Fréttablaðið - 21.04.2006, Page 64

Fréttablaðið - 21.04.2006, Page 64
 21. apríl 2006 FÖSTUDAGUR48 HNEFALEIKAR Matthías Matthíasson er meðal goðsagna Íslands í box- heiminum. Matthías byrjaði ungur að árum að stunda box og æfir enn þann dag í dag þrisvar i viku þrátt fyrir að vera kominn á níræðisald- urinn. Hann kom dóttursyni sínum, Sigurjóni Arnórssyni, upp á lagið með að boxa en Sigurjón er átján ára gamall. Hann er í Hnefa- leikafélagi Reykjavíkur og mun keppa í þungavigtarflokki um helgina í Íslandsmótinu í hnefa- leikum sem fer fram í Kapla- krika. „Ég vildi verða meistari í ein- hverju,“ sagði Matthías, aðspurð- ur um ástæðuna fyrir því að velja hnefaleika. „Ég byrjaði að æfa rétt fyrir seinni heimsstyrjöldina í leikfimissal Menntaskólans í Reykjavík með Ármanni þar sem Guðmundur Arason tók mig upp á arma sína. Guðmundur ber höfuð og herðar yfir allt sem kallast hnefaleikar á Íslandi og næstur honum er Þorsteinn Gíslason sem rak fyrsta hnefaleikaskólann,” sagði Matthías. „Ég er þakklátur guði fyrir að hafa komist í hnefaleikana. Þetta styrkti mig gríðarlega mikið enda ein erfiðasta íþrótt sem hægt er að stunda. Hnefaleikadansinn er ekki fyrir hvern sem er, ég vona að aðeins reglumenn stundi hnefa- leika. Ég hef aldrei drukkið brennivín og ekki reykt heldur, það má ekki skyggja á andann og íþróttahugsjón hnefaleikanna með því. Ég get því farið í hringinn ennþá þrátt fyrir háan aldur. Á meðan heilsan og Guð lofar þá æfi ég box,“ sagði Matthías sem æfir þrisvar sinnum í viku og aðstoðar við kennsluna eftir bestu getu enda margreyndur í íþróttinni. „Ég geri mitt besta til að hafa góð áhrif. Þessi íþrótt er frábær fyrir ungt fólk að byrja á og ég skora á menn að vakna betur og styðja við þessa íþrótt eins og mögulegt er,“ sagði Matthías sem kenndi Sigurjóni dóttursyni sínum box fyrir fimm árumn og þá var ekki aftur snúið fyrir þennan snjalla boxara. „Ég byrjaði að kenna honum heima í garði fyrir nokkrum árum. Lögreglan kom eitt sinn heim og ætlaði að gera boxútbúnaðinn minn upptækan, þar á meðal spíttbolta og fleira, þá sagði ég þeim að þetta væri karate- bolti. Þeir urðu að taka það gott og gilt og ég komst því upp með þetta,“ sagði Matthías. „Sigurjón er samviskusamur og ég er mjög hreykinn af þeim árangri sem hann hefur náð. Hann nýtir tímann sinn mjög vel auk þess sem hann veit nánast allt um heimshnefaleikana í dag,“ sagði Matthías en Sigurjón segist eiga í mikilli þakkarskuld við afa sinn. „Ég var eitthvað að leika mér með dótið hans afa úti í skúr áður en hann sýndi mér hvernig átti að gera þetta. Síðan byrjaði ég að mæta á hverjum degi til að æfa hjá honum þar sem hann sýndi mér taktana. Ég æfði vel hjá afa en einnig hjá Guðmundi Arasyni og því hafði ég góða lærimeistara. Afi hefur alltaf verið við hliðina á mér og öll fjölskyldan styður vel við bakið á mér og okkur,“ sagði Sigurjón sem æfir box á hverjum degi. „Box er langskemmtilegasta íþrótt sem ég hef stundað. Þetta er frábær íþrótt og þegar maður hefur æft svona lengi og fylgst jafn vel með og ég hef gert þá er ekki hægt að hætta í þessu,“ sagði Sigurjón sem hefur einnig æft fót- bolta, körfubolta og frjálsar íþrótt- ir en hann dreymir um að keppa á ólympíuleikum í framtíðinni. „Það væri draumur að komast á stórmót á borð við ólympíuleika en það er alls ekki hlaupið að því. Það er gríðarlega erfitt en maður veit aldrei hvað gerist,“ sagði Sig- urjón sem segir að til að keppa í boxi þurfi menn að vera í mjög góðu líkamlegu ástandi. „Þetta er mjög krefjandi og líkamlega erf- itt. Þú þarft að vera í góðu formi og þetta er erfiðasta íþrótt sem ég hef stundað, en þetta er alltaf jafn gaman.” hjalti@frettabladid.is Þakklátur guði fyrir hnefaleikana Íslandsmótið í hnefaleikum fer fram um helgina. Meðal keppenda er hinn 18 ára gamli Sigurjón Arnórsson sem lærði box af afa sínum, Matthíasi Matthíassyni, sem 81 árs að aldri er enn að æfa hnefaleika. ENN Í FULLU FJÖRI Matthías stundar ennþá box þótt hann sé 81 árs gamall. Hann æfir þrisvar sinnum í viku en Sigurjón alla daga vikunnar. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA GÓÐIR SAMAN Matthías og Sigurjón eru flottir saman í fullum skrúða. Matthías ber hanska, ekki ósvipaða þeim sem hann notaði á sínum fyrstu árum í boxíþróttinni. Sigurjón er með öllu nýtískulegri útbúnað. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA FORMÚLA-1 Spænski heimsmeistar- inn Fernando Alonso telur að Ferr- ari og McLaren verði helstu keppi- nautar Renault um meistaratitilinn í formúlunni í ár. Um helgina verð- ur keppt á Imola brautinni í San Marino en Alonso er efstur í stiga- keppni ókuþóra með 28 stig en félagi hans hjá Renault, Giancarlo Fisichellq hefur fjórtán stig líkt og Kimi Raikkonen á McLaren. „Báðir McLaren-ökumennirnir verða keppinautar okkar, af því þeir eru á Michelin. Bíll McLaren er í stöðugri framför en ef Bridgestone nær að búa til góð dekk fyrir Ferrari þá verða þeir líka inn í myndinni, en ég tel að gengi þeirra verði sveiflukennt á þessu ári,“ sagði Alonso. „Ég yrði hissa ef Honda næði að landa sigri á þessu ári. Liðið verður með í slag um verðlauna- sæti, en það kæmi mér á óvart ef Button næði að vinna mót. Honda skortir 0.2 sekúndur til að vera í toppslagnum. Mín skoðun er sú að liðið þurfi fyrst að vera í topp- slagnum í 2-3 ár áður en það verð- ur í titilbaráttunni,“ sagði Alonso á blaðamannafundi í gær. - hþh Fernando Alonso: Sigtar út aðal keppinautana HEIMSMEISTARINN Hefur enga trú á Honda en telur að Ferrari og McLaren verði í baráttunni við Renault. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.