Fréttablaðið - 22.05.2006, Blaðsíða 79
MÁNUDAGUR 22. maí 2006 31
Sex til 7
GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
OG FELIX BERGSSON
Alla virka daga á SkjáEinum og endursýndur
milli 7-8 alla virka morgna.
Nú nærðu SKJÁEINUM í gegnum Digital Ísland
Nýlega var skrifað undir sam-
starfssamning milli Listasafns
Reykjavíkur og Icelandair, sem
mun veita safninu sérstakan stuðn-
ing vegna sýningarinnar Uncertain
States of America sem opnuð verð-
ur í Hafnarhúsinu síðar á árinu.
Listasafn Reykjavíkur og Ice-
landair gengu fyrst til formlegs
samstarfs árið 2005 og var sá samn-
ingur að hluta til endurnýjaður
fyrir árið 2006. Þar er kveðið á um
stuðning Icelandair við Listasafn
Reykjavíkur vegna heimsókna
erlendra blaðamanna og niður-
greiðslu á farseðlum vegna ferða-
laga listamanna, sýningarstjóra og
annarra sem tengjast starfi safns-
ins.
Á sýningunni í haust munu
fjörutíu ungir bandarískir mynd-
listarmenn taka þátt en þá völdu
sýningarstjórar Daniel Birnbaum
og Hans Ulrich Obrist úr 1.000
manna hópi bandarískra lista-
manna. Sýningin markar ákveðin
tímamót fyrir safnið en með
henni er sleginn nýr tónn sem
felur í sér að virkja unga og metn-
aðarfulla listamenn, innlenda sem
erlenda, til að sýna og stýra sýn-
ingum í Hafnarhúsinu. Þannig
mun sýningin Uncertain States of
America koma beint í kjölfar sýn-
ingarinnar Pakkhús postulanna
þar sem þátttakendurnir verða
ungir íslenskir listamenn.
- khh
Aukið samstarf
INNSIGLUÐU SAMSTARFSSAMNING Jón Karl Ólafsson, forstjóri Icelandair, og Hafþór Yngva-
son, safnstjóri Listasafns Reykjavíkur, undirrituðu samninginn. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
LEIKLIST
BORGARLEIKHÚSIÐ
Viltu finna milljón
Höf: Ray Cooney/Þýð: Gísli Rúnar
Jónsson
Leikarar: Helga Braga Jónsdóttir/Egg-
ert Þorleifsson/Þórhallur Sigurðsson
(Laddi)/Marta Nordal/Bergur Þór Ing-
ólfsson/Guðmundur Ólafsson/Gunnar
Hansson/Theodór Júlíusson
Leikmynd: Sigurjón Jóhannsson/Bún-
ingar: Stefanía Adolfsdóttir/Ljós: Halldór
Örn Óskarsson/Leikgervi/Sigríður Rósa
Bjarnadóttir/Hljóð: Jakob Tryggvason/
Leikstjórn: Þór Tulinius.
Haraldur, lítill karl sem vinnur
hjá skattinum, á afmæli. Hann og
Ingibjörg eiginkona hans eiga von
á vinum sínum, Gretti og Bíbí, í
mat. En eitthvað er ekki eins og
það á að vera. Ingibjörg er búin að
undirbúa boðið vandlega, pena allt
og pússa, en Haraldur er seinn
fyrir - sem gerist annars aldrei.
Það er alltaf allt á réttum tíma hjá
þeim hjónum.
Þegar Haraldur loksins kemur,
er ljóst að hann hefur lent í ein-
hverju óvenjulegu. Hann er í hálf-
gerðu áfalli. Í ljós kemur að hann
hefur fundið tösku, fulla af pen-
ingum. Honum seinkaði vegna
þess að hann þurfti að bregða sér
inn á krá til að telja peningana og
ákveða hvernig hann ætlaði að
eyða þeim. Og nú þarf að láta
hendur standa fram úr ermum. En
áður en Haraldur nær að hrinda
áætlunum sínum í framkvæmd,
fær hann rannsóknarlögreglu-
mann í heimsókn, þau Bíbí og
Grettir koma á tilsettum tíma,
leigubílstjóri sem beðið hafði
verið um mætir til leiks, sem og
lögreglumaður/prestur frá Kefla-
vík sem þarf að tilkynna um meint
andlát í fjölskyldunni - og að
lokum eigandi peningatöskunnar.
Af stað fer atburðarás, sem
hefst á því að Ingibjörg veit ekki
hvers vegna rannsóknarlögreglu-
maðurinn er mættur á svæðið og
reynir að ljúga þau hjónin út úr
þeirri stöðu sem upp er komin.
Smám saman þéttist lygavefurinn
- þar til eiginlega allir eru orðnir
þátttakendur í honum.
Viltu finna milljón er glettilega
vel skrifaður farsi og skemmtileg-
ur. Þýðingin er frábær; orðaleikir
vel heppnaðir, sem og staðfærsla.
Leikhópurinn er mjög þéttur;
hnökrar í leik eru hverfandi. Að
öðrum ólöstuðum fara Helga
Braga og Eggert á kostum í hlut-
verkum hjónanna og ég hef ekki
áður séð Ladda skila eins góðri
vinnu á leiksviði. Tímasetningar
og öll tjáning er mjög nákvæm og
oftar en ekki drepfyndin.
Leikmyndin er heimili Ingi-
bjargar og Haraldar. Skemmtilega
stíllaust heimili, sem er að reyna
að vera smart - en myndir á veggj-
um, hannyrðir frúarinnar, sem og
skrauthlutir koma upp um hvað
þau eru í raun lummó. Það er eins
og ekkert hafi verið valið saman,
heldur öllu stillt upp sem hjónin
hafa fengið að gjöf. Sömuleiðis
eru búningar prýðilega úr garði
gerðir, þótt kannski hefði búning-
ur Mörtu mátt vera ögn þægilegri.
Hann virðist þvinga hana, svo hún
nýtur sín ekki alltaf sem skyldi.
Gervi Theódórs var vel gert og
brellurnar í sýningunni komu
skemmtilega á óvart.
Hér hefur verið haldið um leik-
stjórnartaumana af mikilli fag-
mennsku. Viltu finna milljón er
einhver best heppnaða farsaupp-
færsla sem ég hef lengi séð. Hún
er gríðarlega öguð, sem gerir það
að verkum að húmorinn nýtur sín
enn betur en ella. Það er nokkuð
víst að sýningin á eftir að ganga
og ganga og ganga...
Súsanna Svavarsdóttir
Fyrirtaks farsi