Fréttablaðið - 22.05.2006, Blaðsíða 10
10 22. maí 2006 MÁNUDAGUR
������������������������������������������������������
�� ��������������������������������������������������������������
������ ������������������������������������������������������
������������������������������������������������������������
��������������������������������������������������������������
������������������������������������������������������������
�������������������������������
��������������������������������������������
������������������������������������������������������������������
��������������������������������������������������������
�������������������������������������������������������������������
1.890.000,- Beinskipt - 1.6 lítra
Nýr, fallegri og miklu
betri Opel.
Þinn daglegi
skammtur af gleði
Mánaðargreiðsla 23.061,-*
���������������� ������������������������� �����������������
KVIKMYNDAGERÐ Valgerður Sverr-
isdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráð-
herra, var á kvikmyndahátíðinni í
Cannes um helgina. Hún notaði
ferðina til þess að kynna Ísland
sem áhugaverðan kost fyrir kvik-
myndagerðarfólk og lagði mesta
áherslu á tólf prósenta skattaaf-
sláttinn sem ríkið veitir fram-
leiðslufyrirtækjum. Þá tók Val-
gerður þátt í því að vekja athygli á
Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í
Reykjavík sem hefst í lok sept-
ember.
„Kvikmyndaheimurinn er sér-
stakur og það er erfitt fyrir þá
sem standa utan við hann að átta
sig almennilega á honum en það
gefur viðburðum eins og kvik-
myndahátíðinni aukna vikt erlend-
is að ráðherra skuli taka þátt í að
kynna hana,“ sagði Valgerður í
samtali við Fréttablaðið eftir að
hún hafði ávarpað gesti hádegis-
verðar sem haldin var á strönd-
inni í Cannes til að kynna bæði
Ísland og hátíðina. Um hundrað
manns, fjölmiðlafólk, kvikmynda-
gerðarmenn og fleiri, sóttu sam-
komuna og Valgerður sagðist vona
til að sjá þau sem flest á hátíðinni
í haust.
Valgerður segir skattaafslátt-
inn hafa skilað góðum árangri frá
því hann var bundinn í lög fyrir
fimm árum. „Það er gaman að geta
staðið hér og talið upp nöfn eins og
James Bond, Angelinu Jolie, Clint
Eastwood, Batman og fleiri þegar
nefnd eru dæmi um það sem tekið
hefur verið upp á Íslandi á síðustu
árum. Þetta hefur þróast glæsi-
lega en það er margt sem hefur
hjálpað til. Fjárfestingarstofa
hefur verið mjög öflug í sínu kynn-
ingarstarfi auk þess sem Ísland
hefur verið að vekja athygli
almennt.“ Valgerður segir Ísland
standast allar helstu kröfur sem
gerðar séu til tökustaða. Landslag-
ið sé sérstakt, mikil tækniþekking
sé til staðar og gamalgróin vertíð-
arvinnuandi Íslendinga geri það
að verkum að innlennt vinnuafl sé
vant því að vinna í skorpum.
„Þá er Íslendingum eðlislægt
að redda öllum sköpuðum hlutum
og það er mikilvægt í kvikmynda-
gerð, sem er ótrúlega flókin og
umfangsmikil vinna. Stjórnsýslan
er líka skilvirk hjá okkur og kvik-
myndagerðarmenn hafa greiðan
aðgang að yfirvöldum. Þetta spil-
ar allt saman.“ Valgerður segist
sannfærð um að ákvörðun Clints
Eastwood um að taka hluta af stór-
mynd sinni Flags of Our Fathers á
Íslandi muni skila miklu enda hafi
hann verið mjög ánægður með
dvöl sína á landinu.
Valgerður hitti Trond Giske,
menntamálaráðherra Noregs, að
máli í Cannes á föstudag og þau
ræddu íslenska endurgreiðslu-
kerfið en Norðmenn eru alvarlega
að íhuga að fara sambærilega leið.
„Það eru fleiri þjóðir með ýmis
gylliboð og áhugi Norðmanna á
kerfinu segir okkur að við verðum
að vera á varðbergi og megum
ekki dragast aftur úr.“
thorarinn@frettabladid.is
Skattaafsláttur hefur
skilað sér ríkulega
Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, var á kvikmynda-
hátíðinni í Cannes um helgina. Hún segir tólf prósenta skattaendurgreiðslu til
erlendra kvikmyndagerðarmanna hafa skilað glæsilegum árangri.
KYNNTI KVIKMYNDAHÁTÍÐ Í REYKJAVÍK Ráðherrann ávarpaði hóp fjölmiðla- og kvikmyndagerðarfólks í Cannes í gær og hvatti viðstadda til
að láta sjá sig á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík í haust. Með ráðherranum á myndinni er Dimitri Eipides, dagskrárstjóri kvikmynda-
hátíðarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/ÞÞ
VALGERÐUR SVERRISDÓTTIR Segir Ísland
standast allar helstu kröfur sem gerðar séu
til tökustaða kvikmynda. FRÉTTABLAÐIÐ/ÞÞ
BUENOS AIRES, AP Forseti Argentínu
segir að betur væri fyrir róm-
önsku Ameríku komið ef Banda-
ríkin sýndu álfunni meiri áhuga
og rækju ekki „óþolandi fríversl-
unarstefnu“.
Nestor Kirchner hefur setið við
völd í Argentínu í að verða þrjú ár
og veitti nokkur viðtöl um helgina
af því tilefni. Þar lofaði hann Evo
Morales, forseta Bólivíu, og Hugo
Chavez, forseta Venesuela, fyrir
vasklega framgöngu en gagnrýndi
George W. Bush Bandaríkjafor-
seta harðlega. Hann sagði ráða-
menn í Washington hafa lítinn
áhuga á Rómönsku Ameríku. „Þeir
reyna aðeins að koma á fríversl-
unarsamningum sem eru óviðun-
andi við núverandi aðstæður. Ef
Bandaríkin sýndu álfunni meiri
áhuga og stuðning gæti margt
breyst til hins betra.“
Kirchner er vinstrimaður og
komst til valda árið 2003 í kjölfar
versta efnahagsástands sem skráð
hefur verið í Argentínu. Þrátt
fyrir að hagkerfið hafi rétt úr
kútnum undir hans stjórn er verð-
bólga og atvinnuleysi enn mikið í
landinu. - bs
NESTOR KIRCHNER Hefur verið við
völd í Argentínu frá árinu 2003.
NORDICPHOTOS/AFP
Forseti Argentínu kennir George W. Bush um slæmt efnahagsástand:
Segir fríverslunarstefnuna óþolandi
FÓRNARLAMB SPRENGJU Hlúð var að
sárum þessarar konu á spítala í Bagdad
í gær, en hún var meðal fimm óbreyttra
borgara sem slösuðust þegar sprengja
sprakk við veg. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP