Fréttablaðið - 24.05.2006, Page 34

Fréttablaðið - 24.05.2006, Page 34
MARKAÐURINN 24. MAÍ 2006 MIÐVIKUDAGUR2 F R É T T I R G E N G I S Þ R Ó U N Vika Frá áramótum Actavis 0% 32% Alfesca -3% -11% Atorka Group -4% -14% Bakkavör -2% -6% Dagsbrún 8% -8% FL Group -1% -6% Flaga -3% -16% Glitnir -1% -3% KB banki -5% -1% Kögun 1% 22% Landsbankinn -5% -17% Marel 0% 8% Mosaic Fashions -5% -12% Straumur -6% 1% Össur 0% -8% Miðað við gengi í Kauphöll á mánudaginn Félög sem eru yfir 100 milljarð- ar að markaðsvirði hafa aldrei verið fleiri en um þessar mundir. Bakkavör Group er nýjasta félag- ið í þessum hópi en félagið skaust yfir 100 milljarða múrinn þegar það jók hlutafé um tuttugu millj- arða á dögunum. KB banki er eftir sem áður langverðmætasta fyrirtækið í Kauphöllinni , metið á 488 millj- arða króna. Glitnir, Landsbankinn og Actavis sitja í næstu sætum á eftir og vekur athygli að síðast- nefnda félagið sækir hratt á bankana tvo. Á meðan allir við- skiptabankarnir hafa lækkað frá áramótum hefur gengi Actavis hækkað um þriðjung. Fyrsta félagið sem skreið yfir þriggja stafa töluna var Pharmaco, sem síðar varð Actavis, seint á árinu 2003. - eþa VERÐMÆTASTA FYRIRTÆKIÐ Markaðs- virði sjö félaga í Kauphöll er orðið meira en 100 milljarðar króna. Sjö félög yfir 100 milljarða Bakkavör Group slæst í hópinn F É L Ö G Y F I R 1 0 0 M I L L J A R Ð A V I R Ð I Félag Markaðsvirði Breyting KB banki 488 -2% Glitnir 238 -3% Landsbankinn 231 -17% Actavis 220 32% Straumur-Burðarás 167 1% FL Group 111 -6% Bakkavör Group 102 -6% * Tölur miðast við mánudaginn. ** Breyting frá áramótum Greiningarefni bresku verð- bréfafyrirtækjanna Kepler Equities, Teather & Greenwood og Merrion hefur verið sameinað undir merkjum Landsbankans. Bankinn keypti fyrirtækin í fyrra en útgáfa og dreifing á greiningarefni undir samræmdu vörumerki er þegar hafin. Sigurjón Þ. Árnason, banka- stjóri Landsbankans, segir að breytingin sé fyrsta skrefið í þá átt að samtvinna starfsemi fyrir- tækjanna inn í Landsbankann en greiningardeildirnar verða með sameiginlegan gagnagrunn. „Með þessu verður samstæða Landsbankans farin að rannsaka með reglubundnum hætti um 800 fyrirtæki í Evrópu. Það gerir greiningardeildina eina af þeim stærstu í álfunni,“ segir hann. Hjá samstæðu Landsbankans starfa 90 manns við greiningar á hlutabréfum og um 100 miðlarar starfa á vegum bankans í helstu fjármálamiðstöðvum Evrópu og í Bandaríkjunum við miðlun hluta- bréfa til fagfjárfesta. Sigurjón bendir jafnframt á að þótt fyrirtækin fari nú fram í nafni Landsbankans skipti þau ekki um nafn enda felist ákveðin verðmæti í þeim. „Að sama skapi felast verðmæti í því að hafa allt undir einu merki og með því eykst sýnileiki Landsbankans á alþjóðavettvangi,“ segir Sigurjón Þ. Árnason. - jab Undir merkjum Landsbankans NordicPhotos hefur fest kaup á sænska mynda- bankanum Greatshots og verður rekstur hans sameinaður starfsemi NordicPhotos í Svíþjóð. Kaupverð fæst ekki gefið upp. Greatshots er fjórði myndabankinn sem NordicPhotos kaupir í Svíþjóð á þremur árum. Áður hafði fyrirtækið keypt Mira Bildarkiv og Ims Bildbyra árið 2003 og Tiofoto árið 2005. NordicPhotos var stofnað árið 2000 og er í meirihluta- eigu fjögurra Íslendinga, þeirra Arnaldar Gauta Johnson, Kjartans D a g b j a r t s s o n a r , Hreins Ágústssonar og Thors Ólafssonar. Á myndabanka NordicPhotos er nú hægt að finna um níu- tíu þúsund ljósmyndir á stafrænu formi frá um fimm hundruð ljós- myndurum. Hjá fyrir- tækinu starfa þrettán starfs- menn, á skrifstofum í Reykjavík og Stokkhólmi. Áætluð ársvelta NordicPhotos eftir kaupin er um tvö hundruð milljónir íslenskra króna. - jsk NordicPhotos bætir við VÖRUMERKI LANDSBANKANS Vöru- merki verðbréfafyrirtækisins Teather & Greenwood eftir að það hóf útgáfu grein- ingarefnis undir merkjum Landsbankans. ARNALDUR GAUTI JOHNSON, framkvæmdastjóri NordicPhotos. Útgáfufélag Jyllands Posten og Politiken hefur ákveðið að hefja útgáfu fríblaðs á næstu mánuðum sem dreift verður frítt inn á dönsk heimili. Það verður því í beinni samkeppni við Nyhedsavisen sem 365 Media Scandinavia, dótturfélag Dagsbrúnar, hefur í undirbúningi. Svenn Dam, forstjóri 365 Media Scandinavia, segir að við þessu hafi verið að búast. „Þetta mun ekki hafa nein áhrif á okkar áætlanir en verður til þess að beina sjónum fólks enn frekar að fríblöðum í Danmörku sem er jákvætt.“ Hann segir útspil útgáfufélagsins endurspegla breytt hugarfar til fríblaða af þessu tagi. „Fyrir fjórum vikum þótti þessum sömu mönnum hug- myndin heimskuleg, nú þykir þeim hún frábær.“ Á mánudag bárust þær fréttir að Dagsbrún hefði boðið dönsku sjónvarpsstöðinni TV2 samstarf um fréttastofu sem Nyhedsavisen hyggist setja á fót. Svenn segir þær viðræður á algjöru frum- stigi en munu halda áfram. „Við höfum líka tilkynnt öðrum fjöl- miðlum að til boða standi að kaupa af okkur fréttir í gegnum fréttastofuna.“ - hhs Barist í fríblöðum Lysing_Tommustokkur_5x100mm Er þak á þinni starfsemi? Fjármögnun í takt við þínar þarfir Suðurlandsbraut 22 Glerárgötu 24-26 Sími 540 1500 Fax 540 1505 www.lysing.is H in rik P ét ur ss on l w w w .m m ed ia .is /h ip Allir flurfa flak yfir höfu›i› - líka flitt fyrirtæki! "Hefur flú kynnt flér kosti eignaleigu vi› fjármögnun atvinnuhúsnæ›is? Me› sérsni›inni rá›gjöf í bland vi› persónulega fljónustu, höfum vi› hjá L‡singu hjálpa› fyrirtækjum af öllum stær›um og ger›um a› koma flaki yfir sína starfsemi." Sigurbjörg Leifsdóttir Rá›gjafi, fyrirtækjasvi› Eggert Þór Aðalsteinsson skrifar Þótt fasteignaverð á höfuðborgarsvæðinu haldi áfram að hækka samkvæmt tölum frá Fasteignamati ríkisins verða aðilar á fasteigna- markaði varir við að fjármálastofnanir hafi hert kröfur sínar um lánshlutföll vegna íbúðakaupa og undirbúi sig undir raunverðslækkun á fasteignum. Hafa flestir bankar og sparisjóðir fært hámarks- lán undir 80 prósent af markaðsvirði eignar sem lengi vel hefur verið almennt viðmið. Einnig er farið betur yfir lánsumsóknir og greiðslumat hverju sinni. Um tíma gátu viðskiptavinir fengið 100 pró- senta lán hjá flestöllum fjármálastofnunum gegn ströngum skilyrðum en lítið var um lánveitingar af þeim toga. Hermann Jónasson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Landsbankans, segir að meginreglan nú sé sú að lánshlutfall miðist við 70 prósent þótt hvert tilvik sé metið fyrir sig. Þannig geti veðhlut- fall hlaupið á bilinu 70 til 80 prósent. Frjálsi fjárfestingabankinn hefur lækkað hámarkshlutfall úr 80 prósentum í 75 prósent en ekkert hámarksþak er á upphæð lána. Kristinn Bjarnason, framkvæmdastjóri Frjálsa fjárfest- ingabankans, segir að með lækkun hlutfallsins vilji stjórnendur bankans hafa vaðið fyrir neðan sig og sjá hvert markaðurinn stefni. Með því að gefa út hvert hámarkshlutfallið er viti viðskiptavinur bankans nákvæmlega að hverju hann gengur. Ólafur Haraldsson, framkvæmdastjóri hjá SPRON, tekur í sama streng um að sparisjóðurinn vilji stíga varlega til jarðar og fara starfsmenn betur yfir greiðslumat og verðmat frá fasteigna- sölum. SPRON miðar enn við 80 prósenta lánshlut- fall þegar kauptilboð liggur fyrir en horfir á 70-75 prósenta veðhlutfall þegar um endurfjármögnun er að ræða. Íbúðir fari ekki lengur á uppsettu verði eins og áður þekktist. Ef um lán er að ræða í erlendum myntum er hámarkið 60 prósent. KB banki hefur ekki breytt sínum viðmiðum og lánar allt að 80 prósent af verðmati eignar að sögn Sigurðar Kristjánssonar, forstöðumanns á viðskiptabankasviði KB banka. Vextir af nýjum íbúðalánum KB banka eru einnig lægri en víðast hvar innan bankakerfisins, eða 4,75 prósent auk verðtryggingar. Samkvæmt upplýsingum Markaðarins er starfs- mönnum sparisjóða uppálagt að fara undir 80 pró- senta viðmið þegar óskað er eftir íbúðalánum. Það er þó háð fjárhagsstöðu umsækjenda hverju sinni. Hæsta lánshlutfallið er enn hjá Íbúðalánasjóði, eða 90 prósent af kaupverði eignar, en hámarkslán miðast við 18 milljónir króna. BANKA HERÐA ÚTLÁNAKRÖFUR TIL ÍBÚÐAKAUPA Hámarkshlutfall íbúðalána bankanna er í flestum tilvikum komið undir 80 prósent af verðmati eignar. Landsbankinn hefur þá meginreglu að miða við 70 prósent. MARKAÐURINN/GVA Bankarnir á bremsunni Hertar kröfur lánastofnana um hámarkshlutfall íbúðalána. Hlutfallið komið undir 80 prósent í flestum tilvika. Lánastofnanir fara betur yfir gögn frá umsækjendum.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.