Fréttablaðið


Fréttablaðið - 21.04.2006, Qupperneq 31

Fréttablaðið - 21.04.2006, Qupperneq 31
FÖSTUDAGUR 28. janúar 2005 31 Kaffihús: Laugavegi 24 Smáralind Verslanir: Kringlunni Smáralind Laugavegi 27 Suðurveri Akureyri Egilsstöðum �� �� ��� ��� �� � ����������������� ������������� ��������������������������������� N† VÖRU- OG fiJÓNUSTU- SKRÁ Á VISIR.IS/ALLT ... sem flig vantar til a› hefja n‡tt líf F í t o n / S Í A Oft situr fólk uppi með of marga hnífa ef keypt er öll framleiðslulínan. Frekar en að kaupa alla fram- leiðslulínu hnífa ætti hver að finna nokkra hnífa sem hæfa þörfum hans. Mikilvægasti hnífurinn er kokkahnífurinn. Til eru nokkrar stærðir af honum en einn ætti að nægja hverjum meðaljóni. Hentug stærð er misjöfn eftir fólki. Til að finna stærðina sem hentar best er gott að vagga hnífn- um yfir trébretti og finna hvernig hann passar. Gott er að eiga einn stóran hníf því þeim er auðvelt að stýra og henta því vel til að hakka og saxa. Svo er nauðsynlegt að eiga lítinn hníf því auðvelt er að eiga við þá. Talið er að fimm hnífar séu nauðsynlegir öllum sem eru að stússast í eldhúsinu. Það er kokka- hnífur, sveigjanlegur úrbeininga- eða flökunarhnífur, kjöthnífur, grænmetis- eða spekkhnífur og brauðhnífur. Þetta er talinn vera góður grunnur til að byggja á og bæta við hnífum eftir eigin hentugleika. Hægt er að finna meiri upplýs- ingar um hnífa á síðunni www. kokka.is/frodleikur. Góð eign hnífa Margar gerðir af hnífum eru til en ekki þurfa allir að eiga þær allar. Tarte Tatin er fræg pönnubaka ættuð frá Frakklandi. Í hana eru notuð epli sem stundum eru vætt í koníaki og eldsteikt. Í þessa böku, aftur á móti, eru notaðar perur, valhnetur og hunang sem gefur bökunni hlýjan og fangandi, austrænan blæ á ísaköldu vori. Pönnubökur eru frábærlega einföld lausn þegar reiða þarf fram ljúffengan eftirrrétt með lágmarks fyrirhöfn. Lykilatriði er að nota pönnu sem má fara inn í ofn. 4 perur (kjarnaðar og skornar í báta) 3 msk. smjör 50 g valhnetur (brotnar gróft) 3 msk. sykur 1 msk. hunang 1 tsk. kanill 2 blöð af frosnu smjördeigi hrært egg til að pensla með 1. Látið smjördeigs- blöðin þiðna í um 20 mínútur og fletjið þau svo út þannig að hvort blað fyrir sig verði nægilega stórt til að þekja rúmlega helming af yfirborði pönnunnar sem notuð er. Setjið deigið til hliðar. 2. Hitið pönnu (með stálskafti) og setjið sykurinn út á hana. Þegar sykurinn tekur að leysast upp er smjörið sett útí og því blandað saman við sykurinn. Hrærið í og látið malla þar til sykurinn hefur alveg leyst upp og gullin og ilm- andi karamella er orðin til á pönnunni. Setjið næst perubátana og valhnetu- bitana útí og veltið þeim vel saman við karamelluna. Látið malla á lágum hita nokkra stund. Takið pönnuna af hitanum. Hrærið kanil saman við hunangið og hellið því svo jafnt yfir perublönduna. 3. Leggið smjördeigsblöðin yfir peru- fyllinguna í pönnunni og ýtið jöðrum deigsins niður með hliðum pönnunnar allann hringinn. Deigið mun mynda botn bökunnar. Stingið pönnunni inn í 200 gráðu heitan ofn og bakið í 35 mínútur. Setjið álpappír yfir ef botninn tekur að dökkna um of. Takið pönnuna út úr ofninum og látið hana standa í 5 mínútur áður en kökudiski er hvolft yfir pönnuna og öllu svo snúið við og pönnunni síðan lyft varlega upp þannig að bakan situr eftir á disknum, falleg og freistandi. Borðið bökuna volga með vanilluís eða þeytt- um rjóma. Pönnubaka með perum og valhnetum 4 kjúklingabringur salt og pipar Kjúklingurinn er hreinsaður og þerraður. Hitið vatn á pönnu og setjið bambuskörfuna yfir og gufusjóðið kjúklinginn. Kjúklingur- inn má ekki snerta vatnið. Saltið og piprið kjúklinginn. Gufusjóðið kjúklinginn í 25 til 35 mínútur. Kjúklingurinn er svo borinn fram með eþíópísku pestói, hrísgrjónum með kókosmjólk og gufusoðnu- grænmeti. Eþíópískt pestó 1 hvítlauksgeiri 2 dl kasjúhnetur 1 dl furuhnetur 1/2 búnt af kóríander 1/5 búnt af myntu 1 1/2 dl af extra virgin olíu 2 msk. rautt karrýmauk safi úr hálfri sítrónu Allt sett í blandara og hrært vel saman. Hrísgrjón með kókosmjólk 300 ml kókosmjólk 300 ml vatn 1 tsk. af salti Sjóðið hrísgrjónin í 8 til 11 mínútur. Grjónin verða mun girnilegri þegar þau eru soðin með kókosmjólk. Uppskrift Önnu } Kjúklingur Heminem með eþíópísku pestói Salt er mikilvægt fyrir heilsu okkar en þó er hægt að borða of mikið af því. Fullorðinn einstaklingur ætti að innbyrða um sex grömm af salti á dag, en það er um það bil ein full teskeið. Börn eiga að borða minna af salti. Fyrsta árið ættu börn ekki að innbyrða meira en eitt gramm af salti á dag, börn eins til þriggja ára um tvö grömm á dag, fjögurra til sex ára börn ekki meira en þrjú grömm og börn sem eru sex til tíu ára gömul ekki meira en fimm grömm á dag. Taka skal fram að þetta er hámark þess sem má borða af salti og mælt er með að innbyrða minna magn en þetta. Oft er erfitt að mæla saltneyslu þar sem saltið er oft þegar í matnum sem við borð- um, en ekki aðeins því sem við bætum við eftir á. Brauð, morgunkorn, kex, bakaðar baunir og tilbúnir réttir innihalda mikið af salti sem og matur með saltbragði eins og flögur, beikon, ostur og ólívur. Salt er gott í hófi EKKI ERU ALLIR SAMMÁLA UM HVORT SALT SÉ HOLLT EÐA ÓHOLLT. Á MATARVEF BBC MÁ FINNA UPPLÝSINGAR UM HVERSU MIKIÐ SALT MÁ BORÐA. Salt er nauðsynlegt en aðeins gott í hófi. 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.