Fréttablaðið - 06.07.2005, Blaðsíða 20
Hestaferð
Tilvalin leið til að styrkja tengslin við náttúruna er að fara í hestaferð. Slík-
ar ferðir bjóða upp á öðruvísi sýn á landið en þegar ferðast er um á bíl
eða fótgangandi.[ ]
ÍS-land, jöklasýning á Höfn, Hafnarbraut 30, 780 Höfn í Hornafirði,
sími: 478 2665 / 470 8050, opið allt árið, sjá: www.is-land.is
JÖKLASÝNING
Fyrsti laxinn ólýsanlegt kikk
Guðgeir Sigmundsson hverfur í veiðimennskuna fimm mánuði á ári, en honum finnst ekkert jafnast á við veiðar í íslenskri náttúru.
Guðgeir Sigmundsson er með
veiðidellu og bíður allan vet-
urinn eftir vorinu. Veturinn
notar hann reyndar til að
hanna og hnýta nýjar flugur
og láta sig dreyma um þann
stóra.
Blaðamaður hitti Guðgeir þar sem
hann var staddur í Hálendismið-
stöðinni í Hrauneyjum með veiði-
hópnum sínum, en hann segir
mikilvægt að vera hluti af góðum
hópi í þessu sporti.
„Við erum miklir vinir og fé-
lagar og það skiptir gríðarlegu
máli að menn þekkist vel og séu
samtaka. Þetta er árleg ferð inn í
Veiðivötn og við hlökkum til allt
árið, enda alltaf jafn gaman.“
Guðgeir segist byrja í vötnum í
nágrenni borgarinnar á vorin og
þar beri Þingvallavatn hæst. „Það
eru til menn sem vakna um miðj-
ar nætur og veiða til sjö á morgn-
ana áður en þeir fara til vinnu. Ég
geri það nú reyndar ekki en fer
eftir vinnu til að slaka á. Hálend-
isferðirnar eru svo hápunkturinn
og í framhaldi af því árnar. Það
má segja að ég sé í veiði frá því í
maí og fram í október, sem er
ódýrari tími og oft ekki síðri.“
Guðgeir viðurkennir að veið-
arnar geti verið dýrt sport, en
hann leggur persónulega lítið upp
úr flottum veiðihúsum og gala-
málsverðum. „Ég var einu sinni í
veiðihópi sem kallaði sig „Áfeng-
ur“ þar sem var mikið drukkið og
minna veitt. Þar var áherslan á að
veiðihúsið væri gott. En ég datt
fljótlega út úr því og sneri mér að
alvöru veiðimennsku. Það er ekk-
ert varið í að vera með mönnum
sem missa meðvitund í Borgar-
nesi og komast aldrei út í á, enda
er það aukaatriði fyrir þeim. En
þetta er oft ákveðið ferli sem
menn fara í gegnum og nenna svo
ekki til lengdar. Nú finnst mér
toppurinn að standa með stöng við
góðan hyl og njóta útiverunnar og
náttúrunnar.“
Eftirminnilegasti lax Guðgeirs
var fyrsti flugulaxinn, en stærsti
lax sem hann hefur veitt var 24
punda lax í Rangá. „Að fá fyrsta
laxinn á flugu var ólýsanlegt kikk.
Ég hef aldrei fengið samskonar
kikk síðan, þó þetta sé alltaf mjög
spennandi.“
Guðgeir segir ýmsar dellur
skjóta upp kollinum í veiði-
mennskunni og það nýjasta sé að
sleppa fiskinum. „Ég veit ekki
hvernig þetta þróast,“ segir hann
hlæjandi.
„Kannski menn fái sér veið-
leyfi og fari bara í veiðihúsið en
ekki ána. Svo endar þetta með því
að menn kaupa veiðileyfið en fara
ekkert. Ég tek þó ekki þátt í því,“
segir hann brosandi og leggur af
stað með vinum sínum og „nú
mega fiskarnir fara að vara sig“-
svipinn greyptan í andlitið.
edda@frettabladid.is
Á Brunnhóli hefur ferðaþjónusta
bænda verið rekin frá 1986. Nýlega var
tekið í notkun nýtt hús með nokkrum
rúmgóðum herbergjum og stofu til við-
bótar við það pláss sem fyrir var svo nú
er gisting í 43 rúmum í boði þar, ásamt
eldunaraðstöðu og setustofu. Það eru
hjónin Sigurlaug Gissurardóttir og Jón
Kristinn Jónsson í Árbæ sem eiga og
reka ferðaþjónustuna og hafa fyrir
löngu getið sér gott orð. Þau bera fram
morgunverð og bjóða upp á kvöldverð-
arhlaðborð fyrir gesti sína .
Þjónustan á Brunnhóli aukin og bætt
BÚIÐ ER AÐ TAKA Í NOTKUN NÝTT OG FLOTT FERÐAÞJÓNUSTUHÚS Á BRUNNHÓLI Á MÝRUM Í HORNAFIRÐI.
Nýja húsið setur svip á Mýrarnar.
Rúnar Gunnarsson tekur Ernu Sigþórsdóttur, móður sína, með í árlega veiðiferð klúbbs-
ins. Það er hápunktur ársins fyrir Ernu.
www.hertz.is
14.300
Vika á Ítalíu
*
Opel Corsa eða sambærilegur
kr. - ótakmarkaður akstur,
kaskó, þjófavörn, flugvallargjald
og skattar.
*Verð á viku miðað við 14 daga leigu.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
H
ER
2
89
09
06
/2
00
5
50 50 600
Bókaðu bílinn heima
- og fáðu 500 Vildarpunkta
Lífsaugað
Þriðjudagskvöld 22-24