Fréttablaðið - 29.06.2005, Qupperneq 20
Tungumál
Á sumrin er tilvalið að nota tímann til að læra tungumál. Góð tungumála-
kunnátta kemur sér vel í öllu námi, við ritgerðarsmíð er til dæmis gott að
geta sótt sér heimildir á nokkrum tungumálum. [ ]
!!!
Vegna bilunar á heimasíðu skólans hefur skólanum ekki borist þær umsóknir sem sendar voru inn frá maí 2005 til 26. júní.
Þeir nemendur sem sóttu um á þessum tíma eru beðnir velvirðingar og vinsamlega beðnir um að senda umsókn sína aftur.
Athugið að umsóknarfresturinn rennur út 7. júlí 2005. Sissa og Leifur.
H ó l m a s l ó ð 6 • 1 0 1 R e y k j a v í k • S í m i : 5 6 2 0 6 2 3 • G S M : 6 9 9 0 1 6 2 • w w w . l j o s m y n d a s k o l i n n . i s
,,Við ætlum fjórar vinkonur
saman aftur og aftur!
Diskarnir eru æðislegir hjá okkur!“
S á k ið f i k di bö
Hvað segja börnin
um námskeið í
Keramik fyrir alla?
saman aftur og aftur!
Diskarnir eru æðislegir hjá okkur!“
Sumarnámskeið fyrir skapandi börn,
eldri og yngri, keramik, teikning,
málun - allt innifalið - litlir hópar.
Aðeins 8500 kr. vikan!
Skráning í Keramik fyrir alla,
sími 552 2882, Laugavegi 48b.
Sjá lýsingu: www.keramik.is
Su arnámskeið
Keramik fyrir alla
Ennþá laust á vinsælu
barna ámskeiðin.
Ein vika, allt innifalið kr. 8900.-
Bókið núna.
G
O
T
T
F
Ó
LK
M
cC
A
N
N
Börn í sporum fornleifafræðinga
Áhuginn er mikill hjá ungu fornleifafræðingunum.
Að finna gamla hluti í fornum
rústum – það er ævintýralegt.
Þetta fá börn að prófa á Þing-
völlum á sunnudögum í sum-
ar í svokölluðum Prestakrók.
„Þarna eru ýmsir munir sem gætu
verið fornleifar. Þetta er eins og að
grafa í rústir menningarheimilis frá
fornöld,“ segir Einar Á. E. Sæmund-
sen, fræðslufulltrúi þjóðgarðsins á
Þingvöllum, um fornleifaskóla
barnanna sem er starfræktur alla
sunnudaga yfir sumartímann frá
13-16.
Hann viðurkennir að rústirnar
séu tilbúningur en ekki ekta en seg-
ir hlutina forneskjulega og nefnir
nokkuð af því sem á fjörur barn-
anna gæti rekið við uppgröftinn svo
sem eldstæði með ösku, beinaleifar,
hluti úr smiðju, tætlur af bókar-
handritum úr leðri, ýmis áhöld,
hnífa og fleira, að ógleymdum smá-
peningum. Hann segir landvörð
vera á staðnum sem leiðbeini börn-
unum, fræði þau um þennan merka
stað og setji hann í samband við
fornminjar. Síðan hefst leitin og
henni lýsir Einar svo: „Börnin fá
múrskeiðar eins og alvöru forleifa-
fræðingar nota og þau grafa eftir
ákveðnu hnitakerfi. Ryðja moldinni
ofan af hægt og rólega eins og al-
vöru vísindamenn og þá muni sem
þau finna eiga þau að teikna upp og
skrá eins og fornleifafræðingar
gera.“
Einar tekur fram að þetta sé ekki
bara eins og sandkassarót heldur
gangi ágætlega að halda spennunni.
Ekki spilli stemningunni að hver og
einn fái með sér gamlan sleginn
pening heim. „Þetta var reynt í
fyrra og gekk skemmtilega upp,“
segir Einar og bætir við. „Það komu
alltaf einhverjir á hverjum sunnu-
degi, jafnvel í slagveðursrigningu
og innan um voru miklir spekingar.“
gun@frettabladid.is
Hópur íslenskra háskóla- og fram-
haldsskólanemenda ásamt kennur-
um og stjörnufræðingum er á leið-
inni til Hawaii í Bandaríkjunum til að
fylgjast með árekstri geimfars á veg-
um Nasa við halastjörnuna Temple
1. Áreksturinn er áformaður 4. júlí
nk. Verkefnið, sem gengur undir
nafninu „Deep Impact“, er afrakstur
samstarfs íslenskra stjarnfræðinga og
stjarnvísindadeildar háskólans á
Hawaii og gefst Íslendingunum ein-
stakt tækifæri til að fylgjast með
þessum merka viðburði.
„Við verðum á tindi Haleakala fjalls
þegar áreksturinn veður og er ósk-
andi að við náum að sjá mun á hala-
stjörnunni fyrir og eftir árekstur,“ seg-
ir Sverrir Guðmundsson háskóla-
nemi. „Ef stjarnan er bjartari er það
merki um að áreksturinn hafi heppn-
ast og að efni innan úr halastjörn-
unni rykju út í geim,“ segir Sverrir.
Stjörnufræðingar munu svo reyna að
greina hvaða efni eru þar á ferðinni
með sjónaukum á jörðu niðri og í
geimnum. „Vonandi kemur í ljós
upprunalegur efniviður sólkerfisins,
en talið er að hann sé falinn undir
skorpu halastjarna“ segir Sverrir.
Fylgjast með árekstri halastjörnu og geimfars
HÓPUR ÍSLENSKRA STÚDENTA ER Á LEIÐINNI TIL HAWAII TIL AÐ SINNA VERKEFNI SEM KALLAST „DEEP IMPACT“.
Stúdentarnir hafa fengið aðgang að
gögnum úr Faulkes-stjörnusjónaukanum
á Hawaii og tóku þá þessa mynd.
Margt fémætt er að finna í rústunum.
KRAKKAR GETA SÓTT SPENNANDI
NÁMSKEIÐ Í ÁRBÆJARSAFNI.
Barnanámskeið í flugdrekagerð, tálgun
og glímu eru í boði í Árbæjarsafni í sum-
ar. Námskeiðin standa frá kl. 13 til 16 og
á þessum tíma ná börnin að klára ýmis
verkefni. Ætlast er til þess að börn og
fullorðnir vinni saman að verkefnunum
og þess vegna er mælt með því að
hverju barni fylgi einn fullorðinn.
Læra flugdrekagerð og ullarþæfingu