Fréttablaðið - 22.05.2006, Blaðsíða 14
14 22. maí 2006 MÁNUDAGUR
KOSNINGAR Kjósendur á Akureyri
þurfa að velja á milli sex framboðs-
lista á laugardaginn en hvergi á
landinu eru listarnir jafn margir.
Framsóknarflokkur, Listi fólksins,
Samfylking, Sjálfstæðisflokkur og
Vinstri græn bjóða öll fram lista
líkt og síðast. Að auki býður nú
Framfylkingarflokkurinn fram en
hann er nýtt stjórnmálaafl á Akur-
eyri sem einkum er ætlað að höfða
til yngri kjósenda.
Mikil endurnýjun hefur orðið á
öllum listunum sem buðu fram í
síðustu kosningum og ljóst að Akur-
eyringar munu fá marga nýja
bæjarfulltrúa.
Vegna sameiningar Akureyrar-
kaupstaðar og Hríseyjarhrepps
sumarið 2004 eru málefni er tengj-
ast Hrísey nú á stefnuskrá listanna.
Enginn Hríseyingur er þó nægilega
ofarlega á lista til að ná sæti í
bæjarstjórn, svo raunhæft sé.
Akureyrarbær stendur fjár-
hagslega traustum fótum og íbúum
hefur fjölgað á undanförnum árum.
Atvinnuleysi hefur verið viðvar-
andi vandamál um hríð og öll fram-
boðin boða nú aðgerðir í atvinnu-
málum.
Flestir listarnir segjast ætla að
lækka leikskólagjöld en gerð
sjávarsíkis í miðbænum er orðið að
pólitísku bitbeini á síðustu metrum
kosningabaráttunnar. Allt þar til
fyrir nokkrum vikum virtist góð
samstaða um gerð sjávarsíkisins
en nú segir Samfylkingin fram-
Akureyringar hafa um flesta lista að velja í komandi kosningum:
Endurnýjun í bæjarstjórn
Akureyrarkaupstaður og Hríseyjarhreppur
sameinuðust í eitt sveitarfélag árið 2004.
Íbúafjöldinn 1. desember í fyrra var 16.736.
Bæjarstjórn er skipuð ellefu fulltrúum.
ÚRSLIT KOSNINGANNA 2002
Fjöldi íbúa á kjörskrá: 11.240
Fjöldi greiddra atkvæða: 9.041 (80,4%)
Listi Framsóknarmanna (B)
- 2.124 atkvæði - 3 fulltrúa
Listi Sjálfstæðisflokksins (D)
- 3.144 atkvæði - 4 fulltrúa
Listi fólksins (L)
- 1.568 atkvæði - 2 fulltrúa
Listi Samfylkingarinnar (S)
- 1.225 atkvæði - 1 fulltrúa
Listi Vinstrihreyfingarinnar
græns framboðs (U)
- 769 atkvæði - 1 fulltrúa
Meirihlutasamstarf er með Framsóknar- (B)
og Sjálfstæðisflokki (D)
Bæjarfulltrúar B-listans:
Jakob Björnsson
Gerður Jónsdóttir
Jóhannes Gunnar Bjarnason
Bæjarfulltrúar D-listans:
Kristján Þór Júlíusson
Þóra Ákadóttir
Þórarinn B. Jónsson
Sigrún Björk Jakobsdóttir
Oktavía Jóhannesdóttir
(Gekk til liðs við D-lista 2005)
Bæjarfulltrúar L-listans:
Oddur Helgi Halldórsson
Marsibil Fjóla Snæbjarnardóttir
Bæjarfulltrúi S-listans:
Oktavía Jóhannesdóttir
(Gekk til liðs við D-lista 2005)
Bæjarfulltrúi U-listans:
Valgerður Hjördís Bjarnadóttir
KOSNINGAR 2006
Fjöldi íbúa á kjörskrá: 11.240
Efstu menn B-lista:
1. Jóhannes Gunnar Bjarnason
íþróttakennnari
2. Gerður Jónsdóttir bæjarfulltrúi
3. Erla Þrándardóttir verkefnastjóri
4. Erlingur Kristjánsson kennari
5. Ingimar Eydal,
aðst.slökkviliðsstj.
6. Petrea Ósk Sigurðar-
dóttir leikskólakennari
Efstu menn D-lista:
1. Kristján Þór Júlíusson
bæjarstjóri.
2. Sigrún Björk Jakobsdóttir bæjarfulltrúi.
3. Elín Margrét Hallgrímsdóttir
símenntunarstjóri.
4. Hjalti Jón Sveinsson skólameistari
5. Þórarinn B. Jónsson bæjarfulltrúi
6. María Egilsdóttir hjúkrunarfræðingur
Efstu menn L-lista:
1. Oddur Helgi Halldórsson
blikksmíðameistari
2. Anna Halla Emilsdóttir
aðst. leikskólastjóri
3. Víðir Benediktsson skipstjóri
4. Nói Björnsson skrifstofustjóri
5. Halla B. Reynisdóttir flugumferðarstjóri
6. Tryggvi Gunnarsson
verslunarstjóri
Efstu menn O-lista:
1. Hólmar Örn Finnsson
viðskiptalögfræðingur
2. Sindri Kristjánsson nemi
3. Benedikt Sigmar Emilsson nemi
4. Inga Björk Svavarsdóttir
innheimtufulltrúi
5. Sigurður Karl Jóhannsson
veitingamaður
6. Heiðar Ríkharðsson þjónn
Efstu menn S-lista:
1. Hermann Jón Tómasson áfangastjóri
2. Sigrún Stefánsdóttir sölufulltrúi
3. Helena Þuríður Karlsdóttir
forstöðumaður
4. Ásgeir Magnússon forstöðumaður
5. Margrét Kristín Helgadóttir nemi
6. Jón Ingi Cæsarsson dreifingarstjóri
Efstu menn V-lista:
1. Baldvin H. Sigurðsson
matreiðslumeistari
2. Kristín Sigfúsdóttir kennari
3. Dýrleif Skjóldal Ingimarsdóttir
sundþjálfari
4. Jón Erlendsson starfsm. Vegagerðar
5. Baldvin Esra Einarsson
heimspekingur
6. Embla Rún Hakadóttir nemi
AKUREYRI
SKEMMTIFERÐASKIP VIÐ AKUREYRI Komum
skemmtiferðaskipa til Akureyrar hefur farið
fjölgandi undanfarin ár.
Kynntu þér frábær tilboð í
Vildarþjónustunni í sumar
50% afsláttur hjá Flugfélagi Íslands
Allt að 30.000 kr. afsláttur í sólina
Afsláttur hjá Hertz bílaleigu
10.000 kr. ferðaávísun
…og margt fleira
Félagar í Vildarþjónustu Sparisjóðsins fá ferðatilboð hjá Úrval-Útsýn og Plúsferðum, 50% afslátt af flugi
innanlands, ferðalán og bílaleigu á betri kjörum. Í Sparisjóðnum færðu einnig gjaldeyri fyrir fríið. Það er engin
tilviljun að viðskiptavinir Sparisjóðsins eru þeir ánægðustu í bankakerfinu síðastliðin 7 ár.
Við lögum okkur að þínum þörfum!
Þú í útrás
F
í
t
o
n
/
S
Í
A