Fréttablaðið - 06.07.2005, Side 50
„Mér líður alveg sérdeilis vel
þessa dagana,“ segir Sigurður
Sigurjónsson leikari sem fagnar
fimmtíu ára afmæli sínu í dag.
„Ég lít enn bjartari augum á lífið
en ég gerði áður og hef tileinkað
mér þá speki að líta alltaf á björtu
hliðarnar.“
Nú um stundir sinnir Sigurður
áhugamálunum sínum tveimur;
silungaveiði og golfi, og hleður
batteríin fyrir haustið þegar leik-
húsin fara aftur af stað af fullum
krafti. „Nú hamast ég við að leika
mér. Þar sem ég hef atvinnu af að
leika fyrir aðra þá reyni ég stund-
um að leika við mig.“
Sigurður var kappsamur veiði-
maður hér á árum áður og fór, að
eigin sögn, yfir strikið í þeim efn-
um.“ Ég fékk eiginlega nóg og
hægði því ferðina. Þá tók golfið
yfir en nú er veiðibakterían að
blossa upp í mér á ný,“ segir Sig-
urður sem er nýkominn úr veiði á
Arnarvatnsheiði og ætlar senn í
Veiðivötn.
Í golfinu hefur hann 23 í for-
gjöf og reiknar nú ekkert sérstak-
lega með að komast mikið neðar.
„Ég byrjaði svo seint á þessu,
fékk nokkrar kylfur í fertugsaf-
mælisgjöf og þær lágu ónotaðar í
nokkur ár. Það var svo fyrir fimm
til sex árum sem ég tók skurk í
þessu.“ Sigurður er félagi í Golf-
klúbbnum Keili og spilar á Hval-
eyrarvelli í Hafnarfirði, einum
fallegasta velli landsins, að hans
sögn.
Í tilefni dagsins býst Sigurður
við að efna til lítils golfmóts með-
al helstu meðspilara sinna og ráð-
gerir að halda hóf fyrir þröngan
hóp vina og ættingja með kvöld-
inu. ■
18 6. júlí 2005 MIÐVKUDAGUR
WILLIAM FAULKNER (1897-1962)
lést þennan dag.
SIGURÐUR SIGURJÓNSSON LEIKARI: ER FIMMTUGUR Í DAG
Horfir á björtu hliðarnar
„Maður sem fjarlægir fjall byrjar á því að
bera í burtu litlar steinvölur.“
William Faulkner var bandarískur rithöfundur. Hann hlaut bók-
menntaverðlaun Nóbels árið 1949.
timamot@frettabladid.is
ANDLÁT
Guðrún Margrét Arngrímsdóttir, áður
til heimilis að Harðangri, lést á dvalar-
heimilinu Hlíð, Akureyri, 30. júní.
Niels J. Hansen, húsasmíðameistari,
Dvergholti 17, Mosfellsbæ, lést á líknar-
deild Landspítalans 1. júlí.
Egill Jónasson, Hagatúni 11, Höfn, lést
2. júlí.
Hrafnhildur Gísladóttir, Sólhól, Boga-
slóð 6, Höfn, lést 3. júlí.
Þennan dag árið 1988 létust 167 manns þegar eld-
ur braust út á olíuborpalli í Norðursjó. Talið er að
sprenging á Piper Alpha-borpallinum hafi orsakað
eldinn en pallurinn er staðsettur um 200 kílómetra
norðaustur af Skotlandi.
Þyrlur og skip voru send af stað til að bjarga starfs-
mönnum um borð en flugmenn sögðu að eldhafið
teygði sig yfir hundrað metra upp í loftið. Um 225
menn störfuðu á borpallinum sem var í eigu
Occidental olíufélagsins.
Flestir sem lifðu af sögðust hafa rennt sér niður rör
eða hafa stokkið úr mikilli hæð ofan í sjóinn sem
var þakinn brennandi olíu.
Piper Alpha pallurinn var sá stærsti og elsti í Norð-
ursjó.
Flest fórnarlömbin létust þegar þau önduðu að sér
eitruðum gufum. Engri sök var kastað á sínum tíma
en eftir málaferli árið 1997 vegna trygginga-
greiðslna var
komist að
þeirri niður-
stöðu að tveir
starfsmenn,
sem létust í
slysinu, hefðu
sýnt af sér gá-
leysi og valdið
brunanum.
Hins vegar
hefur verið ef-
ast um þá
skýringu bæði
af ættingjum
mannanna og
í rannsókn
vegna heimildarmyndar sem sýnd var í sjónvarpi.
6. JÚLÍ 1988
ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR
1483 Ríkharður III, konungur
Breta, er krýndur.
1946 Bretar afhenda Íslendingum
Reykjavíkurflugvöll við há-
tíðlega athöfn.
1957 John Lennon kynnist Paul
McCartney.
1958 Eyjólfur Jónsson syndir frá
Reykjavík til Akraness á
þrettán klukkustundum.
1964 Afríkulandið Malaví lýsir yfir
sjálfstæði frá Bretum.
1971 Louis Armstrong djassisti
andast 69 ára að aldri.
1987 Sænska rokkhljómsveitin
Europe heldur tónleika í
Laugardalshöll.
2000 Sonur Tony Blair, forsætis-
ráðherra Bretlands, er
handtekinn fyrir drykkju-
skap.
Eldur í olíuborpalli
JAR‹ARFARIR
13.00 Hjörtur Benediktsson, fram-
kvæmdastjóri, Laufengi 152,
Reykjavík, áður Seiðakvísl 36,
verður jarðsunginn frá Bústaða-
kirkju.
13:00 Ólöf Auður Erlingsdóttir, Eikju-
vogi 1, Reykjavík, verður jarðsung-
in frá Fossvogskirkju.
13.00 Rakel Sæmundsdóttir, hár-
greiðslumeistari, Stangarholti 28,
Reykjavík, verður jarðsungin frá
Háteigskirkju.
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát
og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
Jórunnar Axelsdóttur
Tunguseli 1, Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks heimahjúkrunar Karitas og
Líknardeild Landspítalans í Kópavogi.
Jóhanna Gréta Guðmundsdóttir Atli Sverrisson
Karen Guðmundsdóttir Auðunn Örn Jónsson
Hafdís Guðmundsdóttir Þorsteinn Kjartansson
Bryndís Halla Guðmundsdóttir Óðinn Guðbrandsson
Guðlaugur Guðmundsson
Anna Þórdís Guðmundsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og
útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
Sigurbjargar Stefánsdóttur
Hjallaseli 55, Reykjavík,
áður Strandgötu 19, Ólafsfirði.
Örn Baldursson Elísabet Weisshappel
Jóna Rósbjörg Þorvaldsdóttir Guðmundur Heiðar Gylfason
Anna Stefanía Þorvaldsdóttir Björn Steinar Guðmundsson
Lára Guðný Þorvaldsdóttir Steindór Helgason
Brynja Þorvaldsdóttir Jón Björn Hjálmarsson
Regína Þorvaldsdóttir Örn Pálsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
bróðir, afi og langafi,
Niels J. Hansen
húsasmíðameistari, Dvergholti 17, Mosfellsbæ,
lést á líknardeild Landspítala, Kópavogi, föstudaginn 1. júlí.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju, fimmtudaginn 7. júlí kl.
13.00.
Guðlaug Kristófersdóttir
Þórður Guðni Hansen
Þ. Magnús Nielsson Hansen Vala Jóhannsdóttir
Sigurbjörg Nielsdóttir Hansen George Holmes
Guðbjörg Nielsdóttir Hansen Smári H. Jónsson
Jóna Hansen
barnabörn og langafabarn.
Innilegar þakkir til ykkar allra fyrir samúð, hlýhug,
vináttu og stuðning við andlát og útför áskærs sonar
okkar, bróður, barnabarns og frænda,
Sigurðar Ragnars Arnbjörnssonar
Kirkjuvegi 18, Keflavík.
Erla Björk Sigurðardóttir Arnbjörn Rúnar Eiríksson
Hafþór Raul Brown
Kristmundur Arnbjörnsson Ísar Arnbjörnsson
Hlíf Arnbjörnsdóttir Elín Arnbjörnsdóttir
Aron Arnbjörnsson Þórunn Anna Arnbjörnsdóttir
Sigurður Ragnar Björnsson
Jóna G. Arnbjörnsdóttir
og aðrir aðstandendur
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
Hjörtur Jónsson
Brjánsstöðum, Grímsnesi,
lést af slysförum mánudaginn 4. júlí síðastliðinn.
Sonja G. Jónsdóttir
og fjölskylda
SJÓNVARPSDAGSKRÁ
VIKUNNAR »
SIGURÐUR SIGURJÓNSSON „Nú hamast ég við að leika mér. Þar sem ég hef atvinnu
af að leika fyrir aðra þá reyni ég stundum að leika við mig.“
AFMÆLI
Vladimir Ashkenazy tónlistarmaður er
68 ára.
Guðmundur Magnússon, leikari og leik-
stjóri, er 58 ára.
Eiríkur Jónsson, for-
maður Kennarasam-
bands Íslands, er 54
ára.
Magnús Kjartansson
tónlistarmaður er 54
ára.
Sævar Marinó Ciesielski er 50 ára.
Elísabet Ronaldsdóttir kvikmyndagerðar-
kona er 40 ára.
Ásdís Halla Bragadóttir,
forstjóri Byko, er 37
ára.
Kristín Ólafsdóttir kvik-
myndagerðarkona er
33 ára.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
ÁL
L