Fréttablaðið - 09.06.2006, Page 12
12 9. júní 2006 FÖSTUDAGUR
���������������������
�������������������
��������������������������������������������������������������������������������������
���� �������������������������������������������������������� ���������������������
�
����������������� ��������� ��������� �������������������������������������
����������������������������������������������������������������� ������������
�����������������������
DÓMSMÁL Hátt í tuttugu milljónir
króna voru sendar héðan úr landi
inn á tiltekinn bankareikning á
hollensku Antillaeyjunum í tengsl-
um við hið gríðarlega umfangs-
mikla fíkniefnamál sem nú er í
lögreglurannsókn hér. Telur lög-
regla peningasendingarnar geta
passað við kaup á rúmum fimmtán
kílóum af amfetamíni og ríflega
tíu kílóum af hassi, sem keypt
voru í Belgíu og Hollandi og síðan
reynt að smygla hingað til lands í
bensíntanki bifreiðar.
Hæstiréttur staðfesti í gær
gæsluvarðhaldsúrskurð yfir
þremur hinna grunuðu fíkniefna-
smyglara til föstudagsins 14. júlí.
Héraðsdómur Reykjavíkur hafði
hafnað kröfu lögreglu um fram-
lengingu yfir fjórða manninum,
en Hæstiréttur hnekkti þeim
úrskurði og skal maðurinn einnig
sitja inni til 14. júlí.
Rannsókn lögreglu hefur leitt í
ljós að Ólafur Ágúst Ægisson
kom, ásamt fleiri grunuðum í
málinu, peningasendingunum til
Antillaeyja. Það var hins vegar
Herbjörn Sigmarsson sem bað
Hörð Eyjólf Hilmarsson að flytja
inn bifreið á nafni hins síðar-
nefnda, sem átti að vera „hlaðin
kannabisefnum“. Fór Hörður Eyj-
ólfur tvívegis til útlanda og hafði
samskipti við vitorðsmenn þar,
meðal annars Hollendinginn
Johan Handrick. Undir lok síðari
ferðarinnar sem Hörður Eyjólfur
fór til Belgíu var honum sagt að
eitthvað meira en hass yrði í bíln-
um. Herbjörn kvað hann fá greitt
aukalega fyrir það og lét hann
síðan fá reiðufé til að leysa bílinn
úr tolli.
Hollendingurinn Johan hefur
borið að hlutverk hans hafi meðal
annars verið að aðstoða Hörð Eyj-
ólf við flutning bifreiðarinnar til
Íslands. Johan kvaðst hafa haft
vitneskju um að fíkniefni væru
falin í henni. Hefði hann tekið að
sér, gegn greiðslu, að fara til
Íslands og hafa umsjón með því
þegar fíkniefnin yrðu tekin úr
bílnum, svo og að vigta þau. Ekki
varð þó úr vigtuninni því tollgæsl-
an fann ofangreint magn amfet-
amíns og hass í bílnum hinn 3.
apríl. Kom lögreglan fyrir hljóð-
upptökubúnaði og gerviefnum í
bifreiðinni og símahleranir hófust
hjá smyglurunum.
Að morgni þess dags sem hand-
tökur fóru fram sótti Ársæll
Snorrason Hollendinginn út á flug-
völl, en þeir þekktust frá fyrri tíð.
Um kvöldið þegar Ólafur Ágúst,
Ársæll og Johan voru að bauka við
að losa fíkniefnin úr bensíntankin-
um við iðnaðarhúsnæði á Krók-
hálsi voru þeir handteknir.
Skömmu síðar var Hörður Eyjólf-
ur tekinn og loks Herbjörn. Sá hol-
lenski hefur gengist við aðild að
málinu og Hörður Eyjólfur einnig
en Ársæll hefur sagst vita lítið og
Ólafur Ágúst hefur neitað öllu.
Herbirni hefur verið sleppt.
Ólafur Ágúst á að baki þyngsta
dóm fyrir fíkniefnamisferli sem
kveðinn hefur verið upp hér.
Ársæll var á sínum tíma dæmdur í
fjögurra ára fangelsi í Hollandi
fyrir samsvarandi sakir.
jss@frettabladid.is
20 milljónir
til dópkaupa
Peningasendingar á bankareikning á hollensku Ant-
illaeyjunum koma við sögu í smygli á 25,5 kílóum af
amfetamíni og hassi í bensíntanki bifreiðar.
GÆSLUVARÐHALD Hollendingurinn Johan Handrick hefur játað aðild sína að fíkniefna-
smyglinu. Hér sést hann koma fyrir héraðsdóm vegna framlengingar á gæsluvarðhaldi.
HJÁLPARSTARF Íslensk stjórnvöld
hafa ákveðið að styrkja alnæmis-
verkefni sem Rauði krossinn og
Rauði hálfmáninn standa að í
sunnanverðri Afríku.
Framlagið verður greitt á
næstu þremur árum og samsvar-
ar 320.000 Bandaríkjadölum.
Alnæmi er mikil ógn við íbúa
landa sunnan Sahara en um 25-30
prósent fullorðinna eru smituð.
Tilkynningin um framlagið kom á
ráðherrafundi Sameinuðu þjóð-
anna um alnæmi sem haldinn var
í byrjun júní.
Um 25 milljónir manna hafa
látist af völdum alnæmis frá því
að sjúkdómurinn greindist fyrst
fyrir tuttugu og fimm árum en
Rauði kross Íslands hefur stutt
alnæmisverkefni í Suður-Afríku
frá árinu 2000.
Verkefni Rauða krossins hafa
meðal annars verið forvarnir og
fræðsla, aðstoð við munaðarlaus
börn og heimahlynning með
aðstoð sjálfboðaliða. - gþg
Aðgerðir ríkisstjórnarinnar vegna alnæmisvandans:
Senda styrk til Afríku
BORGARMÁL Steinunn Valdís Ósk-
arsdóttir, fráfarandi borgarstjóri,
segir stjórnsýslubreytingar hjá
Reykjavíkurborg vera óþarfar. Í
Fréttablaðinu í gær sagði Vil-
hjálmur Þ. Vilhjálmsson, tilvon-
andi borgarstjóri, það koma til
greina að gera breytingar á upp-
byggingu stjórnsýslu borgarinnar.
„Á undanförnum árum hefur verið
byggð upp góð og fagleg stjórn-
sýsla. Það hefur verið horft til
breytinga sem gerðar hafa verið
hjá borginni, auk þess sem ríkis-
stofnanir hafa leitað fanga hér til
þess að læra og fræðast af því
hvernig málum hér er háttað,“
segir Steinunn Valdís.
Vilhjálmur sagði það einnig
koma til greina að endurvekja
starf borgarlögmanns, sem lagt
var niður í tíð R-listans.
Steinunn Valdís segir fagleg
vinnubrögð hafa verið allsráðandi
innan stjórnsýslu borgarinnar.
„Árið 1994 var engin kona í stjórn-
unarstöðu hjá borginni. Núna eru
þær í meirihluta í hópi æðstu
stjórnenda. Ef hugsanlegar breyt-
ingar á stjórnsýslu verða til þess
að fórna bæði fagmennsku og
kvenréttindum, þá finnst mér það
vera afturför.“ - mh
Steinunn Valdís Óskarsdóttir er ekki hrifin af breytingum á stjórnsýslunni:
Segir stjórnsýsluna skilvirka
STEINUNN VALDÍS ÓSKARSDÓTTIR Segir
stjórnsýslu Reykjavíkurborgar vera öðrum
sveitarfélögum fyrirmynd. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
SVÍÞJÓÐ, AP Þrjátíu og tveggja ára
Svíi var í gær dæmdur í lífstíðar-
fangelsi fyrir að hafa myrt unnustu
sína í mars síðastliðnum, hlutað lík
hennar í sundur og sökkt í vatn.
Maðurinn var handtekinn eftir
að vitni sáu hann sökkva nokkrum
plastpokum í vök sem hann hafði
gert í Yngern-vatn sunnan Stokk-
hólms. Við rannsókn kom í ljós að
tveimur dögum fyrr hafði hann ráð-
ist á unnustu sína með steikarpönnu
og hníf eftir að hún hótaði að yfir-
gefa hann með tvö börn þeirra.
Konan var með ástralskan og
finnskan ríkisborgararétt, en börn-
in eru nú í umsjá sænskra yfir-
valda. - smk
Svíi dæmdur fyrir morð:
Hlutaði kærust-
una í sundur
AFRÍKA Sunnan Sahara er alnæmi ein
mesta ógn sem steðjar að íbúunum.