Fréttablaðið - 22.05.2006, Blaðsíða 96
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opið: Mánudaga – föstudaga kl. 9.00 - 18.00 og laugardaga kl. 12.00 - 16.00
Selfossi
482 3100
Umboðsmenn
um land allt
Njarðvík
421 8808
Akranesi
431 1376
Höfn í Hornafirði
478 1990
Reyðarfirði
474 1453
Akureyri
461 2960
Saab
Það er klassi yfir Saab 9-3 bílunum, enda á Saab sér áratugalanga sögu
og er einn öruggasti bíll sem völ er á. Saab 9-3 er margverðlaunuð
nýjung í klassíska Saab stílnum þar sem öryggi og mýkt í akstri er í
fyrirrúmi. Stórkostleg hönnun, öflug vél og ríkulegur staðalbúnaður
gera Saab 9-3 að byltingu í klassíska geiranum.
*Og verðið er algert einsdæmi fyrir lúxusbíl í þessum gæðaflokki!
Klassík á viðráðanlegu verði*
2.590.000 kr.
Klassi, öryggi, stíll!
Verðið miðast við beinskiptan 1.8 lítra, 125 hestafla bíl.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
18
8
8
AUGL†SINGASÍMI
550 5000
FYLGIR FRÉTTABLA‹INU ALLA MI‹VIKUDAGA
����������
�������������������
Þátttaka Íslands í Söngvakeppni Evrópu að þessu sinni varð því
miður ekki nema einnar nætur
gaman. Sú ávísun sem Silvía okkar
ætlaði að innleysa í Gleðibanka
Evrópu kom beint í hausinn á
útgefanda aftur. Ungæðislegt grín
sem smám saman breyttist í
örvæntingarfull fíflalæti gerði
litla lukku meðan léttþungarokkuð
skrímsli og uppvakningar frá
Þúsund vatna landinu slógu í gegn
með góðlátlegum húmor og gríp-
andi laglínu.
FINNAR hafa ekki hingað til riðið
feitum hrossum frá Evróvisjón-
keppni en Lordi-tröllin með hart
rokk og hallelúja-söng frá ættjörð
Síbelíusar komu, sáu og sigruðu
með stinningshvassri hljómkviðu
og feyktu hvítklæddum meyjum
og sykursætum drengjum út úr
sjónsviði áhorfenda.
SAMKEPPNI um athygli og vin-
sældir er orðin býsna hörð. Jafn-
vel þótt fjallmyndarlegar stúlkur
frá mörgum löndum klæddu sig úr
því sem næst hverri spjör og
drengir hýrir á brá hefðu skyrt-
urnar fráflakandi niður fyrir nafla
kom það fyrir ekki. Smám saman
mun það renna upp fyrir spuna-
meisturum popp-heimsins - og
hugsanlega fyrir spunarokkum
stjórnmálanna líka - að það er
sannfæringarkraftur, útgeislun og
einlægni þeirra sem á sviðinu
standa sem ræður úrslitum.
MEIRA að segja í glysveröld
dægurflugna dugir yfirborðs-
mennska og tilgerð ekki til stórra
sigra. Ef Silvía góða Nótt hefði
látið sér nægja að gera góðlátlegt
grín að tilgerð og stjörnustælum
er aldrei að vita nema Evrópa hefði
hleypt henni inn í samkvæmið þar
sem finnsku þursarnir sátu í önd-
vegi. En grínið var mislukkað frá
byrjun, yfirspennt og hjákátlegt
og loks beinlínis ósmekklegt.
Sömuleiðis var lýsing þular Ríkis-
útvarpsins úr takti við þetta vor-
blót afþreyingariðnaðarins. Hann
hafði djúpan skilning á því að
Norðurlandaþjóðir hafa svipaðan
smekk á tónlistarskemmtiatriðum,
en dylgjaði stöðugt um að eitthvað
annað en menningarlegur skyld-
leiki og græskulaust gaman réði
því hvernig aðrar þjóðir í Evrópu
greiða atkvæði. Í næstu Evróvisjón-
keppni væri gaman ef Íslendingar
sendu keppanda sem hefði eitt-
hvað skemmtilegt að gefa og þul
sem hefði eitthvað notalegt að
segja. ■
Hart rokk og
hallelúja!