Fréttablaðið - 22.05.2006, Blaðsíða 94
22. maí 2006 MÁNUDAGUR46
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÁRÉTT
2 sigtun 6 frá 8 forsögn 9 þrep í stiga 11
fyrir hönd 12 rusl 14 veldis 16 berist til 17
skammstöfun 18 for 20 samtök 21 slabb.
LÓÐRÉTT
1 ensk mælieining 3 klaki 4 reyna 5 lík 7
sviptur 10 mánuður 13 sjáðu 15 hjartaáfall
16 hryggur 19 guð.
LAUSN
Nýverið var frumsýnd hér á landi kvik-
myndin Da Vinci-lykillinn sem er byggð
á samnefndri bók Bandaríkjamannsins
Dan Brown.
Myndin, rétt eins og bókin, hefur verið
afar umdeild og hafa margir trúarhópar
hvatt almenning til að sniðganga hana
vegna meints guðlasts.
Séra Þórhallur Heimisson, prestur í
Hafnarfjarðarkirkju, hefur haldið vel sótt
námskeið um Da Vinci-lykilinn, bæði
hér heima og í Svíþjóð, og telst því til
sérfræðinga í þessu vinsæla umfjöllunar-
efni.
Þórhallur er að sjálfsögðu búinn að sjá
myndina og segir hana vel gerða þótt
hún sé dálítið þunglamaleg. Honum
finnst viðbrögð öfgafullra trúarhópa
vera allt of mikil og ýkt. „Þeir taka þessa
mynd alltof alvarlega og bókstaflega.
Þetta er nú bara kvikmynd og skáld-
skapur. Í myndinni er reynt að draga
úr að þetta sé stór sannleikur og þar
líta menn ekki það þannig að þetta sé
árás á kristna trú. Það á heldur aldrei
að brenna bækur. Þótt maður sé á móti
þeim á maður aldrei að brenna þær,
heldur á maður að rökræða þær,“ segir
Þórhallur. Hann segist ekki hafa vitað
við hverju hann átti að búast þegar
hann fór á myndina í bíó. „Bókin er
ítarlegri en myndin fylgir bókinni mjög
vel. Hún er samt dálítið kaldranaleg.
Aðalpersónurnar Langdon og Sophie
eru fallegt fólk sem er ekki einu sinni
pínulítið skotið hvort í öðru þrátt fyrir
að vera svona mikið ein á báti. Þetta
eru dálítið tilfinningalausir karakterar en
þetta er vel gerð mynd og hefur marga
góða spretti,“ segir hann.
Á uppstigningardag, hinn 25. maí,
verður Þórhallur með kvöldvöku klukkan
21.00 í safnaðarheimili Hafnarfjarðar-
kirkju þar sem hann dregur helstu þætti
námskeiða sinna um Da Vinci-lykilinn
í eins klukkutíma kvöldstund. Húsið er
opið fyrir alla og er aðgangur ókeypis.
- fb
SÉRFRÆÐINGURINN SÉRA ÞÓRHALLUR HEIMISSON OG DA VINCI-LYKILLINN
Þunglamaleg en vel gerð mynd
SÉRA ÞÓRHALLUR HEIMISSON
Séra Þórhallur undrast viðbrögð
öfgafullra trúarhópa við kvikmynd-
inni Da Vinci-lykillinn.
HRÓSIÐ
... fær Sigmar Guðmundsson fyrir
skemmtilega lýsingu frá Euro-
vision-kepninni í Aþenu.
„Ég er búin að vera hérna í nokkr-
ar vikur og líst afar vel á. Fyrir
fram hefði ég búist við því að þetta
fyrirtæki væri eins og gömul risa-
eðla en maður finnur strax hvað
það er mikill frumkvöðlaandi hér
inni,“ segir sjónvarpskonan
Brynja Þorgeirsdóttir. Eins og
kunnugt er færði Brynja sig fyrir
skemmstu yfir til Sjónvarpsins
þar sem hún verður með hesta-
þáttinn Kóngur um stund í sumar.
„Þetta verða tólf þættir sem
við gerum í sumar og þeir verða
með svipuðu sniði og í fyrra, nema
að við reynum auðvitað að gera
betur,“ segir Brynja. Fyrsti þátt-
urinn verður sýndur 12. júní næst-
komandi. Brynja vinnur þættina
með Konráð Pálmasyni og þau eru
þegar byrjuð að taka upp efni.
Upptökur fara fram í allt sumar
og verður sérstaklega stílað inn á
þá viðburði sem hestamenn sækja
á sumrin. Brynja segist ekki vita
hvað taki við hjá henni þegar hún
hefur lokið við gerð hestaþátt-
anna. Hún er alls ekki viss um að
hún muni starfa á fréttastofu Sjón-
varps eins og talað var um þegar
hún hóf störf á RÚV: „Það er alveg
óákveðið hvað ég geri í haust.“
- hdm
Finnur frumkvöðlaanda á RÚV
BRYNJA OG KONRÁÐ Eru byrjuð
að taka upp efni fyrir hestaþáttinn
Kóngur um stund. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Æfingar eru nú í fullum gangi á
söngleiknum „Footlose“ sem
3sagas setur upp en söngleikurinn
er byggður á samnefndri kvik-
mynd eftir Dean Pithcford sem
kom út árið 1984. Aðalhlutverkin
eru í höndum Höllu Vilhjálmsdótt-
ur og Þorvalds Davíðs Kristjáns-
sonar en það er Unnur Ösp Stef-
ánsdóttir sem sér um leikstjórnina.
„Mér líst bara afar vel á hópinn,“
segir Þorvaldur Davíð, sem leikur
aðalpersónuna Aron, ungan mann
sem flytur frá stórborginni í
smábæ þar sem dans hefur verið
bannaður með lögum um árabil.
Söngleikurinn Footloose verður
sýndur í Borgarleikhúsinu í sumar
og virðist hafa alla burði til að
verða sumarsmellurinn í ár.
Þorvaldur Davíð hefur annars
alið manninn í leiklistardeild Lista-
háskólans í vetur en hann byrjaði
nám í skólanum síðasta haust.
„Veturinn hefur verið mjög
krefjandi og lærdómsríkur,“ segir
Þorvaldur Davíð, sem fær lítið
sumarfrí í sumar því áætlað er að
söngleikurinn fari á fjalirnar 29.
júní. Halla Vilhjálmsdóttir, sem
leikur aðalkvenhlutverkið á móti
Þorvaldi, þykir ein af allra efni-
legustu leikkonum okkar Íslend-
inga um þessar mundir. Hún lauk
leiklistarnámi í London á síðasta
ári og lék í Túskildingsóperunni og
Hafinu bláa í vetur
við afar góðan orð-
stír. Halla hefur
auk þess komið
fram í fjölda aug-
lýsinga og þykir hörkugóð söng-
kona. Stífar dansæfingar eru nú á
hverjum degi hjá hópnum fram að
frumsýningu en að sögn Þorvaldar
verða dansatriðin í sýningunni
mjög flott.
Aðspurður að því hvort hann sé
dansfimur að eðlisfari svarar hann
að hann geti alveg hreyft sig og
fari alveg á dansgólf skemmtistað-
anna þegar stemningin bjóði upp á
það. „Lagið Senorita með Justin
Timberlake er mjög danslegt og
fær mig oftast á gólfið,“ segir hinn
kynþokkafulli Þorvaldur Davíð,
sem ætti að gleðja ófáar ungmeyj-
arnar með danssporum sínum í
Footloose í sumar.
ÞORVALDUR DAVÍÐ KRISTJÁNSSON: LEIKUR AÐALHLUTVERKIÐ Í FOOTLOOSE
Stífar dansæfingar
á hverjum degi
FOOTLOSE Á FJALIRNAR Þorvaldur Davíð er einn af aðalleikurunum í Footlose-söngleiknum
sem settur verður upp í sumar.
HALLA VILHJÁLMS-
DÓTTIR
Þykir ein af eftirtekt-
arverðari ungu leik-
konunum á Íslandi
í dag. Hún leikur í
Footloose í sumar.
��������
��� ��� ��� ��� ���
������� ��� ��� ������
��� ��� �
�� �� �� �� �
�� �� �� �� �
���������
������������������������
�������������
������������������������������
��
���������
�����������
��������������
���� ���������
������������������������������
LÁRÉTT: 2 síun, 6 af, 8 spá, 9 rim, 11 pr, 12
drasl, 14 ríkis, 16 bt, 17 ofl, 18 aur, 20 aa, 21
krap.
LÓÐRÉTT: 1 yard, 3 ís, 4 upplifa, 5 nár, 7 firrtur,
10 maí, 13 sko, 15 slag, 16 bak, 19 ra.
1 Lordi.
2 Runólfur Birgisson.
3 Svartfjallalands.
VEISTU SVARIÐ?
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
FRÉTTIR AF FÓLKI
Spurningin „why do you love Iceland?“ sem Auðunn Blöndal
skaut að Tom Hanks á The Da Vinci
Code blaðamannafundinum í Cannes í
síðustu viku hefur vakið nokkra athygli í
Cannes og þegar Auðunn tók viðtal við
leikkonuna Penelope Cruz
fyrir Strákana á Stöð 2
spurði hún hann sérstak-
lega að því hvort hann
væri maðurinn sem
bar upp þessa
furðulegu spurn-
ingu. Spurning
Auðuns vakti
einnig athygli
heimspress-
unnar og
innkomu
Auðuns
er meðal
annars getið
í Washington
Post en erlendir miðlar telja spurning-
una hafa verið þá klikkuðustu sem borin
var fram á annars undarlegum fundi.
Auðunn hefur verið iðinn við kolann í
Cannes og hefur meðal annarra rætt við
Jamie Foxx og sjálfan Bruce Willis. Foxx
lék á als oddi þegar Auðun talaði við
hann og kunni vel að meta tilbreyting-
una sem fólst í sérstakri viðtalstækni
stráksins. Bruce Willis var hins vegar
með stjörnustæla, var almennt kulda-
legur við blaðamenn og nennti ekki að
taka þátt í neinu gríni. Strákarnir, Auð-
unn og Ofur Hugi, fljúga heim til Íslands
í dag þannig að viðtölin sem þeir tóku
í Cannes munu birtast í þætti þeirra á
næstu dögum.
Kvikmyndaframleiðandinn Sigurjón Sighvatsson er staddur í Cann-
es meðal annars til þess að kynna
heimildarmynd sína Zidane, un portrait
du XXIe siècle sem verður sýnd á
hátíðinni í dag. Myndin hefur þegar
vakið mikla athygli og
mun fá umfangs-
mikla dreifingu í
Frakklandi enda eru
Frakkar yfir sig hrifnir af
sínum manni. Aðstand-
endur kvikmyndahá-
tíðarinnar lögðu því
hart að Sigurjóni að
mæta með kappann
á hátíðina. Zidane er
hins vegar upptekinn
þessa dagana og
kominn í æfinga-
búðir og því ekki
vinnandi vegur að fá
hann til þess að koma. Hefði það geng-
ið eftir hefði Sigurjón fengið að sýna
myndina á besta tíma á laugardaginn en
fjarvera hetjunnar varð til þess að fyrsta
sýningin færðist framyfir helgi.