Fréttablaðið - 09.06.2006, Page 6
6 9. júní 2006 FÖSTUDAGUR
Kl. 16:00 Sýnt frá opnunarleik HM í Kaplakrika.
Þýskaland á móti Costa Rica. Þýskubílinn mætir á svæðið.Húsið
verður opnað kl. 15:30
Kl. 20:00 Brokkoli, kammerkór frá Kaupmannahöfn í Hásölum
Kammerkór frá Vesterbro í Kaupmannahöfn heldur tónleika í
Hásölum. Stjórnandi er Lotte Smith-Petersen og er efnisskráin
helguð skandinavískum lögum með vor í lofti.
� ��������������������������������������������������
�
Kl. 20:00 Forsýning Panic production á NO, HE WAS WHITE
og Rauðar liljur í Hafnarfjarðarleikhúsinu
� ������������� ������������������������
Kl. 20:00 Jazztónleikar í Gamla bókasafninu. Voðadrengirnir og
Básúnutríóið Deigið. Húsið verður opnað kl. 19:30
Á morgun:
Maraþon kvikmyndahátíð í Gamla bókasafninu
í tilefni HM Kl. 11:00-18:00
Hádegistónleikar í Hafnarborg kl. 12:00
Hansamót í knattspyrnu á Ásvöllum kl. 12:00-14:00
Dagur lúðrasveitanna og skrúðganga kl.14:00
Tónleikar á Thorsplani kl.15:00
Verslanir í Firði opnar til kl.17:00
Skógarganga Skógræktarfélagsins kl. 20:00
Dansleikhús í Hafnarfjarðarleikhúsinu kl. 20:00
Allar nánari upplýsingar í Þjónustuveri Hafnarfjarðar, Strandgötu 6
Sími 585 5500 - www.hafnarfjordur.is
���������������� - Rativ - Tungur í leikhúsi - Míkróveröld og morgunstemningar
Ljóð í lauginni - Leikskólalist - Sumarlestur - Brynja og börnin
Aðgangur ókeypis á viðburði nema annað sé tekið fram
��
��
��
��
�
��
��
��
�
���
����� 1.-10. júní 20069. júní
Lista- og menningarhátíð Hafnarfjarðar
� � �
Hansahátíð og HM
KJÖRKASSINN
Ætlarðu að fylgjast með HM í
fótbolta?
Já 35%
Nei 65%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Þjáistu af frjóofnæmi?
Segðu þína skoðun á visir.is
DÓMSMÁL Karlmaður hefur í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur verið sýkn-
aður af ákæru um kynferðisbrot í
janúar 2005. Manninum var gefið
að sök að hafa klipið í brjóst ólög-
ráða unglingsstúlku, káfað á
lærum hennar og kynfærum utan
klæða og innan og sett hönd henn-
ar á getnaðarlim sinn.
Stúlkan hafði strokið ásamt
tveimur öðrum stúlkum af með-
ferðarheimilinu Laugalandi til
Akureyrar. Þar fengu þær far með
manninum, sem ætlaði að keyra
þær til Reykjavíkur gegn 25 þús-
und króna greiðslu. Stúlkan sat í
framsæti bílsins og sagði brotin
hafa átt sér stað á meðan hún sat
þar.
Dómurinn komst að þeirri
niðurstöðu að nokkuð væri um
ósamræmi milli vitnisburða stúlk-
unnar og hinna tveggja sem sátu
aftur í bílnum. Stúlkan sagðist
hafa orðið „geðveikt hrædd“ við
manninn, en samferðakonur henn-
ar segja hana hafa verið glaðbeitta
alla leiðina og hún hafi meðal ann-
ars tilkynnt þeim með bros á vör
þegar hún vaknaði eftir svefn á
leiðinni að buxnaklauf hennar
væri fráhneppt. Þá segjast stúlk-
urnar tvær ekki hafa orðið varar
við að maðurinn hafi klipið í brjóst
hennar eða káfað á henni.
Maðurinn er því sýknaður þar
sem sekt hans telst ekki sönnuð.
Þó kemur fram að framburður
stúlkunnar hafi ekki verið talinn
ótrúverðugur. - sh
Sakaður um kynferðisbrot gegn unglingsstúlku:
Sýknaður af dómi
HÉRAÐSDÓMUR REYKJAVÍKUR Framburður
stúlkunnar var talinn stangast á við fram-
burð vitna sem sögðust ekki hafa orðið vör
við káf.
ÍRAK, AP Íraksþing staðfesti í gær-
morgun skipan þeirra þriggja
nýju ráðherra sem þurfti til að
fullskipa ríkisstjórn Nouris al-
Maliki. Súnní-músliminn Abdul-
Qader Mohammed Jassim al-
Mifarji var skipaður
varnarmálaráðherra og sjía-
múslimarnir Jawad al-Bolani og
Sherwan al-Waili skipaðir innan-
ríkis- og öryggismálaráðherrar.
Langan tíma hefur tekið að ná
samstöðu um ráðherrana, en þeir
hafa heitið því að vinna fyrir Íraka
alla, en ekki bara þeirra eigin trú-
arhópa og kynþætti. Stöðuveiting-
in átti sér stað í skugga dauða
hryðjuverkaleiðtogans Abu Musab
al-Zarqawi, en þetta er talið nauð-
synlegt skref í áætlun forsætis-
ráðherrans um að flytja allt erlent
herlið úr landi innan átján mán-
aða.
Ofbeldisverk skyggðu á frétt-
irnar af ríkisstjórninni, en nítján
manns létust og tugir særðust í
Bag-dad stuttu síðar í nokkrum
sprengjutilræðum. Tvær
sprengjurnar voru bílasprengjur,
en árás á lögreglumenn olli dauða
sex og þrettán féllu í sprengju-
árás á markaðstorg. - sgj
Dauði hryðjuverkamannsins al-Zarqawis virðist ekki duga til að lægja skálmöldina:
Nýir ráðherrar í skjóli árása
NÝSKIPAÐIR RÁÐHERRAR Nouri al-Maliki, forsætisráðherra Íraks, með nýju ráðherrunum.
BÍLSLYS Kona er alvarlega slösuð
eftir alvarlegan árekstur á mótum
Þorlákshafnarvegar og Eyrar-
bakkavegar í gærmorgun. Tvær
konur voru í jeppa sem ók í veg
fyrir rútu með þeim afleiðingum
að jeppinn gjöreyðilagðist og
rútan skemmdist mikið.
Ökumaður rútunnar var einn á
ferð og hann sakaði ekki. Farþegi
jeppans slapp einnig vel, en öku-
maður jeppans var fluttur á gjör-
gæsludeild Landspítala - Háskóla-
sjúkrahúss. Ferð ferjunnar
Herjólfs til Vestmannaeyja seink-
aði vegna slyssins og veginum til
Þorlákshafnar var lokað tíma-
bundið. - sgj
Árekstur á Þorlákshafnarvegi:
Ók í veg fyrir
langferðabíl
ÍSLAND-RÚSSLAND Mikhaíl Y. Frad-
kov, forsætisráðherra Rússlands,
átti fund með Ólafi Ragnari Gríms-
syni, forseta Íslands, á Bessastöð-
um í gær. Ræddu þeir meðal ann-
ars þörf á loftferðasamningi milli
landanna, en vegna þess að enginn
slíkur er í gildi geta íslensk flug-
félög ekki stundað áætlanaflug til
rússneskra borga.
Lýstu leiðtogarnir báðir mikilli
ánægju með viðræðurnar.
Hittust á Bessastöðum:
Loftferðasamn-
ing bar á góma
FJÖLMENN SENDINEFND Fjölmenni var í
för með rússneska forsætisráðherranum á
Bessastöðum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
DÓMSMÁL Fjölskyldur Matthildar
Victoriu Harðardóttur og Friðriks
Ásgeirs Hermannssonar, sem lét-
ust þegar skemmtibáturinn Harpa
fórst úti fyrir Reykjavík í sept-
ember, sendu í gær Sævari Gunn-
arssyni, formanni Sjómannasam-
bands Íslands, og Hólmgeiri
Jónssyni, framkvæmdastjóra Sjó-
mannasambandsins, áskorun um
að víkja Jónasi Garðarssyni úr
stöðu formanns Sjómannafélags
Reykjavíkur og gjaldkera Sjó-
mannasambands Íslands. Jónas
var nýlega dæmdur fyrir mann-
dráp af gáleysi í tengslum við slys-
ið. Einnig er hvatt til þess að
Jónasi verði vikið úr þeim nefnd-
um sem hann situr í á vegum Sjó-
mannasambandsins og Sjómanna-
félagsins.
Í bréfi fjölskyldunnar segir
meðal annars: „Háttsemi sú sem
Jónas Garðarsson sýndi er forkast-
anleg og felur í sér einkar ófyrir-
leitin brot á almennum skipstjórn-
arskyldum, eins og segir í dómnum,
sem leiddu í senn til dauða Friðriks
Ásgeirs Hermannssonar og Matt-
hildar Victoriu Harðardóttur. Skv.
niðurstöðu þriggja háttvirtra dóm-
ara hjá Héraðsdómi Reykjavíkur
ber Jónasi að sæta fangelsisvist í
þrjú ár auk þess að greiða bætur,
sakarkostnað og málsvarnarlaun.“
Bréfritarar vona að viðtakend-
ur bréfsins sjái „að hagsmunir
sjómanna og sjómannafélaga séu
ekki vel varðir með dæmdan saka-
mann í fararbroddi hjá Sjómanna-
félagi Reykjavíkur.“ Einn
bréfritara, Guðný Harðardóttir,
segir að tilgangur bréfsins sé að
vekja athygli á alvarleika þessa
máls. „Ég get ekki séð af hverju
dæmdur maðurinn situr áfram
sem málsvari Sjómannafélags
Reykjavíkur. Hvað hefði gerst ef
hann hefði verið fundinn sekur
um fjárdrátt, hefðu þeir þá ekki
vikið honum úr félaginu?“
Undir sjónarmið fjölskyldn-
anna tekur skipstjóra- og stýri-
mannafélagið verðandi í Vest-
mannaeyjum sem sendi frá sér
ályktun í gærkvöldi. Þar er skorað
á Jónas Garðarsson að víkja sæti
því annað sé óviðunandi fyrir sjó-
menn og óvirðing við þá sem lét-
ust og aðstandendur þeirra.
Hólmgeir Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Sjómannasam-
bandsins, segir að bréfið hafi verið
meðtekið og stjórn félagsins verði
kynnt efni þess. svavar@frettabladid.is
Fjölskyldur skora á
sjómannaforystuna
Fjölskyldur þeirra sem létust með skemmtibátnum Hörpu krefjast brottvikningar
Jónasar Garðarssonar sem formanns Sjómannafélags Reykjavíkur og gjaldkera
Sjómannasambandsins. Samtök sjómanna í Vestmannaeyjum taka undir þá kröfu.
SYSTUR MATTHILDAR Þær systur Guðný, Erla Ruth og Auður Harðardætur eru bréfritarar
fyrir hönd fjölskyldu Matthildar sem lést í slysinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
LÖGREGLA Hauks Freys Ágústson-
ar er enn saknað en ekkert hefur
spurst til hans frá því á fimmtu-
daginn 1. júní. Að sögn lögregl-
unnar í Reykjavík hefur umfangs-
mikil leit að
Hauki ekki
verið hafin en
lögreglan
nýtur nú
aðstoðar Sím-
ans við að
reyna að rekja
ferðir hans.
Haukur er
um 180 senti-
metrar á hæð,
þrekinn og
var klæddur í
gallabuxur og svargráa peysu
síðast þegar til hans sást. Þeim
sem geta veitt upplýsingar um
ferðir Hauks er bent á að hafa
samband við lögreglu í síma 444-
1000. - sh
Haukur Freyr Ágústsson:
Enn ófundinn
HAUKUR FREYR
ÁGÚSTSSON
DÓMSMÁL Hæstiréttur hafnaði í
gær kröfu Jóns Ólafssonar um að
embætti ríkislögreglustjóra verði
gert skylt að fella niður rannsókn
vegna meintra brota hans á skatta-
lögum. Því var einnig hafnað að til
vara yrði ríkislögreglustjóra skylt
að víkja sæti við rannsóknina.
Jón byggði kröfu sína meðal
annars á því að mannréttindi hefðu
verið brotin á sér vegna þess
hversu langan tíma rannsóknin
hefði tekið. Hann taldi einnig að
hann hefði ekki notið réttlátrar
málsmeðferðar í skilningi mann-
réttindasáttmála Evrópu. - shá
Skattamál Jóns Ólafssonar:
Rannsókn ekki
felld niður
JÓN ÓLAFSSON Tapaði máli í Hæstarétti.