þangað sigla Vesturferðir í sumar með þá sem vilja drepa niður fæti á þessa stærstu eyju fyrir Ströndum og tekur siglingin bara 10 mínútur frá bryggjunni á Drangsnesi. Gengið er um eyjuna með leiðsögn þar sem sögu eyjunnar eru gerð góð skil. Meðal þess sem þar kemur fram er að búið var í Grímsey fram á 20. öld. Þar var líka reistur viti árið 1915 en Þjóðverjar eyðilögðu hann í loftárás í síðari heimsstyrjöldinni en vitinn var endurbyggð- ur 1949. Fuglalífið er líflegt í Grímsey og til dæmis er talið að þar séu hátt í þúsund lundapör. Ef veður er gott er siglt hringinn í kringum eyjuna að göngu lokinni og rennt fyrir fisk. Bátsferðirnar til Gríms- eyjar eru fimmtudaga og sunnudaga klukkan 14 en sex manna hópar og stærri geta farið utan þessa tíma. Gert er ráð fyrir þremur til fjórum tímum í ferðina og kostar hún þrjú þúsund krónur. Þá má geta þess að landeigendur hafa ákveðið að gefa fólki kost á að veiða lunda í háf í eyjunni og veiðileyfi eru seld hjá Jóni Magnússyni í Bæ 1. Mest hún prýðir Steingrímsfjörð Þegar ekið er um landið getur verið hressandi tilbreyting að skreppa í stutta bátsferð. Nú í sumar er í fyrsta sinn boðið uppá slíkar ferðir út í Grímsey á Steingrímsfirði. M YN D I A F W W W .S TR AN D IR .IS Styttist í Þjóðhátíð í Eyjum HAFIN ER SALA Á MIÐUM Í FERÐIR HERJÓLFS UM VERSLUNARMANNAHELGINA. Sumarið líður hratt og margir farnir að huga að stærstu ferðahelgi sumarsins, Verslunarmannahelginni. Í síðustu viku hófst miðasala í ferðir Herjólfs á Þjóðhá- tíð í Vestmannaeyjum. Þjóðhátíðin fer fram dagana 29.-31. júlí og farþegum Herjólfs er bent á að tryggja sér far með Herjólfi til og frá Eyjum hið fyrsta því oftast seljast þessar ferðir hratt upp. „Salan fer ágætlega af stað og nokkuð mikið búið að panta. Ég fæ ekki betur séð en að straumurinn muni liggja til Eyja,“ segir Guðfinnur Þór Pálsson, rekstar- stjóri Samskipa í Vestmannaeyjum. Tveimur næturferðum hefur verið bætt við hefðbundna áætlun. Sú fyrri verður farin frá Vestmannaeyjum fimmtudaginn 28. júlí kl. 23 og frá Þorlákshöfn að- faranótt föstudags 29. júlí kl. 2.30. Seinni ferðin verður farin frá Vestmannaeyj- um þriðjudaginn 2. ágúst kl. 23 og frá Þorlákshöfn aðfaranótt miðvikudagsins 3. ágúst kl. 2.30. Hægt er að skoða siglingaá- ætlun og bóka miða á vefsíð- unni www.herj- olfur.is.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.