Fréttablaðið - 29.06.2005, Page 33
MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGUR 29. JÚNÍ 2005 9
NÝJASTA TÆKNI OG VÍSINDI
Á Bandaríkjaþingi er nú deilt um
hvort óhætt sé að láta kosningar
fara fram án þess að pappír komi
nálægt ferlinu. Fyrir þinginu
liggur frumvarp sem gerir að
skyldu að einhvers konar
pappírsslóð sé til staðar þegar
kosið er á tölvu.
Stuðningsmenn frumvarpsins
telja að hætta sé á svindli ef ekki
sé hægt að sannreyna niður-
stöður tölvukosningar. Það sé til
að mynda ekki hægt að endur-
telja atkvæði ef aðeins rafboð
liggja til grundvallar taln-
ingunni.
Andstæðingar frumvarpsins
telja hins vegar enga ástæðu til
þess að hafa áhyggjur af öryggi
rafrænna kosninga og benda á að
rafræn kosning auki mjög
þægindin við atkvæðagreiðslur
eins og sjáist á því að mjög lítið
hlutfall atkvæðaseðla í slíkum
kosningum eru ógildir. - þk
Deilt um rafrænar kosningar
Þingmenn í Bandaríkjunum rífast um hvort rafrænar kosningar séu nægi-
lega öruggar. Til dæmis sé endurtalning atkvæða ekki möguleg.
Ný rannsókn á mannsheilanum
gefur til kynna að ákveðin hug-
tök og einstaklingar geti rutt
sér rúms í heilanum á okkur og
eignast eina heilafrumu. Þannig
kviknar á tiltekinni heilafrumu hjá
fólki sem þekkir vel til Sylvester
Stallone þegar það sér mynd af honum.
Hugmyndin um að ákveðnar heilafrumur
tengdust ákveðnum hugmyndum eða fólki
kviknaði fyrst á sjöunda áratugnum en
naut ekki mikils fylgis. Nú hafa rann-
sóknir hins vegar sýnt fram á að meira
vit var í hugmyndinni en áður var talið.
Vísindamennirnir sem unnu rann-
sóknina telja að með þessum niður-
stöðum sé hægt að átta sig betur en
áður á því hvernig heilinn vinnur úr
upplýsingum og skipuleggur langtíma-
minni. - þk
ÞINGHÚSIÐ Í WASHINGTON
Þar er rifist um hvort treysta
eigi tölvum í kosningum.
Karlmenn eru líklegri til þess að
laðast að karlmannlegum tíma-
ritum þegar þeir hafa andað að
sér karlkyns fermónum sem
meðal annars eru í svita.
Fermón gegna hlutverki við
að vekja kynlöngun hjá körlum
og konum og er algengt að fer-
món úr svínum séu notuð í ilm-
vötn og rakspíra. Nú virðist hins
vegar vera sannað að fermón
karlmanna hafi einnig áhrif á
þeirra eigin hegðun.
Gerð var tilraun þar sem tveir
hópar voru látnir meta líkur á því
að þeir keyptu tímarit. Þrjú tíma-
rit voru í boði. Eitt kvenlegt, eitt
hlutlaust og eitt sem sniðið var að
karlmönnum. Í ljós kom að karl-
menn sem höfðu andað að sér
fermónum voru miklum mun lík-
legri til þess að kaupa karla-
blaðið heldur en hinir sem andað
höfðu að sér hlutlausu efni.
Tímaritið Science sem grein-
ir frá rannsókninni veltir því
fyrir sér hvort vera megi að
besti staðurinn til þess að selja
blöð fyrir karlmenn sé í
búningsklefum sem eru vel
mettir af svitalykt. - þk
KARLARITIÐ BOGB Myndi ef-
laust seljast vel í svitamettuðum
búningsherbergjum.
Taugar til
stórstjarna
Sala á tónlist, tölvuleikjum, kvikmyndum og
annarri afþreyingu í gegnum netið fer sívaxandi
þrátt fyrir miklar áhyggjur af hugverkaþjófnaði.
Í nýrri skýrslu á vegum Pricewaterhouse
Cooper’s er því spáð að tekjur af sölu af-
þreyingarefnis í gegnum netið muni sjöfaldast
frá 2004 til 2009. Þetta er þó aðeins smár hluti
af heildarsölu á afþreyingarefni en sá mark-
aður er talinn munu verða 1.800 milljarða
Bandaríkjadala virði árið 2009. Það sam-
svarar 117 þúsund milljörðum króna. - þk
Mikill vöxtur í
stafrænni afþreyingu
Karlfermón geta breytt kauphegðun
Karlmenn sem anda að sér karlfermóni eru
líklegri til þess að kaupa tímarit fyrir karlmenn.