Fréttablaðið - 24.05.2006, Blaðsíða 54
MARKAÐURINN
S Ö G U H O R N I Ð
24. MAÍ 2006 MIÐVIKUDAGUR
H É Ð A N O G Þ A Ð A N
Í dag eru liðin heil 463 ár frá
andláti pólska stjörnufræðings-
ins Nikulásar Kópernikusar og
útgáfu bókar hans um sólmiðju-
kenninguna. Kópernikus, sem
skírður var Mikolaj Kopernik,
fæddist hinn 19. febrúar árið
1473. Hann var einungis 10 ára
gamall þegar faðir hans sem var
vellauðugur kaupsýslumaður
lést. Móðurbróðir Kópernikusar
tók drenginn og þrjú systkini
hans að sér.
Talið er að Kópernikus hafi
komist fyrst í kynni við stjörnu-
fræði þegar hann innritaðist í
háskólann í Kraká, þá 18 ára
að aldri. Bækur hans frá skóla-
árunum, sem Svíar tóku her-
fangi þegar þeir réðust inn í
Pólland um miðbik 17. aldar og
geymdar eru í Uppsalaháskóla
í Svíþjóð, bera þess skýr merki
að hann hafi heillast af fræðun-
um. Námið stóð í fjögur ár en að
því loknu hélt hann til Bologna
og Padúa á Ítalíu til að nema
lög- og læknisfræði.
Kópernikus var 24 ára þegar
honum gafst í fyrsta sinn
tækifæri til að virða fyrir sér
himinhvolfin í stjörnusjónauka
undir handleiðslu kennara síns,
Domenicos Maria Novara da
Ferrara, eins þekktasta stjörnu-
fræðings 15. aldar.
Um svipað leyti komst hann
yfir verk Ciceros og Platós um
hugmyndir fornra heimspekinga
um jörðina og himinhvolfin.
Hann hélt loks heim á leið
þremur árum síðar til að taka
við starfinu sem frændi hans
hafði skipað hann í. Starfinu
sinnti hann af heilindum og
lagði hann ekki stund á stjörnu-
skoðun nema í frístundum.
Engu að síður hélt hann
áfram að þróa hugmyndir sínar
um himinhvolfin. Orðrómur
fór á kreik um kenningar hans.
Þær þóttu byltingarkenndar
og báru kennimenn og starfs-
bræður Kópernikusar hróður
hans víða um Evrópu. Árið 1536
var svo komið að þrýst var á
hann að gefa niðurstöður sínar
út á bók. En Kópernikus lét
ekki undan og er talið að hann
hafi óttast viðbrögð kirkjunnar
við hugmyndum sínum um að
jörðin væri ekki miðpunktur
alheimsins líkt og löngum var
talið.
Kópernikus lét loks undan
þrýstingi frá vinum sínum og
samstarfsbræðrum og ákvað að
prenta og gefa út meginrit sitt,
Um snúninga himinhvelanna
(De revolutionibus orbium coel-
estium) árið 1543. Sagt er að
fyrsta eintak bókarinnar hafi
borist í hendur stjörnufræð-
ingsins þegar hann lá banaleg-
una í kjölfar hjartaáfalls og
gafst honum tækifæri til að líta
ævistarf sitt augum áður en
hann lést sama dag.
Stjörnufræðingur
andast
NIKULÁS KÓPERNIKUS Þessi tölvu-
teiknaða mynd er gerð eftir höfuðkúpu
sem fannst í dómkirkjunni í Frombork í
fyrra og er talin vera af stjörnufræðingn-
um Kópernikusi. MYND/AFP
Hagvöxtur hefur verið mikill í
Kína undanfarin ár og er búist
við að landið verði stærsta hag-
kerfi í heimi eftir 20 ár. Þetta eru
niðurstöður könnunar sem gerð
var fyrir breska Ríkisúvarpið í 10
löndum í apríl.
41 prósent þeirra 9.503 sem
þátt tóku í könnunni sögðu mestar
líkur á að Kína yrði stærsta hag-
kerfi í heimi árið 2026. Bandaríkin
lentu í öðru sæti þvert á vænting-
ar bandaríska fjárfestingabank-
ans Goldman Sachs en 10 prósent
sögðu Japan verða stærsta hag-
kerfi heims eftir 20 ár og lenti
landið í þriðja sæti.
Athygli vekur að Indland lenti
í fjórða sæti í könnuninni en 6
prósent þátttakenda töldu land-
ið verða stærsta hagkerfi heims
eftir 20 ár. Að sögn breska ríkis-
útvarpsins er ástæðan fyrir því
að landið lenti ekki í fyrsta sæti
meðal annars fátækt og mikil
stéttaskipting á Indlandi. Þó er
búist við að Indverjar fari fram úr
Kínverjum enda er lýðræðisþróun
lengra á veg komin þar í landi
auk þess sem tungumálakunnátta
landsmanna er meiri. Þó er talið
að Indverjar fari ekki fram úr
Kínverjum fyrr en stefna hinna
síðarnefndu að eignast aðeins eitt
barn á fjölskyldu fer að hafa áhrif
á efnahag landsins. - jab
KÍNVERJAR Í LEIKFIMI Meirihluti þátttak-
enda í könnun breska ríkisútvarpsins býst
við að Kína verði stærsta hagkerfi heims
eftir 20 ár.
Kínverjar stærstir eftir tuttugu ár
Vísindamenn hafa staðfest að björn sem skotinn
var í Norður-Kanada á dögunum sé afkvæmi hvíta-
björns og skógarbjörns. Er þetta í fyrsta sinn sem
slíkra bjarna verður vart í náttúrulegu umhverfi en
áður höfðu þeir einungis hafst við í dýragörðum.
Björninn var skotinn af bandarískum
veiðimanni sem var í fríi í Norður-Kanada.
Leiðsögumaður skyttunnar tók eftir því að
bráðin var með lengri klær en venjulegur
ísbjörn, auk þess að vera undarlega grár af
hvítabirni að vera.
Björninn var fluttur til Edmonton til rann-
sókna og grunur leiðsögumannsins staðfestur
„Þetta er í fyrsta skipti sem villts afkvæmis
skógar- og hvítabjörns verður vart. Við vissum
að þetta var fræðilega hugsanlegt, og þá ein-
ungis á litlu svæði í Kanada þar sem mögulegt
er að tegundirnar mætist,“ sagði Ian Sterling
líffræðingur, sem rannsakaði björninn.
Líffræðingar hafa þó lýst efasemdum um að
kynblöndun hvíta- og skógarbjarna sé æskileg. Til
þess séu lífshættir tegundanna of ólíkir. - jsk
Hvítur skógarbjörn
Afkvæmi hvítabjörns og skógarbjörns hefur fundist í
Kanada. Vísindamenn telja blöndun tegundanna óæskilega.
HVÍTABJÖRN Þessi hvítabjörn á ekki lengur einungis
frændur meðal skógarbjarna, heldur líka hálfsystkini.
Sjóður 9 fjárfestir aðallega í ríkisverðbréfum,
bankavíxlum, innlánum og stuttum skulda-
bréfum. Hann sveiflast mjög lítið og hentar því
sérlega vel fyrir skammtímaávöxtun og fyrir þá
sem vilja hafa greiðan aðgang að sparifé sínu.
ENGINN MUNUR Á KAUP- OG SÖLUGENGI
MJÖG LITLAR VERÐSVEIFLUR
KOSTIR VERÐBRÉFASJÓÐA GLITNIS:
• Mikil áhættudreifing og góð ávöxtun
• Eignastýring í höndum sérfræðinga
• Ávallt innleysanlegir
Þú getur fjárfest í áskrift eða keypt fyrir staka
upphæð. Farðu á www.glitnir.is og kláraðu málið.
Sjóður 9 er fjárfestingarsjóður skv. lögum nr. 30/2003 um verðbréfasjóði
og fjárfestingarsjóði. Rekstrarfélag sjóðsins er Glitnir Sjóðir hf.
Útboðslýsingu og útdrátt úr útboðslýsingum má nálgast í útibúum Glitnis
eða á www.glitnir.is/sjodir.
*Ávöxtun í fortíð er ekki ávísun á ávöxtun í framtíð
12%
Nafnávöxtun í apríl 2006: 12% á ársgrundvelli.*
SJÓÐUR 9 – FRÁBÆR
SKAMMTÍMAÁVÖXTUN
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
6
20
8
������� ���
�����������������
��������������
���������������������������������������������������������������������������������
�����
�������������
�����������
�����
�������� ����
�������
�����
�������������
�������