Fréttablaðið - 06.07.2005, Page 38
MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 2005 MARKAÐURINN16
F Y R I R T Æ K I
F Ó L K Á F E R L I
Þorgils Óttar Mathiesen, for-
stjóri Sjóvár, segir það ráð sem
fyrst komi upp í hugann vera að
gera aldrei neitt sem ekki þolir
dagsins ljós: ,,Þessa lífsreglu
lagði faðir minn, Matthías Á.
Mathiesen, mér þegar ég var
ungur að árum og henni hef ég
fylgt síðan.“
Þorgils Óttar, sem er gömul
handboltahetja, lék lengi með FH
og á að baki fjölda landsleikja
fyrir Íslands hönd, segir ráðið
upphaflega komið frá ekki
ómerkari manni en Bjarna heitn-
um Benediktssyni forsætisráð-
herra: ,,Þetta ráðlagði Bjarni
pabba þegar hann var ungur
þingmaður og sagði honum að
hafa í huga í öllu sem hann tæki
sér fyrir hendur. Þetta á við um
öll þau verkefni sem maður þarf
að leysa, hvort sem um ræðir
viðskipti eða pólitík og hefur
reynst mér vel.“ - jsk
B E S T A R Á Ð I Ð
Ólafur Helgi Þorgrímsson er framkvæmda-
stjóri Luxury Adventures, sem sérhæfir sig í
ferðum fyrir vel efnaða einstaklinga. Hann
segir hugmyndina mjög einfalda. „Við getum
reddað öllu og nei er ekki svar.“
Viðskiptavinir Luxury eru að-
allega litlir hópar og ein-
staklingar sem vilja
upplifa landið á ein-
stakan hátt. „Við
bjóðum upp á akstur
með leiðsögumönnum,
afþreyingu, gistingu og jafn-
vel mat. Okkar sérstaða felst í raun í akstri
fyrir efnað fólk.“
Luxury Adventures býður einnig upp á
hefðbundnar ferðir á borð við Gullna hring-
inn en Ólafur segir þær ferðir einungis eitt
prósent af ferðunum. „Við erum nánast ein-
göngu með sérsniðnar ferðir. Ferðirnar sam-
anstanda af skoðunarferðum, afþreyingu og
upplifun.“
ALLT STÚTFULLT
Luxury Adventures var stofnað í janúar 2003
af Ólafi Helga Þorgrímssyni og fjölskyldu
hans. Ólafur hefur gengið með hugmyndina í
maganum frá því að hann var 17 ára. Þrír
starfsmenn eru hjá fyrirtækinu og svo taka
tugir leiðsögumanna að sér verkefni eftir
þörfum. Fyrstu mánuðina eftir stofnun bjug-
gu Ólafur og Linda Pálsdóttir kona hans á
Spáni og undirbjuggu jarðveginn. Þar unnu
þau að markaðssetningu fyrirtækisins og
þróun hugmyndarinnar.
Í janúar 2004 hófst svo starfsemin. „Það
fyndna er að við byrjuðum í jeppaferðum og
færðum okkur svo yfir í lúxusbílana þegar
við sáum að þar var enginn fyrir.“ Síðar á því
ári fór svo allt á fullt hjá Luxury Adventures,
smá reytingur hafði verið framan af sumri og
síðasta vetur bætti fyrirtækið við bílaflota
sinn. Fór úr átta lúxusbílum í 11.
Ólafur Helgi segir að viðskiptin í sumar
verði fjórfalt meiri en síðasta sumar. „Það er
allt stútfullt í sumar.“ Þrátt fyrir að svo sé
vísar Ólafur sjaldnast viðskiptavinum frá.
„Við hliðrum til og skipuleggjum ferðir á
annan hátt ef svo ber undir.“
TÍU LAXVEIÐIÁR
Ólafur segir að ferðirnar sem Luxury
Adventures fari séu næstum jafn misjafnar
og þær séu margar en tekur dæmi um ýkt-
ustu ferðina sem hann hafi skipulagt. Banda-
rískur auðkýfingur hafi komið til landsins á
einkaþotu seint um kvöld og hafi haft sam-
band úr flugvélinni. Hann ákvað að stoppa
hér á landi á leiðinni heim frá Istanbúl því
hann hafði heyrt að Ísland væri
magnað. „Bandaríkjamað-
urinn vildi gera eitt-
hvað brjálað og það
tók okkur klukku-
tíma í sameiningu að
finna út hvað hann vildi
gera.“ Snemma morguninn
eftir lögðu ferðamennirnir af stað í leigu-
vél því að ekki var hægt að fljúga milli flug-
valla hér á einkaþotu ferðamannsins vegna
stærðar hennar. Önnur flugvél var tilbúin á
Akureyri með skíðum undir því að áætlað var
að geta lent á jökli ef þeir óskuðu þess. „Þeir
vildu einnig hafa tíu laxveiðiár klárar um allt
land. Allur bílafloti Luxury Adventures beið
tilbúinn um allt land. Á flugi fundu þeir svo
laxveiðiá sem þeir vildi veiða í og þeir hættu
við að lenda á jöklinum. Þessi ferð kostaði
tugi þúsunda Bandaríkjadala.“
NETIÐ LAÐAR
Heimasíða Luxury Adventures, lux.is, dregur
að sér 60 til 70 prósent af viðskiptum fyrir-
tækisins. Ólafur Helgi segir ástæðuna vera
hversu leitarvélavæn síðan er. „Ef við setjum
peninga í eitthvað þá er það netið, þar er pen-
ingunum vel varið.“
Ólafur segist áður hafa sótt ferðaþjónustu-
sýningar erlendis en hann vilji alls ekki eyða
fé sem skili sér ekki. „Við auglýsum ekkert
og árangur af þessum sýningum sannaði end-
anlega að netið sé besti staðurinn til að vera
sýnilegur.“
Ólafur segir Bandaríkjamenn vera fjöl-
mennasta meðal viðskiptavina sinna, þar á
eftir komi Englendingar og svo Rússar.
„Núna í sumar fjölgar Rússunum mjög mik-
ið.“ Fyrirtækið er með starfsmann í Rúss-
landi á sínum snærum.“ Umboðsmenn fyrir-
tækisins starfa einnig í Frakklandi, Spáni,
Ítalíu, Holllandi og Þýskalandi.
Til viðbótar við erlenda ferðamenn eru ís-
lensk fyrirtæki og einstaklingar meðal við-
skiptavina.
Ólafur segir þó orðsporið bestu markaðs-
setninguna. „Þetta er svo lítill heimur að góð
þjónusta spyrst fljótt út.“
Af innlendum viðskiptavinum segir Ólafur
stóru fyrirtækin farin að uppgötva þjónustu
Luxury Adventures og hæfni þess í að þjón-
usta vel efnað fólk. „Við erum ekkert stress-
aðir yfir því þótt við séum að fá einhverjar
forsetafrúr, eða kvikmyndastjörnur eða
moldríka fjárfesta, enda eru þeir bróðurpart-
urinn af okkar viðskiptavinum.“
VINNA DAG OG NÓTT
Forsenda þess að fyrirtækið gangi er að fyll-
sta trúnaðar sé gætt um viðskiptavini þess.
„Við höfum starfað í tvö ár og vitum ná-
kvæmlega hvað við erum að gera.“
Ólafur segir að oft sé því haldið fram að
allar þessar stjörnur hafi sérþarfir og erfitt
sé að gera svo efnað fólk ánægt. Þvert á móti
segir hann að í 95 prósentum tilvika séu við-
skiptavinirnir mjög þægilegir og séu ánægð-
ir með þjónustuna. Vel efnað fólk er ört vax-
andi hópur og Ísland er í tísku, þannig að
Ólafur virðist alveg á réttri hillu.
Ólafur segir Luxury Adventures blómstra.
Veturinn hafi skilað hagnaði, sem er óalgengt
hjá ferðaþjónustufyrirtækjum. „Veturinn er
oft dauði og djöfull hjá þessum fyrirtækj-
um.“ Hann segir þó engan hægðarleik að
halda rekstrinum í góðum gír. „Við vinnum
dag og nótt og greiðum okkur ekki há laun.
Ég horfi í hverja einustu krónu og er rosaleg-
ur nískupúki.“
Lúxus Ævintýrareisur
Stofnað: Janúar 2003
Fjöldi fastra starfsmanna: Þrír
Fjöldi bíla: 11
Nei er ekki svar
Lúxus Ævintýrareisur skipuleggur sérsniðnar ferðir fyrir efnað fólk. Ólafur Helgi
Þorgrímsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, segist geta reddað öllu og leggur
alla áherslu á að viðskiptavinurinn upplifi eitthvað einstakt. Dögg Hjaltalín kann-
aði eftir hverju viðskiptavinirnir sækjast og hverjir þeir eru.
Elínborg Kvaran hefur tekið við starfi
auglýsingastjóra TM. Elínborg starfaði
hjá Markaðsdeild P.
Samúelssonar hf. frá
árinu 2000 til 2005.
Hún útskrifaðist frá
Háskóla Íslands árið
2000 með BS próf í
viðskiptafræði.
Ragnhildur Ragnarsdóttir hefur verið
ráðin í starf forstöðumanns starfs-
mannahalds TM.
Ragnhildur hefur frá
árinu 1998 verið
starfsmannastjóri Og
Vodafone og þar
áður Tals. Frá árinu
1987 til 1997 starfaði
Ragnhildur hjá A&P
lögmönnum, síðast sem skrifstofustjóri.
Ragnhildur er stúdent frá MH, lauk námi
af textílbraut Myndlista- og handíða-
skóla Íslands, hefur lagt stund á nám
við Kennaraháskóla Íslands og er með
Diplomagráðu í viðskiptafræði frá Há-
skóla Íslands.
HÖGNI GUÐMUNDSSON er nýr deildar-
stjóri tjónaskoðunarstöðvar Trygginga-
miðstöðvarinnar.
Högni hefur starfað
hjá TM frá árinu
2003. Frá árinu 2001
til 2003 rak Högni
fyrirtæki sem sér-
hæfði sig í innflutn-
ingi vara og tækja til
landflutninga. Þar
áður starfaði Högni við bifreiðaviðgerðir
og innflutning á aukahlutum í bifreiðar.
Högni er með próf í rafeindavirkjun frá
Iðnskólanum í Reykjavík.
BÍLAFLOTI LUXURY ADVENTURES Starfsmenn fyrirtækisins eru ekkert stressaður yfir því þótt viðskiptavinir þeirra séu einhverjar forsetafrúr, kvikmyndastjörnur eða moldríkir fjárfestar,
enda eru þeir bróðurparturinn af viðskiptavinunum.
Gerðu aldrei neitt sem ekki þolir dagsins ljós
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/H
ör
ðu
r
ÓLAFUR HELGI ÞORGRÍMSSON
Heimasíða Luxury Adventure dregur til sín 60 til 70 prósent
af viðskiptavinunum enda er síðan mjög leitarvélavæn.
Ólafur segist eingöngu eyða peningum í markaðssetningu
á netinu.
ÞORGILS ÓTTAR MATHIESEN FOR-
STJÓRI SJÓVÁR Segir föður sinn hafa ráð-
lagt sér að gera aldrei neitt sem ekki þoli
dagsins ljós. Þetta segir hann að eigi við um
allt það sem fólk taki sér fyrir hendur.
Jón Magnússon sem verið hefur starfs-
maður hagdeildar TM veitir nú þeirri
deild forstöðu. Jón
hefur áralanga
reynslu á sviði
trygginga en hann
hóf störf hjá Trygg-
ingu hf. árið 1973.
Þar starfaði hann í
ýmsum deildum og var framkvæmda-
stjóri tjónasviðs félagsins þegar það
sameinaðist TM árið 1999.
Lúðvík Þorgeirsson er nýr deildarstjóri
umboða og útibúa hjá TM. Lúðvík hefur
starfað hjá TM frá
árinu 1992, lengst af
sem tryggingaráð-
gjafi. Auk þess að
hafa sótt fjölda nám-
skeiða í vátrygging-
um hjá SÍT og end-
urtryggingafélaginu SwissRe, numið
markaðsfræði í Salem State College í
Massachusetts í Bandaríkjunum, lauk
Lúðvík BS prófi í viðskiptafræði frá Há-
skólanum í Reykjavík árið 2004.
Ólafur Haukur Ólafsson hefur tekið við
starfi deildarstjóra eignatjóna á sviði
tjónaþjónustu TM
en Ólafur var áður
fulltrúi í tjónadeild
TM. Ólafur hefur
starfað hjá Trygg-
ingamiðstöðinni frá
árinu 2003 en hann
rak eigið fyrirtæki til þess tíma. Ólafur
er húsasmíðameistari og með próf í
tæknifræði á orku- og umhverfissviði frá
Pauliskolan í Málmey í Svíþjóð.
Stefán Melsted sem verið hefur sérfræð-
ingur og lengst af deildarstjóri í fjár-
máladeild TM hefur
tekið við forstöðu
greiðsluþjónustu- og
áhættustýringar á
fjármálasviði TM.
Stefán, sem er með
embættispróf í lög-
fræði frá Háskóla Ís-
lands, lauk fram-
haldsnámi í lögfræði við Kaupmanna-
hafnarháskóla árið 1982 og hlaut rétt-
indi til málflutnings í héraðsdómi árið
1984. Hann hefur starfað sem lögfræð-
ingur hjá Landsbanka Íslands og Fram-
kvæmdastofnun ríkisins.