Fréttablaðið - 06.07.2005, Blaðsíða 32
Jón S. von Tetzchner er stofnandi og eigandi í
norska fyrirtækinu Opera Software sem hef-
ur vaxið og dafnað vel undir hans stjórn.
Opera Software selur vafra en það eru forrit
til að skoða síður á netinu. Á hverjum degi
hlaða 100 þúsund manns niður vafranum
Opera á heimasíðu fyrirtækisins. Opera
Software er leiðandi í sölu á vöfrum í farsíma
og Jón treystir því að vöxtur í sölu vafra í far-
síma eigi eftir að koma fyrirtækinu langt.
Helstu tekjur fyrirtækisins eru frá
vöfrum á pc tölvur og frá vöfrum í far-
síma. Jón segir mikinn vöxt framundan
í sölu vafra í farsíma og að innan fimm
ára verði venjulegt að vera með vafra
í farsímanum. „Við vorum þeir
fyrstu sem sýndum að hægt væri að
gera þetta á góðan hátt.“
Opera Software hefur vaxið
hratt á undanförnum árum og er
virði fyrirtækisins um 10 millj-
arðar íslenskra króna. Jón á í
kringum 17 prósent í fyrirtæk-
inu en það var skráð á norska
hlutabréfamarkaðinn á síðasta
ári. „Við vorum ekkert að flýta
okkur á markað. Við byrjuðum
tveir og réðum svo smátt og
smátt fleiri starfsmenn og fór-
um bara á markað þegar okkur
fannst við tilbúnir í það, ekki
þegar einhverjir sögðu okkar
að við ættum að gera það.“
Jón segir Opera vafrann
betri en aðra vafra til að
mynda hvað varðar öryggi.
Einnig segir hann notkun nets-
ins vera hraðari með Opera
vafranum. Fólk eyði miklum
tíma á Netinu og þá sé mikilvægt
að geta unnið hratt. „Með góðum vöfrum
er hægt að spara upp í 10 til 20 prósent af
þeim tíma sem eytt er á Netinu. Þann tíma er
hægt að nota í eitthvað annað, hvort sem það
er að hugsa, skrifa eða vera með krökkunum
þínum.“
NETIÐ Í FARSÍMANN
Opera Software er leiðandi í framleiðslu á
vöfrum í farsíma. Jón segir að hingað til hafi
vafrar í símum verið lélegir og svokallað
„wap“ verið notað til að fara á netið. „Nú er
sami vafri í síma og pc tölvum. Nánast allar
síður sem þú getur skoðað í
pc geturðu skoðað í síma.“
Meirihluti tekna Opera
Software er að koma frá
símahluta fyrirtækisins.
8,8 milljónir farsíma inni-
héldu vafra frá Opera
Software. Árið áður voru
tvær milljónir síma með
vafrann. „Það er ágætis
vöxtur og við reiknum með
góðum vexti í ár. Þetta er
allt að ganga í rétta átt.“
Að undanförnu hefur
Opera Software skrifað
undir samninga við síma-
framleiðendur á borð við
Nokia og Sony Ericsson um
sölu á vöfrum. Einnig hafa
símafyrirtæki á borð við T
Mobile samið við Opera
Software.
Ein af nýjungunum við
Opera vafrann í síma er að
hægt er að sjá alla síðuna á
glugganum. „Við erum
stærstir í því en við erum
enn litlir,“ segir hann og
bendir á að af öllum þeim
farsímum sem séu í notkun
í heiminum séu einungis
8,8 milljónir síma með
vafra frá þeim.”
„Við erum að selja vafra
í allt því það eru svo margir
hlutir þar sem gott er að nota tæknina.“ Jón
segir þróunina vera þá að allar upplýsingar
fari yfir vefinn.
Nettækni er hægt að nota fyrir hvað sem
er að sögn Jóns og eru því vafrar ekki einung-
is tengdir tölvum og símum. Jón sér fyrir sér
að sjónvörp verði komin með vafra innan
skamms. „Það er hægt að gera miklu meira
en fólk skilur. Það sem flestir sjá er texti og
myndir en alvöruvafrar geta keyrt forrit.“
ERFIÐIR ANDSTÆÐINGAR
En er ekki erfitt að keppa við risann
Microsoft, er spurning sem Jón heyrir oft.
Hann segir málið ekki vera svo einfalt. Á
upphafsmánuðum fyrirtækisins höfðu nokkr-
ir starfsmenn ekki trú á að hægt væri að
keppa við Mosaic, sem var vafrinn sem allir
notuðu þá. „Svo kom Netscape og þá var sagt
að enginn gæti verið í samkeppni við
Netscape. Svo kom Microsoft, þá var sagt að
það væri ekki hægt að vera í samkeppni við
Microsoft. Þeir dræpu alla.“ Jón bendir á að
þrátt fyrir þessa hörðu samkeppni hafi fyrir-
tækið vaxið um 30 til 50 prósent í tíu ár. Um
100 þúsund manns hlaða niður Opera vafran-
um daglega. „Fullt af fólki er ekki ánægt með
Explorer og ástæða þess að svo margir eru að
skipta um vafra er vegna öryggismála.“ Jón
segir Microsoft ekki hafa verið að vinna við
sinn vafra síðustu fimm árin. „Þeir hafa ekki
einu sinni verið að laga öryggisvandamálin.“
Jón segir Operu geta orðið stærri en
Microsoft og bendir á að vafrar fyrirtækisins
séu seldir í síma sem seljast mun meira en
tölvur. Hann segir um milljarð af pc tölvum
vera í notkun en á þessu ári seljist líklega 750
milljónir síma. „Það er markaður sem okkur
tekst að ná á en við þurfum að vinna rosalega
vel til að ná því. Við komum til með að reyna
og sjáum svo til hvers langt við getum náð.“
Að undanförnu hefur Opera Software ver-
ið að skrifa undir samninga sem munu hjálpa
til við að ná þeim markmiðum.
Jón segir Opera vera „insourcing“ fyrir-
tæki ekki „outsourcing“ eins og svo mörg fyr-
irtæki eru í dag. „Við reynum að gera allt
sjálf. Það kostar miklu minna og við fáum
betri gæði“ Nefndi hann dæmi um kínversk-
an kokk sem eldar allan matinn í fyrirtækinu
í stað þess að versla við hefðbundin mötu-
neyti.
Jón er með augun opin fyrir nýjum tæki-
færum og útilokar ekki að setja upp skrif-
stofu í Indlandi, sem hann segir mjög spenn-
andi markað. „Við gætum nýtt mannaflann
sem þar er en þá yrði það okkar mannafli en
ekki“ outsourcing.“
EITT ÞREP Í EINU
Jón segist bara hafa byrjað í fyrirtækja-
rekstri. „Aðalmálið fyrir okkur var að okkur
langaði til að prófa. Okkur langaði til að fá
hlut í markaðnum og reyna okkur áfram og
ég tel að við séum enn á leiðinni.“ Jón segir að
nú 10 árum seinna séu starfsmenn fyrirtæk-
isins orðnir 230 og gælir hann við það mark-
mið að verða númer eitt. Nú viti langflestir á
þessum markaði af fyrirtækinu. „Við erum
ekki númer eitt á markaðinum á alheimsvísu
en þegar við erum búin að ná því þá höfum
við náð markmiði okkar. En við tökum bara
eitt þrep í einu. Það verður rosalega gaman
að vera númer eitt ef okkur tekst það.“
Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru í Noregi
en einnig er félagið með söluskrifstofur í Jap-
an, Kína og Bandaríkjunum. En hvernig er
viðskiptaumhverfið í Noregi? Jón segir skatt-
kerfið í Noregi ekki hagstætt fyrir fyrirtæki
en á móti komi að ýmsir kostir fylgi því að
búa í Noregi. „Það eru kostir og gallar sem
fylgja því að búa í Noregi. Það er gott að vera
þar og öruggt eins og Ísland.“
Jón segir Norðmenn mjög duglega og það
þyki eftirsóknarvert að vinna hjá Opera
Software. „Fólk kemur til okkar og hjá okkur
starfar fólk frá 30 löndum. Það kemur því frá
MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 2005 MARKAÐURINN10
Ú T T E K T
Jón tók þátt í verkefni á veg-
um World Economic Forum.
Hann er einn af 237 einstak-
lingum sem kallaðir eru til
þátttöku í verkefninu.
Meðal annarra sem taka
þátt í verkefninu eru Sergei
Brin og Larry Page, stofnend-
ur Google, leikkonan Julia
Ormond, Viktoría Svía-
prinsessa, Friðrik Danaprins,
Mikael Saakashvili forseti
Georgíu og Björn Lomborg
tölfræðingur.
Leiðtogarnir sem tilnefnd-
ir eru í þennan hóp eru undir
fertugu og hafa náð frama á
ýmsum sviðum, svo sem í
stjórnmálum, athafnalífi,
menningu og vísindum.
Fyrsti fundur hópsins var
ráðstefna í Zermat í Sviss í nú
nýlega.
Jón segir þetta hafa verið
nokkurs konar yngri útgáfu
af World Economic Forum.
„Þarna var mjög mikið af
skemmtilegu fólki og dug-
legu.“ Hann segir hópinn eiga
að hafa áhrif vegna þess að
þarna hafi verið fólk sem
gæti bætt heiminn.
Jón nefnir dæmi um
hvernig hópurinn gæti haft
áhrif. „Við getum reynt að
breiða út netið í Afríku.
Opera vafrinn keyrir á 10 ára
gömlum pc tölvum og þannig
gætum við hjálpað með því að
gefa vafrana.“
Jón var á dögunum einnig
valinn einn af fremstu ungu
stjórnendunum á sviði stjórn-
mála og viðskipta af við-
skiptablaðinu Business Week.
Eitt af upplýsingatæknifyrirtækjunum sem hefur vaxið og dafnað og skilað hagnaði undanfarin ár er
Opera Software. Hinn íslenski Jón S. von Tetzchner er stofnandi og einn af stærstu eigendum þess í
dag og er hlutur hans metinn á tæpa tvo milljarða. Dögg Hjaltalín hitti Jón og ræddi við hann um
Opera software og starfsemi þess.
Hæfileikaríkur leiðtogi
Opera kemur netinu í alla síma
Ætlaði að synda
til Bandaríkjanna
Jón stakk sér til sunds á dögunum í
ískaldan sjó, sem væri varla í frá-
sögur færandi nema vegna þess að
hann stefndi að því að synda til
Bandaríkjanna með viðkomu á Ís-
landi. Jón segist hafa sagt hitt og
þetta eins og venjulega á fundi. Ein-
hverra hluta vegna fannst sam-
starfsfélögum hans skemmtilegt að
hann skyldi segjast ætla að synda til
Bandaríkjanna ef yfir milljón manns
hlöðuðu niður Opera vafranum á
fjórum dögum. Niðurstaðan varð sú
að yfir millljón manns hlóðu vafran-
um niður. Jón stakk sér því til sunds
í Oslóarfirði og var með félaga sín-
um, sem hann segir hafa komið sér í
þessa klípu. Sá var þó í gúmmíbát
vegna þess að hann kunni ekki að
synda. „Svo kom gat á gúmmíbátinn
og félagi minn ósyndur þannig að ég
þurfti að koma honum í land og
hætta við ferðina. Hann kunni held-
ur ekki að lesa á kort en það er ágætt
að hafa einhvern sem kann að lesa á
kort til að segja manni hvert eigi að
fara,“ segir hann og hlær.
„Við getum reynt að breiða út netið í Afríku. Opera vafrinn keyrir á 10 ára gömlum pc tölvum og þannig gætum við hjálpað með því
að gefa vafrana.“