Fréttablaðið - 13.08.2005, Síða 66

Fréttablaðið - 13.08.2005, Síða 66
13. ágúst 2005 LAUGARDAGUR > Við finnum til með ... ... Hafþóri Ægi Vilhjálmssyni, vinstri vængmanni ÍA í Landsbankadeild karla, en hann spilar ekki meira með í sumar vegna handleggsbrots sem hann hlaut í leiknum gegn Val í fyrradag. Hafþór Ægir hafði spilað frábærlega fyrir ÍA í sumar, var valinn í úrvalslið 7-12 umferðar og var til reynslu hjá danska úrvalsdeildarliðinu FC Midjylland. Maruniak fótbrotinn Slóvenski sóknarmaðurinn Josef Maruniak, sem leikið hefur með Þrótti í Landsbankadeildinni í sumar, ristarbrotnaði í leik með U-23 ára liði félagsins gegn Haukum í fyrradag. Talið er að Maruniak verði um sex vikur að jafna sig og spilar hann því ekki meira með Þrótti í sumar. sport@frettabladid.is 34 > Við óskum ... .... liði Blika í 1. deild karla í knattspyrnu til hamingju með að vera svo gott sem búið að tryggja sér sæti í Landsbankadeildinni að ári. Breiðablik hefur 11 stiga forystu á lið KA í þriðja sæti þegar 12 stig eru eftir í pottinum og í raun aðeins stórslys sem gæti komið í veg fyrir sigur Blika í deildinni. Heimsmeistarakeppni U21-landsli›a karla hefst í Ungverjalandi á flri›judaginn. Íslenska li›i› er tali› líklegt til afreka á mótinu en fla› er skipa› sama kjarna og var› Evrópumeistari U18 fyrir tveimur árum sí›an. Allir vegir eru færir fyrir Ísland HANDBOLTI „Það má ekki reisa of háar skýjaborgir en þetta ræðst á því hvernig okkur gengur gegn Spáni og Þýskalandi í riðlinum okkar. Við þurfum helst að ná að taka með okkur tvö stig úr þeim leikjum til að eiga raunhæfa möguleika í milliriðlinum,“ segir Bergsveinn Bergsveinsson, að- stoðarþjálfari íslenska U21 lands- liðsins, sem heldur um helgina til Ungverjalands þar sem það tekur þátt í heimsmeistarakeppninni í þessum aldursflokki. „Þetta er góður og vel samstillt- ur hópur, strákar sem hafa verið lengi saman og þekkja hvern ann- an vel. Það eru allir vegir færir fyrir okkur. Fyrstu leikirnir okkar, gegn Kongó og Chile, eru svoköll- uð skylduverkefni og að öllu eðli- legu ættum við ekki að lenda í neinum vandræðum í þeim leikj- um. Það væri algjört stórslys ef þeir leikir færu í vaskinn. Fyrsta skrefið er að koma okkur vel fyrir í milliriðlinum og svo setjum við okkur næsta markmið eftir að það hefur tekist,“ sagði Bergsveinn. Miklar væntingar eru gerðar til íslenska liðsins sem samanstendur af mörgum stórefnilegum leik- mönnum og er þetta nánast sama lið og varð Evrópumeistari U18 fyrir tveimur árum síðan. Ísland hlýtur því að teljast meðal sigur- stranglegustu liða mótsins. Tveir leikmenn hópsins eru á mála hjá þýskum liðum, Arnór Atlason hjá Magdeburg og Ásgeir Örn Hall- grímssson hjá Lemgo. „Þetta lítur allt saman vel út. Hugurinn leitar alla leið, vænting- arnar til okkar eru miklar en við getum alveg tekið því. Við vitum það alveg sjálfir hvað við getum,“ sagði Björgvin Páll Gústavsson markvörður landliðsins en hann er nýgenginn til liðs við ÍBV. Landsliðsþjálfarinn Viggó Sig- urðsson hefur verið mikið í frétt- um að undanförnu vegna nei- kvæðra hluta en Björgvin segir það ekki hafa nein áhrif á hópinn. „Hann er einn af betri þjálfurum sem ég hef haft, ef ekki sá besti. Hann er frábær og svo er ekki slæmt að hafa Begga með honum, hann hefur kennt mér ansi mikið,“ sagði Björgvin. Ásgeir Örn tekur í sama streng. „Við blöndum okkur ekkert inn í það sem hann gerir og okkur kem- ur þetta ekkert við. Við eigum að einbeita okkur að því að spila handbolta og það ætlum við að gera,“ sagði Ásgeir Örn. elvar@frettabladid.is HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 10 11 12 13 14 15 16 Sunnudagur MAÍ ■ ■ LEIKIR  14.00 Fjölnir og Völsungur mætast í Grafarvogsvelli í 1. deild karla. ■ ■ SJÓNVARP  10.45 Strandblak á Sýn.  11.45 US PGA meistaramótið í golfi á Sýn.  14.45 Toyota mótaröðin í golfi á Sýn. Ólafur Ingi Skúlason, leikmaður Brent- ford City og íslenska U-21 landsliðsins í knattspyrnu, meiddist illa í sínum öðr- um leik með félagi sínu og mun líklega ekki leika meira með liði sínu á tímabil- inu. Eftir að hafa komið til Brentford frá Arsenal, hefur Ólafur Ingi æft vel með nýja félagi sínu og hafði fundið sig vel sem varnarsinnaður miðjumaður. Ólafur sleit krossbönd og skaddaði liðþófa og liðbönd að auki. „Þetta eru skelfilegar fréttir fyrir mig. Ég er nýbúinn að skrifa undir samning og var að hefja nýtt tímabil. Ég vonaðist til þess að standa mig vel hérna og ég veit að knatt- spyrnustjórinn hafði trú á mér.“ Þrátt fyrir þessar leiðindafréttir er Ólafur ekki á því að gefast upp, heldur ætlar að koma sterkari til baka. „Ég og kærasta mín fórum á fund með knatt- spyrnustjóranum þar sem við ræddum málin. Hann var auðvitað vonsvikinn eins ég, en hann sagði mér að sýna styrk minn og nota þetta áfall til þess að byggja mig upp andlega og líkam- lega, og koma að krafti til baka. Mér þótti vænt um að heyra þetta og ætla mér að fara að ráðum hans.“ Martin Allen sagði í vikulegum pistli sín- um á heimasíðu Brentford að áfall eins og þetta, myndi styrkja leikmann eins og Ólaf í framtíðinni. „Það var hrikalegt að fá niðustöðuna úr rannsókn lækn- ana. Ólafur styrkti lið okkar mikið og hefði klárlega gert það til framtíðar litið. En ég sagði honum að þetta væri ekk- ert meira en bara hnémeiðsli. Hann er enn þá ungur og hraustur strákur. Góðir leikmenn geta sigrast á hindrunum eins og þessum og Ólafur á örugglega eftir að gera það. Það er al- veg ljóst að það kem- ur ekkert annað til greina heldur en mikil vinna og þol- inmæði og ég veit eftir að hafa rætt við Ólaf, að hann er tibúinn til þess að leggja mikið á sig.“ ÓLAFUR INGI SKÚLASON: MEIDDIST ILLA Í SÍNUM ÖÐRUM LEIK FYRIR BRENTFORD Tímabilinu loki› hjá Ólafi Inga Skúlasyni Boltinn er byrjaðu r – en þú? Tippaðu á næsta sölustað eða á 1x2.is fyrir kl 13 í dag – aðeins 10 kónur röðin! LEIKIR GÆRDAGSINS 1. deild karla: KS–KA 0–5 Pálmi Rafn Pálmason 3, Jóhann Þórhalls- son, Hreinn Hringsson. ÞÓR–HAUKAR 2–0 Þórður Halldórsson, Hlynur Birgisson, víti. HK–VÍKINGUR 0–0 Leikinn í gærkvöldi dæmdi norski dómarinn Ken Henry Johnson en það gerði hann vegna samstarfs norrænna knattspyrnusambanda um dómgæslu sem er nýhafið og stendur yfir í eitt ár. STAÐAN: BREIÐABLIK14 12 2 0 26–8 38 VÍKINGUR 14 8 5 1 31–7 29 KA 14 8 3 3 31–12 27 HK 14 3 7 4 12–13 16 HAUKAR 14 4 3 7 16–19 15 ÞÓR 14 4 3 7 18–29 15 VÍKINGUR Ó.14 4 3 7 11–27 15 VÖLSUNGUR13 3 3 7 12–18 12 FJÖLNIR 13 4 0 9 19–28 12 KS 14 2 5 7 11–26 11  14.55 Mótorkross á Sýn.  15.30 HM í frjálsum íþróttum á RÚV.  15.45 Mótorsport 2005 á Sýn.  16.15 Motorworld á Sýn.  16.45 World Supercross á Sýn.  18.05 US PGA Mótaröðin í golfi á Sýn.  18.30 US PGA Championship á Sýn.  23.00 Real Betis – Barcelona á Sýn.  00.40 Hnefaleikar á Sýn. Heimsmeistaramótið í frjálsum íþróttum: FRJÁLSAR Yelena Isinbayeva frá Rússlandi varð heimsmeistari í stangarstökki og setti enn og aftur heimsmet þegar hún vippaði sér yfir fimm metra og einn sentímetra á HM í frjálsum íþróttum sem fram fer í Helskinki. Þetta er í 18. sinn sem Isinbayeva setur heimsmet, en hún sigraði með miklum yfir- burðum í greininni að þessu sinni. Önnur varð Monika Pyrek frá Póllandi sem stökk 4,60 metra en Þórey Edda Elísdóttir komst sem kunnugt er ekki í gegnum niðurskurðinn. Annars var árangurinn sem náðist á HM í gær líklega sá besti síðan að mótið hófst í byrjun vikunnar. Jeremy Warner frá Bandaríkjunum sigraði í 400 metra hlaupi karla á 7. besta tíma frá upphafi, 43,93 sekúndum og þá náði Olga Kuzenkova frá Rússlandi að tryggja sér sigur í sleggjukasti kvenna með lengsta kasti ársins, 75,10 metra. - vig Isinbayeva me› heimsmet GRÍÐARSTERKUR HÓPUR U-21 árs liðið er mjög öflugt og byggt á sama kjarna leikmanna og varð Evrópumeistari fyrir tveimur árum.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.