Fréttablaðið - 24.05.2006, Page 33
Úr kauphöll | Eignarhlutur
Skoðunar í Kögun nemur nú 98,7
prósentum og því voru hlutabréf
í Kögun fjarlægð úr Kauphöll
Íslands eftir lokun markaða á mið-
vikudag.
Forðinn minnkar | Gjald-
eyrisforði Seðlabanka Íslands
dróst saman í apríl um 13,7 millj-
arða króna og nam 66,2 milljörð-
um króna í lok mánaðarins.
Stórbankar með | Evrópsku
bankarnir Societe Generale
CIB og Fortis gengu til liðs við
Kaupþing banka í fjármögnun
kaupa FL Group, Vífilfells og
fleiri á Refresco.
Stýrivextir hækka | Bankastjórn
Seðlabankans hækkaði stýrivexti
um 0,75 prósentustig í 12,25 pró-
sent sem var í samræmi við spár
sérfræðinga.
Skiptast á | Bræðurnir Ágúst
og Lýður Guðmundssynir skipt-
ast á störfum 26. maí og verður
sá fyrrnefndi forstjóri og hinn
síðarnefndi stjórnarformaður
Bakkavarar Group.
Vilja meira | Forstjóri FL Group
segir að félagið ætli sér stærri
hluti í Glitni en félagið hefur verið
ötult við að kaupa hluti í bankan-
um að undanförnu.
Húsnæði hækkar | Íbúðaverð
á höfuðborgarsvæðinu hækkaði
um 1,1 prósent á tímabilinu mars-
apríl. Verð á fjölbýli hækkaði um
0,7 prósent en sérbýli um 2,5 pró-
sent milli mánaða.
Yfir væntingum | Hagnaður
Alfesca var 524 þúsund evrur, eða
um 47 milljónir króna, á þriðja árs-
fjórðungi. Þetta er betri afkoma
en greiningardeildir bankanna
reiknuðu með.
Listahátíð í Reykjavík
Farsælt samstarf
einkaaðila og hins
opinbera 12-13
Betsson.com
Fjöldi notenda
margfaldast
18
Stjórnun fyrirtækja
Lagasetning
engin töfralausn
10
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
Miðvikudagur 24. maí 2006 – 19. tölublað – 2. árgangur Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
F R É T T I R V I K U N N A R
Mikil verðbólga og gríðarlegur
viðskiptahalli er til marks um
alvarlega ofþenslu í íslenska
hagkerfinu samkvæmt skýrslu
Efnahags og framfarastofnunar
Evrópu (OECD) um efnahagsmál
í heiminum.
Þá segir að fjármálamarkaðir
hafi ekki farið varhluta af spennu
og ójafnvægi í hagkerfinu, gengi
krónunnar hafi hækkað snar-
lega og Seðlabankinn brugðist
við verðbólguhættu með hækkun
stýrivaxta.
Stýrivextir Seðlabankans
standa nú í 12,25 prósentum og
telur OECD að frekari þörf sé
á vaxtahækkunum til að ráða
niðurlögum verðbólgunnar. Þótt
ríkisfjármálin séu í nokkuð
góðu lagi þurfi að halda aftur af
útgjöldum ríkisins, sérstaklega
launagreiðslum til ríkisstarfs-
manna, þar til merkja verði vart
um að verðbólgan sé á undan-
haldi.
OECD spáir 5,6 prósenta verð-
bólgu á þessu ári og 5,3 prósent
árið 2007. Hagvöxtur verður 4,1
prósent í ár en einungis 1,4 pró-
sent á því næsta samkvæmt spá
stofnunarinnar. Þá telur OECD
að heldur dragi úr viðskiptahall-
anum, hann verði 10,4 prósent
vergrar landsframleiðslu árið
2007. -jsk
Alvarleg ofþensla í hagkerfinu
OECD telur frekari vaxtahækkanir og aðhald í ríkisfjármálum nauðsynleg
til að ráða niðurlögum verðbólgunnar.
Óli Kristján Ármannsson
skrifar
Eigin tillögur bankanna um framtíð Íbúðalánasjóðs
verða á næstu dögum kynntar stýrihópi sem félags-
málaráðherra skipaði til að koma fram með tillögur
um framtíð sjóðsins.
Mikið ber í milli hjá stýrihópnum og bönkunum.
Bankarnir höfnuðu fyrstu hugmyndum stýrihópsins
um að koma á sérstökum Íbúðabanka sem væri deild
innan Íbúðalánasjóðs. Telja bankarnir þar einungis
haldið áfram ríkisábyrgð sem trufli aðra fjármögn-
un á markaði. Aukinheldur eru tillögurnar sagðar
hafa gert ráð fyrir að bankarnir yrðu dreifileið fyrir
Íbúðalánasjóð þannig að aflögð yrði samkeppni og
allir dreifðu lánum á sömu vöxtum.
Samkvæmt heimildum Markaðarins tók nokkurn
tíma fyrir bankastofnanir hér að ná samstöðu um
eigin tillögur þar sem áherslur þeirra og aðstæður
eru mismunandi. Til dæmis er sagður mikill munur
á stóru viðskiptabönkunum og svo sparisjóðum sem
ekki fjármagna sig með sama hætti.
Tillögur bankanna eru nú í kynningu hjá
stjórnendum sem málið varðar þar innandyra og
voru sendar út fyrir helgi. Samkvæmt heimild-
um Markaðarins eiga svo Halldór J. Kristjánsson,
bankastjóri Landsbankans, og Bjarni Ármannsson,
forstjóri Glitnis banka, bókaðan fund með Halldóri
Ásgrímssyni forsætisráðherra eftir næstu helgi þar
sem til stendur að ræða málið og önnur mál tengd
starfsumhverfi bankanna í víðu samhengi. Bjarni
og Halldór eru formaður og varaformaður Samtaka
banka og verðbréfafyrirtækja (SBV) en þau hafa
lagt mikla áherslu á að Íbúðalánasjóður hverfi af
samkeppnismarkaði.
Guðjón Rúnarsson, framkvæmdastjóri SBV, segir
málið enn á umræðustigi og ekki í neinum hnút.
Hann segir að leggja þurfi áherslu á að vinna málið
vel því hver sem niðurstaðan verði sé ljóst að hún
kalli strax á viðbrögð matsfyrirtækja og alþjóða-
stofnana sem fjallað hafi um lánshæfi bankanna og
efnahagsmál hér. Ljóst er að framtíð sjóðsins skiptir
þarna nokkuð miklu máli, enda segir í nýlegu áliti
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (IMF) að hann hafi verið
ein helsta hindrunin í vegi þess að peningamála-
stefna Seðlabankans hafi náð hér fram að ganga með
eðlilegum hætti.
Halldór J. Kristjánsson, bankastjóri Landsbankans
og varaformaður SBV, segir samtökin lengi hafa
haft ákveðnar hugmyndir um þær breytingar sem
verða myndu til að ríkið hyrfi af íbúðalánamark-
aði. „Grunnpunktarnir af okkar hálfu hafa verið
að umfang ríkisins væri hér eftir líka grundvallað
af markaðslögmálum og ekki yrði ríkisstyrkt sam-
keppni á þessum markaði.“ Hann segir ljóst að mikið
beri enn í milli og telur að endurmeta þurfi stöðuna í
ljósi umræðu sem átt hefur sér stað um bankana og
efnahagslíf hér á alþjóðavettvangi. „Íbúðalán eru í
hverju landi einn stærsti þátturinn í fjármálamark-
aðnum, hafa áhrif á þróun skuldabréfamarkaðar og
almennt á þróunina með mjög víðtækum hætti. Því
er mjög mikilvægt að vel takist til um slíkar breyt-
ingar og að alþjóðafjármálamarkaðurinn sjái þær
sem jákvæðar breytingar á fjármálamarkaði hér.
Því kann að vera að menn þurfi að horfa á þetta upp
á nýtt og stíga skref sem eru stærri í átt að því að
markaðsvæða þetta kerfi en þeir höfðu áður hugsað
sér. Að þessu held ég að allir hafi hag að því að vinn
aað með opnum huga í stað þess að festast í umræð-
um fortíðar.“
Vilja stíga stærri skref
Bankarnir skila tillögum um framtíð Íbúðalánasjóðs á næstu
dögum. Mikið ber í milli þeirra og stýrihóps félagsmálaráð-
herra. Bankarnir vilja ganga lengra í breytingum á sjóðnum.
Gott til síðasta dropa
Sænski bankinn Carnegie
hefur lækkað verulega eftir
að Landsbankinn losaði sig við
fimmtungshlut í fyrirtækinu í
síðasta mánuði. Landsbankinn
seldi bréfin á genginu 162 og inn-
leysti tíu milljarða í hagnað.
Hlutabréf í Carnegie stóðu
í 137 sænskum krónum á hlut
í gær eftir verulega lækkun á
mánudaginn. Hefur markaðs-
virði Carnegie því lækkað um
fimmtán prósent á þessum tíma.
Sjálfur hefur Landsbankinn
ekki farið varhluta af lækkunum.
Hann er niður um sjö prósent
frá því hluturinn í Carnegie var
seldur.
Óverulegar breytingar hafa
aftur á móti orðið á gengi easyJet
eftir að FL Group seldi sautján
prósenta hlut sinn þar. - eþa
Carnegie selt
á besta tíma
Íslenskir fjárfestar tapa að
öllum líkindum þrjátíu prósent-
um af upphaflegri fjárfestingu
sinni í enska
knattspyrnufé-
laginu Stoke.
Fjárfesting Stoke
Holding í knatt-
spyrnufélaginu
nam tæplega 1,1
milljarði króna.
Breski auðkýf-
ingurinn Peter
Coates borgar
fyrirfram tæpar
690 milljónir
króna fyrir hlut
Íslendinganna.
Þá er klausa um
árangurstengdar viðbótargreiðsl-
ur í kaupsamningnum. „Ef allt
fer að óskum komum við út á
núlli. Til þess að svo fari þarf allt
að ganga upp og Stoke meðal ann-
ars að komast upp í Úrvalsdeild,“
segir Gunnar.
Hann segir Stoke vissulega
hafa verið áhættufjárfestingu
„Þetta er nú skárra en margt
annað. Þeir sem keyptu í deCode
á sínum tíma eru til að mynda
verr staddir í dag en þeir sem
keyptu í Stoke.“ - jsk
Tapa líklega
330 milljónum
GUNNAR ÞÓR
GÍSLASON
Fráfarandi stjórn-
arformaður Stoke
telur hlutabréf í
félaginu hafa verið
betri fjárfestingu
en í DeCode.