Fréttablaðið - 22.05.2006, Blaðsíða 25

Fréttablaðið - 22.05.2006, Blaðsíða 25
ER ÞÍN EIGN AUGLÝST HÉR? MEST LESNA FASTEIGNABLAÐ LANDSINS Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík 3.51 13.24 23.00 Akureyri 3.12 13.09 23.09 Heimild: Almanak Háskólans Smáauglýsingasími 550 5000 Auglýsingasími Allt 550 5880 Þú getur pantað smáauglýsingar á visir.is TÆPLEGA 500 ÍBÚÐIR ERU Í BYGGINGU Á AKRANESI EÐA UNDIRBÚNINGI AÐ BYGGINGU, BÆÐI Í SÉRBÝLI OG FJÖLBÝLI. Úthlutað hefur verið 94 sérbýlishúsalóðum í 1. áfanga Skógahverfis og 30 sérbýlishúsalóðum í síðasta áfanga Flatahverfis. Í byggingu eru sjö raðhúsaíbúðir við Vallarsel. Skipulagsvinna stendur yfir við 2. áfanga Skógahverfis með um 100 sérbýlihúsalóðum og viðræður hafa átt sér stað við verktaka um frekari byggingar sérbýlishúsa í fleiri áföngum þess hverfis. Í nýju aðalskipulagi Akraness fyrir árin 2005-2017 er gert ráð fyrir íbúðasvæði norðan Flatahverfis og austan Þjóðbrautar í svonefndu Skógarhverfi. Svæðið í heild er skilgreint sem blönduð íbúðarbyggð um 50 hektarar að flatarmáli og þar munu geta búið allt að 3.000 manns. Á svæðinu er gert ráð fyrir nýjum grunnskóla og leikskóla auk svæðis fyrir íþróttamannvirki. Skógahverfi á Skaga Flatahverfið er að verða fullbyggt. MYND/EYLEIFUR ÍSAK JÓHANNESSON Nýtt heimili fasteignasala er með til sölu fallegt 131,6 fermetra einbýlishús við „litla Skerjafjörð“. Húsið er á rólegum og barnvænum stað við Hörpugötu í 101 Reykjavík. Um er að ræða tveggja íbúða klætt timburhús. Í kjallara er þvottahús og tveggja herbergja íbúð sem er í útleigu. Á aðalhæð hússins er anddyri með fatahengi, opnu eldhúsi og borðstofu. Þar er einnig notaleg stofa og svefnherbergi. Á rishæð, sem er með fallegum kvistum, eru tvö svefnherbergi, baðherbergi og alrými. Risið er að stórum hluta endurnýjað en þakið var einangrað árið 2002 og nær allt gler í risinu er nýtt. Öll herbergin á miðhæð og í risi, utan baðherbergisins, eru með fjöl- um á gólfi. Nýtt rafmagn var dregið á miðhæð árið 1998 og á ris 2002, ásamt því að rafmagns- taflan var endurnýjuð. Ofnalagnir í risi voru lagðar nýjar þegar risið var einangrað 2002 og lagnir á miðhæð og í kjalla voru endurnýj- aðar af fyrri eigendum. Frárennsli frá hús- inu var grafið upp og endurnýjað kringum 1996. Húsið stendur á 717,5 fm eignarlóð sem gefur góða möguleika á stækkun og viðbygg- ingu, sem og bílskúr. Við suðurhlið hússins er skjólsælt hellulagt plan en garðurinn er vel gróinn. Eins og áður sagði er hverfið rólegt. Þeir sem þar búa lýsa því helst sem sveit í borg. Eigendur verða að eigin sögn fyrir litlu ónæði af völdum flugvallarins en hverfið er við austur-vestur flugbrautina sem er styttri og mun minna notuð en aðal- brautin. Allt æfinga- og snertiflug er bannað á brautinni og kvöldflug er mjög takmarkað. Bílaumferð í gegnum hverfið er einnig mjög lítil. Ásett verð á Hörpugötu 7 er 49 milljónir. Húsið er samtals 131,6 fermatrar. Kjallarinn er 39,4 fermetrar en miðhæðin og risið 92,2 fermetrar. tryggvi@frettabladid.is Fallegt hús á frábærum stað Hörpugata 7 er fallegt tveggja íbúða timburhús. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA ÍLÁT UNDIR BLÓMIN Þótt hitastigið hafi ekki verið sumarblómunum hagstætt undanfarna daga er tímabært að spá í ker og potta. HÚS 2 GÓÐAN DAG! Í dag er mánudagurinn 22. maí, 142. dagur ársins 2006. FASTEIGNASÖLUR Árborgir 15 Ás 8-11 Dómus 20 Draumahús 23-27 Eignastýring 31 Eignaumboðið 28, 35 Fasteignafélag Austurl. 17 Fasteignasala Mosfellsb. 19 Fyrirtækjasala Íslands 36 FMG fasteignasala 18 Húseign 37 Höfði 14 IAV 6 Lundur 12 Lyngvík 29 Lögmenn Suðurlandi 22 Neteign 17 Nýtt 30 Perla investment 31 Remax Kópavogi 28 Remax Mjódd 34, 40 Remax Svana 38 Remax Stjarnan 15 Valhöll 16
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.