Fréttablaðið - 24.05.2006, Síða 42

Fréttablaðið - 24.05.2006, Síða 42
MARKAÐURINN 24. MAÍ 2006 MIÐVIKUDAGUR10 F R É T T T A S K Ý R I N G Steen Thomsen segir erfitt að skilgreina góða stjórnarhætti. „Ég hef rannsakað og lesið mér til um stjórnarhætti frá árinu 1992. Það mætti í raun segja að líf mitt snúist í kring- um hugtakið. Ég hef velt því fyrir mér frá öllum hliðum; aðkomu eigenda, stjórnar og hluthafa.“ Thomsen segir skilgreininguna fara eftir því hver verður fyrir svörum. Endurskoðandi myndi segja stjórnarhætti snúast um lítið annað en bókhald og skattframtöl. Lögfræðingur myndi hamra á lagagreinum og reglugerðum. Almenningur myndi tala um félagslega ábyrgð fyrirtækja og fjárfestar um ábyrgð stjórnenda gagnvart hluthöfum. „Þetta er fullkomlega eðlilegt. Það eru margir sem koma að fyrirtækjum og hafa þar hags- muna að gæta. Sem fræðimaður verð ég að púsla þessu saman og reyna að skilgreina góða stjórnarhætti á eins hlutlausan hátt og mögulegt er.“ HLJÓMSVEITARSTJÓRI MEÐ SPROTA Thomsen telur grunninn að góðum stjórnar- háttum byggjast á því að réttir menn velj- ist í stjórnunarstöður og að þeim sé veitt virkt aðhald. Ef stjórnendur standa sig ekki í stykkinu, sofna í vinnunni eða hugsa meira um eigin hag en fyrirtækisins, verða þeir að gjalda fyrir það. Þeim þurfi jafnframt að setja skýr markmið. „Þessu má líkja við sinfóníuhljómsveit. Hljómsveitarstjórinn stýrir sveitinni og engum dettur í hug að taka af honum sprotann. Stjórn hljómsveitarinnar getur hins vegar beðið hljómsveitarstjórann um að spila meira eftir Tchaikovsky eða Mozart og ef hljómleikahöllin er alltaf tóm, getur stjórnin rekið hljómsveitarstjórann og fengið nýjan.“ Thomsen telur erfiðasta hjalla stjórnunar- fræðanna að skilgreina hlutverk eigenda, stjórnar og þess sem situr í forstjórastóln- um sjálfum. „Þótt fyrirtæki sé hundrað pró- sent í þinni eigu þýðir það ekki að þú getir farið með eignir þess sem þínar eigin. Þarna verða að vera skýr skil á milli. Sama gild- ir um samskipti stjórnar og stjórnenda. Stjórnir fyrirtækja eiga ekki að skipta sér af daglegum rekstri. Stjórnir eiga ekki að taka ákvarðanir er lúta að rekstrinum, heldur eiga þær að fylgjast með og veita stjórnend- um aðhald.“ EINKAFYRIRTÆKI EÐA ALMENNINGSHLUTA- FÉLAG? Thomsen telur jafnframt að gera verði skýran greinarmun á stjórnarháttum í almennings- hlutafélögum og fyrirtækjum í einkaeigu. Munurinn sé bæði skýr og augljós; í einkafyrir- tækjum fari fólk með eigið fé en í almennings- hlutafélögum annarra. „Stjórnendur verða að bera ábyrgð gagnvart hluthöfum. Í einkafyr- irtækjum er eigandinn yfirleitt með fingurna í daglegum rekstri, situr jafnvel sjálfur í forstjórastólnum. Þessu er öðruvísi farið í almenningshlutafélögum. Hluthafar geta verið dreifðir hér og þar um veröldina. Af þeim sökum er brýnni þörf á að miðla upplýsingum til hluthafa og veita stjórnendum aðhald.“ Thomsen telur marga misskilja hugmynd- ina um góða stjórnarhætti. Góðir stjórnar- hættir felist ekki einungis í því að fylgja lögum og reglum út í ystu æsar, þótt slíkt sé vissulega mikilvægt. „Ég held því miður að allt of fáir líti á góða stjórnarhætti sem markmið í sjálfu sér, frekar sem einhvers konar skyldu sem verður að uppfylla. Ef ég ætti að gefa evrópskum fyrirtækjum einkunn á skalanum einn til tíu fengju þau um það bil tvo komma núll.“ SLÆMT FORDÆMI STÓRLAXA Hugmyndir um góða stjórnarhætti geta að mati Thomsen komið að góðum notum við nánast alla þætti reksturs, til að mynda þegar kemur að því að velja fólk til stjórn- arsetu. „Er fólk valið af því það er hæfast til starfans, eða nýtur það góðs af tengsl- um sínum við einhvern innanbúðarmann? Venjulegt starfsfólk gengur gegnum ítarlegt ráðningarferli, tekur margs konar próf og fer í viðtöl. Stjórnarmenn eru hins vegar ráðnir gegnum vinskap eða af orðspori.“ Thomsen segir stórlaxa í viðskiptalíf- inu ekki alltaf setja gott fordæmi. „Warren Buffett er snillingur, líklega frægasti fjár- festir í veröldinni, og næstríkasti maður í heimi samkvæmt lista Forbes. Hann tilkynnti nýlega að sonur hans tæki við honum sem stjórnarformaður Berkshire Hathaway. Ég er kannski ekki í neinni aðstöðu til að dæma gerðir manns sem nýtur slíkrar virðingar, en þetta geta varla talist góðir stjórnarhættir.“ Lagasetning og önnur aðkoma ríkisvalds- ins er þó engin galdralausn samkvæmt Thomsen. Einungis eigi að festa tilteknar lágmarkskröfur í lög. „Auðvitað verður að vera lagaskylda til endurskoðunar og ann- ars slíks. En það á ekki að vera þannig að einungis lögfræðingar geti setið í stjórn eða rekið fyrirtæki. Löggjöf getur aldrei svarað spurningum á borð við hver sé besti eigand- inn eða hvernig eigi að reka fyrirtæki. Það væri til að mynda ekki gáfulegt að semja lagabálk þess efnis að synir gætu ekki tekið við stjórnarformennsku af feðrum sínum.“ VANDRATAÐUR MEÐALVEGUR Thomsen telur meðalveginn vandrataðan milli lagasetningar og frelsis til athafna. Dæmin sýni að of mikið regluverk kring- um almenningshlutafélög fái eigendur til að hugsa sig um tvisvar áður en bréf eru sett á markað, og hafi jafnvel ýtt undir aukinn fjölda afskráninga af hlutabréfamörkuðum víðs vegar um veröldina. Árin 2002 og 2003 hafi til að mynda verið margfalt fleiri afskráningar en nýskrán- ingar á evrópskum hlutabréfamörkuðum. Auðvelt sé að draga þá ályktun að þar hafi hið þéttofna reglunet Evrópusamandsins haft mikið að segja. „Stjórnendur og eigendur fyrirtækja hafa væntanlega talið ávinninginn minni en kostnaðinn. Af hverju ættu þeir að skrá fyrirtæki sín ef meiri tími fer í að velta fyrir sér lagalegum afleiðingum ákvörðunar en því hvort hún sé í þágu hagsmuna fyrir- tækisins?“ Thomsen telur að akademíkerar og aðrir áhugamenn um fræðin hafi hlutverki að gegna ekki síður en lagasetningarvaldið. Rökræðan sé lykillinn að bættri stjórnunarmenningu „Háskólar hafa miklu hlutverki að gegna. Það kann að vera að einhverjar kenningar séu of fræðilegar eða ekki praktískar. Þær eru hins vegar jafn þarft innlegg í umræðuna fyrir það. Ef markaðurinn og fræðin tala saman er aldrei að vita nema við komumst að niður- stöðu á endanum. Ég trúi í það minnsta að það sé mögulegt.“ Lagasetning er engin töfralausn Steen Thomsen, prófessor í stjórnunarfræðum við Viðskiptaháskólann í Kaupmannahöfn, hélt á dögunum fyrirlestur við Háskólann í Reykjavík um stjórnarhætti fyrirtækja (corporate governance). Hann telur eigendur og stjórnendur, ekki síður en löggjafann, hafa hlutverki að gegna við þróun góðra stjórnarhátta. Jón Skaftason hitti Thomsen og spjallaði við hann um hugtakið, raunveruleikann og hlutverk fræðanna. STEEN THOMSEN FLYTUR ERINDI SITT Hugmyndir um góða stjórnarhætti geta komið að góðum notum við nánast alla þætti reksturs, til að mynda þegar kemur að því að velja fólk til stjórnarsetu. „Er fólk valið af því það er hæfast til starfans, eða nýtur það góðs af tengslum sínum við ein- hvern innanbúðarmann?“ spyr Thomsen. Þessu má líkja við sinfóníu- hljómsveit. Hljómsveitar- stjórinn stýrir sveitinni og engum dettur í hug að taka af honum sprot- ann. Stjórn hljómsveitar- innar getur hins vegar beðið hljómsveitar- stjórann um að spila meira eftir Tchaikovsky eða Mozart og ef hljómleikahöllin er alltaf tóm, getur stjórnin rekið hljóm- sveitarstjórann og fengið nýjan.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.