Fréttablaðið


Fréttablaðið - 21.04.2006, Qupperneq 60

Fréttablaðið - 21.04.2006, Qupperneq 60
SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500 ICE AGE 2 kl. 4, 8 og 10 M/ENSKU TALI ÍSÖLD 2 kl. 6 M/ÍSL. TALI WHEN A STRANGER CALLS kl. 6, 8 og 10 B.I. 16 ÁRA WHEN A STRANGER CALLS kl. 3, 6, 8 og 10 B.I. 16 ÁRA ICE AGE 2 kl. 3, 6, 8 og 10 M/ENSKU TALI LUCKY NUMBER SLEVIN kl. 3, 5.30, 8 og 10.30 B.I. 16 ÁRA WALK THE LINE kl. 2.40, 5.15, 8 og 10.45 WHEN A STRANGER CALLS kl. 6, 8 og 10 B.I. 16 ÁRA SÝND Í LÚXUS kl. 2, 4, 6, 8 og 10 B.I. 16 ÁRA ICE AGE 2 M/ENSKU TALI kl. 2, 4, 6, 8 og 10 ÍSÖLD 2 M/ÍSLENSKU TALI kl. 2, 4 og 6 DATE MOVIE kl. 6, 8 og 10 B.I. 14 ÁRA BIG MOMMA’S HOUSE 2 kl. 1.30, 3.50, 8 og 10.15 PINK PANTHER kl. 1.30 og 3.50 400 kr. í bíó!Gildir á allar sýningar í Regnboganum merktar með rauðu PÁSKAMYNDIN 2006 SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI STÆRSTA MYND ÁRSINS - VJV, Topp5.is - HJ MBL RANGUR TÍMI, RANGUR STAÐUR, RANGUR MAÐUR - LIB, Topp5.is WWW.XY.IS 200 kr. afsláttur STEVE MARTIN KEVIN KLINE AÐSÓKNARMESTA MYND ÁRSINS! YFIR 22.000 MANNS ! 34.000 MANNS Á AÐEINS 12 DÖG UM! VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG! - JÞP Blaðið ÓHUGNANLEGASTA MYND ÁRSINS! FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA HVAÐ SEM ÞÚ GERIR, EKKI SVARA Í SÍMANN! ALLRA SÍÐUSTU S ÝNINGAR! ALLRA SÍÐUSTU S ÝNINGAR! - Dóri DNA, DV - DÖJ, Kvikmyndir.com Zora Young, einn af gestum vel heppnaðrar Blúshátíðar í Reykja- vík nú fyrir páska, hefur boðið gítarleikaranum Halldóri Braga- syni að leika með sér á tónleikum hennar á aðalsviði Blúshátíðar- innar í Chicago þann 10. júní. Zora Young hefur um árabil verið í metum sem ein besta blússöngkona Bandaríkjanna. Hún hefur haldið tónleika með hljómsveit sinni um allan heim og hefur komið fram með öllum helstu blústónlistarmönnum Bandaríkjanna. Blúshátíðin í Chicago er árleg- ur listviðburður þar sem fram koma allir helstu blústónlistar- menn heims. Sækja hana árlega um 800 þúsund manns. Það er mikill heiður fyrir Hall- dór að fá tækifæri til að leika á Blúshátíðinni í Chicago. Halldór er þó ekki ókunnugur hátíðinni, því árið 1993 lék hann þar með Vinum Dóra og goðsögninni Pine- top Perkins. ■ Halldór til Chicago [UMFJÖLLUN] DVD Þessi DVD-tónleikadiskur var tek- inn upp á tónleikum teiknimynda- hljómsveitarinnar Gorillaz í óperuhúsinu í Manchester í nóv- ember í fyrra þar sem önnur plata hennar, Demon Days, var spiluð í heild sinni í fyrsta sinn. Flestir þeir sem komu að gerð plötunnar mættu til leiks, þar á meðal gestasöngvararnir Shaun Ryder og Neneh Cherry auk þess sem Ike Turner tók stuttan sprett á píanóinu í laginu Every Planet We Reach is Dead. Tveir meðlimir Gorillaz voru jafnframt uppi í stúku í brúðugervi og skemmtu sér konunglega. Það er skemmst frá því að segja að diskurinn er mikil veisla bæða fyrir augu og eyru. Teiknimynd- um af meðlimum Gorillaz og sjón- varpsmyndum af ýmsum toga, þar sem meðal annars er deilt hart á stríðsrekstur, er varpað á breið- tjald á áhrifamikinn hátt. Á teikn- arinn og annar meðlima Gorillaz, Jamie Hewlett, hrós skilið fyrir þá hlið mála. Á meðan hljóðfæraleikararnir, með Damon Albarn í broddi fylk- ingar, láta lítið fyrir sér fara í skugganum stíga gestasöngvar- arnir í sviðsljósið og fá loksins uppreisn æru. Minnisstæð er frammistaða fyllibyttunnar Shaun Ryder sem ótrúlegt en satt smell- passar inn í umhverfið. Undir lok tónleikanna stígur Albarn síðan loksins upp af píanóstólnum og syngur í forgrunninum við mikið lófaklapp viðstaddra. Þessi diskur er góð viðbót við plötuna Demon Days fyrir þá sem höfðu gaman af henni og fangar vel þá fínu stemningu sem skapað- ist á tónleikunum. Útlitið er allt saman mjög flott þar sem vel tekst að tvinna lifandi tónlistinni saman við myndirnar á breiðtjaldinu, að ógleymdri tónlistinni sem er í hæsta gæðaflokki. Freyr Bjarnason Flott sjónarspil Rapparinn Eminem mætti nýlega í minningarathöfn um vin sinn og rapparann Proof, öðru nafni Deshaun Horton. Í minningarathöfninni sem hald- in var í pakkaðri kirkju í Detroit sagði Eminem að Proof hefði verið honum sem bróður en Proof var meðlimur í rappgrúppu Eminem D12. Proof, sem var skotinn til bana á næturklúbbi fyrr í mánuðinum, var einn besti vinur Eminem og var hann t.d. svaramaður í brúð- kaupi hans. Eminem sagði í minningarathöfninni að án Proof hefði hann aldrei orðið að Eminem, Slim Shady hefði ekki orðið til né heldur D12. Eminem sagði frá því hvernig þeir vinirnir hefðu kynnst á unglingsaldri í hip- hop verslun og í ræðu sinni blótaði rapparinn en baðst síðan afsökunar á orðbragði sínu. Eminem syrgir vin GORILLAZ: LIVE AT THE MANCHESTER OPERA HOUSE NIÐURSTAÐA: Vandaður tónleikadiskur sem er konfekt fyrir augu og eyru. Góð viðbót við fyrirtaks plötu. HALLDÓR BRAGASON OG ZORA YOUNG Zora hefur boðið Halldóri að spila á blúshátíðinni í Chicago í sumar. Café París við Austurvöll opnaði dyrnar á ný síðasta vetrardag eftir allsherjar andlitslyftingu. Nýjir eigendur hafa tekið við staðnum sem hefur stækkað um 80 fm og er orðinn miklu nýtískulegri en áður. „Gamla Parísarstemningin er þó enn í húsinu, hér verður þröngt setið eins og áður, mikið af sama starfsfólki er hér áfram og við höld- um klassískum réttum á borð við crépes, croissaint og tertunum á matseðlinum,“ segir Haukur Víðis- son sem ræður nú ríkjum á staðn- um ásamt Grétari Berndsen. Auk breytinganna innandyra, sem KJ hönnun sá um, hafa orðið ýmsar áherslubreytingar á þjónustunni. „Matseðilinn er orðinn miklu stærri og meiri áhersla lögð á alvöru mat en áður. Einnig bjóðum við nú upp á brönsj-bakka á morgnana en slíkur morgunverður hefur verið vinsæll á kaffihúsum í erlendum stórborg- um. Að auki höfum við lengt opnun- artímann og munum bjóða upp á kokteilbarsstemningu á kvöld- in,“ segir Haukur. Café París opnaði árið 1992 í Austurstræti og hefur allar götur síðan átt ríkan sess í miðbæjar- stemningu borgarinnar, sérstak- lega á sumrin en þá gefst gestum kostur á að sitja utandyra. Að sögn Hauks hafa fastakúnnar staðarins fylgst náið með breytingunum og margir komið og tekið frá sæti áður en staðurinn opnaði. Rúsínan í pylsuenda staðarins er í formi ljós- mynda upp um alla veggi sem sýna götuhorn og hús í nágrenni Café París. Þannig geta gestir kíkt á myndirnar á veggjunum og þessu næst litið út um gluggann og séð hvaða breytingarnar hafa orðið á götumyndinni í tímans rás. -snæ Nýtískulegra Café París ANDLITSLYFTING Leðursæti, dökkar flísar, nýtískuleg lýsing og betri loftræsting er meðal þess sem bíður kaffihúsagestum á Café París. Sætum utandyra hefur verið fjölgað í 150, matseðilinn stækkaður og opnunartíminn lengdur. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA Föstudagana 21. og 28. apríl og 5. og 12. maí stendur Jazzakademí- an, djassklúbbur Háskóla Íslands, fyrir „föstudagsdjammi“ í Stúd- entakjallaranum. Fyrstir á dagskrá Jazzakademí- unnar í kvöld verða framverðir yngstu kynslóðarinnar í íslensk- um djassi, þeir Davíð Þór Jónsson píanóleikari og Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson kontrabassaleikari en þeir skipa 2/3 hluta tríósins Flís. Munu þeir spinna spennandi tónlist sem allir ættu að hafa gaman af. Tónleikarnir fara fram klukkan 16 til 18. Eru þeir í boði Háskóla Íslands og Stúdentakjallarans og er aðgangur ókeypis. Háskóla- djass í kvöld FLÍS Tveir þriðju hlutar af djasstríóinu Flís spila í Stúdentakjallaranum á föstudags- kvöld.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.