Fréttablaðið


Fréttablaðið - 22.05.2006, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 22.05.2006, Qupperneq 10
10 22. maí 2006 MÁNUDAGUR ������������������������������������������������������ �� �������������������������������������������������������������� ������ ������������������������������������������������������ ������������������������������������������������������������ �������������������������������������������������������������� ������������������������������������������������������������ ������������������������������� �������������������������������������������� ������������������������������������������������������������������ �������������������������������������������������������� ������������������������������������������������������������������� 1.890.000,- Beinskipt - 1.6 lítra Nýr, fallegri og miklu betri Opel. Þinn daglegi skammtur af gleði Mánaðargreiðsla 23.061,-* ���������������� ������������������������� ����������������� KVIKMYNDAGERÐ Valgerður Sverr- isdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráð- herra, var á kvikmyndahátíðinni í Cannes um helgina. Hún notaði ferðina til þess að kynna Ísland sem áhugaverðan kost fyrir kvik- myndagerðarfólk og lagði mesta áherslu á tólf prósenta skattaaf- sláttinn sem ríkið veitir fram- leiðslufyrirtækjum. Þá tók Val- gerður þátt í því að vekja athygli á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík sem hefst í lok sept- ember. „Kvikmyndaheimurinn er sér- stakur og það er erfitt fyrir þá sem standa utan við hann að átta sig almennilega á honum en það gefur viðburðum eins og kvik- myndahátíðinni aukna vikt erlend- is að ráðherra skuli taka þátt í að kynna hana,“ sagði Valgerður í samtali við Fréttablaðið eftir að hún hafði ávarpað gesti hádegis- verðar sem haldin var á strönd- inni í Cannes til að kynna bæði Ísland og hátíðina. Um hundrað manns, fjölmiðlafólk, kvikmynda- gerðarmenn og fleiri, sóttu sam- komuna og Valgerður sagðist vona til að sjá þau sem flest á hátíðinni í haust. Valgerður segir skattaafslátt- inn hafa skilað góðum árangri frá því hann var bundinn í lög fyrir fimm árum. „Það er gaman að geta staðið hér og talið upp nöfn eins og James Bond, Angelinu Jolie, Clint Eastwood, Batman og fleiri þegar nefnd eru dæmi um það sem tekið hefur verið upp á Íslandi á síðustu árum. Þetta hefur þróast glæsi- lega en það er margt sem hefur hjálpað til. Fjárfestingarstofa hefur verið mjög öflug í sínu kynn- ingarstarfi auk þess sem Ísland hefur verið að vekja athygli almennt.“ Valgerður segir Ísland standast allar helstu kröfur sem gerðar séu til tökustaða. Landslag- ið sé sérstakt, mikil tækniþekking sé til staðar og gamalgróin vertíð- arvinnuandi Íslendinga geri það að verkum að innlennt vinnuafl sé vant því að vinna í skorpum. „Þá er Íslendingum eðlislægt að redda öllum sköpuðum hlutum og það er mikilvægt í kvikmynda- gerð, sem er ótrúlega flókin og umfangsmikil vinna. Stjórnsýslan er líka skilvirk hjá okkur og kvik- myndagerðarmenn hafa greiðan aðgang að yfirvöldum. Þetta spil- ar allt saman.“ Valgerður segist sannfærð um að ákvörðun Clints Eastwood um að taka hluta af stór- mynd sinni Flags of Our Fathers á Íslandi muni skila miklu enda hafi hann verið mjög ánægður með dvöl sína á landinu. Valgerður hitti Trond Giske, menntamálaráðherra Noregs, að máli í Cannes á föstudag og þau ræddu íslenska endurgreiðslu- kerfið en Norðmenn eru alvarlega að íhuga að fara sambærilega leið. „Það eru fleiri þjóðir með ýmis gylliboð og áhugi Norðmanna á kerfinu segir okkur að við verðum að vera á varðbergi og megum ekki dragast aftur úr.“ thorarinn@frettabladid.is Skattaafsláttur hefur skilað sér ríkulega Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, var á kvikmynda- hátíðinni í Cannes um helgina. Hún segir tólf prósenta skattaendurgreiðslu til erlendra kvikmyndagerðarmanna hafa skilað glæsilegum árangri. KYNNTI KVIKMYNDAHÁTÍÐ Í REYKJAVÍK Ráðherrann ávarpaði hóp fjölmiðla- og kvikmyndagerðarfólks í Cannes í gær og hvatti viðstadda til að láta sjá sig á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík í haust. Með ráðherranum á myndinni er Dimitri Eipides, dagskrárstjóri kvikmynda- hátíðarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/ÞÞ VALGERÐUR SVERRISDÓTTIR Segir Ísland standast allar helstu kröfur sem gerðar séu til tökustaða kvikmynda. FRÉTTABLAÐIÐ/ÞÞ BUENOS AIRES, AP Forseti Argentínu segir að betur væri fyrir róm- önsku Ameríku komið ef Banda- ríkin sýndu álfunni meiri áhuga og rækju ekki „óþolandi fríversl- unarstefnu“. Nestor Kirchner hefur setið við völd í Argentínu í að verða þrjú ár og veitti nokkur viðtöl um helgina af því tilefni. Þar lofaði hann Evo Morales, forseta Bólivíu, og Hugo Chavez, forseta Venesuela, fyrir vasklega framgöngu en gagnrýndi George W. Bush Bandaríkjafor- seta harðlega. Hann sagði ráða- menn í Washington hafa lítinn áhuga á Rómönsku Ameríku. „Þeir reyna aðeins að koma á fríversl- unarsamningum sem eru óviðun- andi við núverandi aðstæður. Ef Bandaríkin sýndu álfunni meiri áhuga og stuðning gæti margt breyst til hins betra.“ Kirchner er vinstrimaður og komst til valda árið 2003 í kjölfar versta efnahagsástands sem skráð hefur verið í Argentínu. Þrátt fyrir að hagkerfið hafi rétt úr kútnum undir hans stjórn er verð- bólga og atvinnuleysi enn mikið í landinu. - bs NESTOR KIRCHNER Hefur verið við völd í Argentínu frá árinu 2003. NORDICPHOTOS/AFP Forseti Argentínu kennir George W. Bush um slæmt efnahagsástand: Segir fríverslunarstefnuna óþolandi FÓRNARLAMB SPRENGJU Hlúð var að sárum þessarar konu á spítala í Bagdad í gær, en hún var meðal fimm óbreyttra borgara sem slösuðust þegar sprengja sprakk við veg. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.