Fréttablaðið - 24.05.2006, Page 38
MARKAÐURINN
Úran hækkaði mikið í verði í
síðustu viku og virðist stefna
áætlun nokkurra landa sem
hyggjast reisa kjarnorkuver á
næstu árum í voða. Margar þjóð-
ir hyggjast reisa kjarnorkuver,
og má þar nefna Breta, Finna,
Frakka og Bandaríkjamenn. Þá
ætla Kínverjar að reisa allt að 30
kjarnorkuver fyrir árið 2020.
Eftirspurn eftir úrani hefur
aukist mikið samfara fjölgun
kjarnorkuvera og fór pundið af
úrani í 41,5 bandaríkjadali í lok
síðustu viku. Það er umtalsverð
hækkun frá lægsta úranverð-
inu er það stóð í 6,7 dollurum á
pundið árið 2001.
„Menn óttast að ekki verði
til nóg af úrani fyrir öll kjarn-
orkuverin sem reist verða um
allan heim á næstu árum og það
hefur keyrt verðið upp,“ segir
einn sérfræðinga hjá fjárfest-
ingabankanum Seymour Pearce
í Lundúnum í Bretlandi.
Kanadamenn framleiða mest
allra þjóða af úrani en ársfram-
leiðslan nemur 11.800 tonnum.
Ástralir koma næstir í röðinni
með 7.900 tonn á ári en þar í landi
er að finna stærstu úrannámu í
heimi. Kasakstanar eru þriðju í
röðinni en þeir framleiða 4.300
tonn af úrani á ári.
- jab
24. MAÍ 2006 MIÐVIKUDAGUR6
Ú T L Ö N D
Jón Aðalsteinn Bergsveinsson
skrifar
Bítillinn fyrrverandi Paul McCartney og kona hans,
Heather Mills, greindu fjölmiðlum frá því í síðustu
viku að þau hefðu ákveðið að skilja eftir fjögurra
ára hjónaband. Þegar parið lét pússa sig saman
neitaði bítillinn að gera kaupmála við spúsu sína
en það veitir Mills rétt á allt að helmingi af eignum
McCartneys samkvæmt bandarískum lögum en
fjórðungi samkvæmt breskum lögum. Eignir bít-
ilsins fyrrverandi eru metnar á rúma 92 milljarða
íslenskra króna. Bresk dagblöð telja einn dýrasta
skilnað sögunnar í vændum.
Miklar líkur eru þó á að málalok verði hliðholl
MCartney því meirihluti skilnaðarmála sem enda
hjá hæstarétti Bretlands hafa fallið körlum í vil.
Alan Kaufman, lögfræðingur hjá bresku lög-
fræðistofunni Finers Stephens Innocent segir í
samtali við bandaríska viðskiptatímaritið Forbes,
að þegar málið verði tekið fyrir muni verða horft
til þess hversu lengi hjónabandið stóð yfir, hversu
mikið Heather Mills lagði til heimilishaldsins og
fjölda barna. McCartney lagði hins vegar hvorki
meira né minna en rúma 4,2 milljarða króna til
búsins á þeim fjórum árum sem hjónabandið varði.
Þá eiga þau eina dóttur, Beatrice Milly, sem verður
þriggja ára á árinu. Óvíst er um niðurstöðu málsins
en Bretland er kjörið land fyrir efnaða karlmenn til
að útkljá skilnaðarmál sín, að mati Kaufmans.
Þessu til sönnunar bendir hann á að fram-
kvæmdastjóri verðbréfasjóðsins City of London
Fund var fyrir nokkru dæmdur til að greiða konu
sinni 9 milljónir bandaríkjadala eftir einungis
tveggja ára hjónaband þegar það var dæmt í und-
irrétti. Maðurinn, sem heitir Alan Miller, áfrýjaði
málinu og eru nú líkur á öllu hagstæðari niðurstöðu
fyrir hann í hæstarétti.
MCCARTNEY OG MILLS Þótt bítillinn fyrrverandi þurfi ekki að
greiða fyrrverandi eiginkonu sinni helming eigna sinna er búist við
að skilnaðurinn verði með þeim dýrustu í sögunni. Mynd/ AFP
Bjart yfir bítlinum
Líkur eru á að Paul McCartney þurfi ekki að greiða konu
sinni fúlgur fjár vegna skilnaðarins.
Jeff Bezos, forstjóri og stofn-
andi vefverslunarinnar
Amazon.com, var ræðumaður
á árlegum hádegisverðarfundi
Tæknibandalagsins svokall-
aða (e. Technology Alliance) í
Washington-háskóla í Seattle í
Bandaríkjunum í síðustu viku.
Bezos lýsti því meðal annars
á fundinum hvernig Amazon.
com nýtti tæknina til að sinna
viðskiptavinum sínum betur.
Sagði hann stjórnendur vef-
verslunarinnar hafa tekið þá
ákvörðun á upphafsdögum
fyrirtækisins að auglýsa vöru
frá þriðja aðila á sömu vef-
síðu og verslunin auglýsti sínar
eigin vörur. Þá hafi fyrirtækið
sömuleiðis sent viðskiptavinum
skilaboð ef þeir keyptu tvö ein-
tök af sömu vörunni til að koma
í veg fyrir að þeir gerðu mistök.
Hafi þessar ákvarðanir skilað
góðum árangri, að hans sögn.
Bill Gates, sem er stofnandi
og forstjóri bandaríska hugbún-
aðarrisans Microsoft, stofnaði
Tæknibandalagið ásamt eigin-
konu sinni Melindu fyrir tíu
árum til að efla, auk annars,
rannsóknir á áhrifum tækni á
efnahagslífið. - jab
FRÁ FUNDINUM Jeff Bezos (til hægri)
ræddi um verslun sína, Amazon.com, á
hádegisfundi Tæknibandalagsins. MYND/AP
Allt fyrir kúnnann
Verð á gulli lækkaði enn frek-
ar í framvirkum samningum á
föstudag í síðustu viku en um
var að ræða fimmtu lækkunina
á jafn mörgum dögum.
Lækkunin á föstudag
nam 18,90 bandaríkja-
dölum á únsu eða 2,9
prósentum og stóð únsan
síðdegis á föstudag í 622
dölum.
Gull fór í sögulegt hámark 11.
maí síðastliðinn en fór snarlega
niður daginn eftir. Lækkunin
hefur numið 8,2 prósentum sem
svarar til 59,50 dala lækkunar.
Þetta er þvert á væntingar
margra fjármálasérfræðinga,
sem töldu gull geta hækkað enn
frekar og farið jafnvel í 850
dali á únsu á næstu tólf mánuð-
um. Með þetta fyrir augum hafa
fjárfestar keypt
gull í auknum
mæli, sem í ald-
anna rás hefur
þótt traust fjár-
festing.
Gull er ekki
eini málmurinn sem lækk-
að hefur í verði í framvirkum
samningum síðustu daga en
kopar hefur farið niður um 11,5
prósent og silfur um 12,18 pró-
sent síðan 11. maí þegar verð á
málmum fór í hæstu hæðir.- jab
Verðlækkun eðalmálma
KJARNORKUVER Í BRASILÍU Sérfræðingar spá að það stefni í skort á úrani vegna fjölda
kjarnorkuvera sem áætlað er að reisa á næstu árum. MYND/AFP
Stefnir í úranskort
Manchester United er verð-
mætasta knattspyrnufélag í heimi
samkvæmt lista bandaríska við-
skiptatímaritsins Forbes. Félagið
er metið á rúma 96 milljarða
íslenskra króna og ber höfuð og
herðar yfir önnur.
Spænska stórliðið Real Madrid
er í öðru sæti, metið á rúma sjötíu
milljarða. AC Milan, gæluverkefni
Silvios Berlusconi fyrrverandi
forsætisráðherra Ítalíu, er í því
þriðja, talið tæplega 65 milljarða
króna virði. Arsenal er hástökkvari
listans og er nú metið á tæpa sextíu
milljarða króna. Munar þar mestu
að félagið flytur á næsta tímabili
á nýjan og glæsilegan leikvang
í Norður-Lundúnum. Bæversku
risarnir í Bayern München eru
í fimmta sæti, taldir 54 millj-
arða króna virði. Nýkrýndir
Evrópumeistarar Barcelona sitja í
tíunda sæti listans.
Englendingar eiga fjóra full-
trúa á meðal verðmætustu tíu,
Ítalir þrjá og Spánverjar tvo.
Bayern München er eini fulltrúi
Þýskalands. Athygli vekur að ensku
meistararnir í Chelsea, með aðgang
að botnlausum vösum rússneska
ólígarkans Romans Abramovich,
komast bara í sjöunda sætið á list-
anum. -jsk
Man. Utd verðmætast
Fjögur af verðmætustu knattspyrnufélögum í heimi
eru ensk. Arsenal er hástökkvari lista Forbes.
V E R Ð M Æ T U S T U K N A T T S P Y R N U -
L I Ð I N S A M K V Æ M T F O R B E S
1. Manchester United (ENG) 96
2. Real Madrid (SPA) 70
3. AC Milan (ÍTA) 65
4. Arsenal (ENG) 60
5. Bayern München (ÞÝS) 54
6. Juventus (ÍTA) 48
7. Chelsea (ENG) 36
8. Inter Milan (ÍTA) 35
9. Barcelona (SPA) 31
10. Liverpool (ENG) 26
*Upplýsingar af www.forbes.com
**Tölur í milljörðum íslenskra króna
Stelios Haji-Ioannou, aðaleigandi
easyJet, sér mikil sóknarfæri
fyrir skemmtiferðaskipafélagið
easyCruise. Í sumar mun easy-
Cruise hefja siglingar á milli
frönsku og ítölsku rívíerunnar
og í kringum Amsterdam.
Ör vöxtur hefur verið innan
þessa iðnaðar frá árinu 2001 og
ferðast nú 1,2 milljónir Breta
með skemmtiferðaskipum
á hverju ári, sem er fjórfalt
meira en árið 1992. Farþegum
frá Spáni og Ítalíu fjölgaði um
meira en fjórðung á síðasta
ári. Jafnframt hefur annað
fyrirtæki í eigu Stelios, easy-
Pizza, vaxið hratt og stendur í
miklu stríði við Domino´s Pizza
á Bretlandsmarkaði. Forstjóri
Domino´s, Stephen Hemsley,
ataði auri yfir easyPizza á síðum
Times fyrir nokkru en Stelios,
sem kallar ekki allt ömmu sína,
svaraði honum þannig: „Fleiri
taka easy-Pizza fram yfir
Domino´s, enda er Domino´s tvö-
falt dýrari.“ - eþa
STELIOS HAJI-IOANNOU EasyCruise
bætir við sig skipaleiðum.
Systurfélög easyJet sækja fram á við
Stelios stendur í stríði við Domino´s í Bretlandi