Fréttablaðið - 09.06.2006, Side 54
9. júní 2006 FÖSTUDAGUR38
timamot@frettabladid.is
Íhaldsflokkur Margrétar Thatcher,
forsætisráðherra Breta, vann stór-
sigur í þingkosningum þennan dag
árið 1983. Thatcher hafði þá þegar
setið eitt kjörtímabil en flokkur
hennar hlaut 397 sæti á þingi en
Verkamannaflokkurinn aðeins 209.
Frjálslyndi flokkurinn, sem bauð sig
fram í fyrsta sinn þetta árið, hlaut
jafn mörg atkvæði og Verkamanna-
flokkurinn þótt sætin hafi einungis
orðið 23.
Margrét Thatcher varð leiðtogi
Íhaldsflokksins árið 1975 á tíma
þegar flokknum hafði hnignað
stórlega, og forsætisráðherra eftir
kosningasigur 1979. Hún tryggði að verkalýðsfélög
færu að lögum, seldi fjölda ríkisfyrirtækja og jók
virðingu fyrir Bretum annars staðar.
Ein af ástæðum þessa stórsigurs
árið 1983 var talin vera vinsældir
Thatcher eftir sigur Bretlands í
Falklandseyjastríðinu en hún hafði
ekki sætt sig við hernám argentísku
herforingjastjórnarinnar á eyjunum.
Eftir sigurinn 1983 tilkynnti Thatcher
að þung dagskrá yrði á komandi
þingi.
Önnur ástæða fyrir sigri Íhaldsflokks-
ins var talinn vera vandræðagangur
innan Verkamannaflokksins, sem
hafði klofnað fyrir kosningarnar.
Leiðtogi Verkamannaflokksins,
Michael Foot, sagði útkomu kosning-
anna harmleik fyrir þjóðina. Síðar á árinu sagði hann
af sér en Neil Kinnock tók við af honum.
Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli,
andlát og jarðarfarir í smáletursdálkinn hér að
ofan má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is eða
hringja í síma 550 5000.
AFMÆLI
Örn Sigurðsson
arkitekt er 64 ára.
Jón Torfi Jónasson
prófessor er 59 ára.
Guðni Már Henn-
ingsson er 54 ára.
Helgi Hjörvar alþing-
ismaður er 39 ára.
JARÐARFARIR
13.00 Fanney Sigurðardóttir,
áður til heimilis í Írabakka
4, verður jarðsungin frá
Lágafellskirkju.
13.00 Freddy Laustsen húsa-
smiður, hjúkrunarheimilinu
Eir, áður til heimilis í Furu-
gerði 1, verður jarðsunginn
frá Grensáskirkju.
13.00 Jóhannes R. Snorrason
fyrrverandi yfirflugstjóri,
Espigerði 4, Reykjavík,
verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju.
13.00 Margrét Einarsdóttir,
Maddý, Barðastöðum 7,
verður jarðsungin frá Dóm-
kirkjunni í Reykjavík.
14.00 Bergur Vernharðsson,
Elliðavöllum 2, Keflavík,
verður jarðsunginn frá
Keflavíkurkirkju.
15.00 Helga Jóhannsdóttir verður
jarðsungin frá Dómkirkjunni
í Reykjavík.
15.00 Unnur Agnarsdóttir,
Sóltúni 5, Reykjavík, verður
jarðsungin frá Grafarvogs-
kirkju.
17.00 Guðmundur Kristján Finn-
bogason, Blöndubakka 5,
Reykjavík, verður jarðsung-
inn frá Garðakirkju.
MERKISATBURÐIR
1741 Ferming barna er lögboðin
hér á landi en hafði þó tíðk-
ast um aldir.
1880 Hornsteinn er lagður að
Alþingishúsinu við Austur-
völl í Reykjavík.
1934 Andrés önd tekur fyrstu
skref sín til frægðar þegar
hann birtist í mynd Disneys,
Litlu gulu hænunni.
1970 Hussein Jórdaníukonung-
ur sleppur naumlega frá
banatilræði.
1976 Benny Goodman, konungur
sveiflunnar, heldur tónleika
á Listahátíð.
1994 Síld af norsk-íslenska
stofninum veiðist innan
íslenskrar lögsögu í fyrsta
sinn í 26 ár.
2002 Serena Williams sigrar
systur sína Venus Williams
á Opna franska meistara-
mótinu í tennis.
CHARLES DICKENS (1812-
1870), LÉST ÞENNAN DAG.
„Ef vont fólk væri
ekki til væru engir
góðir lögfræðingar.“
Breski rithöfundurinn
Charles Dickens var þekktur
fyrir gott skopskyn.
MARGRÉT THATCHER
ÞETTA GERÐIST: 9. JÚNÍ 1983
Sigur Margrétar Thatcher
Heimssamtök kvikmyndaréttarhafa,
MPA, hafa tilnefnt Hallgrím Kristinsson
framkvæmdastjóra og svæðisstjóra yfir
baráttunni gegn ólöglegri dreifingu
myndefnis í Evrópu, Mið-Austurlöndum
og Afríku. Hallgrímur, sem hefur gegnt
starfi framkvæmdastjóra Smáís, Sam-
taka myndréttarhafa á Íslandi, er að
vonum ánægður með nýja starfið enda
eru samtökin gríðarlega stór og miklir
hagsmunir í húfi.
„Þetta er mikil áskorun og maður
þarf að nýta alla sína reynslu í þetta,“
segir Hallgrímur sem hefur unnið í
afþreyingargeiranum nánast alla sína
tíð. Hann verður mikið á ferð og flugi í
nýju starfi enda eru höfuðstöðvar MPA í
Los Angeles í Bandaríkjunum og svæð-
isskrifstofan í Brussel. „Ef maður er
ekki skipulagður er lífsins ómögulegt að
halda utan um allt saman,“ bætir hann
við hlæjandi.
MPA er skammstöfun á Motion Pict-
ure Assosiation og eru það hagsmuna-
samtök sem sex stærstu kvikmynda-
framleiðendur í heiminum standa að.
„Samtökin sem slík standa vörð um
hagsmuni framleiðendanna á alþjóða-
vísu. Mitt hlutverk verður því að verja
Hollywood-fyrirtækin gegn ólöglegri
dreifingu í Evrópu, Mið-Austurlöndum
og Afríku, en við erum auðvitað líka að
verja hagsmuni minni fyrirtækja á inn-
lendum markaði því þetta helst allt í
hendur.“
Svæðisskrifstofan nær yfir þrjár
ólíkar heimsálfur og segir Hallgrímur
að töluverður munur sé á því hvernig
ólöglegu dreifingunni er háttað. „Í Evr-
ópu fer þetta í gegn um internetið en í
Austurlöndum og Afríku erum við enn
með miklu meira af beinni framleiðslu
og sölu á fölsuðum diskum, til dæmis á
mörkuðum. Áhersla stúdíóanna er þó á
internetinu því um leið og bandbreiddin
fer upp í þessum löndum eykst stuldur-
inn í gegnum netið, eins og við sáum ger-
ast heima á Íslandi.“ Hann segir þó að
margt sé að gerast og spennandi tímar
fari brátt í hönd enda fleygi tækninni
fram og það vinnur með hagsmunum
framleiðendanna. „Hingað til höfum við
bara getað gripið til lagalegra aðgerða
ásamt fræðslu og kynningu, en núna
erum við að fá til dæmis nýjar afritunar-
varnir. Einnig eru að koma fram lögleg-
ar veitur á internetinu, eins og tónlistar-
iðnaðurinn hefur þekkt lengi, þar sem
hægt er að kaupa sjónvarpsþætti og
kvikmyndir á löglegan hátt.“
Gríðarlega miklir hagsmunir eru í
húfi fyrir kvikmyndafyrirtækin sem
tapa fleiri milljörðum íslenskra króna á
ári. „Í nýrri rannsókn kemur í ljós að tap
kvikmyndageirans er meira en margan
óraði fyrir. Talið er að tæpur helmingur-
inn af þessu sé vegna ólöglegrar fjölföld-
unar á internetinu og tæpur helmingur
er bein sala á diskum. Hlutinn þar á milli
er svo þegar fólk er að fjölfalda fyrir
vini sína og kunningja. Þetta eru svo
geigvænlegar upphæðir að erfitt er að
átta sig á því.“
HALLGRÍMUR KRISTINSSON: NÝR FRAMKVÆMDASTJÓRI MPA
Stendur vörð um hagsmun-
framleiðendanna í Hollywood
HALLGRÍMUR KRISTINSSON Í NÝJU STARFI Tap kvikmyndageirans vegna ólöglegrar dreifingar skiptir
hundruðum milljarða íslenskra króna. Hallgrímur tekur brátt við nýju starfi svæðisstjóra hjá MPA þar
sem hann fer fyrir baráttunni gegn ólöglegri dreifingu myndefnis í Evrópu, Mið-Austurlöndum og
Afríku. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
UPPSKERUTÍMINN ER KOMINN
Hveitiakrar í Suður-Kanada eru nú
tilbúnir fyrir uppskeru eftir þurrka
undanfarið. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Hátíð hafsins hefst á morg-
un á Miðbakka Reykjavík-
urhafnar og er þetta í sjö-
unda sinn sem hátíðin er
haldin. Atburðir hátíðar-
innar tengjast hafinu og
sjósókn en hún stendur í
tvo daga og er samsett úr
Hafnardegi og Sjómanna-
degi.
Mikið verður um dýrðir
á hátíðinni eins og vera ber.
Verður meðal annars hægt
að fara í siglingar, senda
flöskuskeyti, skoða ýmsa
furðufiska, læra að hnýta
sjómannahnúta og klappa
krabba. Sjómannalagahátíð
verður haldin á morgun í
Listasafni Reykjavíkur í
Hafnarhúsinu þar sem sjó-
mannahljómsveitir og fleiri
troða upp. Í fyrsta sinn
verður einnig boðið upp á
glæsilega fiskveislu sem
tíu veitingahús í miðborg-
inni taka þátt í. Bjóða þau
þriggja rétta matseðil með
fiski á hófstilltu verði.
Nánari upplýsingar um
dagskrá hátíðarinnar má
finna á heimasíðu Reykja-
víkurborgar.
Hátíðahöld við höfnina
VIÐ REYKJARVÍKURHÖFN Haldin er Hátíð hafsins í Reykjavík um helgina.
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
Bára Steindórsdóttir
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands 6.júní. Útförin fer
fram frá Selfosskirkju laugardaginn 10. júní kl. 13.30.
Jón Hallgrímsson
Guðbjörg Dóra Sverrisdóttir Magnús Baldur Bergsson
Steindór Sverrisson Hjördís Ásgeirsdóttir
Ríkharður Sverrisson Valgerður Hansdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Útför okkar elskaða
Páls Jónssonar
Hóli, Hvítársíðu,
fer fram frá Reykholtskirkju laugardaginn 10. júní
kl 11.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á
Krabbameinsfélag Borgarfjarðar.
Edda Magnúsdóttir
Jón Magnús Pálsson Hrafnhildur Hróarsdóttir
Finnbogi Pálsson Hrönn Vigfúsdóttir
Páll Bjarki Pálsson Eyrún Anna Sigurðardóttir
Erlendur Pálsson Guðrún Harpa Bjarnadóttir
Þorbjörg Pálsdóttir Ragnar Páll Bjarnason
barnabörn og barnabarnabörn.