Fréttablaðið - 13.08.2005, Blaðsíða 39
engin leynd ríkti um lánveitinguna auk þess
sem viðskiptalánið var að fullu endurgreitt og
fól því ekki í sér áhættu fyrir Baug. Þá var
Fjárfar hluthafi í Baugi á þessum tíma. Ítar-
lega er fjallað um óheimilar lánveitingar í
álitsgerð Jónatans Þórmundssonar.
19. Ákærðu Jóni Ásgeiri og Tryggva með
því að hafa hinn 30. júní 2000 misnotað að-
stöðu sína þegar þeir lánuðu, án lánasamn-
ings, trygginga eða ábyrgða, kr.
50.000.000,00 fyrir hönd Baugs hf., til
einkahlutafélagsins Fjárfars, sem ákærði
Jón Ásgeir stjórnaði og rak, vegna kaupa
einkahlutafélagsins á 5 % hluta í Baugi.net
ehf., kt. 570300-2960, af Baugi hf. að nafn-
verði kr. 2.500.000,00. Viðskipti félaganna
með hlutabréf í Baugi.net ehf. gengu til
baka hinn 21. febrúar 2002.
ATHUGASEMDIR SAKBORNINGA:
Hér er um að ræða viðskiptalán sem eru heim-
il og var að fullu endurgreitt. Ekki getur ver-
ið um fjárdrátt eða umboðssvik að ræða þar
sem allan auðgunarásetning skorti, engin
leynd ríkti um lánveitinguna auk þess sem
lánið var að fullu endurgreitt og fól því ekki í
sér áhættu fyrir Baug. Þá var Fjárfar hluthafi
í Baugi á þessum tíma. Ítarlega er fjallað um
óheimilar lánveitingar í álitsgerð Jónatans
Þórmundssonar.
20. Ákærðu Jóni Ásgeiri og Tryggva með
því að hafa hinn 13. febrúar 2001 misnotað
aðstöðu sína þegar þeir lánuðu, án lána-
samnings, trygginga eða ábyrgða, kr.
85.758.591,00 fyrir hönd Baugs hf. til einka-
hlutafélagsins Fjárfars, sem Jón Ásgeir
stjórnaði og rak, vegna kaupa einkahlutafé-
lagsins á hlutabréfum í Baugi hf., í tengsl-
um við hlutafjáraukningu þess, að nafn-
verði kr. 7.392.982,00. Skuld Fjárfars ehf.
við Baug hf., var gerð upp eftir húsleit lög-
reglu hjá Baugi hf., hinn 28. ágúst 2002.
ATHUGASEMDIR SAKBORNINGA:
Viðskiptalánið var að fullu endurgreitt. Ekki
getur verið um fjárdrátt eða umboðssvik að
ræða þar sem allan auðgunarásetning skorti,
engin leynd ríkti um lánveitinguna auk þess
sem viðskiptalánið var að fullu endurgreitt og
fól því ekki í sér áhættu fyrir Baug. Þá var
Fjárfar hluthafi í Baugi á þessum tíma. Ítar-
lega er fjallað um óheimilar lánveitingar í
álitsgerð Jónatans Þórmundssonar.
21. Ákærða Jóni Ásgeiri með því að láta
Baug hf., greiða á tímabilinu frá 5. október
1998 til 2. maí 2002, samkvæmt reikning-
um, kostnað sem ákærði hafði stofnað til
með úttektum á Visa og Mastercard
greiðslukortum í reikning Baugs hf. vegna
persónulegra úttekta ákærða óviðkomandi
Baugi hf., samtals að fjárhæð kr.
12.553.358,60 svo sem hér á eftir greinir.
Voru greiðslurnar í bókhaldi Baugs hf.
færðar til eignar á viðskiptamannareikn-
ingi ákærða hjá Baugi hf. Skuld ákærða
samkvæmt viðskiptamannareikningnum
var gerð upp með víxlinum sem nefndur er
í lok 11. töluliðs ákæru: [...]
ATHUGASEMDIR SAKBORNINGS:
Hér er um að ræða lán viðskiptalegs eðlis sem
eru heimil sem var að fullu endurgreitt 20. maí
2002 áður en til húsleitar RLS kom. Ekki getur
verið um fjárdrátt eða umboðssvik að ræða
þar sem allan auðgunarásetning skorti og eng-
in leynd ríkti um lánveitinguna. Fram kemur í
bréfi JÁJ 30. júní 2005 að greiðslum fyrir per-
sónulegum útgjöld hafi ávallt verið haldið að-
greindum frá öðrum kostnaði og að hann hafi á
öllum stundum átt inni hjá félaginu en ekki öf-
ugt. Þá hefur RLS verið sýnt fram á að á um-
ræddum tíma stóð Baugur ávallt í skuld við
JÁJ, þar sem kaupréttir, dagpeningar o.fl.
höfðu ekki verið gerðir upp við JÁJ.
22. Ákærða Jóni Ásgeiri með því að láta
Baug hf., greiða sér, á tímabilinu frá 2. júní
1999 til 12. júní 2002, í alls átta skipti, sam-
tals kr. 9.536.452,00 úr sjóðum Baugs hf., í
fimm skipti með millifærslum af banka-
reikningum hlutafélagsins nr. 1150 26 77 og
0527 26 720, inn á eigin bankareikning
ákærða, í eitt skipti með millifærslu inn á
bankareikning nafngreinds manns og í tvö
skipti látið afhenda sér í reiðufé. Voru
greiðslurnar í bókhaldi Baugs hf. færðar til
eignar á viðskiptamannareikningi ákærða
hjá Baugi hf., svo sem hér á eftir greinir.
Skuld ákærða samkvæmt viðskiptamanna-
reikningnum var gerð upp með víxlinum
sem nefndur er í lok 11. töluliðs ákæru: [...]
ATHUGASEMDIR SAKBORNINGS:
Hér er um að ræða lán viðskiptalegs eðlis sem
eru heimil og var að fullu endurgreitt 20. maí
2002 áður en til húsleitar RLS kom. Ekki getur
verið um fjárdrátt eða umboðssvik að ræða
þar sem allan auðgunarásetning skorti og eng-
in leynd ríkti um lánveitinguna. Fram kemur í
bréfi JÁJ 30. júní 2005 að greiðslum fyrir per-
sónuleg útgjöld hafi ávallt verið haldið að-
greindum frá öðrum kostnaði og að hann hafi
á öllum stundum átt inni hjá félaginu en ekki
öfugt. Þá hefur RLS verið sýnt fram á að á um-
ræddum tíma stóð Baugur ávallt í skuld við
JÁJ, þar sem kaupréttir, dagpeningar o.fl.
höfðu ekki verið gerðir upp við JÁJ.
23. Ákærða Jóni Ásgeiri með því að láta
Baug hf. greiða, á tímabilinu frá 26. janúar
1999 til 16. júlí 2002, samtals kr.
5.551.474,91, samkvæmt eftirgreindum
reikningum, sem voru vegna kostnaðar
sem ákærði hafði stofnað til og voru einka-
kostnaður ákærða, óviðkomandi Baugi hf.
Greiðslurnar voru færðar til eignar á við-
skiptamannareikningi ákærða hjá Baugi hf.
Skuld ákærða samkvæmt viðskiptamanna-
reikningnum var gerð upp með víxlinum
sem nefndur er í lok 11. töluliðs ákæru: [...]
ATHUGASEMDIR SAKBORNINGS:
Hér er um að ræða lán viðskiptalegs eðlis sem
eru heimil sem var að fullu endurgreiddur
áður en til húsleitar RLS kom. Ekki getur ver-
ið um fjárdrátt eða umboðssvik að ræða þar
sem allan auðgunarásetning skorti og engin
leynd ríkti um lánveitinguna. Fram kemur í
bréfi JÁJ 30. júní 2005 að greiðslum fyrir per-
sónuleg útgjöld hafi ávallt verið haldið að-
greindum frá öðrum kostnaði og að hann hafi
á öllum stundum átt inni hjá félaginu en ekki
öfugt. Þá hefur RLS verið sýnt fram á að á um-
ræddum tíma stóð Baugur ávallt í skuld við
JÁJ, þar sem kaupréttir, dagpeningar o.fl.
höfðu ekki verið gerðir upp við JÁJ.
Brot ákærða Jóns Ásgeirs samkvæmt 10.
til og með 23. töluliðs ákæru teljast varða
við 247. gr. almennra hegningarlaga nr. 19,
1940, til var við 249. gr. sömu laga og jafn-
framt teljast brot samkvæmt töluliðum 10,
15, 16, 18 og 20 varða við 2. mgr. 104. gr., og
brot samkvæmt töluliðum 11, 12, 13, 14, 17,
19, 21, 22 og 23 varða við 1. mgr. 104. gr.,
sbr. 2. tl. 153. gr., laga um hlutafélög nr. 2
1995.
Brot ákærða Tryggva samkvæmt 10., 12.,
13. til og með 16. og 18. til og með 20. tölu-
liðs ákæru teljast varða við 247. gr., sbr. 22.
gr., almennra hegningarlaga nr. 19, 1940, til
vara við 249. gr. sbr. 22. gr., sömu laga og
jafnframt teljast brot samkvæmt töluliðum
10, 15, 16, 18 og 20 varða við 2. mgr. 104. gr.,
og brot samkvæmt töluliðum 12, 13, 14 og
19 varða við 1. mgr. 104. gr., sbr. 2. tl. 153.
gr., laga um hlutafélög nr. 2, 1995.
Brot ákærðu Kristínar samkvæmt 12., 15.
til og með 17. töluliðs ákæru teljast varða
við 254. gr. almennra hegningarlaga nr. 19,
1940.
V. BROT GEGN LÖGUM UM HLUTAFÉLÖG
Ákærðu Jóni Ásgeiri og Tryggva er gefið
að sök að hafa brotið gegn lögum um
hlutafélög í eftirgreindum tilvikum:
24. Ákærðu Jóni Ásgeiri og Tryggva með
því að hafa veitt Fjárfestingafélaginu
Gaumi ehf., sem var í eigu ákærða Jóns Ás-
geirs og fjölskyldu hans, lán vegna tveggja
eftirtaldra reikninga frá Baugi hf. vegna
útlagðs kostnaðar fyrir einkahlutafélagið,
en kröfurnar voru eignfærðar á árinu 1998
á viðskiptamannareikning einkahlutafé-
lagsins hjá Baugi hf., samtals að fjárhæð
kr. 401.430,00, svo sem hér greinir: [töflur
ekki tiltækar]
ATHUGASEMDIR SAKBORNINGA:
Hér er aðallega um að ræða útlagðan kostnað
vegna tölvu JÁJ, sem Baugur átti réttilega að
greiða. Hefur greiðslukvittun þess efnis verið
lögð fram í málinu. Greint hefur verið frá því
í bréfum JÁJ 5. mars 2004 og 30. júní 2005 að
mikil viðskipti áttu sér stað milli Baugs og
Gaums og að ávallt hafi verið reynt að tryggja
að hallaði ekki á Baug í þeim viðskiptum. Að
mati sakborninga er þessi ákæruliður dæmi
um það hvernig leitast hefur verið við að hafa
öll samskipti Baugs og Gaums gegnsæ.
25. Ákærðu Jóni Ásgeiri og Tryggva með
því að hafa veitt Fjárfestingafélaginu
Gaumi ehf., sem var í eigu ákærða Jóns Ás-
geirs og fjölskyldu hans, lán vegna þriggja
eftirtaldra reikninga frá Baugi hf. vegna
hlutdeildar einkahlutafélagsins í kostnaði
Baugs hf., en kröfurnar voru eignfærðar á
árinu 1999 á viðskiptamannareikning
einkahlutafélagsins hjá Baugi hf., samtals
að fjárhæð kr. 13.010.411,00, svo sem hér
greinir: [töflur ekki tiltækar]
ATHUGASEMDIR SAKBORNINGA:
Reikningarnir voru greiddir 20. maí 2002 áður
en til húsleitar RLS kom. Hér er um að ræða
reikninga sem Baugur gerði Gaumi vegna
þátttöku í rekstrarkostnaði Baugs og er m.a.
rakið í bréfi JÁJ 30. júní 2005. Reikningarnir
voru færðir á viðskiptareikning Gaums hjá
Baugi. Útgáfa þessara reikninga undirstrikar
að mati sakborninga hversu fráleitt það er að
telja að hluthafar Gaums hafi gengið í sjóði
Baugs, þegar fyrir liggur að Gaumur var
rukkaður um háar fjárhæðir vegna starfa JÁJ
fyrir Gaum.
26. Ákærðu Jóni Ásgeiri og Tryggva með
því að hafa veitt Fjárfestingafélaginu
Gaumi ehf., sem var í eigu ákærða Jóns Ás-
geirs og fjölskyldu hans, lán vegna sautján
eftirtaldra reikninga frá Baugi hf. vegna
útlagðs kostnaðar fyrir einkahlutafélagið,
en kröfurnar voru eignfærðar á árinu 2000
á viðskiptamannareikning einkahlutafé-
lagsins hjá Baugi hf., samtals að fjárhæð
kr. 6.224.951,00, sem hér greinir: [töflur
ekki tiltækar]
ATHUGASEMDIR SAKBORNINGA:
Reikningarnir voru greiddir 20. maí 2002 áður
en til húsleitar RLS kom. Hér er um að ræða
kostnað sem skipt var milli Baugs og Gaums.
Kostnaður sem féll í hlut Gaums var færður á
viðskiptareikning Gaums hjá Baugi. Útgáfa
þessara reikninga undirstrikar að mati sak-
borninga hversu stjórnendur Baugs voru þess
meðvitaðir að ekki mætti halla á Baug í sam-
skiptum Baugs við Gaum.
27. Ákærðu Jóni Ásgeiri og Tryggva með
því að hafa veitt Fjárfestingafélaginu
Gaumi ehf., sem var í eigu ákærða Jóns Ás-
geirs og fjölskyldu hans, lán vegna eftir-
taldra fjögurra reikninga Baugs hf., vegna
hlutdeildar einkahlutafélagsins í kostnaði
Baugs hf., en kröfurnar voru eignfærðar á
árinu 2000 á viðskiptamannareikning
einkahlutafélagsins hjá Baugi hf., samtals
að fjárhæð kr. 70.000.000,00, svo sem hér
greinir: [töflur ekki tiltækar]
ATHUGASEMDIR SAKBORNINGA:
Reikningarnir voru greiddir 20. maí 2002 áður
en til húsleitar RLS kom. Hér er um að ræða
reikninga sem Baugur gerði Gaumi vegna
þátttöku í rekstrarkostnaði Baugs og er m.a.
rakið í bréfi JÁJ 30. júní 2005. Reikningarnir
voru færðir á viðskiptareikning Gaums hjá
Baugi. Útgáfa þessara reikninga undirstrikar
að mati sakborninga hversu fráleitt það er að
telja að hluthafar Gaums hafi gengið í sjóði
Baugs, þegar fyrir liggur að Gaumur var
rukkaður um háar fjárhæðir vegna starfa JÁJ
fyrir Gaum.
28. Ákærðu Jóni Ásgeiri og Tryggva með
því að hafa veitt Fjárfestingafélaginu
Gaumi ehf., sem var í eigu ákærða Jóns Ás-
geirs og fjölskyldu hans, lán vegna eftir-
taldra fjögurra reikninga Baugs hf. vegna
útlagðs kostnaðar fyrir einkahlutafélagið,
en kröfurnar voru eignfærðar á árinu 2001
á viðskiptamannareikning einkahlutafé-
lagsins hjá Baugi hf., samtals að fjárhæð
kr. 1.293.376,00, svo sem hér greinir: [töflur
ekki tiltækar]
ATHUGASEMDIR SAKBORNINGA:
Reikningarnir voru greiddir 20. maí 2002 áður
en til húsleitar RLS kom. Hér er um að ræða
kostnað sem skipt var milli Baugs og Gaums.
Kostnaður sem féll í hlut Gaums var færður á
viðskiptareikning Gaums hjá Baugi. Útgáfa
þessara reikninga undirstrikar að mati sak-
borninga hversu stjórnendur Baugs voru þess
meðvitaðir að ekki hallaði á Baug í samskipt-
um Baugs við Gaum.
Framangreindar lánveitingar samkvæmt
töluliðum 24 til og með 28 voru að fullu
gerðar upp með víxli útgefnum af einka-
hlutafélaginu Gaumi til hlutafélagsins
Baugs, hinn 20. maí 2002 sem greiddur var
5. september sama ár.
Brot ákærðu Jóns Ásgeirs og Tryggva
samkvæmt 24. til og með 28. töluliðs ákæru
teljast varða við 1. mgr., 104. gr., sbr. 2. tl.
153. gr., laga um hlutafélög nr. 2, 1995.
VI. BROT GEGN ALMENNUM HEGNINGAR-
LÖGUM, LÖGUM UM BÓKHALD, LÖGUM
UM ÁRSREIKNINGA OG LÖGUM UM
HLUTAFÉLÖG.
Ákærðu Jóni Ásgeiri og Tryggva eru gefin
að sök brot á almennum hegningarlög-
um, lögum um bókhald, lögum um árs-
reikninga og lögum um hlutafélög í eftir-
greindum tilvikum:
29. Ákærðu Jóni Ásgeiri og Tryggva með
því að hafa í sameiningu fært og eða látið
færa til tekna í bókhaldi Baugs hf. hinn 30.
júní 2001, samkvæmt lokafærsluskjali end-
urskoðanda dags. 27. september 2001, tvo
tilhæfulausa reikninga, sem ekki áttu stoð í
viðskiptum félagsins, annars vegar frá P/F
SMS, Þórshöfn, Færeyjum, dags. 30. júní
2001, að fjárhæð DKK 3.900.000, sem jafn-
gildir ISK 46.679.000,00 og hins vegar frá
Nordica Inc., Miami í Flórída í Bandaríkj-
unum, dags. 30. ágúst 2001, að fjárhæð USD
589.890, sem jafngildir ISK 61.915.000,00,
eða samtals ISK 108.594.000,00 og hafa með
því rangfært bókhald og oftalið tekjur
Baugs hf. sem þessu nam í rekstrarreikn-
ingi árshlutareiknings hinn 30. júní 2001,
sem birtur var á Verðbréfaþingi Íslands og
gaf til kynna að EBITDA hagnaður fyrstu
sex mánuði ársins væri 15,6% hærri og
hagnaður tímabilsins 24,6% hærri en var í
raun.
ATHUGASEMDIR SAKBORNINGA:
Kreditreikningurinn frá Nordica, sem raunar
var hluti upphaflegra ásakana RLS um fjár-
drátt við húsleit 28. ágúst 2002, var gefinn út í
kjölfar samningaviðræðna milli JÁJ og JGS
um afslátt vegna viðskipta milli Baugs og
Nordica á tímabilinu 1992-2002, sem námu
samtals nálægt 700 milljónum króna, og óá-
nægju vegna mikils lagers af óseldum vörum.
Hér má t.a.m. vísa til tölvupósts sem RLS hef-
ur í gögnum sínum þar sem fram koma um-
mæli stjórnenda Baugs um „60 milljóna króna
vandræðalager“ af vörum frá Nordica.
Kreditreikningurinn frá SMS var gefinn út
vegna fyrirfram greidds afsláttar í tengslum
við fyrirhuguð kaffiviðskipti sem varð síðan
ekkert úr. Þess skal getið að kreditreikningur-
inn frá SMS var bakfærður innan reiknings-
ársins og hafði því ekki nokkur áhrif á árs-
reikning félagsins. Hafi sakborningar ætlað
að hafa áhrif á hagnað félagsins í uppgjöri
Baugs vegna fyrstu sex mánaða ársins 2001
hefði þeim verið í lófa lagið að gera það með
öðrum hætti, t.a.m. með því að færa aukna
hlutdeild í gengishagnaði vegna hlutabréfa fé-
lagsins í Arcadia, sbr. tilkynningu félagsins til
Kauphallar um sex mánaða uppgjör, dags. 3.
september 2001, og draga úr gjaldfærslum
vegna niðurfærslu birgða. Að öðru leyti var
gerð ítarleg grein fyrir efni þessara reikninga
og útgáfu þeirra í bréfum JÁJ 5. mars 2004 og
30. júní 2005 og vísast til þess sem þar segir.
30. Ákærðu Jóni Ásgeiri og Tryggva með
því að hafa fært og eða látið færa rangar og
tilhæfulausar færslur um viðskipti og notk-
un fjármuna í bókhald Baugs hf., þegar
þeir létu færa eigin hlutabréf í hlutafélag-
inu, að nafnverði kr. 40.000.000,00 en bók-
færðu verði kr. 330.764.000,00, til vörslu
hjá Kaupthing Bank Luxembourg, eins og
um sölu hlutabréfanna væri að ræða til
Kaupthing Bank Luxembourg, á sama tíma
og bréfin voru enn í eigu Baugs hf. og ráð-
stafað í nafni Baugs hf. í Lúxemborg. Bréf-
unum var meðal annars ráðstafað til
greiðslna til nokkurra af æðstu stjórnend-
um hlutafélagsins. Ráðstafanir ofan-
greindra fjármuna voru rangfærðar í bók-
haldi og duldar með eftirgreindum færsl-
um og fylgigögnum:
Færsla nr. 9281 dags. 30.06.1999 með texta:
„Hlutabréf í Baugi seld Kaupþingi“
Lykill Heiti lykils Debet Kredit
V560882-0419 Kaupþing 330.764.000
F 73112 Biðreikningur 330.764.000
Færslan, til eignar á viðskiptamannareikn-
ingi Kaupþings hf., byggir á rangri skýringu
í fylgiskjali sem er handskrifað bréf, ódag-
sett og óundirritað, þar sem segir um færsl-
una „Kaup á eigin bréfum.(gamall samning-
ur)“ „Baugur kaupir 5% í Baugi og fær lán
hjá FBA“ „413.455.006.- Biðreikningur“ „Sel-
ur Kaupþingi 4/5 hlut 330.764.000 út af bið-
reikn. D/viðskm. KÞ“. Ytri frumgögn vantar
í bókhaldið. Viðskiptamannareikningur
Kaupþings V560882-0419 er færður til eign-
ar meðal annarra skammtímakrafna í árs-
hluta- og ársreikningi félagsins.
Færsla nr. S005114 dags. 07.07.1999 með texta:
„Kaupþing“
Lykill Heiti lykils Debet Kredit
V560882-0419 Kaupþing 165.382.000
B 77 SPRON 165.382.000
Færslan er byggð á fyrirmælum, án skýr-
inga, um færslur á bókhaldslykla sam-
kvæmt fylgiskjali sem er handskrifað bréf,
ódagsett og óundirritað en með áprentuðu
nafni Tryggva Jónssonar. Ytri frumgögn til
staðfestingar vantar í bókhaldið. Greiðslan
er framkvæmt með millifærslu af banka-
reikningi hlutafélagsins í Lúxemborg, sem
ekki er skráður í bókhaldi þess, inn á tékka-
reikning félagsins hjá SPRON.
Færsla nr. S005128 dags. 08.07.1999 með texta:
„Kaupþing“
Lykill Heiti lykils Debet Kredit
F 73112 Biðreikningur 21.582.000
B 77 SPRON 21.582.000
Færslan, til eignar á biðreikningi, er byggð
á fyrirmælum, án skýringa, um færslur á
bókhaldslykla í fylgiskjali sem er hand-
skrifað bréf, ódagsett og óundirritað en
með áprentuðu nafni Tryggva Jónssonar.
Ytri frumgögn til staðfestingar vantar í
bókhaldið. Um er að ræða millifærslu af
tékkareikningi hlutafélagsins hjá SPRON á
bankareikning þess í Lúxemborg sem ekki
er skráður í bókhaldi hlutafélagsins.
Færsla nr. I00725 dags. 30.06.2001 með texta:
„Kaupþing fært á fyrirframgreiddan kostnað“
Lykill Heiti lykils Debet Kredit
F 73112 Biðreikningur 21.582.000
B 74592 Annar fyrirframgreiddur
kostnaður án vsk 21.582.000
Færslan, sem er millifærsla af „Biðreikn-
ingur“ og til eignar á „Annar fyrirfram-
greiddur kostnaður án vsk“, er byggð á fyr-
irmælum um færslur samkvæmt bókunar-
blaði sem er handskrifað, ódagsett og óund-
irritað. Hvorki fylgir skýring millifærsl-
unni né tilvísun í hina upprunalegu færslu
nr. S005128 dags. 08.07.1999.
LAUGARDAGUR 13. ágúst 2005 3