Fréttablaðið - 06.07.2005, Blaðsíða 52
6. júlí 2005 MIÐVIKUDAGUR
> Við skiljum ekkert í ...
... þessum derringi í hollenska miðjumann-
inum Walter Baseggio sem hafði ekkert
gott um Stoke City að segja í enskum
fjölmiðlum í gær. Hann hafði verið
sterklega orðaður við félagið
en kvaðst hafa engan áhuga
að fara – hann vissi ekki
einu sinni hvar Stoke væri í
Englandi. Vonum að slíkt sé
ekki tilfellið með Johann
Boskamp, nýráðinn
holllenskan stjóra liðsins.
Úkraínumaður til Fram
Framarar eru að styrkja sig fyrir næsta
vetur í DHL-deildinni og munu mjög
líklega semja við vinstri skyttu frá Úkraínu
sem heitir Segeiy Serenko. Guðmundur Þ.
Guðmundsson, þjálfari Fram, líst mjög vel
á þennan 27 ára gamla kappa.
sport@frettabladid.is
20
> Við óskum ...
.... Blikum innilega til hamingju
með Íslandsmeistaratitilinn í
efstu deild kvenna. Eftir sigur
liðsins á núverandi
meisturum Vals virðist
ekkert geta stöðvað
Blikastúlkur enda hafa
þær unnið alla leiki
sumarsins til þessa.
16-li›a úrslitum Visa-bikarkeppni karla lauk í gærkvöld me› fimm leikjum. 1. deildarli› HK vann 1–0
sigur á bikarmeisturum Keflavíkur en HK sló einnig út fláverandi bikarmeistara ÍA í 32-li›a úrslitum
keppninnar í fyrra. HK er eina li›i› úr ne›ri deildunum sem er eftir í pottinum.
HK sló aftur út bikarmeistarana
FÓTBOLTI HK vann það afrek í
gærkvöld að slá út bikarmeistara
Keflavíkur í hörkuslag liðanna á
Kópavogsvelli.
Í fyrri hálfleik skoruðu
Keflvíkingar tvö mörk sem bæði
voru dæmd af vegna rangstöðu en
bæði lið fengu sín færi í leiknum.
HK-ingar nýttu eitt sinna þegar
Ólafur V. Júlíusson skoraði með
skalla eftir fyrirgjöf á 65. mínútu.
Keflvíkingar sóttu stíft á
lokamínútum leiksins en höfðu
ekki erindi sem erfiði.
„Þetta var mjög erfiður en
skemmtilegur leikur,“ sagði
markaskorari HK, Ólafur V.
Júlíusson, eftir leikinn. „Þetta er
annað árið í röð sem við sláum út
ríkjandi bikarmeistara sem er
auðvitað stórskemmtilegt.“
Aðspurður um markið sem hann
skoraði vildi hann gera sem
minnst úr sínum hlut. „Fyrst og
fremst var það öflug liðsheild og
góður varnarleikur sem stóðu upp
úr í dag. Það sýnir sig best á því að
við náðum að halda hreinu hér í
dag þó svo að bæði lið hafi fengið
fullt af færum. En heppnin var
okkar megin í dag,“ sagði Ólafur.
Njarðvíkingar gáfust ekki upp
Eyjamenn virtust ætla að vinna
öruggan sigur á Njarðvík í
Vestmannaeyjum en þeir komust
3–0 yfir í leiknum. En
varamaðurinn Aron Már
Smárason hleypti spennu í leikinn
þegar hann skoraði tvö mörk fyrir
Njarðvík á lokakafla leiksins. En
þar við sat.
LEIKIR GÆRDAGSINS
Landsbankadeild kvenna:
ÍA–ÍBV 0–3
0–1 Rachel Kruze (16.), 0–2 Bryndís
Jóhannesdóttir (57.), 0–3 Elín Anna
Steinarsdóttir (87.)
VALUR–BREIÐABLIK 1–2
0–1 Guðlaug Jónsdóttir (8.), 1–1 Margrét
Lára Viðarsdóttir (80.), 1–2 Gréta Mjöll
Samúelsdóttir.
STJARNAN–KR 1–4
STAÐAN:
BREIÐABLIK 8 8 0 0 30–6 24
VALUR 8 6 0 2 35–10 18
KR 8 5 0 3 27–14 15
ÍBV 8 5 0 3 28–17 15
KEFLAVÍK 8 4 0 4 22–23 12
STJARNAN 8 2 0 6 9–24 6
FH 8 2 0 6 6–27 6
ÍA 8 0 0 8 6–40 0
Visa-bikar karla:
ÍBV–NJARÐVÍK 3–2
1–0 Steingrímur Jóhannesson (3.), 1–1
Bjarni Rúnar Einarsson (11.), 3–0 Pétur
Óskar Sigurðsson (65.), 3–1 Aron Már
Smárason (75.), 3–2 Aron Már Smárason
(89.)
ÞÓR–FRAM 0–3
0–1 Ríkharður Daðason (5.), 0–2 Víðir
Leifsson (66.), 0–3 Víðir Leifsson (82.).
GRINDAVÍK–FYLKIR 0–1
0–1 Guðni Rúnar Helgason (87.).
FH–KA 3–1
1–0 Ólafur Páll Snorrason (16.), 2–0
Ásgeir Gunnar Ásgeirsson (20.), 3–0
Tryggvi Guðmundsson, víti (30.), 3–1
Jóhann Þórhallsson (62.)
HK–KEFLAVÍK 1–0
1–0 Ólafur V. Júlíusson (65.).
Valur, KR og ÍA eru einnig komin áfram í
fjórðungsúrslit bikarkeppninnar.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
3 4 5 6 7 8 9
Miðvikudagur
JÚLÍ
■ ■ SJÓNVARP
16.50 Bikarkvöld á RÚV.
17.45 Sterkasti maður heims á Sýn.
18.15 Meistaradeildin – toppleikur
á Sýn.
20.00 Meistaradeildin – toppleikur
á Sýn.
21.50 Tiger Woods á Sýn.
22.20 Formúlukvöld á RÚV.
23.40 Bandaríska mótaröðin í golfi
á Sýn.
Icelandair og Ian Rush hafa gert
samning um að halda í vetur
fótboltamót sem ber nafnið
Icelandair Ian Rush
Masters International
Football Tournament.
Hugmyndin að mótinu er
byggð á Masters-móta-
röðinni í Englandi, en
þátttökuskilyrði þar er að
leikmenn séu eldri en
þrjátíu og fimm ára, og hafi
leikið sem atvinnumenn í
knattspyrnu. Á mótinu hér á
landi verður ekki gerð ströng
krafa um að leikmenn hafi verið
atvinnumenn enda munu íslensk
lið fá að reyna fyrir sér í mótinu.
Ian Rush, sem gerði
garðinn frægan hjá
Liverpool á árum
áður, hefur keppt
í mótinu á
Englandi með úr-
valsliði Liverpool
og er spenntur
fyrir því að taka
þátt í mótinu.
„Þetta verður
virkilega
skemmtilegt. Í
úrvalsliði Liverpool
verða menn eins
og Jan Molby og
John Barnes,
og svo verða
margir fleiri
þekktir leikmenn sem koma með úr-
valsliði Arsenal og Manchester United.
Meðal annarra Dennis Irwin.“
Mótið fer fram fjórða og fimmta nóv-
ember í Egilshöll. Undankeppnin hefst
föstudaginn fjórða nóvember og kemst
efsta liðið úr hverjum riðli í úrslit, en
þau fara fram á laugardeginum. Úr-
valslið ensku stórliðanna munu keppa
við liðin sem komast í úrslit.
Ian Rush hefur sýnt íslenskri knatt-
spyrnu mikinn áhuga og hefur komið
hingað í tengslum við knattspyrnuskóla
sem hér hafa verið starfandi á sumrin.
Hann segir íslenska knattspyrnu alltaf
vera að batna. „Íslensk knattspyrna hef-
ur verið á uppleið undanfarin ár.“
ICELANDAIR OG IAN RUSH: HALDA KNATTSPYRNUMÓT Í VETUR HÉR Á LANDI
Gamlar stjörnur mæta til leiks í haust
MARKINU FAGNAÐ Ólafur V. Júlíusson fagnar marki sínu gegn Keflavík í gær ásamt
félögum sínum úr HK. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Isinbajeva bætti
heimsmeti›
FRJÁLSAR Stangastökkvarinn Jel-
ena Isinbajeva sló eigið heimsmet
í stangarstökki um einn senti-
metra á móti í Sviss í gærkvöld,
þegar hún stökk 4,93 cm og sigr-
aði á mótinu. Stacy Dragila varð í
öðru sæti með 4,65 metra, en
Þórey Edda Elísdóttir hafnaði í
þriðja til fimmta sæti á mótinu
með því að stökkva 4,40 metra.