Fréttablaðið - 06.07.2005, Side 30
MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 2005 MARKAÐURINN8
F R É T T A S K Ý R I N G
Tímarnir hafa svo sannarlega breyst í rekstri
FL Group síðan haustið 2001. Margir töldu sig
þá sjá merki um að reksturinn væri kominn í
það miklar ógöngur að hann stefndi í þrot.
Gengi félagsins á markaði nálgaðist einn. Þá
var gripið til róttækra aðgerða til að mæta
þeim áföllum sem dundu á flugfélögum
vegna hryðjuverkanna í Bandaríkjunum. Í
stuttu máli sagt hefur leið FL Group legið upp
á við – eins og sönnu flugfélagi sæmir. Og
miðað við þau átök sem áttu sér stað í síðustu
viku er ljóst að margir telja sig geta náð enn
meiru út úr rekstrinum.
BAUGUR Í MEIRIHLUTA
Baugsmenn munu ná meirihluta í stjórn FL
Group næst komandi laugardag þegar ný
stjórn verður kjörin á hluthafafundi. Til
stjórnar hafa meðal annars boðið sig fram
Jón Ásgeir Jóhannesson og Skarphéðinn Berg
Steinarsson, frá Baugi Group, og Magnús Ár-
mann og Sigurður Bollason, nánir viðskipta-
félagar Baugs.
Samstarf Jóns Ásgeirs og Hannesar
Smárasonar, stjórnarformanns FL Group,
hefur farið mjög vaxandi á undanförnum
misserum. Þeir hafa fjárfest saman í Íslands-
banka og eru meðal stærstu hluthafa í Og
fjarskiptum.
Meðal fyrrverandi hluthafa og stjórnar-
manna voru hins vegar menn á borð við Ein-
ar Jónsson og Jón Þorstein Jónsson, kenndir
við Saxhól, Gylfi Héðinsson og Gunnar Þor-
láksson, kenndir við BYGG, og Pálmi Krist-
insson, framkvæmdastjóri Smáralindar.
Þessir menn og Hannes Smárason höfðu átt
farsælt samstarf á sviði fjárfestinga alveg
frá því að Smáralindarverkefninu var hrund-
ið í framkvæmd á síðasta áratug.
Svo kaldhæðnislega vill til að Jón Ásgeir
kom við sögu í FL Group áður en Hannes
Smárason og fyrrverandi tengdafaðir hans,
Jón Helgi Guðmundsson, keyptu um 39 pró-
senta hlut í félaginu í byrjun árs 2004. Baug-
ur seldi um fimmtungshlut á genginu níu í
maí fyrir ári síðan. Þessi hlutur endaði svo
hjá Saxbygg með milligöngu Landsbankans.
SAXBYGG VILDI ÁFRAM
Ekki liggur fyrir hvað gerðist sem olli því að
Saxbygg yfirgaf FL Group. Margt hefur ver-
ið sagt en fátt fengist staðfest. Þó er víst að
næststærsti hluthafinn fór ekki frá borði með
bros á vör. Það hlýtur að vera huggun harmi
gegn að gengishagnaður Saxbyggs, af þessari
eins árs fjárfestingu, var um fjórir milljarðar
króna. En hvernig fæst það staðist að Sax-
bygg og Mannvirki, eignarhaldsfélag Pálma,
hafi keypt tveggja prósenta hlut á genginu
15,8, af Árna Oddi Þórðarsyni og Þórði Magn-
ússyni í Eyri fjárfestingarfé-
lagi, aðeins tíu dögum áður en
sömu aðilar seldu öll bréfin
sín? Af hverju ganga menn frá
verki sem er hálfnað? Það er
til dæmis ljóst að áhugi FL
Group á breska lággjaldaflug-
félaginu easyJet hefur verið
ótakmarkaður.
Heimildir Fréttablaðsins
herma að Saxbygg hafi boðið í
hlut Oddaflugs, enda hafi fé-
lagið litið á fjárfestinguna í FL
Group til langframa. Á endan-
um hafi stærsti hluthafinn,
ásamt öðrum fjárfestum, keypt
þann næststærsta út. Þess vegna virðist sem
mikill ágreiningur hafi verið kominn upp
meðal náinna viðskiptafélaga og á endanum
hafi menn slitið sambúðinni.
Stjórnarformaðurinn var orðinn algjör-
lega einn á báti innan stjórnar þar sem þrír
aðrir stjórnarmenn, til viðbótar við fulltrúa
Saxbyggs, sögðu sig úr stjórn á sama tíma.
Samstarf Hannesar og Saxbyggs er þó enn
til staðar. Runnur, sem er stór hluthafi í Og
fjarskiptum, er í meðal annars eigu þessara
aðila sem og Þorsteins M. Jónssonar, Magnús-
ar Ármanns og Sigurðar Bollasonar, tilvon-
andi stjórnarmanna. Einnig liggja leiðir þeir-
ra saman í gegnum Húsasmiðjuna.
ÆTLA SÉR EASYJET
Augu FL Group beinast að, leynt og ljóst,
easyJet. Hlutur FL Group er nú kominn yfir
11,5 prósent í easyJet samkvæmt tilkynn-
ingu til Kauphallarinnar á mánudaginn.
Bendir þetta eindregið til þess að félagið
ætli sér að auka hlut sinn. Þetta hefur verið
ein besta fjárfesting Hannesar og félaga.
Félagið keypti um tíu prósenta hlut í easyJet
í október árið 2004 þegar gengi flugfélagsins
var í lágmarki og hafði fallið um tvo þriðju
hluta frá áramótunum áður. EasyJet hefur
tvöfaldast á þeim tíma sem liðinn er og
markaðsvirði hlutarins vaxið úr sjö milljörð-
um í fjórtán að viðbættum síðustu kaupum.
Verðmæti breska félagsins er um 120 millj-
arðar eða þrefalt meira en virði FL Group.
Nýir eigendur FL Group gerðu grein fyr-
ir áformum sínum í síðustu viku. „Mörg
spennandi verkefni eru framundan hjá FL
Group, bæði í fjárfestingastarfsemi, í flug-
vélaviðskiptum og í hefðbundinni starfsemi
félagsins í flugi og ferðaþjón-
ustu. Sem dæmi má nefna að
félagið hefur átt í viðræðum
við aðaleiganda easyJet um
nánara samstarf ...“ sagði
Hannes Smárason í tilkynn-
ingu til Kauphallarinnar.
Talið er líklegt að breska
yfirtökunefndin setji sig í
samband við eigendur og
stjórnendur FL Group eða
ráðgjafa félagsins og óski eft-
ir yfirlýsingu frá félaginu um
hvort félagið hafi í hyggju að
taka easyJet yfir. Nefndin
leitar eftir upplýsingum frá fé-
lögum verði hún vör við óeðlilegar hreyfing-
ar á markaði eða yfirlýsingar sem geta haft
áhrif á verðmyndum hlutabréfa.
ÞRÁNDUR Í GÖTU
Svo er mál með vexti að easyJet verður ekki
yfirtekið með annarri hendi. Um 40 prósent
hlutafjár eru í eigu stofnandans Stelios Haji-
Ioannou og systkina hans. Hinn grískættaði
Stelios þykir mjög litríkur kappi. Hann stofn-
aði easyJet árið 1995, á vörumerkið „easy“ og
er frumkvöðull í atvinnurekstri á sviði
lággjaldastarfsemi. Hann hefur ekki verið til-
búinn til þess að selja bréfin samkvæmt
heimildum og hefur lýst því yfir að það sé
ekki óeðlilegt að gengi easyJet sveiflist frá
150 pensum til 400 á hlut. Ef Stelios er ekki
tilbúinn til að selja gætu stjórnendur FL
Group brugðið á þann leik að kaupa sig upp í
fimmtungshlut eða meira og gert yfirtökutil-
boð.
Í Vegvísi Landsbankans á dögunum var
sagt frá miklum vexti stærstu lággjaldaflug-
félaganna í Evrópu, Ryanair og easyJet, sem
var mun meiri en hjá stóru flugfélögunum,
Lufthansa og British Airways. EasyJet hefur
aukið farþegafjölda sinn frá áramótum um 22
prósent miðað við sama tímabil í fyrra en
Ryanair um 34 prósent.
Þróunin er sú að lággjaldaflugfélögin taka
æ stærri skerf til sín í bransanum og FL
Group ætlar ekki að missa af bestu bitunum.
Litu á FL Group sem framtíðareign
Baugur hefur náð meirihluta innan stjórnar FL Group. Samstarf Baugs og Hannesar Smárasonar
hefur farið mjög vaxandi og mynda þessi aðilar eina öflugustu valdablokkina. Saxbygg leit á eignar-
hlut sinn í FL Group sem langtímafjárfestingu. FL Group ætlar sér að fjárfesta enn frekar í easyJet.
Eggert Þór Aðalsteinsson fer yfir stöðu mála í einu af fjöreggjum þjóðarinnar.
MIKLAR SVIPTINGAR Um 27 prósenta
hlutur skipti um hendur í FL Group. Fyrrver-
andi eigendur vildu vera lengur inni og
buðust til að kaupa stærsta hluthafann út.
Næsta stóra verkefni FL Group er að kom-
ast yfir easyJet.
Stærstu hluthafar
FL Group þann 5. júlí
1. Eignarhaldsfélagið
Oddaflug ehf. 35,5% *
2. Katla Investments S.A. 17,7% **
3. Baugur Group 12,4%
4. Arion safnreikningur 3,3%
5. Íslandsbanki 2,0%
* Hannes Smárason
** Kevin Stanford, Magnús Ármann og Sigurður Bollason
▲
▲
STELIOS HAJI-IOANNOU, að-
aleigandi og stofnandi easyJet
HANNES SMÁRASON, stjórn-
arformaður FL Group
JÓN ÞORSTEINN JÓNSSON, fyrr-
verandi stjórnarmaður frá Saxbygg
JÓN ÁSGEIR JÓHANNESSON,
forstjóri Baugs Group