Fréttablaðið - 06.07.2005, Síða 57
NILFISK OG FOO FIGHTERS Meðlimir Nilfisk og Foo Fighters djamma saman á Draugabarnum í fyrrakvöld.
Svo virðist sem heillastjarna svífi
yfir strákunum í hljómsveitinni Nil-
fisk frá Stokkseyri því í fyrrakvöld
fengu þeir í annað sinn á tveimur
árum tækifæri til að spila með með-
limum bandarísku rokksveitarinnar
Foo Fighters, sem hélt tónleika í Eg-
ilshöll í gærkvöld ásamt Queens of
the Stone Age. Ekki nóg með það
heldur fengu þeir einnig að spila
með tveimur meðlimum Queens of
the Stone Age.
„Við vorum með tónleika á
Draugabarnum fyrir hóp af krökk-
um sem voru þarna að spila. Þetta
var bandarísk „high school“
strengjahljómsveit. Svo komu þeir
þegar við vorum alveg að klára og
við tókum nokkur lög saman,“ seg-
ir Jóhann Vignir Vilbergsson,
söngvari og gítarleikari Nilfisk,
sem var nývaknaður þegar Frétta-
blaðið hafði samband við hann.
Hljóðfæraskipan á þessum
óvæntu tónleikum var á þann veg
að Jóhann Vilberg spilaði á gítar
ásamt Dave Grohl, forsprakka Foo
Fightes og fyrrum trommara Nir-
vana, Sigurjón Dan úr Nilfisk spil-
aði á bassa og Taylor Hawkins,
trommari Foo Figthers, mundaði
kjuðana. Eftir að þeir höfðu
djammað saman tóku tveir með-
limir Queens of the Stone Age við
af þeim Foo Fighters-mönnum og
hinir tveir meðlimir Nilfisk hlupu í
skarðið fyrir þá Jóhann og Sigur-
jón.
Jóhann segist hafa spallað við
Dave Grohl og það hafi verið mjög
fínt. Þeir ræddu þó ekkert um það
hvort Nilfisk fengi að hita upp fyr-
ir Foo Figthers á tónleikunum eins
og fyrir tveimur árum. „Við töluð-
um um alls konar hluti, hitt og þetta
en ég man annars lítið eftir því þar
sem íslenskt brennivín var haft um
hönd. Síðan vorum við að stökkva
út í sjóinn en þeir gerðu það reynd-
ar ekki. Menn voru bara að
skemmta sér,“ segir hann. „Síðan
hittum við einhverja rótara sem við
vinguðumst við fyrir tveimur árum
og vorum með þeim.“
Að sögn Jóhanns voru meðlimir
Foo Fighters og Queens of the
Stone Age nýbúnir að snæða kvöld-
verð á Stokkseyri ásamt föruneyti
sínu þegar þeir ákváðu að líta við á
Draugabarnum. Kveikt var í varð-
eldi á ströndinni til að skapa réttu
stemmninguna og svo virðist sem
Grohl og félögum hafi tekist að
halda upp á þjóðhátíðardag sinn, 4.
júlí, á eftirminnilegan hátt.
freyr@frettabladid.is
MIÐVIKUDAGUR 6. júlí 2005
DEKK • FÓLKSBÍLADEKK • JEPPADEKK • FÓLKSBÍLADEKK •JEPPADEKK • FÓLKS
LEIÐANDI Í LÆGRA DEKKJAVERÐI
GÆÐAVARA Á BETRA VERÐI!
...einfaldlega betri!
Stukku í sjóinn og drukku brennivín
Strandgata
–Torfunef
Tillögur að deiliskipulagi og breytingu á
aðalskipulagi
Bæjarstjórn Akureyrar auglýsir hér með skv. 1. mgr.
21. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.b.
tillögu að breytingu á aðalskipulagi á hafnar- og mið-
svæði sunnan Strandgötu og austan Glerárgötu.
Breytingin felst einkum í stækkun miðsvæðisreits á
kostnað hafnarsvæðis og er megintilefni hennar fyrir-
huguð bygging menningarhúss á svæðinu, en einnnig
áformuð viðbygging við núverandi líkamsræktarstöð.
Jafnframt er auglýst skv. 25. gr. sömu laga tillaga að
nýju deiliskipulagi sama reits, sem kemur í stað
skipulags frá 1990. Í henni eru markaðir byggingar-
reitir fyrir ofangreindar byggingar, lóðarmörk dregin
og grein gerð fyrir bílastæðum. Gert er ráð fyrir að
Torfunefsbryggja verði lengd og landfylling aukin inn-
an hennar. Lóð líkamsræktarstöðvar stækki til austurs
og þar komi viðbygging.
Tillöguuppdrættir þessir munu liggja frammi í þjón-
ustuanddyri Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 1. hæð,
næstu 6 vikur frá birtingu þessarar auglýsingar, þ.e. til
miðvikudagsins 17. ágúst 2005, svo að þeir sem þess
óska geti kynnt sér tillögurnar og gert við þær athuga-
semdir. Tillögurnar eru einnig birtar á heimasíðu
Akureyrarbæjar: http://www.akureyri.is undir:
Auglýsingar og umsóknir/Skipulagstillögur.
Frestur til að gera athugasemdir við tillögurnar rennur
út kl. 1600 miðvikudaginn 17. ágúst 2005 og skal at-
hugasemdum skilað til Umhverfisdeildar Akureyr-
arbæjar, Geislagötu 9, 3. hæð. Hver sá sem ekki gerir
athugasemdir við auglýsta tillögu innan þessa frests
telst vera henni samþykkur.
06. júlí 2005
Skipulags- og byggingarfulltrúi Akureyrarbæjar.
Áskriftarsími: 515-5555
Su
m
arb
lað
matur og vín
7.tbl.2005,verð 899
kr.m.vsk.
sumarblað
uppskriftir
að svölum
sumarréttum
117
rabarbari
San Fransiskó
- kraumandi mata
rmenning
kolóður
grillari
appelsínur í matarger
ð
-Siggi Flosa
5 690691 1600
05
Gestgjafinn er kominn út!
JOLIE Á LIVE 8 Götublaðið The Sun er
með frétt af verslunarferð Jolie og Pitt þar
sem þau eru sögð hafa skoðað föt fyrir ný-
fædd börn.
Ég er ekki
ólétt
Angelina Jolie hefur svarað þeim
sögusögnum um hvort hún beri
barn Brads Pitt undir belti. „Ég er
ekki ófrísk,“ sagði hún við blaða-
menn sem voru viðstaddir Live 8
tónleikana.
Sagan endalausa um Jolie og
Pitt heldur áfram, þar sem Jolie
neitaði því ekki að þau væru sam-
an. Götublaðið The Sun í Englandi
hafði eftir sjónarvotti að „parið“
hefði sést í Harrods. Annar sjón-
arvottur, sem blaðið vísar í, segist
hafa séð Angelinu skoða mikið af
fötum á nýfædd börn. „Hún var í
löngum síðum, svörtum frakka
eins og hún væri að fela eitthvað,“
hafði blaðið eftir sjónarvottinum.
Enn hefur ekkert komið fram
sem staðfestir að Angelina Jolie
og Brad Pitt séu saman. ■