Fréttablaðið - 09.06.2006, Blaðsíða 38
9. júní 2006 FÖSTUDAGUR6
Guðjón Þorsteinn Pálmarsson
leikari og verslunareigandi á
mun auðveldar með að muna
góðu kaupin en þau slæmu.
Þegar blaðamaður náði tali af Guð-
jóni var hann í óða önn að mála
verslunina sína. „Ég og félagi
minn rekum tölvuverslun og við-
gerðaþjónustu í Síðumúla 34. Við
stofnuðum fyrirtækið fyrir ári,
félagi minn kom með þekkinguna
og ég með sjarmann,“ segir Guð-
jón og hlær. „Við gerum bæði við
PC tölvur og seljum líka tölvuvör-
ur.“ Aðspurður hvort ekki sé erfitt
að keppa við risana á markaðnum
játar Guðjón að svo sé. „Okkur
hefur samt gengið ágætlega að slá
þeim við en það er ekki auðvelt,“
segir Guðjón.
Guðjón var ekki lengi að rifja
upp sín bestu kaup. „Ég verð að
segja að bestu kaupin sem ég hef
gert á ævinni var hjálmur sem ég
keypti sjö ára gamall,“ segir Guð-
jón um leið og hann viðurkennir
að hafa enga hugmynd um þær
hvatir sem þar lágu að baki. „Mig
langaði rosalega í verkamanna-
hjálm, svona eins og Bubbi byggir
notar. Ég held ég fari rétt með það
að hann hafi kostað 62 krónur í
Kaupfélaginu. Ég safnaði mér
fyrir hjálminum, var ótrúlega
lengi að ná 40 krónum en var svo
dreginn í land með restina. Ég not-
aði hjálminn ekki lengi, hann var
náttúrulega allt of stór, en pabbi
notar hjálminn enn þann dag í
dag,“ segir Guðjón stoltur.
Guðjón gerði líka góð kaup
þegar hann snéri uppá hendi föður
síns og fékk hann til að skrifa upp
á 30.000 kr víxil fyrir sig. Fyrir
peninginn keypti hann Fender
Stradocaster rafmagnsgítar sem
hann notar enn í dag. „Ég bar út
Moggann heillengi til að safna
pening til að borga pabba til baka,“
segir Guðjón.
Ætli verstu kaup Guðjóns hafi
ekki verið rándýr Canon filmu-
myndavél. „Ég keypti þessa fínu
vél en átti engan pening eftir til að
kaupa aukahluti og linsur. Þar að
auki komu digital myndavélarnar
stuttu eftir þetta þannig að ég hef
notað vélina lítið.“
Í eldamennsku og vali á hráefni
tekur Guðjón Ítali sér til fyrir-
myndar. „Ég bjó í einn mánuð hjá
ítalskri fjölskyldu og þar var allt
hráefni rosalega vandað,“ segir
Guðjón. „Það var hinsvegar ekki
fyrir fjölbreytninni að fara. Það
sem notað var var fyrsta flokks en
það voru ekki þúsund tegundir á
boðstólum. Ef ég fæ mér kjúkling
þá fæ ég mér ekki hvítlauksbrauð
með, þó svo mig langi til þess. Það
er bara vesen. Ég fæ mér bara
kjúklinginn, hrísgrjón og bar-
beque-sósu og þá er það komið.“
tryggvi@frettabladid.is
Hefur fallið í
allar gildrur
Guðjón og litla tölvubúðin hans Takkar. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
ÞAÐ ÆTTI EKKI AÐ VÆSA UM FÓTBOLTAÁHUGAMENN MEÐ
GLÆNÝJAN PLASMASKJÁ FRÁ HAGKAUPUM, FLEIRI TUGI
LÍTRA AF GOSI, ANNAÐ EINS AF SNAKKI OG ÁSKRIFT AF SÝN
Í KAUPBÆTI.
Hagkaupsverslanirnar bjóða nú til sölu 42 tommu plasma
sjónvarpstæki frá United á sérstöku tilboði í tilefni af HM sem
fram fer í Þýskalandi. Þeir sem festa kaup á plasmatækjunum
hjá Hagkaupum fá hvorki meira né minna en 36 lítra af kóki
og 20 poka af Maarud snakki í kaupauka. Það er heldur ekki
mikið gagn í plasmaskjá á HM tilboði ef maður er ekki með
Sýn og því fylgir HM áskrift á sjónvarpsstöðinni með hverju
keyptu 42 tommu United sjónvaprstæki á meðan á tilboðinu
stendur.
Hagkaup í HM hug
Heimsmeistarakeppnin hefst í dag
HÚSGAGNABÚÐIN MIRA BÝÐUR
30-50 PRÓSENT AFSLÁTT AF ÖLLUM
INDVERSKUM VÖRUM
Síðustu daga hefur Mira verið að
taka á móti nýjum indverskum
húsgögnum og hefur mikið úrval
af skenkum, borðstofuborðum,
hillum, skápum og sófaborðum. Til
dæmis er hægt að gera góð kaup á
borðstofuborðum sem áður kostuðu
49.000 krónur en kosta nú 34.300
krónur. Skáparnir eru á fimmtíu
prósenta afslætti og er til dæmis
hægt að fá sjónvarpsskápa á 49.450
krónur sem áður kostuðu 98.900
krónur. Mira er staðsett í Bæjarlind
6, Kópavogi.
Indverskir
dagar í Miru
Alls kyns skápar, skenkir og borð eru á
tilboði
Hægt er að stökkva í sólina á
góðu verði í júní.
Heimsferðir bjóða upp á tilboð til
Benidorm í júní. Hægt er að
stökkva í sólina á Spáni 22. eða 29.
júní en verðið er frá 29.990 krón-
um. Þá er miðað við hjón með tvö
börn í íbúð í viku. Flug gisting,
skattar og íslensk fararstjórn inni-
falin en aukavika á Bendiorm
kostar 10.000 krónur.
Heimferðir bjóða einnig upp á
tilboð til Rimini dagana 21. og 28.
júní en verðið er hið sama.
Hægt er að bóka sæti núna og
fjórum dögum fyrir brottför fá
ferðalangar að vita hvað þeir muni
gista.
Í sólina í júní.
Benidorm er vinsæll áfangastaður íslenskra
ferðalanga
HLJÓMTÆKJA- OG SKRIFSTOFU-
DEILD ORMSON ER BÚIN AÐ VERA
Í EITT ÁR Í SÍÐUMÚLA 9 OG AF
ÞVÍ TILEFNI ERU ÝMSAR VÖRUR Á
AFMÆLISTILBOÐSVERÐI.
Í tilefni af eins árs dvöl í Síðumúlanum
býður Ormson upp á fjölda freistandi
afmælistilboða. Meðal þess sem fá má
á tilboðsverði eru sjónvörp, prentarar,
leikjatölvur, myndavélar og heimabíó.
Tilboðin verða í gildi eitthvað áfram
og eru allir hvattir til þess að kynna sér
úrvalið og gera góð kaup.
Afmælistilboð í Ormson Síðumúla
Nintendo DS leikjatölva fæst á aðeins
13.900 kr. í Ormson á afmælistilboði.