Fréttablaðið - 22.05.2006, Blaðsíða 90
22. maí 2006 MÁNUDAGUR42
0-2
Laugardalsvöllur, áhorf: 1146 Kristinn Jakobsson (7)
0–1 Ármann Smári Björnsson (32.)
0–2 Freyr Bjarnason (79.)
Valur FH
STAÐAN Í LANDSBANKADEILDINNI
1. FH 2 2 0 0 5-0 6
2. BREIÐABLIK 2 2 0 0 6-2 6
3. FYLKIR 2 2 0 0 4-1 6
4. GRINDAVÍK 2 1 0 1 4-4 3
5. KEFLAVÍK 2 1 0 1 3-3 3
6. ÍBV 2 1 0 1 3-5 3
7. KR 2 1 0 1 2-4 3
8. ÍA 2 0 0 2 3-5 0
9. VALUR 2 0 0 2 1-4 0
10. VÍKINGUR 2 0 0 2 1-4 0
1. deild karla:
VÍKINGUR Ó. - ÞRÓTTUR 2-3
0-1 Magnús Már Lúðvíksson (1), 0-2 Þórhallur Hin-
riksson (5.), 1-2 Kevin Fotheringham, víti (55.), 2-2
Helgi Reynir Guðmundsson (68.), 2-3 Haukur Páll
Sigurðsson (83.).
HK-KA 4-1
0-1 Hreinn Hringsson (33.), 1-1 Ólafur V. Júlíusson
(45.), 2-1 Jón Þ. Stefánsson (64.), 3-1 Jón Þ. Stef-
ánsson (75.), 4-1 Ólafur V. Júlíusson (86.).
ÞÓR-STJARNAN 1-1
0-1 Daníel Laxdal (69.), 1-1 Ibra Jagne (90.).
ÚRSLIT GÆRDAGSINS
FÓTBOLTI Veigar Páll Gunnarsson
var hetja Stabæk gegn Lilleström
í leik liðanna í norsku úrvalsdeild-
inni í gær þegar hann skoraði
jöfnunarmark á síðustu mínútu
leiksins úr vítaspyrnu. Lokatölur
urðu 2-2 og lagði Veigar Páll upp
fyrra markið.
Kristján Örn Sigurðsson og
Ólafur Örn Bjarnason voru báðir í
liði Brann sem hélt sigurgöngu
sinni áfram með sigri á Odd
Grenland, 1-3, og er efst í deild-
inni ásamt Lilleström. Stefán
Gíslason lék með Lyn sem tapaði
fyrir Rosenborg, 1-2, og þá lék
hinn ungi Birkir Bjarnason síðari
hálfleikinn fyrir Viking sem gerði
0-0 jafntefli við Tromsö. - vig
Norski fótboltinn:
Veigar Páll var
bjargvættur
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 8–12 (5–6)
Varin skot Kjartan 4 – Daði 4
Horn 5–3
Aukaspyrnur fengnar 19–19
Rangstöður 2–1
FH 4–3–3
Daði Lárusson 7
Guðmundur Sæv. 6
*Ármann Smári 9
Tommy Nielsen 8
Freyr Bjarnason 8
Ásgeir Gunnar 7
(84. Baldur Bett -)
Davíð Þór 6
Sigurvin Ólafs. 7
Ólafur Páll 5
(61. Atli Viðar 5)
Allan Dyring 6
(79. Matthías -)
Tryggvi Guðmunds. 7
*Maður leiksins
VALUR 4–4–2
Kjartan Sturluson 4
Birkir Már 6
Valur Fannar 5
Atli Sveinn 5
Steinþór Gísla. 4
Matthías Guðm. 7
Sigurbjörn 6
Pálmi Rafn 4
(63. Baldur Ingimar 4)
Ari Freyr 5
Guðmundur Ben. 6
(63. Barry Smith 6)
Jakob Spansberg 6
FÓTBOLTI Ármann Smári Björnsson
er augljóslega að finna sitt gamla
form en hann átti frábæran leik í
gær í vörn FH gegn sínum gömlu
félögum. „Það er gaman að vera
farinn að spila á fullu. Við spiluð-
um ekkert sérstaklega vel núna en
við unnum og það er það sem
skiptir máli. Við skoruðum tvö góð
mörk úr föstum leikatriðum, sem
við höfum ekki verið þekktir fyrir,
og það er jákvætt. Auk þess hélt
vörnin hreinu og því er ekki annað
hægt en að vera virkilega sáttur,“
sagði Ármann Smári við Frétta-
blaðið eftir leik.
„Það er ekki slæmt að byrja
mótið á tveimur góðum útisigrum,
gegn sterkum liðum KR og Vals.
Það er markmið okkar að vinna
alla leiki sem við förum í og von-
andi tekst það.” - egm
Ármann Smári Björnsson:
Gaman að vera
að spila á fullu
FÓTBOLTI Það var kalt í veðri í gær
þegar Valsmenn tóku á móti
Íslandsmeisturum FH í sínum
fyrsta heimaleik á Laugardals-
vellinum. Það var ekkert sem kom
á óvart í liðsuppstillingu FH-inga
en hjá Valsmönnum var hinn
danski Jakob Spangsberg kominn
í byrjunarliðið og einnig Steinþór
Gíslason. Baldur Aðalsteinsson og
Garðar Gunnlaugsson voru hins
vegar settir á varamannabekkinn.
Fyrri hálfleikurinn einkenndist
af mikilli baráttu, Valsmenn voru
hættulegri í byrjun leiks en FH-
ingar náðu að spila sig inn í leik-
inn. Þegar tæpur hálftími var lið-
inn átti Ólafur Páll Snorrason
ágætis skot sem Kjartan Sturlu-
son átti þó ekki í vandræðum með
að verja og skömmu síðar komst
FH yfir. Valur Fannar Gíslason
braut á Davíð Viðarssyni úti
vinstra megin og dæmd auka-
spyrna. Tryggvi Guðmundsson tók
spyrnuna, sem rataði beint á hinn
stóra og stæðilega Ármann Smára
Björnsson sem náði hörkuskalla á
markið. Kjartan Sturluson var í
boltanum en náði þó ekki að koma
í veg fyrir að hann færi inn.
Ármann átti hörkugóðan leik í
vörninni hjá FH, stóð vaktina vel
og náði að auki að skora þetta fína
mark.
Valsmenn pressuðu nokkuð
stíft á lokamínútum fyrri hálfleiks
og mikil hætta skapaðist eftir
fyrirgjafir Guðmundar Benedikts-
sonar, meðal annars bjargaði
Tommy Nielsen einu sinni á mark-
línu og kom í veg fyrir að gestirnir
næðu að jafna rétt fyrir hálfleik. Í
síðari hálfleik náðu Valsmenn lítið
að ógna marki FH enda var vörnin
hjá gestunum mjög sterk. Ekki
var mikið um opin marktækifæri
en þegar rúmar tíu mínútur voru
eftir náðu FH-ingar að skora sitt
annað mark og þar með var sigur-
inn nánast innsiglaður. Aftur kom
markið eftir góða aukaspyrnu frá
Tryggva en í þetta sinn skoraði
Freyr Bjarnason, hann lét finna
fyrir sér í teignum og náði að
leggja boltann snyrtilega í hornið.
Eftir þetta mark fjaraði leikurinn
út í rólegheitum, Valsmenn voru
búnir að gefa upp vonina og eftir
þennan leik er hlutskipti liðanna
ólíkt.
„Það er ekki hægt að byrja
mótið betur. Mínir menn eru dug-
legir og alls staðar á vellinum eru
menn að leggja sig fram. Það fór
kannski ekki mikið fyrir áferðar-
fallegum fótbolta en í þessum leik
voru þrjú stig í boði og við náðum
að hirða þau,“ sagði Ólafur
Jóhannesson, þjálfari FH, eftir
leikinn.
Eftir góða byrjun mætir FH liði
Skagamanna í næsta leik nú í vik-
unni. „Það er alltaf gaman að spila
við Akurnesinga. Þar er alltaf hart
barist og þeir eru með sterkt lið,“
sagði Ólafur. - egm
FH-ingar ógnarsterkir
Íslandsmeistarar FH virðast mæta gríðarlega þéttir undan vetri og í gærkvöldi
unnu þeir mjög góðan sigur á Valsmönnum í Laugardalnum, 2-0. FH-ingar gáfu
fá færi á sér en nýttu sín eigin færi aftur á móti mjög vel.
HINGAÐ OG EKKI LENGRA Valur Fannar Gíslason tekur hér harkalega á Davíð Þór Viðarssyni
og ekki ber á öðru en að um aukaspyrnu sé að ræða. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA