Fréttablaðið - 29.06.2005, Side 26

Fréttablaðið - 29.06.2005, Side 26
Jón Skaftason skrifar Útsölutíminn fer nú að ganga í garð og eru búðareigendur í óða- önn að undirbúa verslanir sínar fyrir allan þann hasar sem þeim fylgir. Í Kringlunni er miðað við að útsölur hefjist 30. júlí en ákvörðun nákvæmrar tíma- setningar er að öðru leyti í höndum kaupmanna. Í Smáralind ber búðum að fara eftir fyrirmælum frá stjórn verslunarmiðstöðvarinnar. Útsöl- ur í Smáralind hefjast á fimmtu- dag og hefur eitthvað borið á því að verslanir þjófstarti. Svan- hildur Birgisdóttir, verslunar- stjóri í Vero Moda í Smáralind, er að undirbúa útsölu í búðinni og hefur áhyggjur af því að útsölu- tíminn sé of langur: „Útsölur byrja nú á fimmtudag og standa fram yfir verslunarmannahelgi. Persónulega myndi ég vilja hafa styttra og snarpara tímabil. Við erum ekkert að selja meira, það teygist bara á sölunni“. Samhliða útsölunum er verið að taka nýjar vörur inn og fara þær ekki á útsölur. Margir versl- unareigendur telja að yrði út- sölutími styttur fengist meiri tími til þess að auglýsa og selja þessar nýju sumarvörur. Olgeir Líndal verslunarstjóri í Gallerí sautján, Kringlunni er í þeim hóp: „Mér finnst að útsölur ættu að byrja í fyrsta lagi um miðjan júlí, helst um mánaða- mótin júlí-ágúst. Maður er ný- búinn að fá nýjar vörur og þá byrja útsölur“. Hermann Guðmundsson markaðsstjóri Kringlunnar segir yfirstjórn Kringlunnar einungis setja almennar reglur um útsöl- ur: „Við sjáum um heildarmark- aðssetningu, skreytingar og ann- að í sambandi við útsölurnar. Það er gert í fullu samráði við kaup- menn og ekkert verið að agnúast út í þá kjósi þeir að haga þessu Vika Frá áramótum Actavis 4% 6% Atorka -1% 0% Bakkavör 5% 61% Burðarás 3% 28% Flaga Group -8% -36% FL Group -2% 57% Íslandsbanki 1% 19% Kaupþing Bank 2% 20% Kögun -1% 28% Landsbankinn 4% 42% Marel 3% 18% Og Vodafone 3% 27% Samherji 0% 9% Straumur 2% 29% Össur -1% 5% *Miðað við gengi í Kauphöll á mánudag MIÐVIKUDAGUR 29. JÚNÍ 2005 MARKAÐURINN2 F R É T T I R G E N G I S Þ R Ó U N Útsölur að hefjast Stóru verslunarmiðstöðvarnar setja verslunareigendum skorður er kemur að því að ákvarða hvenær útsölur hefjast. Verslunarstjórar segja útsölutímann of langan. 410 4000 | www.landsbanki.is B2B | Banki til bókhalds Betri þjónusta og upplýsingagjöf til viðskiptavina og lánardrottna Fyrirtækjabanki Stofnfjárbréf í SPRON hafa hækkað um 114 prósent síðan þau voru sett á markað í október 2004. Fyrstu viðskipti voru á geng- inu 5 en fóru hæst í 8,6 áður en stofnfjárútboð hófst snemma í maí. Í útboðinu gátu stofnfjár- eigendur keypt tvo hluti fyrir hvern einn hlut sem þeir áttu. Út- boðsgengið var einn. Samkvæmt því hefði meðal- kaupgengi þess, sem keypti bréf á genginu 5 þegar markaðurinn hóf starfsemi sína, verið 2,33 að útboðinu loknu en 3,5 hjá þeim sem keypti bréf á genginu 8,6. Fyrstu viðskipti með stofnfé í SPRON að loknu útboði eru á genginu fimm en mjög lítil við- skipti hafa þó orðið og mun vera lítið um að eigendur vilji selja bréfin á þessu verði þrátt fyrir góða ávöxtun. Markaðsvirði stofnfjár í SPRON er því yfir níu milljarðar króna. - eþa Sala ÁTVR á rauðvíni og hvítvíni á síðasta ári nam rúmlega þremur milljörðum króna. Salan jókst um 12 prósent milli áranna 2003 og 2004. Sala rauðvíns og hvítvíns hefur aukist jafnt og þétt undanfarin ár og er aukning- in í lítrum talin á bilinu 10 til 20 prósent. Heildarandvirði sölu ÁTVR var 12 milljarðar á síðasta ári og er léttvínsala því orðin fjórðungur af heildarsölu ÁTVR. Miðað við þróun síðustu ára má gera ráð fyrir því að hlutfall létt- víns eigi eitthvað eftir að aukast. Sala bjórs hefur staðið nokkuð í stað síðustu ár sem hlutfall af sölu en um 40 prósent af sölu ÁTVR er bjór. Selt magn bjórs eykst þó nokkuð á hverju ári. Á móti kemur að sala á sterkum vínum hefur dregist saman. Stærsti hluti af andvirði hverrar léttvínsflösku rennur til ríkisins í formi áfengisgjalds, smásöluálagningar ÁTVR, skila- gjalds og virðisaukaskatts. Sjá síðu 12 – 13 -dh Hagnaður Eglu hefur verið rúm- lega 20 milljarðar króna frá því að félagið var stofnað í lok árs 2002. Félagið hagnaðist um fimm millj- arða á fyrsta ársfjórðungi. Egla var stofnað til kaupa á hlut í Bún- aðarbanka Íslands í byrjun árs 2003. Egla á bréf í KB banka fyrir um 40 milljarða og er eignar- hlutur félagins rúm 10 prósent. Óinnleystur gengishagnaður félagsins nemur 18 milljörðum króna frá stofnun. Egla seldi hlut í KB banka á síðasta ári og innleysti hagnað af sölunni fyrir um 2,6 milljarða króna. Í framhaldi af því var hlutafé lækkað og voru rúmir fjórir milljarðar greiddir út arð. Egla fjárfesti fyrir rúmlega 10 milljarða króna í KB banka í fyrra en félagið tók tvisvar þátt í hlutafjár- útboði KB banka í fyrra. Eigendur Eglu eru Ker, sem er að hluta til í eigu Ólafs Ólafsson- ar og Kjalar, með 68 prósenta hlut, Kjalar með 28 prósenta hlut, sem einnig er í eigu Ólafs Ólafssonar og Grettir, með fjögur prósent. Stofnendur Eglu voru Ker, Vá- tryggingafélag Ís- lands og Hauck & Auf- haeuser. -dh Hagnaður Eglu yfir 20 milljarðar Félagið seldi einu sinni og keypti tvisvar í KB banka í fyrra. Sala á léttvínum eykst Rauðvín og hvítvín seldist fyrir rúmlega þrjá milljarða króna í fyrra í verslunum ÁTVR. Nýtt veiðihús við Blöndu Veiðifélag Blöndu og Svartár hefur ákveðið að byggja nýtt veiði- hús. Áætlað er að húsið kosti yfir 100 milljónir króna og hefur því verið valinn staður í landi Hóla- bæjar í Langadal á bökkum Blöndu. Ágúst Sigurðsson formaður veiðifélags Blöndu og Svartár segir húsið verða öllum kostum búið: „Við byggjum fyrir fólk sem getur borgað og því segir sig sjálft hvað verður í húsinu. Þarna verður allt sem prýða þarf fyrsta flokks veiði- hús“. Nýverið var veiði- húsið við Langdalsá stækkað fyrir tugi milljóna. Þróunin hef- ur verið sú að veiðihús verða sífellt íburðar- meiri og gera veiði- menn meiri kröfur en áður hvað varðar að- búnað og gæði þjónustu á veiðistað. Þykja nú þægindi á borð við uppábúin rúm, sér bað- herbergi, heita potta, gufuböð og heitar máltíðir sjálfsagður hlut- ur að loknum veiðidegi í lax- veiðiám landsins. -jsk EGLA Á UM 40 MILLJ- ARÐA Í KB BANKA Ólaf- ur Ólafsson, stjórnarfor- maður Eglu. ÖRTRÖÐ OG VERÐLÆKKANIR Útsölur eru að hefjast og standa fram yfir verslunar- mannahelgi. Verslunarstjórar segja skynsamlegra að hafa útsölur stuttar og snarpar en að draga þær á langinn. GÓÐ ÁVÖXTUN Þeir sem keyptu stofn- fjárbréf í SPRON þegar þau fóru á markað hafa tvöfaldað eign sína á níu mánuðum. Samtök verslunar og þjónustu: Íslendingar fái ekki að versla í fríhöfninni Samtök verslunar og þjónustu gagnrýna fyrirhugaða tvöföldun á verslunarrými í fríhöfninni í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Sam- tökin benda á að verslunin sé í beinni samkeppni við innlenda verslun. Í fréttabréfi samtakanna segir að eðlilegast væri að einungis út- lendingar fái að versla í fríhöfn- inni. „Ælta má að þeir sem búa hér á landi myndu kaupa sam- bærilega vöru í öðrum verslun- um landsins ef Fríhafnarverslun- arinnar nyti ekki við,“ segir í fréttabréfinu. - þk VERSLAÐ Í FRÍHÖFNINNI Samtök versl- unar og þjónustu vilja ekki að Íslendingar fái að versla í fríhöfninni. ÞÆGINDI Veiðihús við laxveiðiár landsins verða sífellt íburðarmeiri. Fr ét ta bl að ið /E .Ó l. Novator fram- lengir tilboð Novator, félag í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar, hefur framlengt yfirtökutilboð sitt í finnska farsímafyrirtækið Saunalahti Group Oyj. Tilboðið stóð upphaflega til 1. júlí en hluthöfum gefst nú tími til 11. júlí til þess að taka tilboði Novators. Tilboðið var sett fram 16. júní en þá hafði Novator yfir um 44 prósentum atkvæða hluthafa að ráða. Markaðsvirði Saunalahti Group Oyj er um 280 milljónir evra, sem samsvarar um 25 mill- jörðum íslenskra króna. - þk Góð ávöxtun hjá stofnfjáreigendum í Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis: Stofnfjárbréf tvöfaldast í verði

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.