Fréttablaðið - 06.07.2005, Blaðsíða 53

Fréttablaðið - 06.07.2005, Blaðsíða 53
MIÐVIKUDAGUR 6. júlí 2005 Breiðablik hársbreidd frá titlinum eftir sigur á Val: Titillinn a›eins formsatri›i FÓTBOLTI Valsstelpur byrjuðu leik- inn af miklum krafti og hefðu með smá heppni getað sett mark. Blik- ar voru ekki á þeim buxunum og komust fljótt inn í leikinn og upp- skáru mark eftir níu mínútna leik þegar Guðlaug Jónsdóttir skoraði eftir lipra sókn gestanna. Við markið efldust Valsstelpur en lið- inu skorti hugmyndaflug til þess að reka endahnútinn á margar efnilegar sóknir. En úr einni slíkri sókn þá hafði Rakel nægilegt hug- myndaflug til þess að senda glæsilega frá vinstri á Laufeyju Ólafsdóttur sem hitti boltann ekki úr dauðafæri. Eftir þetta þyngd- ust sóknir heimamanna en vörn Blika var föst fyrir með Meghan Ogilive fremst í flokki. Gestirnir voru vel skipulagðir í sínum varn- arleik og beittu stórhættulegum skyndisóknum. Síðari hálfleikur var ekki jafn fjörugur og sá fyrri, aukin harka færðist í leikinn á kostnað gæða- knattspyrnu. Þegar stundarfjórð- ungur var eftir af leiknum tókst Valsstelpum að jafna leikinn, þar var að verki Margrét Lára Viðars- dóttir. Hún sýndi mikla yfirvegun, lék á einn Blika áður en hún lagði boltann glæsilega í hornið. Skömmu eftir markið var Pálu Marie Einarsdóttur réttilega vikið af velli. Þegar bæði lið virtust vera að sætta sig við skiptan hlut þá slapp Greta Mjöll Samúelsdótt- ir inn fyrir vörn Vals og hún gerði allt rétt, kláraði færið glæsilega framhjá Guðbjörgu í marki Vals. - gjj Aðrir bikarleikir í gærkvöld: Fylkir vann slag úrvalsdeildarli›anna FÓTBOLTI Leikur Grindavíkur og Fylkis var ekki upp á marga fiska enda bæði lið harðákveðin að bera sigur úr býtum í eina leiknum í 16-liða úrslitum bikarkeppninnar þar sem tvö úrvalsdeildarlið mættust. Og það fór þannig að eftir fremur tíðindalitlan leik kom það í hlut Fylkismannsins Guðna Rúnar Helgasonar að skora sigurmarkið í leiknum. Markið kom undir lok leiksins eftir að mikil þvaga hafði skapast fyrir framan mark Grindavíkur sem lauk með því að Guðni Rúnar tókst að koma boltanum yfir línuna. Grind- víkingar fengu reyndar gullið tækifæri til að jafna leikinn þegar komið var langt fram yfir venjulegan leiktíma á vallar- klukkunni en brást bogalistin á örlagastundu. Fyrsti sigur Fram á Þór í 17 ár Framarar gerðu góða ferð norður í land þar sem þeir mættu Þórsurum á Akureyri. Síðast vann Fram sigur á norðanmönnum árið 1988 og gerðu heimamenn sér vonir um að halda sigurgöngu sinni gegn Frömurum áfram en allt kom fyrir ekki. Sigur Fram var aldrei í hættu og skoruðu þeir þrjú mörk gegn engu. Þar að auki varð Sigurði Donys, leikmanni Þórs, vikið af velli með tvö gul spjöld á bakinu þegar stundar- fjórðungur var til leiksloka. Íslandsmeistarar FH fóru létt með hitt Akureyrarliðið, KA, og gerðu út um leikinn á fyrsta hálftímanum með þremur góðum mörkum. KA-mönnum tókst reyndar að klóra í bakkann í síðari hálfleik með marki Jóhanns Þórhallssonar en allt kom fyrir ekki. Risatilboði Chelsea í Steven Gerrard neitað: Steven Gerrard vill fara frá Liverpool FÓTBOLTI Enski landsliðsmaðurinn Steven Gerrard, fyrirliði hjá Liverpool, greindi forráðamönn- um Liverpool frá því í gær að hann vildi reyna fyrir sér hjá öðru félagi. Rick Parry, stjórnarformaður Liverpool, var óánægður með þessa afstöðu fyrirliðans. „Það var einlægur vilji allra sem starfa hjá Liverpool að Gerrard yrði hér áfram en því miður hefur hann nú tjáð okkur að hann vilji fara frá félaginu.“ Umboðsmaður Gerrards, Stru- an Marshall, tjáði sig um samn- ingaviðræðurnar í gær og sagði þær ekki ganga vel. Rafael Beni- tez, knattspyrnustjóri Liverpool, vildi ólmur halda Gerrard hjá félaginu og sagðist vonast til þess að hann yrði við störf hjá Liverpool allan sinn feril. Gerrard hef- ur lengi verið orðaður við Chelsea en einnig er vitað af áhuga Real Madrid á miðjumanninum snjalla. Hjá Real Madrid eru þrír enskir leikmenn: David Beckham, Mich- ael Owen og Jonathan Woodgate. - mh STEVEN GERRARD Fyrirliði Liverpool hefur ákveðið að skipta um félag. HART BARIST Ásta Árnadóttir Valsstúlka sést hér í baráttunni við hetju Blika í gær, Grétu Mjöll Samúelsdóttur sem skoraði sigurmark leiksins á elleftu stundu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.